Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin

Andri Broddason skrifar
Vitinha fagnar frábæru marki sínu í kvöld en hann kom PSG í 3-2 á 81. mínútu.
Vitinha fagnar frábæru marki sínu í kvöld en hann kom PSG í 3-2 á 81. mínútu. EPA/MOHAMMED BADRA

Evrópumeistarar Paris Saint-Germain unnu 4-2 sigur á Barcelona í stórleik kvöldsins í Meistaradeildinni í fótbolta en franska liðið varð þar með það fyrsta til að vinna Börsunga á þessari leiktíð.

Það voru miklar væntingar gerðar til leiksins og útkoman var flottur sex marka fótboltaleikur.

Désiré Doué kom PSG í 1-0 á 38. mínútu og lagði síðan upp mark fyrir Lucas Hernández sem kom PSG aftur í forystu á 72. mínútu.

Bakvörðurinn Xavi Espart jafnaði í 1-1 á 55. mínútu eftir stoðsendingu Fermín López og flestir héldu að Barcelona væri að fá eitthvað út úr leiknum þegar Lamine Yamal jafnaði metin í 2-2 á 79. mínútu eftir laglegt einstaklingsframtak.

Frakkarnir áttu hins vegar lokaorðið og tryggðu sér sigur með tveimur mörkum á síðustu tíu mínútum leiksins.

Það fyrra skoraði Vítinha með þrumuskoti á 81. mínútu og það síðara Fabián Ruiz eftir undirbúning Achraf Hakimi á 86. mínútu.

Það var dýrkeypt kvöld fyrir PSG en Ousmane Dembélé fór af velli áður en fyrri hálfleikur var hálfnaður. Það var þó aðeins forsmekkurinn að þjáningunum, því skömmu áður en klukkutími var liðinn af leiknum þurfti að skipta bæði Khvicha Kvaratskhelia og fyrirliðanum Marquinhos af velli. Sá fyrrnefndi þurfti aðstoð við að komast af velli.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira