Viðskipti innlent

Jón Ásgeir segir skipulagða rógsherferð standa sem hæst

Jón Ásgeir ætlar að krefja New York Post um leiðréttingu á frétt sem skrifuð var um hann.
Jón Ásgeir ætlar að krefja New York Post um leiðréttingu á frétt sem skrifuð var um hann.
Jón Ásgeir Jóhannesson kaupsýslumaður segir að skipulögð rógsherferð standi nú sem hæst gegn ákveðnum fyrirtækjum og einstaklingum í íslensku viðskiptalífi.

„Líklega er verið að reyna að beina athyglinni frá aðilum sem ættu fremur að vera í kastljósi vegna bankahrunsins. Augljóst er hvernig fórnarlömbin eru valin og ríma þau nöfn vel við óvinalista tiltekinna afla sem lengi hefur legið fyrir," segir Jón Ásgeir. Hann bendir á að slúðurblaðið New York Post birti í dag óhróður og ósannindi um sig sem ekkert eigi skylt við sannleika og góðar venjur í fréttamennsku og í engu hafi verið leitað eftir upplýsingum frá Baugi. Jón Ásgeir segist ætla að krefjast leiðréttinga í blaðinu.

„New York Post er nokkur vorkunn að hafa látið vonda heimildamenn fóðra sig með lygi og óhróðri en er engu að síður ábyrgt orða sinna," segir Jón Ásgeir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×