Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Iceland Express segir sig úr Samtökum ferðaþjónustunnar Iceland Express sagði sig í dag úr Samtökum ferðaþjónustunnar og verkefninu Ísland allt árið í mótmælaskyni. Félagið sakar aðalkeppinautinn, Icelandair, um óeðlileg ítök og áhrif á verkefnið. 11.7.2012 19:00
Fimm manna hópur kaupir Keahótelin Fimm manna hópur hefur keypt allt hlutafé í móðurfélagi Keahótela, sem reka fimm hótel á Norðurlandi og í Reykjavík. um er að ræða Hótel Kea á Akureyri og Hótel Borg í Reykjavík og enn fremur Hótel Norðurland á Akureyri, Hótel Gíg við Mývatn og Hótel Björk í Reykjavík. 11.7.2012 16:22
Hermann fær fyrsta almennilega sumarfríið í 18 ár Hermann Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri N1, vissi ekki að til stæði að segja honum upp. Hann fékk uppsagnabréf í morgun. "Það leið ekkert yfir mig," segir hann. "Þetta er bara eitthvað sem allir forstjórar þurfa að búa við. Það eru nýlega búnar að eiga sér stað eignabreytingar í félaginu og þá er þetta alltaf hlutur sem getur fylgt í kjölfarið." 11.7.2012 13:11
Eggert hættir sem forstjóri HB Granda Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri HB Granda hf., hefur ákveðið að láta af störfum hjá HB Granda hf. 11.7.2012 11:19
Ríkisábyrgð á peningamarkaðssjóðum í samræmi við reglur EFTA Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur komist að þeirri niðurstöðu að ákvörðun þáverandi stjórnar Landsbankans, Glitnis og Kaupþings um kaup á verðbréfum af peningamarkaðssjóðum hafi ekki farið í bága við EES samninginn. Í tilkynningu frá ESA kemur fram að stofnunin líti svo á að ráðstafanirnar hafi verið nauðsynlegar til að endurbyggja traust á fjármálageiranum. Úrræðin hafi verið nauðsynleg og í samræmi við meðalhóf að því marki að vernda fjárfesta fyrir enn stærra tapi á sparifé sínu. 11.7.2012 13:46
Forstjóraskipti hjá N1 Hermann Guðmundsson hættir sem forstjóri N1 og við starfinu tekur Eggert Benedikt Guðmundsson fyrrverandi forstjóri útgerðarfyrirtækisins HB Granda. Þetta staðfestir Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarmaður N1. 11.7.2012 12:45
Hámarkslánsfjárhæð Íbúðalánasjóðs of lág Ástæðan fyrir því að markaðshlutdeild Íbúðalánasjóðs hefur minnkað um nær helming á einu ári er ekki sú að sjóðurinn býður ekki upp á óverðtryggð lán. Þetta segir Hallur Magnússon, fyrrverandi sviðsstjóri þróunardeildar sjóðsins. "Meginástæðan er að hámarkslánsfjárhæð hjá Íbúðalánasjóði er 20 milljónir," segir Hallur. Fjárhæðin hefur ekki hækkað frá því í júní 2008. 11.7.2012 11:09
Guðbjartur: Við þolum þetta "Við þolum ekki mikið meira," segir Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, um niðurskurð í heilbrigðiskerfinu. Í fréttum í morgun kom fram að niðurskurður í heilbrigðiskerfinu hér á landi var sá næst mesti í öllum OECD ríkjunum. 11.7.2012 10:17
Jón Sigurðsson kominn til GAMMA Jón Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri FL Group, hóf nýlega störf hjá ráðgjafafyrirtækinu GAMMA, samkvæmt frétt Morgunblaðsins í dag. Á vefsíðu GAMMA kemur fram að Jón hóf störf hjá Stoðum, sem áður hét FL Group, árið 2005. Hann byrjaði starfsferil sinn þar sem framkvæmdastjóri fjárfestingasviðs en síðar varð hann aðstoðarforstjóri og svo forstjóri. Síðustu tvö árin hefur Jón svo rekið eigið ráðgjafafyrirtæki. Á undanförnum árum hefur Jón setið í stjórnum margra fyrirtækja, þar á meðal Tryggingamiðstöðinni, Icelandair Group, Glitni og Refresco. 11.7.2012 09:41
