Valgeir með tvö á korteri gegn Leicester Hinn 18 ára gamli HK-ingur Valgeir Valgeirsson hefur byrjað af krafti með varaliði Brentford og hann skoraði tvö mörk í sigri gegn U23-liði Leicester í Englandi í dag. Enski boltinn 3. nóvember 2020 15:16
„Myndi ekki einu sinni ráða Koeman sem búningastjóra“ Real Betis-hetjan Joaquín fer ekkert leynt með andúð sína á Ronald Koeman en hann lék undir stjórn Hollendingsins hjá Valencia. Fótbolti 3. nóvember 2020 15:01
Giggs í leyfi frá störfum sem landsliðsþjálfari eftir atvik næturinnar Ryan Giggs stýrir ekki velska landsliðinu í nóvemberglugganum eftir að hafa handtekinn fyrir heimilisofbeldi. Fótbolti 3. nóvember 2020 14:00
Bestu og efnilegustu leikmennirnir verða valdir þrátt fyrir óvenjulegt tímabil Þrátt fyrir endasleppt Íslandsmót verða bestu og efnilegustu leikmenn efstu deilda karla og kvenna verðlaunaðir eins og venjan er. Íslenski boltinn 3. nóvember 2020 13:31
9 dagar í Ungverjaleik: Yrði jafnsögulegt fyrir Ungverja og fyrir Íslendinga Ungverjar og Íslendingar spila hreinan úrslitaleik um sæti á EM og um leið geta knattspyrnulið beggja þjóða náð sögulegum árangri í knattspyrnusögu sinnar þjóðar. Fótbolti 3. nóvember 2020 12:31
Þorvaldur hættur með U19 landsliðið Knattspyrnuþjálfarinn Þorvaldur Örlygsson og KSÍ hafa komist að samkomulagi um að Þorvaldur hætti sem þjálfari U19-landsliðs karla. Íslenski boltinn 3. nóvember 2020 11:46
Liverpool með 55 fleiri stig en Man. United í stjóratíð Solskjær Liverpool hefur unnið tvöfalt fleiri sigra í ensku úrvalsdeildinni en Manchester United síðan að Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær settist í knattspyrnustjórastólinn á Old Trafford. Enski boltinn 3. nóvember 2020 11:01
Pochettino segist elska Tottenham Mauricio Pochettino er enn hlýtt til Tottenham þótt að honum hafi verið sagt upp störfum hjá félaginu fyrir ári síðan. Enski boltinn 3. nóvember 2020 10:30
Klopp talaði um marbletti Mo Salah á blaðamannafundi Jürgen Klopp hristi bara hausinn og kom sínum manni Mohamed Salah til varnar á blaðamannafundi í gær en egypski framherjinn var sakaður um dýfingar í síðasta deildarleik af stjóra mótherjanna. Enski boltinn 3. nóvember 2020 09:31
Gæti snúið aftur í landsliðið á fæðingarári tvíburanna: „Ekkert heyrt í Jóni Þór“ Guðbjörg Gunnarsdóttir gæti komið inn í íslenska landsliðið fyrir leikina um næstu mánaðamót sem ráða möguleikum Íslands á að komast á EM í Englandi. Hún er byrjuð að spila á ný eftir að hafa fætt tvíbura fyrir níu mánuðum. Fótbolti 3. nóvember 2020 09:00
Maradona fluttur á spítala Diego Maradona var fluttur á spítala, nokkrum dögum eftir að hann fagnaði 60 ára afmæli sínu. Fótbolti 3. nóvember 2020 08:01
Fótbolti 2040 Ísak Bergmann ætlar að klára glæstan ferilinn sem spilandi aðstoðarþjálfari heima á Skaganum. 37 ára gamall er kominn tími til að feta í fótspor pabba og afa og rífa liðið í gang. Enn er deilt um hvort hlaupabrautin eigi að víkja af Laugardalsvelli en það er þó búið að skipa starfshóp um nýjan þjóðarleikvang og því fullt tilefni til bjartsýni. Skoðun 3. nóvember 2020 08:01
Giggs handtekinn vegna gruns um að ráðast á kærustu sína Ryan Giggs er sakaður um að hafa ráðist á kærustu sína á heimili þeirra á sunnudaginn. Enski boltinn 3. nóvember 2020 07:30
„Markaðurinn á Íslandi er einhver lélegasti markaður í Evrópu og ég er ekki að tala um gæðin“ Bjarni Guðjónsson, aðstoðarþjálfari KR og fyrrum landsliðsmaður, hrífst ekki af íslenska leikmannamarkaðnum og segir hann einhvern lélegasta markað í Evrópu. Íslenski boltinn 3. nóvember 2020 07:01
Dagskráin í dag: Liverpool í Bergamo og Real þarf sigur Það er nóg um að vera á sportrásum Stöðvar 2 í dag en Meistaradeildin heldur áfram að rúlla – þriðju vikuna í röð. Sport 3. nóvember 2020 06:00
