Viðskipti innlent

ÍAV ræða við Kaupþing um endurskipulagningu

Íslenskir aðalverktakar hf. hafa átt í viðræðum við Kaupþing um endurskipulagningu á efnahag ÍAV. Í þeim viðræðum hafa ýmsar leiðir verið ræddar en niðurstaða liggur ekki fyrir.

Í tilkynningu frá ÍAV segir að stjórnendur ÍAV hafi lagt á það áherslu í viðræðum við Kaupþing að styrkja starfsemi félagsins til framtíðar og varðveita þau störf sem félagið skapar.

Verktakastarfsemi hefur orðið hvað harðast úti í þeim efnahagsþrengingum sem þjóðfélagið gengur nú í gegnum og hefur ÍAV ekki verið undanskilið í þeim efnum. Hrun á fasteignamarkaði hefur valdið félaginu gríðarlegu tjóni. Þá hafa tafir og tímabundnar stöðvanir framkvæmda m.a. vegna Tónlistarhússins valdið félaginu enn frekara tjóni.

Mikil verðbólga, hátt vaxtastig og gengisfall íslensku krónunnar hefur auk þess verið félaginu kostnaðarsamt.

Á síðustu vikum hefur þó heldur rofað til. Framkvæmdir eru hafnar á ný við Tónlistahúsið og opinberir aðilar eru farnir að bjóða út ný verkefni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×