OECD: Ísland og Írland skáru mest niður í heilbrigðismálum Írland og Ísland voru þau lönd innan OECD þar sem útgjöld til heilbrigðismála drógust mest saman árið 2010 eftir töluverðan árlegan vöxt frá aldamótum og fram til 2009. 11.7.2012 06:20
Óverðtryggð lán valda óvinsældum Íbúðalánasjóðs Ástæðan fyrir því að Íbúðalánasjóður hefur lánað um 45% færri lán í ár miðað við sama tíma í fyrra liggur aðallega í því að bankinn hefur ekki boðið upp á óverðtryggð lán. 10.7.2012 16:45
Íbúðalánasjóður lánar minna Íbúðalánasjóður hefur lánað mun minna til fasteignakaupa það sem af er ári en á sama tíma í fyrra, þrátt fyrir 20% meiri veltu á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu. 10.7.2012 12:53
Guðmundur í Nesi með 450 milljóna farm eftir eina veiðiferð Frystitogarinn Guðmundur í Nesi, sem er í eigu Brims, kom til hafnar seint í gærkvöldi með verðmætasta farm sem íslenskt fiskiskip hefur fengið í einni samfelldri veiðiferð til þessa. 10.7.2012 06:27
Leigusamningum fækkar milli ára Þinglýstum leigusamningum um íbúðarhúsnæði á landinu öllu fækkaði um rúm 4% í júní miðað við sama mánuð í fyrra. 10.7.2012 10:49
Vodafone senn skráð á markað Vodafone á Íslandi hefur samið við fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka um að vinna að undirbúningi skráningar Vodafone í Kauphöllina. Þá mun Íslandsbanki annast sölu á bréfum Framtakssjóðs Íslands í Vodafone en sjóðurinn er aðaleigandi fyrirtækisins í dag. 10.7.2012 07:15
Enn dregur úr lánum hjá Íbúðalánasjóði milli ára Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu tæpum 1,9 milljörðum króna í júní en þar af voru tæpir 1,3 milljarðar króna vegna almennra lána. Til samanburðar námu almenn útlán í júní 2011 um 1,7 milljörðum króna. Meðalútlán almennra lána voru um 10,3 milljónir króna í júní. 10.7.2012 06:37
Reglurnar þurfa að vera alþjóðlegar Pétur Blöndal hefur lagt fram svipaðar tillögur á Íslandi og samþykktar voru um helgina á þingi Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Tillögurnar miða að því að koma í veg fyrir hringferla peninga með raðeignarhaldi og innistæðulausa eignabólu fyrirtækja. Pétur segir markmið tillagnanna ekki ná fram að ganga nema þær séu samræmdar meðal allra landa. 9.7.2012 12:15
Nova má ekki auglýsa ódýrustu, vinsælustu og snjöllustu farsímana Símafyrirtækinu Nova hefur verið bannað að auglýsa að fyrirtækið bjóði ódýrustu, vinsælustu og snjöllustu farsímana. Neytendastofa telur að Nova hafi ekki sannað fyrrgreindar fullyrðingar. Síminn kærði fullyrðingarnar til Neytendastofu eftir að Nova dreifði auglýsingablaði með fyrrgreindum fullyrðingum. 9.7.2012 15:37
Liborvaxtasvindlið hafði áhrif á Íslandi Vaxtasvindlið sem komst í hámæli í Bretlandi í síðustu viku hafði bein áhrif á Íslandi á margan hátt. Einna helst skipti það máli fyrir íslenska neytendur með gengistryggð lán. 9.7.2012 11:03
Vodafone undirbýr skráningu í Kauphöllina Vodafone á Íslandi hefur ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka til að vinna að undirbúningi skráningar Vodafone í Kauphöllina á Íslandi. 9.7.2012 10:47
Fasteignamarkaðurinn heldur að róast Heldur hefur róast um á fasteignamarkaðinum á höfuðborgarsvæðinu í upphafi mánaðarins eins og yfirleitt gerist þegar helsti sumarleyfatíma landsmanna fer í gang. 9.7.2012 11:06
Frönsk leikfangakeðja vill kaupa Hamley's Frönsk leikfangakeðja er í samningaviðræðum um að kaupa hinar sögufrægu bresku leikfangaverslanir Hamley's af slitastjórn Landsbankans fyrir 60 milljónir punda, jafnvirði 12 milljarða króna. Hamley's var áður í eigu Baugs Group áður en fyrirtækið fór í þrot. 9.7.2012 10:05
Farþegum Icelandair fjölgaði um 15% milli ára í júní Icelandair flutti 246 þúsund farþega í millilandaflugi í júní og voru þeir 15% fleiri en í júní á síðasta ári. Framboðsaukning var 15% á milli ára. 9.7.2012 08:04
Gjaldeyrisforðinn minnkaði um 211 milljarða í júní Gjaldeyrisforði Seðlabankans minnkaði verulega í júní eða um rúmlega 211 milljarða króna miðað við stöðuna í maí. 9.7.2012 06:41
Kreppan búin en of mikið atvinnuleysi og of lítil fjárfesting Nokkrir mælikvarðar eru notaðir til að meta hvort kreppur eða yfirsveiflur séu yfirstaðnar. Samkvæmt þeim flestum er kreppan búin á Íslandi og eru fræðimenn og hagfræðingar í atvinnulífinu sammála um þetta. Hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands gerir hins vegar fyrirvara við slíkar fullyrðingar og vísar meðal annars í að atvinnuleysi sé enn of hátt hér á landi. 8.7.2012 14:22
Ísland kannski fyrirmynd fyrir Breta Rannsóknarnefnd Alþingis og viðbrögð Íslendinga við hruninu árið 2008 geta orðið ákveðin fyrirmynd fyrir breska þingmenn sem hafa síðustu daga krafist þess að bankakerfi landsins verði rannsakað af óháðum aðila. Á þetta er bent í frétt The Financial Times. 6.7.2012 21:51
Bréf Icelandair hækkuðu Gengi bréfa Icelandair hækkaði um tæpt prósent í dag. Í lok dags er skráningargengi bréfanna 6,83 en velta dagsins var rúmar 56 milljónir með bréfin. 6.7.2012 21:23
Selja íslenskt hugvit fyrir milljarð Norðurál á Grundartanga hefur undirritað samning við íslenska verkfræðifyrirtækið Alu1 um heildarlausn á sérhæfðum framleiðslubúnaði fyrir skautsmiðju álversins. Upphæð samningsins er hátt í milljarð króna fyrir utan vsk., samkvæmt tilkynningu frá Norðuráli. 6.7.2012 15:46
Skuldabréfaútboði CCP lokið - 75 prósent umframeftirspurn Lokuðu útboði til fjárfesta á breytanlegum skuldabréfum útgefnum af CCP hf. lauk 4. júlí s.l. Í boði voru USD 15 milljónir og bárust áskriftir fyrir USD 26,3 milljónum eða rúmlega 75% umfram þá fjárhæð sem í boði var, að því er segir í tilkynningu frá CCP. Meðal kaupenda voru fagfjárfestar, þar á meðal lífeyrissjóðir. „Með hliðsjón af umframáskrift og mikilli þátttöku innlendra stofnanafjárfesta hefur stjórn CCP hf. ákveðið að nýta að fullu heimild frá hluthafafundi til að hækka útboðsfjárhæðina í USD 20 milljónir,“ að því er segir í tilkynningu frá CCP. 6.7.2012 14:46
Mikil umsvif á íbúðamarkaði Samtals var 490 kaupsamningum um íbúðarhúsnæði þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í júní og nam veltan 14,9 milljörðum króna samkvæmt nýjum tölum frá Þjóðskrá Íslands og greiningadeild Íslandsbanka greinir frá. 6.7.2012 11:26
Arion banki hefði átt að skipta Högum upp í fleiri fyrirtæki Samkeppniseftirlitið telur að bankar hefðu átt að nýta betur tækifærið sem hrunið veitti til þess að skipta upp stórum, mikilvægum fyrirtækjum og fjölga með þeim hætti keppinautum á mörkuðum. Slíkt hefði stuðlað að aukinni samkeppni og þannig leitt til meiri hagsældar til lengri tíma litið og aukins ávinnings fyrir bankana heldur en skammtímaviðhorf um hærra söluandvirði stærri einingar. 6.7.2012 11:13
Bréf Regins hækkuðu í dag Gengi bréfa Regins, sem skráð var á markað fyrr í þessari viku, hækkaði um 1.54 prósent í dag. Velta með bréfin nam 24.4 milljónum. Skráningargengi bréfanna í lok dags er 8.59. 5.7.2012 20:32
Hópur fjárfesta undir forystu lífeyrissjóða að eignast TM Hópur fjárfesta sem samanstendur meðal annars af Lífeyrissjóði verzlunarmanna og Almenna lífeyrisjsóðnum er langt kominn með að ganga frá kaupum á Tryggingamiðstöðinni af Stoðum, áður FL Group. Á annan tug milljarða króna gætu fengist fyrir félagið, sem er eitt stærsta tryggingafyrirtæki landsins. 5.7.2012 18:30
