

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

Van Dijk tekur fulla ábyrgð á skrípamarkinu í gær
Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, tók á sig sökina vegna marksins sem Gabriel Martinelli skoraði fyrir Arsenal á móti Liverpool í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar í gær.

„Liverpool var eins og pöbbalið“
Roy Keane, fyrrum fyrirliði Manchester United og nú sérfræðingur Sky Sports, sparaði ekki yfirlýsingar sínar þegar hann var að lýsa frammistöðu Liverpool í 3-1 tapi á móti Arsenal í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar í gær.

„Við erum komnir aftur, það er alveg ljóst“
Arsenal vann gríðarlega mikilvægan sigur á Liverpool í toppbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni í dag og opnaði titilbaráttunni upp á gátt en tvö stig skilja nú Liverpool og Arsenal að.

Arsenal tók Liverpool í kennslustund
Arsenal nældi í mikilvæg þrjú stig gegn toppliði Liverpool á Emirates leikvanginum í dag. Fyrir leikinn hafði Liverpool leikið fimmtán leiki í röð án þess að tapa.

Ten Hag: Meiðsli Martinez líta ekki vel út
Manchester United fór létt með West Ham á Old Trafford í dag þar sem lokatölur voru 3-0 en meiðsli Lisandro Martinez gætu skyggt aðeins á gleði stuðningsmanna liðsins.

Cunha með þrennu á Stamford Bridge
Matheus Cunha gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu á Stamford Bridge gegn lánlausu liði Chelsea sem tapaði 4-1 annan leikinn í röð.

Hojlund skoraði þriðja deildarleikinn í röð í sigri
Rasmus Hojlund skoraði þriðja deildarleikinn í röð er Manchester United hafði betur gegn West Ham á Old Trafford.

„Þetta er liðsíþrótt, ekki tennis“
Mauricio Pochettino, þjálfari Chelsea, var spurður út í Mykhailo Mudryk, á fréttamannafundi sínum fyrir leik liðsins gegn Wolves um helgina.

„Hef aldrei séð hann gefast upp“
Erik Ten Hag, þjálfari Manchester United, segir að hann sjái miklar bætingar á Rasmus Hojlund, framherja liðsins.

Sean Dyche í bann
Sean Dyche, þjálfari Everton, er kominn í bann eftir leik liðsins gegn Tottenham í gær.

Arteta: Við verðum að vera við
Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, segir að hann og leikmenn hans verði að vera þeir sjálfir ætli þeir sér að ná góðum úrslitum gegn Liverpool í dag.

Dagskráin í dag: Stórleikur í Seríu A
Íþróttirnar halda áfram göngu sinni á þessum frábæra sunnudegi og ættu því allir að finna eitthvað fyrir sig á sportrásum Stöðvar 2.

Faðir Conor Bradley lést í dag
Faðir nýjustu hetju Liverpool, Conor Bradley, lést í dag en félagið greindi frá því á Instagram.

Aston Villa aftur í fjórða sætið eftir stórsigur
Aston Villa komst aftur í fjórða sætið eftir stórsigur á Sheffield United.

Postecoglou: Verðum að sætta okkur við niðurstöðuna
Ange Postecoglou, þjálfari Tottenham, var að vonum svekktur eftir að liðið hans fékk á sig jöfnunarmark í uppbótartíma gegn Everton í dag.

Newcastle og Luton skildu jöfn í markaleik
Þrír leikir hófust klukkan 15:00 í enska boltanum en þeim var að ljúka en skemmtilegasti leikurinn fór fram á St. James Park þar sem voru skoruð átta mörk.

Everton bjargaði mikilvægu stigi
Tottenham gat blandað sér toppbaráttuna í ensku úrvalsdeildinni með sigri á Everton sem er í bullandi fallbaráttu en liðin enduðu á að skipta stigunum á milli sín.

Richarlison hætti snarlega við að fagna gegn sínum gömlu félögum
Brasilíski framherjinn Richarlison hefur snögghitnað fyrir framan markið í síðustu leikjum eftir langa markaþurrð og kom Tottenham á bragðið á fjórðu mínútu gegn Everton en liðin eigast við á Goodison Park.

Fellaini leggur skóna á hilluna
Hinn 36 ára Marouane Fellaini hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna, en þessi fyrrum leikmaður Manchester United og Everton hefur leikið í Kína síðan 2019.

Jessie Lingard til FC Seoul ef allt gengur upp
Félagaskipti Jessie Lingard til S-Kóreu virðast vera að ganga í gegn. Leikmaðurinn er með tilboð á borðinu frá FC Seoul og gildir samningurinn til tveggja ára.

Valdi Tottenham fram yfir Barcelona
Tottenham tilkynnti formlega um félagaskipti Lucas Bergvall í gærkvöldi eftir að leikmaðurinn gekkst undir læknisskoðun hjá liðinu. Bergvall fagnaði því bæði félagaskiptum í gær sem og 18 ára afmæli sínu.

Blæs á sögusagnir um að Haaland sé óánægður hjá City
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Manchester City, segir ekkert til í þeim sögusögnum að Norðmaðurinn Erling Braut Haaland sé óánægður hjá félaginu.

Höjlund sló met sem Ronaldo átti
Danski framherjinn Rasmus Höjlund bætti í gær met hjá Manchester United sem áður var í eigu Cristiano Ronaldo.

Mætti of seint á fund þar sem átti að reka hann fyrir óstundvísi
Enski fótboltamaðurinn Djed Spence virðist vera óstundvísasti maður sem sögur fara af. Það sannaðist í þessum mánuði.

Alveg sama um hvaða liði kaupandi Arsenal-hússins haldi með
Frægt blátt hús við Aðalstræti 5 á Akureyri, sem hefur gjarnan verið kennt við enska fótboltaliðið Arsenal, er komið á sölu. Eignin er fjögurra herbergja sérhæð í steyptu tvíbýli og tæplega fimmtíu milljóna verðmiði er settur á það.

Segir að Mainoo minni sig á Seedorf
Maður gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni var hinn átján ára Kobbie Mainoo, átján ára leikmaður Manchester United. Fyrrverandi leikmaður liðsins líkti honum við mikla hetju eftir sigurinn á Wolves.

Sá sem talað var um í klefa Man. Utd: „Eins og að mig sé að dreyma“
Rasmus Höjlund segir það hafa verið mál manna í búningsklefa Manchester United síðasta sumar að í hópnum væri einstakt hæfileikabúnt, Kobbie Mainoo. Sá síðarnefndi átti í gær kvöld sem var draumi líkast.

Ensku liðin ekki eytt jafn litlu síðan á farsóttartímabilinu
Lið í stærstu deildum Evrópu voru heldur róleg í tíðinni á síðasta degi félagsskiptagluggans í gær. Raunar hafa lið í ensku úrvalsdeildinni ekki eytt jafn litlu í janúarglugganum síðan árið 2021 þegar kórónuveirufaraldurinn geisaði yfir.

Mainoo hetja Manchester United
Manchester United vann dramatískan 3-4 sigur er liðið heimsótti Wolves í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

West Ham og Bournemouth skiptu stigunum á milli sín
West Ham og Bournemouth gerðu 1-1 jafntefli er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.