Fyrrverandi og núverandi ríkisskattstjóri rífast fyrir dómi 17. september 2009 18:41
Skúli Eggert Þórðarsson, ríkisskattstjóri, og Garðar Valdimarsson, fyrrverandi ríkisskattstjóri, takast nú á fyrir dómstólum, um túlkun skattalaga. Deilt er um hvort fyrrverandi forstjóri Straums eigi að greiða tekjuskatt vegna söluréttarsamnings, eða einungis fjármangstekjuskatt. Þórður Már Jóhannesson, fyrrverandi forstjóri Straums, gerði árið 2003 samning um svonefndan sölurétt af hlutabréfum sem hann eignaðist í félaginu. Fyrir bréfunum fékk hann kúlulán í banka. Forstjórinn seldi bréfin síðar með miklum hagnaði. Hann taldi fram hátt í fimmtíu milljónir króna, til greiðslu fjármagnstekjuskatts. Skúli Eggert Þórðarsson, ríkisskattstjóri féllst ekki á þetta. Taldi að greiða ætti tekjuskatt af peningunum. Ákvörðunin var kærð til yfirskattanefndar. Hún féllst á túlkun ríkisskattstjóra. Það þýðir að forstjórinn fyrrverandi þyrfti að óbreyttu að greiða tugi milljóna í tekjuskatt aftur í tímann. Forstjórinn fyrrverandi hefur haft lögmann sér til aðstoðar í málinu gegn Skúla Eggerti. Sá er Garðar Valdimarsson, sem var í embætti ríkisskattstjóra árin 1987 til 1996. Málinu hefur verið vísað til dómstóla. Það var þingfest í sumar, og þess er nú beðið að því verði úthlutað til dómara. En málið snýr þá þannig að núverandi ríkisskattstjóri og forveri hans; fyrrverandi ríkisskattstjóri, takast nú á um það fyrir dómstólum, hvernig eigi að túlka skattalög. Haft var eftir Skúla Eggerti í Fréttablaðinu í vikunni að vegna þess hvernig þeir sem gerðu söluréttarsamninga hefðu talið fram, hefði ríkið verið hlunnfarið um hundruð milljóna króna. Slíkir samningar geti hlaupið á tugum eða hundruðum; en hann hefur heimild til að skoða svona mál sex ár aftur í tímann. Fréttastofu er sagt að vinni forstjórinn málið fyrir dómi; gæti ríkið fengið yfir sig holskeflu málsókna. Vinni núverandi ríkisskattstjóri málið gætu hins vegar háar endurgreiðslur vofað yfir þeim sem töldu aðeins fram fjármagnstekjur af svona samingum.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira