Fleiri fréttir

Tapa 6,2 milljörðum á falli Straums

Fimm lífeyrissjóðir sem voru meðal tuttugu stærstu hluthafa Straums-Burðaráss töpuðu samtals um 6,2 milljörðum króna á hlut sínum í félaginu frá því fyrir bankahrun.

Kauphöllin sektar Bakkavör og Milestone

Kauphöllin hefur ákveðið að áminna Bakkavör Group og Milestone og beita févíti. Bakkavör er gert að greiða 2,5 milljónir króna í sekt vegna ummæla Lýðs Guðmundssonar stjórnarformanns félagsins í sjónvarpsviðtali. Sekt Milestone nemur 1,5 milljón króna.

Færeyskt tryggingafélag hefur starfsemi á Íslandi

Færeyskt félag í tryggingaþjónustu stefnir að því að hefja starfsemi á Íslandi á næstunni. Félagið og áform þess hér á landi verða kynnt á fundi með blaðamönnum á ræðismannasskrifstofu Færeyja á morgun.

Sparisjóðabankinn fundaði með FME um helgina

Fjármálaeftirlitið (FME) átti fundi með forráðamönnum Sparisjóðabankans um helgina samhliða viðræðunum við forráðamenn Straums. Á þessum fundum var erfið staða Sparisjóðabankans til umfjöllunnar.

Tryggðar innistæður í Straumi um 60 milljarðar

Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segist ekki búast við því að fall Straums hafi umtalsverð áhrif á fjárhag hins opinbera. Hann bendir á að bankinn hafi ekki starfað með ríkisábyrgð annari en þeirri sem nær til innistæðna. Við fyrstu sýn, segir Gylfi, má reikna með að þær fjárhæðir nemi um 60 milljörðum en að ekkert bendi til annars en þess að eignir bankans dugi fyrir þeirri fjárhæð.

FME sektar Marel um milljón vegna verðbréfaviðskipta

Þann 4. desember 2008 tók stjórn Fjármálaeftirlitsins (FME) ákvörðun um að sekta Marel Food Systems hf. vegna brots á lögum um verðbréfaviðskipti . FME taldi með vísan til atvika máls að öðru leyti, þ.e. stjórnvaldssekta í sambærilegum málum, að hæfileg sekt væri kr. 1.000.000,-.

Hrun Straums rýrir Úrvalsbréf um 10%

Landsvaki, rekstrarfélag verðbréfa- og fjárfestingasjóða Landsbankans , vill taka fram að yfirtaka Fjármálaeftirlitsins á Straumi-Burðarási Fjárfestingarbanka mun ekki hafa áhrif til gengislækkunar á neinum verðbréfa- og fjárfestingarsjóðum rekstrarfélagsins öðrum en Úrvalsbréfum Landsbankans.

Fjármálagerningar Straums settir á athugunarlista

Fjármálagerningar útgefnir af Straumi hafa verið færðir á athugunarlista vegna óvissu um framtíð útgefanda, með vísan til tilkynningar félagsins, dags. 9. mars 2009, þar sem fram kemur að Fjármálaeftirlitið hafi tekið yfir stjórn félagsins.

Það hefði getað farið verr hjá Árnastofnun

Árnastofnun hefur yfir að ráða tveimur sjóðum sem ætlaðir eru til bókakaupa. Þetta eru Bókasjóður Þorsteins M. Jónssonar og Sigurjónu Jakobsdóttur og Minningarsjóður Birgit Baldwin. Í ársskýrslu Árnastofnunar kemur fram að við hrun bankakerfisins í október hafi þessir sjóðir beðið nokkra hnekki en þó hefði getað farið verr. Þrátt fyrir að stór hluti sjóðanna hafi verið varðveittir í peningamarkaðssjóði þá voru þeir í sjóði Kaupþings sem rýrnaði minnst af þeim peningamarkaðssjóðum sem starfræktir voru fyrir fallið.

Tap Rarik nam 7,2 milljörðum króna í fyrra

Samkvæmt rekstrarreikningi RARIK var tap á árinu 7.232 milljónir króna en rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta var 1.884 milljónir króna eða 24% af veltu tímabilsins. Handbært fé frá rekstri var 1.150 milljónir króna.

Óbreyttir útlánavextir hjá Íbúðalánasjóði

Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir sjóðsins verði óbreyttir. Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða áfram 4,9% en 5,4% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis.

ÍAV ræða við Kaupþing um endurskipulagningu

Íslenskir aðalverktakar hf. hafa átt í viðræðum við Kaupþing um endurskipulagningu á efnahag ÍAV. Í þeim viðræðum hafa ýmsar leiðir verið ræddar en niðurstaða liggur ekki fyrir.

Dapurt um að lítast í Kauphöllinni

Gengi hlutabréfa í Straumi hrundi um 97 prósent í Kauphöllinni eftir yfirtöku Fjármálaeftirlitsins á bankanum í nótt. Úrvalsvísitalan féll um þréttán prósent í kjölfarið niður í nýjar lægðir, 230 stig.

Segir hrun Straums auka líkur á þjóðargjaldþroti

Thomas Haugaard hagfræðingur hjá Svenska Handelsbanken í Kaupmannahöfn segir að hrun Straums og yfirtaka íslenskra stjórnvalda á bankanum í morgun hafi aukið líkurnar á þjóðargjaldþroti Íslands.

Straumur átti að borga 33 milljónir evra í dag

Straumur, sem Fjármálaeftirlitið tók yfir í morgun, þurfti að standa skil á skuldbindingum að fjárhæð 33 milljónum evra í dag en hafði aðeins handbært fé að fjárhæð rúmlega 15 milljónum evra.

Tekjuhalli hins opinbera 209 milljarðar í fyrra

Á fjórða ársfjórðungi síðasta árs var hið opinbera var rekið með 17 milljarða króna tekjuhalla samanborið við 19,6 milljarða króna tekjuafgangi á sama tíma 2007. Hallinn var svipaður fyrir árið í heild en þá eru ótalin 192 milljarða króna yfirtaka ríkissjóðs á töpuðum kröfum vegna veðlána Seðlabankans. Að henni meðtalinni er tekjuhalli hins opinbera 209,3 milljarðar króna 2008 eða 14,3% af landsframleiðslu.

FME yfirtekur rekstur Straums - forstjórinn segir af sér

Fjármálaeftirlitið (FME) hefur tekið ákvörðun um að taka yfir vald hluthafafundar Straums og vikið félagsstjórn í heild sinni frá störfum, ásamt því að skipa bankanum skilanefnd sem tekur við öllum heimildum stjórnar félagsins frá og með deginum í dag.

Fengu 300 milljón króna lán fyrir snekkju

Bakkabræður fengu ríflega þrjú hundruð milljóna króna lán frá Kaupþingi í tengslum við lúxussnekkju þeirra Mariu. Snekkjan var áður í eigu Giorgio Armani.

Vill að húsleitarheimildum verði beitt í rannsókn á bankahruninu

Stjórnvöld þurfa að beita fullri hörku í rannsókn á efnahagshruninu með því að gefa út húsleitarrannsóknir strax. Þetta sagði Eva Joly rannsóknardómari í Silfri Egils í dag. Joly sagði að þetta væri eina leiðin fyrir yfirvöld til að kanna hvort aðilar sem lægju undir grun um að hafa skotið undan fjármunum ættu leynilega bankareikninga eða ekki.

Segir stjórnendur ekki hafa fengið 478 milljarða að láni

Sigurður Einarsson segir að þær fjárhæðir sem slegið er upp í frétt á forsíðu Morgunblaðsins og fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis vísaði til í gær séu rangar. Í umfjölluninni sé ekki gerð grein fyrir veðtryggingum fyrir umræddum lánum og frádrætti vegna þessa sem kveðið sé á um í reglum um stórar áhættuskuldbindingar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá

Lausafé ekki notað í fasteignaviðskiptum

Velta á fasteignamarkaði hefur dregist saman um rúm sjötíu prósent á milli ára. Í febrúar kom lausafé við sögu í aðeins þremur kaupsamningum af þeim hundrað fjörtíu og fimm sem gerðir voru.

Kaupþing rekið eins og spilavíti

Kaupþing var rekið eins og spilavíti að mati lektors við Háskóla Íslands. Þrír af stærstu eigendum bankans og félög tengd þeim fengu hátt í fimm hundruð milljarða króna í lán frá bankanum eða því sem nam rúmlega einum tíunda af útlánum til viðskiptavina.

Samkomulag um endurskipulagningu Kaupþings í Lúx

Samkomulag hefur náðst í endurskipulagningu á Kaupþingi í Lúxemborg með uppgjör á milli bankans og gamla Kaupþings. Þá liggur fyrir vilyrði frá ríkisstjórnum Lúxemborgar og Belgíu ásamt innistæðutryggingarsjóði Lúxemborgar að lána Kaupþingi í Lúxemborg 86 milljarða íslenskra króna.

Kaupþing lánaði stærstu eigendum 478 milljarða

Kaupþing lánaði stærstu eigendum sínum og tengdum aðilum 478 milljarða. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag en blaðið hefur lánabók bankans frá 30. júní á síðasta ári undir höndum.

Kaupþing í Lúxemborg fær 86 milljarða lán

Mikilvægur áfangi hefur náðst í endurskipulagningu Kaupthing Bank Luxembourg S.A., dótturfélags Kaupþings banka hf. með samkomulagi milli bankanna um uppgjör sín á milli. Samkomulagið er hluti af endurskipulagningu bankans sem var samþykkt af yfirvöldum í Lúxemborg með samningi við fjárfestingarsjóð í eigu Líbýskra yfirvalda frá því í desember 2008.

Stjórnarmenn vissu ekki um Black Sunshine

Stjórnarmenn í gamla Kaupþingi heyrðu fyrst um félagið Black Sunshine hjá fréttamanni Stöðvar tvö. Bandarísk undirmálslán sem Kaupþing fjárfesti í enduðu í þessu félagi í Lúxemborg.

Gengi bréfa Century Aluminum féll um tæp 30 prósent

Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, féll um tæp þrjátíu prósent í Kauphöllinni í dag. Þetta er langmesta fallið á markaðnum í dag. Þá féll gengi bréfa í Alfesca um 8,57 prósent og Bakkavör um 0,54 prósent.

Sex góðar ástæður fyrir því að flytja til Íslands

Vefsíðan businessinsider,com hefur birt huggulega grein fyrir reiða og sára Bandaríkjamenn sem vilja flýja landið í fjármálakreppunni. Vefsíðan segir að sex góðar ástæður séu fyrir því að menn ættu að íhuga að flytja til Íslands.

Mál Hansa skýrast í næstu viku

Mál Hansa, eignarhaldsfélags West Ham í ensku úrvalsdeildinni, var tekið fyrir í héraðsdómi í dag. Ákveðið var að málflutningur í málinu verði á þriðjudaginn og er gert ráð fyrir því að niðurstaða í málinu liggi fyrir eigi síðar en næsta föstudag. Á meðan er greiðslustöðvun í gildi.

Sjóðsstjóri og miðlari ákærðir fyrir markaðsmisnotkun

Fyrrverandi sjóðstjóri peningamarkaðssjóðs hjá Kaupþingi, Daníel Þórðarson hefur verið ákærður fyrir markaðsmisnotkun með því að búa til falska eftirspurn og hækka verð á skuldabréfum Exista í janúar og febrúar á síðasta ári. Þá hefur Stefnir Agnarsson, sem þá starfaði sem miðlari í skuldabréfamiðlun Kaupþings, einnig verið ákærður fyrir sama brot.

Glitnir nær samkomulagi um dótturfélagið í Lúxemborg

Skilanefnd Glitnis og Seðlabanki Lúxemborgar hafa undirritað samning um hvernig staðið skuli að uppgjöri skulda vegna dótturfélags Glitnis í Lúxemborg. Seðlabankinn í Lúxemborg er hluti af neti Seðlabanka Evrópu.

Makaskipti halda uppi fölsku verði á fasteignamarkaði

Makaskipti hafa færst verulega í aukanna en það er þegar fasteignir eru notaðar í skiptum fyrir hið keypta. Í slíkum viðskiptum er hinu eldra skipt upp í á yfirverði en þannig fæst hærra lán á hina keyptu eign.

Sjá næstu 50 fréttir