Almenni lífeyrissjóðurinn: Það var slæm hugmynd að fjárfesta í Baugi Sigríður Mogensen. skrifar 19. september 2009 18:51
Almenni lífeyrissjóðurinn, sem rekinn var af Glitni, stóð fyrir rúmum þriðjungi af heildarlánum lífeyrissjóða til Baugs. Framkvæmdastjóri sjóðsins segir að með hliðsjón af því hversu illa fyrirtækin í landinu standi sé ljóst að skuldabréfakaup í Baugi hafi ekki verið góður kostur. Eins og fram kemur í kröfulýsingaskrá Baugs, sem fréttastofa hefur undir höndum, eru kröfur íslenskra lífeyrissjóða í þrotabúið um 4,5 milljarðar króna. Ólíklegt er að mikið fáist upp í þær kröfur. þrátt fyrir að vera einungis sjötti stærsti sjóður landsins stóð hann fyrir rúmum þriðjungi af heildarlánveitingum lífeyrissjóðanna til Baugs. Aðrir stærri lífeyrissjóðir lánuðu Baugi minna, en LSR sem er stærsti sjóður landsins á 1,2 milljarða kröfu í þrotabúið. Stærsti hluthafi Glitnis þegar bankinn féll var Stoðir með þrjátíu prósenta hlut. Einn helsti eigandi Stoða á þeim tíma, Jón Ásgeir Jóhannesson, var jafnframt stjórnarformaður og stærsti eigandi Baugs. Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins, baðst undan viðtali. Hann sagði í samtali við fréttastofu að sjóðurinn hafi ekki verið beittur þrýstingi um að fjárfesta í skuldabréfum Baugs. Spurður hvort svo stór fjárfesting í skuldabréfum eins fyrirtækis samrýmdist góðri áhættustýringu segir Gunnar að á sínum tíma hafi sjóðurinn talið gott að bæta fyrirtæki í safnið sem byggði afkomu sína að stórum hluta af smásölurekstri. Með hliðsjón af því hve skuldabréf banka og fyrirtækja hafa farið illa í efnahagshruninu sé núna ljóst að skuldabréf Baug líkt og ýmis önnur hafi ekki verið góður kostur fyrir lífeyrissjóðinn.
Mest lesið Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Sjá meira