Góður árangur hjá Mannviti í Ungverjalandi 17. september 2009 11:52
Verkfræðistofan Mannvit lauk því að bora fyrstu holuna í bænum Szentlörinc í suðvesturhluta Ungverjalands í síðustu viku. Holan er 1.820 metra djúp og fyrstu prófanir og mælingar á eiginleikum borholunnar gefa til kynna góðan árangur. Í tilkynningu segir að í loftdælingu sem staðið hefur undanfarna viku gefur borholan um 20 sekúndulítra af tæplega 90 gráðu heitu vatni, en 5-10 sekúndulítra sjálfrennsli er úr holunni. Frekari prófanir og greiningar á efnainnihaldi vatnsins standa yfir. Vatnið verður nýtt til húshitunar í Szentlörinc. Alls verða boraðar á bilinu 50-70 holur víðsvegar um Ungverjaland. Undanfarin þrjú ár hefur verkfræðistofan Mannvit unnið að fjölbreyttum verkefnum á sviði jarðfræði og jarðeðlisfræði vegna jarðhitanýtingar í Ungverjalandi. Verkefnin eru unnin fyrir ungverska einkafyrirtækið PannErgy sem áætlar framleiðslu á grænni orku til húshitunar á a.m.k. 70.000 heimilum víðs vegar í Ungverjalandi og hefur í því sambandi gert samstarfssamning við um 30 sveitarfélög og stofnað með þeim sameiginleg félög um rekstur hitaveitna. Að auki er stefnt að framleiðslu rafmagns með jarðvarma. Áætlaðar heildarfjárfestingar PannErgy á þessu sviði nema á bilinu 350 til 500 milljóna evra. Að sögn Sigurðar Lárusar Hólm, verkefnisstjóra á skrifstofu Mannvits í Búdapest (Mannvit kft.), er þetta í fyrsta skipti sem borað er niður í jarðlög á tveggja kílómetra dýpi í Ungverjalandi, þar sem markmiðið er að vinna heitt vatn til húshitunar. Það sem er sérstakt við þá hugmyndafræði sem liggur að baki boruninni er að borað er beint ofan í stórt sprungukerfi. Þannig er nú verið að innleiða í Ungverjalandi aðferðir við jarðhitavinnslu sem hafa þekkst í áratugi á Íslandi. Hér er því byggt á langri reynslu Íslendinga í nýtingu jarðhita. Sigurður Lárus segir þetta vera í fyrsta skipti sem íslenskur aðili tekur að sér einskonar alverktöku varðandi nýtingu jarðhita á erlendri grundu, en Mannvit hefur annast allar nauðsynlegar jarðfræði- og jarðeðlisfræðirannsóknir, fyrst á stórum svæðum sem tóku nánast til alls Ungverjalands og síðan nákvæmari rannsóknir á minni svæðum m.t.t staðsetningar á borholum. Þá hefur Mannvit séð um allan borundirbúning, þar með talið hönnun á borholum, og síðan sjálfa borframkvæmdina og eftirlit með henni. Mannvit mun einnig sjá um hönnun hitaveitunnar og hafa umsjón með framkvæmd þess hluta verksins. Borverktaki er ungverska fyrirtækið Aquaplus.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira