Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Árni Sæberg skrifar 14. september 2026 16:12 Einar Sturla rak til að mynda Hressingarskálann í Austurstræti um árabil. Vísir/Vilhelm 25 milljónir króna fundust í þrotabúi veitingamannsins Einars Sturlu Möinichen en lýstar kröfur námu alls 244 milljónum króna. Af milljónunum 25 fóru 15 í skiptakostnað en þrotabúið var tekið til skipta árið 2020 og ágreiningsmál við skiptin rataði alla leið í Hæstarétt.
Einar Sturla rak um árabil fjölda veitinga- og skemmtistaða, þar á meðal Hressingarskálann, Bar ananas og Sushibarinn. Bera fór á fjárhagsörðugleikum hjá veitingastöðum hans árið 2019 og í október árið eftir var bú hans formlega tekið til gjaldþrotaskipta. Í auglýsingu sem birt var í Lögbirtingablaðinu í dag segir að skiptum á búinu hafi verið lokið þann 10. september síðastliðinn. Lýstar kröfur í búið hafi numið 243.978.905 krónum. Í búinu hafi fundist eignir að fjárhæð 25.438.295 krónur, sem hafi verið úthlutað á skiptafundi á eftirfarandi hátt: Skiptakostnaður: Greiddist að fullu (kr. 15.482.100). Forgangskröfur (111. gr.): Námu kr. 7.750.000 og fengust 100% greiddar. Almennar kröfur (113. gr.): Námu kr. 121.157.142 og fengust 2,6 % greiddar. Eftirstæðar kröfur (114. gr.): Fengu engar greiðslur. Vísir hefur nokkrum sinnum fjallað um skipti á búinu en það rataði í fréttir vegna ágreinings búsins við Coca-Cola Europacific Partners Ísland ehf. Ágreiningur um tugmilljóna greiðslur Þrotabúið höfðaði mál á hendur CCEP til þess að freista þess að fá tveimur greiðslum Einars Sturlu til CCEP rift á grundvelli riftunarreglu laga um gjaldþrotaskipti og fleira. Héraðsdómur sýknaði CCEP ef kröfum þrotabúsins sem vörðuðu greiðslur upp á níu milljónir króna og 29 milljónir króna. Þrotabúið undi við niðurstöðuna varðandi lægri greiðsluna en áfrýjaði niðurstöðu varðandi milljónirnar 29 til Landsréttar. Landsréttur taldi að Einar Sturla hefði verið ógjaldfær þegar greiðslan var innt af hendi. Nokkru áður hefði hann ráðstafað stórum hluta eigna sinna annað, verið tekjulítill og nýtt fjármuni frá fyrirtæki sínu, sem einnig var ógjaldfært, til að gera upp við CCEP á grundvelli sjálfskuldarábyrgðar sinnar. Skuldin hefði verið tilkomin vegna skuldar fyrirtækisins við CCEP. Greiðslan hefði því á ótilhlýðilegan hátt verið til hagsbóta fyrir CCEP á kostnað annarra kröfuhafa og leitt til þess að þrotamaður hafði minni eignir til fullnustu krafna annarra kröfuhafa. Hæstiréttur ósammála CCEP skaut málinu til Hæstaréttar, sem komst að þeirri niðurstöðu í febrúar í fyrra að Einar Sturla hafi mátt greiða skuldina eftir allt saman. Hæstiréttur taldi, með vísan til ítarlegs rökstuðnings sem rakinn er í fréttinni hér að ofan, að ekkert hafi komið fram um að CCEP hefði verið grandsamt um ógjaldfærni Einars Sturlu þegar hann innti af hendi greiðslu til CCEP 1. nóvember 2019 að fjárhæð 29.330.919 krónur. Af þeirri ástæðu yrði CCEP sýknað af kröfu þrotabúsins um riftun ráðstöfunarinnar samkvæmt almennri riftunarreglu laga um gjaldþrotaskipti og fleira og kröfu um greiðslu bóta eftir ákvæði laganna um bótaskyldu þess sem vísvitandi tekur við riftanlegri greiðslu. Þrotabúið var dæmt til að greiða CCEP þrjár milljónir króna í málskostnað á öllum dómstigum.
Gjaldþrot Veitingastaðir Reykjavík Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Framleiðendur verða að vera á tánum Viðskipti innlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira