Viðskipti innlent

Töluvert dró úr veltu með gjaldeyri í júní

Töluvert dró úr veltunni á gjaldeyrismarkaðinum í júní s.l. miðað við fyrri mánuð. Heildarvelta á millibankamarkaði með gjaldeyri nam tæpum 11,4 milljörðum kr. í júní sem er 29% minni velta en í maí.

Gjaldeyriskaup Seðlabankans námu 960 milljónum kr eða 8,4% af heildarveltu mánaðarins. Meðalgengi evrunnar gagnvart krónunni var 1,8% lægra í júní en í maí að því er segir í hagtölum Seðlabankans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×