Ungir iðkendur í áfalli og segist skynja viðhorfsbreytingu Erfitt hefur reynst að vinna gegn eitraðri menningu sem er rótgróin innan íþrótta karla. Umræða síðustu daga mun þó vonandi flýta fyrir breytingu þar á. Þetta segir Daði Rafnsson, fagstjóri Afrekssviðs Menntaskólans í Kópavogi, yfirmaður knattspyrnuþróunnar í HK og doktorsnemi í sálfræði við Háskólann í Reykjavík. Fótbolti 2. september 2021 10:00
Segir Dani þurfa að venjast því að spila á Parken eftir allt sem hefur gengið á Danmörk vann Skotland 2-0 á Parken í Kaupmannahöfn er þjóðirnar mættust í undankeppni HM. Mörkin tvö komu á 92 sekúndna kafla snemma í fyrri hálfleik. Simon Kjær sagði það kærkomið að snúa aftur á heimavöll þar sem Danir hafa upplifað margt og mikið á undanförnum mánuðum. Fótbolti 2. september 2021 08:31
Líklegt byrjunarlið Íslands: Hannes Þór milli stanganna, Kári fyrirliði og Albert fremstur Ísland mætir Rúmeníu í undankeppni HM 2022 á Laugardalsvelli í dag. Hér að neðan má sjá líklegt byrjunarlið Íslands í leiknum. Fótbolti 2. september 2021 08:00
Bras, brandari eða björt framtíð í Barcelona? Skipti Frakkans Antoine Griezmann til fyrra félags síns Atlético Madrid frá Barcelona sýnir fram slæmt ástand síðarnefnda félagsins. Lokadagur félagsskiptagluggans í gær einkenndist af ringulreið og neyðarútsölu hjá félaginu. Fótbolti 1. september 2021 23:30
Hættir eftir tímabilið Sigurbjörn Hreiðarsson mun ekki halda þjálfun Grindavíkur áfram þegar yfirstandandi leiktíð lýkur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í kvöld. Fótbolti 1. september 2021 23:01
Ronaldo markahæsti landsliðsmaður sögunnar Cristiano Ronaldo varð í kvöld markahæsti landsliðsmaður karla í fótbolta í sögunni. Tvö mörk hans fyrir Portúgal í 2-1 sigri á Írlandi komu honum efst á þann lista. Fótbolti 1. september 2021 22:00
„Ég styð þolendur, alltaf allsstaðar“ Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, segir að síðustu dagar hafi verið henni erfiðir. Enginn eigi að efast að hún standi ávallt við bakið á þolendum ofbeldis. Innlent 1. september 2021 21:37
Lyon í fínni stöðu í Meistaradeildinni Lyon, lið landsliðsfyrirliðans Söru Bjarkar Gunnarsdóttur, vann 2-1 sigur á Levante frá Spáni í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta á Spáni í kvöld. Liðin mætast að nýju í Frakklandi eftir viku. Fótbolti 1. september 2021 21:31
Ronaldo klúðraði víti en var samt hetjan | Frakkar misstigu sig Cristiano Ronaldo skoraði sigurmark Portúgal gegn Írum á sjöttu mínútu uppbótartíma leiks liðanna í forkeppni HM karla í Katar 2022 í kvöld. Hann hafði jafnað leikinn á 89. mínútu. Fótbolti 1. september 2021 21:02
Mark Hålands ekki nóg gegn Hollandi Noregur og Holland skildu jöfn 1-1 á Ullevaal-leikvanginum í Osló í undankeppni HM karla í fótbolta í kvöld. Bæði lið elta Tyrki í riðlinum. Fótbolti 1. september 2021 20:50
Danir kláruðu Skota snemma á Parken Danmörk vann 2-0 sigur á Skotum í F-riðli í forkeppni HM karla í fótbolta í kvöld. Færeyingar töpuðu stórt í sama riðli. Fótbolti 1. september 2021 20:40
Kári: Þetta er svolítið öfgafullt Kári Árnason, landsliðsmaður Íslands í fótbolta og leikmaður Víkings frá Reykjavík, segir strembið að koma inn í landsliðsverkefni við þær kringumstæður sem uppi eru. Bæði formaður og stjórn KSÍ hafa sagt af sér í vikunni vegna brota manna í landsliðinu. Fótbolti 1. september 2021 19:45
Vilhjálmur Kári: Við klárum þetta á heimavelli Vilhjálmur Kári Haraldsson, þjálfari Breiðabliks var sáttur með frammistöðuna sem lið hans sýndi í Króatíu í dag. Breiðablik gerði 1-1 jafntefli við Króatíumeistara Osijek í fyrri leik umspils um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 1. september 2021 19:16
Öruggt hjá Häcken í Íslendingaslagnum í Meistaradeildinni Svíþjóðarmeistarar Häcken unnu 3-1 útisigur á Noregsmeisturum Vålerenga í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í Osló í kvöld. Íslendingar mættust í leiknum. Fótbolti 1. september 2021 18:55
Umfjöllun: Osijek - Breiðablik 1-1 | Jafnt í Króatíu þrátt fyrir yfirburði Blika Breiðablik mætti NK Osijek frá Króatíu í forkeppni Meistaradeildar kvenna fyrr í dag og þrátt fyrir mikla yfirburði Blikaliðsins var niðurstaðan 1-1 jafntefli þar sem Selma Sól Magnúsdóttir skoraði mark Blika. Íslenski boltinn 1. september 2021 18:30
