Mjólka á barmi gjaldþrots - reyna að semja við kröfuhafa 21. september 2009 10:37
Mjólka ehf. stendur frammi fyrir miklum skuldavanda og er fyrirséð að félagið geti ekki staðið undir þeim skuldbindingum sem á því hvíla ef marka má bréf sem Ólafur Magnússon framkvæmdarstjóri sendir lánadrottnum. Skuldir félagsins eru umtalsverðar og eigið fé neikvætt. Nú er leitað leiða til þess að semja við kröfuhafa og eru tvær leiðir í boði. Þann 31.12.2008 námu skuldir félagsins 650.000.000 og eigið fé var neikvætt um 266.000.000 miðað við sama tíma. „Þá er rekstur Mjólku ehf. afar þungur við núverandi aðstæður og að öllu óbreyttu blasir það eitt við félaginu að bú þess verði tekið til gjaldþrotaskipta fyrr heldur en síðar," segir í bréfinu. Þá segir að fyrirsvarsmenn Mjólku séu þess fullvissir að verði bú félagsins tekið til gjaldþrotaskipta með tilheyrandi rekstrarstöðvun verði miklum verðmætum kastað á glæ, lánadrottnum sem öðrum til tjóns. Lánadrottnum er síðan boðið að fá hluta af kröfum sínum greiddar. Tvær leiðir eru í boði fyrir þá sem eiga 200.000 krónur eða meira inni hjá félaginu. Annarsvegar er hægt að fá 35% af kröfunni með 6 jöfnum afborgunum á 6 mánaðafresti 5. dag apríl- og októbermánaðar hvers árs, í fyrsta sinn þann 5. október 2009. Greiðslurnar eru ekki verðbættar á tímabilinu og bera enga vexti. Hinsvegar er í boði að fá 25% af kröfunni greidd í einni greiðslu fyrir 25.nóvember á þessu ári. Í fyrrgreindu bréfi segir að fyrirsvarsmenn Mjóklu hafi á engan hátt ráðstafað fjármálum félagsins á ámælisverðan hátt né tekið fjárhagslega áhættu sem ekki var í samræmi við fjárhagsstöðu félagsins. Þvert á móti hafi félagið sýnt skynsemi og ráðdeild í rekstri og ávallt viljað standa við skuldbindingar sínar. Undanfarin misseri hafi hinsvegar reynst erfitt að fjármagna rekstur félagins og menn hafi leitað allra leiða í því á síðustu vikum.
Mest lesið Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Atvinnulíf Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Samstarf Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Samstarf Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira