Sjáðu mörkin sem gerðu Ronaldo að markahæsta leikmanni lokakeppni EM frá upphafi Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Portúgals gegn Ungverjalandi og er nú markahæsti leikmaður í sögu lokakeppni EM frá upphafi. Fyrir leikinn hafði Ronaldo skorað níu mörk á lokakeppni líkt og hinn franski Michel Platini. Fótbolti 15. júní 2021 19:30
Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Írland 2-0 | Tvö mörk í síðari hálfleik tryggðu sigurinn Íslenska kvennalandsliðið mætti því írska á Laugardalsvelli í annað sinn á fjórum dögum. Íslenska liðið hélt hreinu og lauk leiknum 2-0 Íslandi í vil þar sem þær Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir gerðu mörk Íslenska liðsins. Fótbolti 15. júní 2021 18:55
Evrópumeistararnir byrja á sigri Cristiano Ronaldo og félagar í Portúgal byrja Evrópumótið með 3-0 sigri á Ungverjalandi. Liðin eru í dauðariðlinum, F-riðli, ásamt heimsmeisturum Frakka og Þjóðverjum. Fótbolti 15. júní 2021 17:55
Þjálfari Dana: Hægt að fresta leikjum um 48 tíma vegna smits en ekki hjartastopps Kasper Hjulmand, þjálfari danska landsliðsins í knattspyrnu, sendi forráðamönnum Evrópumótsins væna pillu eftir að danska liðið þurfti að spila tveimur tímum eftir að leik liðsins var frestað í kjölfar þess að Christian Eriksen fór í hjartastopp í miðjum leik. Fótbolti 15. júní 2021 17:31
Reyndi að leiða hjá sér haturspóstana sem beindust líka gegn börnunum Sænska knattspyrnusambandið hefur sett sig í samband við lögregluna vegna fjölda hatursfullra skilaboða sem Marcus Berg fékk send eftir að hafa klúðrað færi í leiknum við Spán á Evrópumótinu í gærkvöld. Fótbolti 15. júní 2021 17:00
Stjarnan fær annan Dana Danski sóknarmaðurinn Oliver Haurits hefur samið við knattspyrnudeild Stjörnunnar og mun geta spilað með liðinu seinni hluta leiktíðar. Íslenski boltinn 15. júní 2021 15:57
Sveindís byrjar, Cecilía er í markinu og Hafrún í bakverðinum: Fimm breytingar Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, gerir fimm breytingar á byrjunarliðinu sínu fyrir seinni vináttulandsleikinn á móti Írlandi sem fer eins og sá fyrri fram á Laugardalsvellinum. Þrír kornungir leikmenn fá tækifærið í dag. Fótbolti 15. júní 2021 15:53
Hafnaði Spáni og varð heimsmeistari en mun aldrei skilja af hverju pabbi fór Dýrasti leikmaður sem Bayern München hefur nokkru sinni fest kaup á er varnarmaðurinn Lucas Hernandez. Antoine Griezmann fékk hann til að spila með franska landsliðinu og saman urðu þeir heimsmeistarar árið 2018. Fótbolti 15. júní 2021 14:31
Konan sem tók myndskeiðið hafði ekki hugmynd um að þar færi Eiður Smári Guðjohnsen Staða Eiðs Smára Guðjohnsen hjá KSÍ, sem aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, er í óvissu eftir að myndband birtist af fótboltakappanum þar sem hann undir áhrifum kastaði þvagi á gamla Hallærisplaninu fyrir allra augum. Fótbolti 15. júní 2021 14:13
Ronaldo fjarlægði kókið og hvatti fólk til að drekka vatn Cristiano Ronaldo var ekki hrifinn af því að sjá tvær kókflöskur á borðinu fyrir framan sig þegar hann settist niður til að svara spurningum á blaðamannafundi Portúgals á EM í gær. Fótbolti 15. júní 2021 13:00
FH-ingar og Stjörnumenn fara til Írlands en Blikar til Lúxemborgar Þrjú íslensk lið voru í pottinum þegar dregið var í 1. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu (Europa Conference League) í dag. FH og Stjarnan mæta írskum liðum á meðan Breiðablik mætir liði frá Lúxemborg. Fótbolti 15. júní 2021 12:22
Heiðruðu minningu Maradona með mikilli ljósasýningu í nótt Suðurameríkukeppnin í fótbolta, Copa America, er farin af stað og í nótt spilaði Argentína sinn fyrsta leik í keppninni. Fótbolti 15. júní 2021 11:30
„Ofboðslega gaman að sjá tvo menn með stórt hjarta takast á“ Kjartan Henry Finnbogason var á skotskónum með KR-ingum í sigri á Leikni í Pepsi Max deild karla í gærkvöldi en einvígi hans og Leiknismannsins Brynjars Hlöðverssonar var líka til umræðu í Pepsi Max stúkunni eftir leik. Íslenski boltinn 15. júní 2021 11:01
Tékkar og Slóvakar áttu gærdaginn á EM og hér er markasyrpa dagsins Tékkar og Slóvakar hafa unnið Evrópumeistaratitil saman undir merkjum Tékkóslóvakíu en í gær fögnuðu báðar þjóðirnar sigri á Evrópumótinu í knattspyrnu. Fótbolti 15. júní 2021 10:31
Valsmenn gátu ekki fengið erfiðari andstæðing Íslandsmeistarar Vals mæta Dinamo Zagreb í 1. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Dregið var í dag. Fótbolti 15. júní 2021 10:27
Dean Henderson dregur sig út úr enska EM-hópnum Dean Henderson, markvörður Manchester United, hefur dregið sig út úr enska landsliðshópnum. Henderson glímir við meiðsli í mjöðm og getur ekki æft. Fótbolti 15. júní 2021 09:40
Bjóst ekki við að ná þessu í dag eftir að hafa slitið krossband þrisvar Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir spilar sinn 80. A-landsleik á Laugardalsvelli í dag þegar Ísland leikur seinni vináttulandsleik sinn við Írland. Fótbolti 15. júní 2021 09:31
„Kraftaverkabræður“ frá mikið hrós fyrir að bjarga lífi Christian Eriksen Læknarnir, sem hlupu inn á völlinn og lífguðu við Christian Eriksen, eru bræður. Þeir fá mikið hrós frá dönsku landsliðsmönnunum. Fótbolti 15. júní 2021 09:01
Sjáðu Kjartan Henry stela marki af liðsfélaga sínum KR sótti þrjú stig í Efra-Breiðholtið í gær en 2-0 sigur liðsins á Leikni kom Vesturbæingum upp í fimmta sæti Pepsi Max deildar karla og upp fyrir Leiknismenn. Íslenski boltinn 15. júní 2021 08:30
Eriksen brosandi og þakklátur í nýrri kveðju Danski landsliðsmaðurinn Christian Eriksen er enn á sjúkrahúsi að jafna sig eftir að hafa verið lífgaður við á fótboltavellinum á laugardaginn var. Hann vildi þakka öllum fyrir stuðninginn og sendi frá sér mynd og kveðju á samfélagsmiðlum. Fótbolti 15. júní 2021 08:01
Vill að allir fótboltamenn fari á skyndihjálparnámskeið eftir atburði helgarinnar Gabriele Gravina, forseti ítalska knattspyrnusambandsins, vill að allir leikmenn, atvinnu- og áhugamenn, fari á skyndihjálparnámskeið eftir atvikið hræðilega á Parken. Fótbolti 15. júní 2021 07:00
Aukaspyrnumark Messi dugði ekki til Argentína og Síle gerðu 1-1 jafntefli í Suður-Ameríkukeppninni er liðin mættust í A-riðlinum í kvöld. Fótbolti 14. júní 2021 23:00
Rúnar: Við ætluðum ekki að hleypa þeim inn í leikinn Rúnar Kristinsson, þjálfari KR var að vonum sáttur með sína menn eftir 2-0 sigur á Leikni fyrr í kvöld. Íslenski boltinn 14. júní 2021 22:04
Sjáðu dauðafæri Berg fyrir nánast opnu marki Spánn og Svíþjóð gerðu markalaust jafntefli á EM 2020 í kvöld en það vantaði ekki færin í leikinn. Fótbolti 14. júní 2021 22:01
Umfjöllun og viðtöl: Leiknir - KR 0-2 | KR-ingar fyrstir til að sækja þrjú stig í Breiðholtið KR-ingar heimsóttu Leiknismenn í Breiðholtið fyrr í kvöld og unnu þar sannfærandi 2-0 sigur gegn nýliðunum þar sem Pálmi Rafn Pálmason og Kjartan Henry Finnbogason skoruðu sitt hvort markið. Íslenski boltinn 14. júní 2021 21:11
Fyrsta markalausa jafnteflið kom í Andalúsíu Spánn og Svíþjóð gerðu markalaust jafntefli er liðin mættust í E-riðlinum á Evrópumótinu í knattspyrnu en þetta var fyrsta markalausa jafnteflið á mótinu í ár. Fótbolti 14. júní 2021 20:57
Barcelona vill U21-landsliðsþjálfara Dana Barcelona hefur verið sett sig í samband við U21-árs landsliðsþjálfara, Albert Capellas, um að taka að sér starf innan veggja félagsins. Spænskir fjölmiðlar greina frá. Fótbolti 14. júní 2021 20:30
Dramatík í Eyjum ÍBV vann dramatískan 2-1 sigur á Þór en liðin mættust í 6. umferð Lengjudeildar karla í Vestmannaeyjum í kvöld. Íslenski boltinn 14. júní 2021 19:51
Skoraði með stórskemmtilegu fjögurra klobba skoti Takefusa Kubo skoraði skemmtilegt mark með japanska 24 ára landsliðinu um helgina og hefur fengið fyrir talsverða athygli í netheimum. Fótbolti 14. júní 2021 19:31
Margrét og Arnar ósammála dómaranum: „Hann er ekki að skapa neina hættu“ Margrét Lára Viðarsdóttir og Arnar Sveinn Geirsson voru ekki sammála rauða spjaldinu sem hinn pólski Grzegorz Krychowiak fékk í leik Póllands og Slóvakíu. Fótbolti 14. júní 2021 19:00