Svava og stöllur í ágætis stöðu þrátt fyrir tap Landsliðskonan Svava Rós Guðmundsdóttir spilaði síðustu 25 mínúturnar er lið hennar Bordeaux frá Frakklandi tapaði 3-2 fyrir þýska stórliðinu Wolfsburg í fyrri leik umspils um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Fótbolti 1. september 2021 18:00
United sækir um undanþágu fyrir Ronaldo Enska fótboltafélagið Manchester United hefur sótt um undanþágu til ensku úrvalsdeildarinnar svo stjarnan Cristiano Ronaldo, sem gekk í raðir félagsins í gær, geti borið sína frægu sjöu á bakinu. Enski boltinn 1. september 2021 17:31
Chelsea kært vegna hegðunar leikmanna gegn Liverpool Enska knattspyrnusambandið hefur kært Chelsea vegna hegðunar leikmanna í 1-1 jafnteflinu við Liverpool um liðna helgi. Enski boltinn 1. september 2021 16:45
Við það að fá taugaáfall í fangelsinu Benjamin Mendy, leikmaður Manchester City, er við það að fá taugaáfall í HMP Altcourse-fangelsinu. Þar bíður hann dóms eftir að hafa verið ákærður fyrir fjölda kynferðisbrota. Enski boltinn 1. september 2021 16:02
Lecce vill fá Davíð Snæ frá Keflavík Ítalska B-deildarliðið Lecce heldur áfram að sækjast í íslenska knattspyrnumenn en nú síðast var Davíð Snær Jóhannsson orðaður við félagið. Íslenski boltinn 1. september 2021 15:30
Reynsluboltarnir úr Pepsi Max deildinni Eftir erfiða byrjun Íslands í undankeppni HM 2022 í fótbolta er ljóst að Ísland er með bakið upp við vegg innanvallar jafnt sem utan vegna þeirra ofbeldis- og kynferðisbrotamála sem hafa litið dagsins ljós á undanförnum dögum og vikum. Fótbolti 1. september 2021 15:01
Håland enn í áformum Man United þrátt fyrir komu Ronaldo Endurkoma Cristiano Ronaldo til Manchester United hefur ekki breytt áformum félagsins varðandi kaup á Erling Braut Håland sumarið 2022. Enski boltinn 1. september 2021 14:01
Kári lét sér fátt um finnast um útspil Tólfunnar Kári Árnason, aldursforseti fótboltalandsliðsins, segir að leikmenn liðsins verði að einbeita sér að fullum krafti að landsleiknum við Rúmeníu á morgun, þó að allir verði varir við umræðuna um liðið síðustu daga. Hann hafði lítið að segja um útspil Tólfunnar sem ætlar að þegja fyrstu ellefu mínútur leiksins. Fótbolti 1. september 2021 13:36
Erfitt að snerta á þessu án þess að henda einhverjum undir lestina Reynsluboltinn Kári Árnason sat fyrir svörum á blaðamannafundi KSÍ í dag ásamt Arnari Þór Viðarssyni landsliðsþjálfara. Kári var meðal annars spurður út í þá ákvörðun stjórnar KSÍ að taka leikmann úr hópnum. Fótbolti 1. september 2021 13:16
Arnar: Treystum á að þeir eldri haldi utan um þá yngri Landsliðsþjálfarar Íslands, Arnar Þór Viðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen, ræddu við reynsluboltana í íslenska landsliðinu í gær en þeirra hlutverk er sérstakt í komandi verkefni vegna stormsins sem nú gengur yfir Laugardalinn. Fótbolti 1. september 2021 13:00
Klara Bjartmarz farin í leyfi Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands, er farin í leyfi frá störfum. Þetta staðfestir Óskar Örn Guðbrandsson á samskiptadeild KSÍ í samtali við fréttastofu. Hann vísaði á fulltrúa stjórnar varðandi nánari upplýsingar. Sport 1. september 2021 12:53
Svona var blaðamannafundur KSÍ Vísir var með beina sjónvarpsútsendingu og textalýsingu frá blaðamannafundi KSÍ. Fundurinn hófst klukkan 12:45. Fótbolti 1. september 2021 12:33
Rúnar Páll tekinn við Fylki Knattspyrnudeild Fylkis hefur samið við Rúnar Pál Sigmundsson um að taka við þjálfun karlaliðs félagsins. Íslenski boltinn 1. september 2021 12:32
Ísak kostaði FCK rúmar 700 milljónir og ÍA græðir á tá og fingri Talið er að FC Kaupmannahöfn hafi greitt rúmlega 730 milljónir íslenskra króna fyrir hinn 18 ára gamla Ísak Bergmann Jóhannesson. Kemur þetta fram á vef Sportbladet í Svíþjóð en FCK keypti Ísak Bergmann frá IFK Norrköping. ÍA gæti fengið vel á annað hundrað milljóna króna í sinn hlut. Fótbolti 1. september 2021 12:00
Styrkja baráttuna gegn kynferðisofbeldi og vilja að Kolbeinn sýni iðrun „Við gerum okkur grein fyrir því að margir telja leikmanninn ekki lengur verðskulda að spila fyrir IFK Gautaborg,“ segir í yfirlýsingu stuðningsmannaklúbbs IFK Gautaborgar vegna máls Kolbeins Sigþórssonar. Stuðningsmennirnir hafa ákveðið að styrkja samtök sem berjast gegn kynferðisofbeldi. Fótbolti 1. september 2021 11:30