Meistararæða Þorsteins á Zoom hitti beint í mark Berglind Björg Þorvaldsdóttir var stödd á hótelherbergi með liði sínu Le Havre í Frakklandi er hún fékk skilaboðin um að hún væri Íslandsmeistari í knattspyrnu eftir að Íslandsmótin voru blásin af fyrir helgi. Íslenski boltinn 2. nóvember 2020 23:00
Bielsa ekki hrifinn af varnarleik Leeds og Rodgers sagði Pochettino að fara þjálfa Marcelo Bielsa, stjóri Leeds, var ekki hrifinn af varnarleik liðsins í 4-1 tapinu gegn Leicester á heimavelli í kvöld er liðin mættust í sjöundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 2. nóvember 2020 22:21
Leicester skoraði fjögur gegn Leeds og hoppaði upp í 2. sætið Leicester er í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir fyrstu sjö umferðirnar. Þeir náðu í þrjú stig á Elland Road í kvöld er liðið vann 4-1 útisigur á Leeds United. Enski boltinn 2. nóvember 2020 21:54
Ellefu leikmenn Ajax með kórónuveiruna Einungis sautján leikmenn verða í leikmannahópi Ajax er liðið mætir Midtjylland í Meistaradeild Evrópu á morgun en kórónuveiran hefur haft áhrif á val leikmannahópsins. Fótbolti 2. nóvember 2020 21:00
Segir að Ísak sé bestur í Norrköping Bjarni Guðjónsson, fyrrum landsliðsmaður og nú aðstoðarþjálfari KR, hrósaði bróðursyni sínum, Ísaki Bergmanni Jóhannessyni, í hástert í útvarpsþættinum Fótbolti.net um helgina. Fótbolti 2. nóvember 2020 20:31
UEFA íhugar að spila EM í einu landi og Rússarnir eru taldir líklegastir UEFA skoðar nú allar sviðsmyndir fyrir Evrópumótið næsta sumar. Upphaflega átti mótið að fara fram í ár, 2020, í tólf löndum en nú íhugar UEFA að spila mótið í einu landi. Fótbolti 2. nóvember 2020 20:00
Fyrsti sigur Fulham en vandræði WBA halda áfram Það var nýliðaslagur á Cravan Cottage í kvöld er Fulham og WBA mættust en þessi lið komu upp úr ensku B-deildinni á síðustu leiktíð. Fulham vann 2-0 sigur. Enski boltinn 2. nóvember 2020 19:28
FCK vill fá fyrrum leikmann FH sem aðstoðarþjálfara Það hefur mikið gengið á hjá danska stórliðinu FCK undanfarnar vikur. Í dag fengu Ragnar Sigurðsson og samherjar hans nýjan þjálfara er Jess Thorup var ráðinn. Fótbolti 2. nóvember 2020 19:00
Jósef Kristinn hættur Jósef Kristinn Jósefsson er hættur knattspyrnuiðkun. Þetta kom fram á Fésbókarsíðu Stjörnunnar í dag. Íslenski boltinn 2. nóvember 2020 18:24
„Upplifun okkar var sú að það væri ekki mikil ákefð í að hjálpa okkur“ Bjarni Guðjónsson, aðstoðarþjálfari KR, segir að KR-ingum hafi ekki fundist öll ákefðin hafi verið sett í að hjálpa þeim eftir Evrópuævintýrið í sumar. Íslenski boltinn 2. nóvember 2020 17:45
Lagerbäck vonsvikinn vegna „amatöranna“ Lars Lagerbäck, þjálfari norska landsliðsins í fótbolta, harmar það að einhver eða einhverjir í norska hópnum skuli hafa lekið því í fjölmiðla hvað gekk á í síðasta landsliðsverkefni. Fótbolti 2. nóvember 2020 16:31
Gærdagurinn ekki alslæmur fyrir Solskjær-fjölskylduna Sonur Ole Gunnars Solskjær lék sinn fyrsta leik fyrir Kristiansund í norsku úrvalsdeildinni, skömmu eftir að lið föður hans tapaði fyrir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni. Fótbolti 2. nóvember 2020 15:31
Nýr þjálfari Ragnars skildi gamla vinnuveitendur eftir furðu lostna Landsliðsmaðurinn Ragnar Sigurðsson er kominn með nýjan þjálfara hjá danska knattspyrnuliðinu FC Kaupmannahöfn. Þjálfarinn skildi sína gömlu vinnuveitendur eftir gapandi af undrun. Fótbolti 2. nóvember 2020 15:00
'69 kynslóðin hjá KR unnið níu af síðustu þrettán Íslandsmeistaratitlum Þeir Heimir Guðjónsson og Rúnar Kristinsson hafa unnið níu af síðustu þrettán Íslandsmeistaratitlum í karlaflokki í fótbolta. Íslenski boltinn 2. nóvember 2020 14:31
Liverpool í toppsæti lista sem sæmir varla toppliði deildarinnar Það kemur kannski ekki á óvart að Liverpool sé í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar nema þegar menn skoða listann yfir mörk fengin á sig. Enski boltinn 2. nóvember 2020 13:31