Viðskipti innlent

Guðbjartur: Við þolum þetta

BBI skrifar
Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra.
Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra.
„Við þolum ekki mikið meira," segir Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, um niðurskurð í heilbrigðiskerfinu. Í fréttum í morgun kom fram að niðurskurður í heilbrigðiskerfinu hér á landi var sá næst mesti í öllum OECD ríkjunum.

Frá árinu 2008 hefur heilbrigðiskerfið verið skorið niður um sirka 18% að sögn Guðbjartar. Aðspurður segir Guðbjartur niðurskurðinn ekki alvarlegan. „Neinei, það held ég ekki. Við þolum þetta," segir hann, enda hafi heilbrigðiskerfið verið komið í ákveðinn topp árið 2008.

Guðbjartur bendir á að þó Ísland hafi skorið einna mest niður í heilbrigðismálum af öllum OECD ríkjunum árið 2010 sé landið engu að síður með þriðja besta heilbrigðiskerfi í Evrópu. Það kom fram í sænskri skýrslu sem unnin var á árinu.

„Það verður að segjast eins og er að við erum að halda uppi gríðarlega öflugu heilbrigðiskerfi," segir Guðbjartur.

Niðurskurður í heilbrigðiskerfinu hefur verið nokkur síðustu ár en Guðbjartur vill ekki gefa upp hvort hann haldi áfram í næstu fjárlögum. Horft er fram á um 1% niðurskurð á ríkisbúskapnum í næstu fjárlögum. Ekki hefur verið gefið upp hvernig þeim niðurskurði verður dreift í kerfinu. „Áætlunin um að ná jöfnuði og komast yfir í það að við eigum fyrir rekstrinum á næsta ári," segir Guðbjartur.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×