Ríkið sker upp herör gegn skattasvindli í ferðaiðnaði Ríkisskattstjóri mun á næstunni hefja átak í tekjuskráningu í samstarfi við ASÍ og SA þar sem sérstaklega verður horft til ferðamannageirans. Þetta segir Skúli Eggert Þórðarson en með átakinu á að taka á svartri atvinnustarfsemi í ferðaiðnaði. 5.7.2012 17:00
Ráðuneytið tekur undir athugasemdir ESA Efnahags- og viðskiptaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, mun leggja fram frumvarp á Alþingi í haust til að bregðast við athugasemdum ESA um að Íslendingar þurfi að efla löggjöf sína sem varðar innherjaviðskipti og markaðsmisnotkun. 5.7.2012 16:44
Leið sáttar og fyrirgefningar líklegust til árangurs „Við Íslendingar stöndum frammi fyrir því að velja okkur leið. Leið fyrirgefningar og sáttar er ekki eina leiðin. En hún er sú leið sem er líklegri til að færa okkur nær hamingjunni sem einstaklingar og þjóð.“ 5.7.2012 13:00
Unnur skipuð forstjóri FME Unnur Gunnarsdóttir, sem verið hefur settur forstjóri Fjármálaeftirlitsins frá 1. mars síðastliðnum, hefur verið ráðin forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Unnur er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og stundaði framhaldsnám í lögum bæði í Englandi og Kanada. Hún gegndi áður starfi yfirlögfræðings Fjármálaeftirlitsins. 5.7.2012 12:03
Smærri fjármálafyrirtæki fái aðgang að þjónustu Reiknistofnunnar Ný og smærri fjármálafyrirtæki skulu eiga fullan aðgang að öllum kerfum og þjónustu Reiknistofunnar á sömu forsendum og eigendur hennar. Þetta kemur fram í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins sem birt var í dag. Í ákvörðuninni eru sett ákveðin skilyrði fyrir því að eigendur Reiknistofnunar bankanna geti haldið rekstrinum áfram. Í hópi stærstu eigenda hennar eru viðskiptabankarnir þrír langstærstir. Þetta er tryggt með skilyrðum um aðgangsreglur, verðskrá, bann við ómálefnalegum hindrunum eða mismunun og trúnað í umsóknarferli. 5.7.2012 11:55
Umfangsmikið svart hagkerfi innan ferðaþjónustunnar Ætla verður að umfang svartrar starfsemi í ferðaþjónustugeiranum sé um 10-12 milljarðar króna á ársgrundvelli hið minnsta. Þetta kemur fram í frétt Viðskiptablaðsins í dag. 5.7.2012 09:59
Önnur olíufélög bjóða 15 króna afslátt í dag Olíuverzlun Íslands og ÓB-Ódýrt bensín bjóða 15 kr. afslátt af eldsneyti í dag það er af bæði bensín og dísilolíu. Atlantsolía mun einnig bjóða sínum viðskiptavinum sama afslátt. 5.7.2012 09:26
Hagstofan spáir 2,8% hagvexti í ár Hagstofan spáir því að hagvöxtur á landinu nemi 2,8% á þessu ári og 2,7% á því næsta. 5.7.2012 09:09
N1 lækkar verð á bensíni og dísil um 15 krónur tímabundið Verðið á bensín- og dísilllítranum lækkar tímabundið í dag hjá N1 um fimmtán krónur í tilefni N1 mótsins á Akureyri um helgina og gildir lækkunin til miðnættis í dag, 5. júlí. 5.7.2012 07:05
Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 15% í maí Gistinætur á hótelum í maí voru um 139.700 samanborið við 120.500 í maí í fyrra. Þetta er 15% aukning á milli ára. 5.7.2012 09:12
Fjöldi fasteignakaupa jókst um 32% milli ára í júní Fjöldi fasteignakaupa á höfuðborgarsvæðinu jókst um tæp 32% milli ára í júní á höfuðborgarsvæðinu. Veltan jókst um tæpt 41% á milli ára. 5.7.2012 07:54
Töluvert dró úr veltu með gjaldeyri í júní Töluvert dró úr veltunni á gjaldeyrismarkaðinum í júní s.l. miðað við fyrri mánuð. Heildarvelta á millibankamarkaði með gjaldeyri nam tæpum 11,4 milljörðum kr. í júní sem er 29% minni velta en í maí. 5.7.2012 06:46