Fleiri fréttir

Sparisjóðabankinn fær frest til 10. desember

Seðlabanki Íslands hefur framlengt til 10. desember nk. áður gefinn frest til Sparisjóðabanka Íslands hf. til að leggja fram auknar tryggingar vegna óvarinna verðbréfa sem Sparisjóðabankinn hefur í veðlánunum hjá Seðlabankanum og útgefin voru af Glitni, Kaupþingi og Landsbanka.

Segir að 28% hlutur Kaupþings í Moss Bros hafi verið seldur

Hlutir í bresku verslunarkeðjunni Moss Bros hækkuðu um 40 prósent í morgun í kjölfar fregna um sölu á 28 prósenta hlut í keðjunni. Bloomberg-fréttaveitan segir að hluturinn sé jafnstór og nam eign Kaupþings í Moss Bros og gerir að því skóna að sá hlutur hafi verið seldur í morgun.

Gengisvísitalan komin í 236 stig, dollarinn kostar 140 kr.

Gengisvístalan er komin í 236 stig og kostar dollarinn því 140 krónur. Vísitalan hefur verið að fikra sig upp á við á síðustu dögum og vikum þrátt fyrir að daglegt útboð Seðlabankans á gjaldeyri eigi að halda henni í skefjum.

Ný stjórn kjörin hjá VBS

Á hluthafafundi VBS fjárfestingarbanka sem að haldin var í gær var kjörin ný stjórn og varastjórn félagsins. Þá var heimild fengin til að víkja frá ákvæðum í starfskjarastefnu og samþykkt að breyta samþykktum félagsins.

Marel semur við Nýja Glitni um viðskiptavakt

Marel hefur gert samning við Nýja Glitni um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins. Tilgangurinn með viðskiptavaktinni er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins Í kauphöllinni.

Enn hækkar Össur

Gengi hlutabréfa í stoðtækjafyrirtækinu Össur hækkaði um 5,82 prósent í Kauphöllinni í byrjun dags. Líkt og fram kom í Markaðnum í morgun eru hlutabréf Össurar þau einu sem hafa hækkað á árinu af þeim fyrirtækjum sem teljast til Úrvalsvísitölu-fyrirtækja.

Hagnaður Icelandair var 4,4 milljarðar kr.

Hagnaður Icelandair eftir skatta var 4,4 milljarðar kr. á þriðja ársfjórðung en var 2,1 milljarður kr. á sama tíma í fyrra. Heildarvelta félagsins var 41,5 milljarðar króna og jókst um 107% frá sama tíma í fyrra.

Af hverju einhliða upptaka evru er ekki góður kostur

Það er margreynt lögmál að gjaldeyriskreppur og bankakreppur eru tvíburakreppur þar sem hin fyrri leiðir hina seinni. Þetta lögmál hefur því miður sannast á Íslandi og þegar þetta er skrifað er þegar nokkur fjöldi annarra landa sem þarf að glíma við þær tvíburasystur.

Næstu gjalddagar 2010

„Við erum ekki með gjalddaga á bakinu þar til árið 2010. Það er langur tími í dag,“ segir Björn Sigurðsson, framkvæmdastjóri afþreyingafyrirtækis­ins Senu. Hann segir fyrirtækið í góðri stöðu á íslenskum afþreyingarmarkaði.

Bakkavör aldrei lægri

„Ég get ekki útskýrt hvers vegna gengi Bakkavarar er ekki hærra,“ sagði Ágúst Guðmundsson, forstjóri félagsins, á aðalfundi þess í vor. Hann vísaði til óróleika á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Gengi hlutabréfa í Bakkavör snerti 4,10 krónur á hlut í gær og hefur aldrei verið lægra.

Vara við einhliða upptöku evru

Hagfræðingarnir Gauti B. Eggertsson við Seðlabanka New York og Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings, vara við hugmyndum um einhliða upptöku evru. Þeir segja slíkt skref geta orsakað áhlaup á íslenska banka.

Vefurinn aðlagast öllu

„Vefiðnaðurinn er síbreytilegur og best í stakk búinn til að aðlagast breyttum aðstæðum,“ segir Þórlaug Ágústsdóttir, formaður Samtaka Vefiðnaðarins (SVEF).

Fleiri leiðir kunna að vera til

„Í tillögum mínum er ekki gert ráð fyrir aðstoð sjóðsins. Fyrstu tveir liðirnir eru beinlínis í andstöðu við þær ráðstafanir sem þegar hafa verið kynntar á grundvelli áætlunar sjóðsins," segir Lilja Mósesdóttir hagfræðingur. Hún hefur lagt til áætlun í sjö liðum, meðal annars til að vekja athygli á því að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn leiði Íslendinga til að fara aðrar leiðir til að kljást við alþjóðlegu fjármálakreppuna en mörg önnur ríki geri, til að mynda Bandaríkjamenn og margar Evrópuþjóðir.

Fjalla um fallið áður en yfir fennir

„Þetta verður stutt en snörp bók um mestu efnahagsumbrot í sögu lýðveldisins,“ segir Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur, en hann vinnur nú að bók um sögu bankahrunsins. „Það hefur verið gríðarleg umræða um hrun bankanna í fjölmiðlum, og það hefur verið mjög erfitt fyrir fólk að fylgjast með hvað er að gerast og hafa yfirsýn yfir umræðuna og atburðarásina,“ segir Guðni.

Fyrirtæki horfa til hjáleiðar með krónur

„Við tökum gjaldeyri heim í gegnum Seðlabankann en erum í helvítis vandræðum. Þetta hefur þó aðeins verið að koma inn síðustu tvo daga,“ segir Ólafur Rögnvaldsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Hellissands.

Í daglegri skoðun

Svo gæti verið að viðskipti hefjist á allra næstu dögum, jafnvel í dag, með hlutabréf Existu, Spron og Straums, ef marka má þann orðróm sem barst víða um bankaheiminn í gær.

Afleit staða Giftar

Óvíst er að eignir fjárfestingafélagsins Giftar dugi fyrir skuldum. Samkvæmt skýrslu stjórnar Giftar 15. júní í fyrra, námu heildarskuldir og skuldbindingar félagsins ríflega 30 milljörðum króna. Þá námu eignirnar tæpum 60 milljörðum.

Einfaldur meirihluti dugir

Tuttugu og fjórir fulltrúar sitja í stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins IMF). Þeir eru ýmist fulltrúar einstakra ríkja eða hópa ríkja. Atkvæði hvers um sig hefur mismikið vægi. Bandaríkjamenn ráða langmestu um afdrif umsókna, en í tilviki Íslands ræður einfaldur meirihluti hvort umsókn verður samþykkt eða felld.

Fær 1,9 milljónir kr. á mánuði fyrir stjórnarsetu

Ólafur Ólafsson stjórnarformaður Alfesca mun fá ágæt laun fyrir setu sína sem stjórnarformaður næsta árið eða sem nemur 1,9 milljón kr. á mánuði. Er þá miðað við opinbert gengi Seðlabankans á evrunni.

Sumitomo Mitsui í mál við bæði Kaupþing og Glitni

Sumitomo Mitsui, þriðji stærsti banki Japans, hefur höfðað mál gegn bæði Kaupþingi og Glitni fyrir dómstól í London. Málshöfðunin er vegna lánaveitinga sem Sumitomo stóð að til Kaupþings og Glitnis ásamt öðrum bönkum í Japan, Ástralíu og á Nýja Sjálandi.

LSR tapar 30 milljörðum kr. beint vegna fjármálakreppunnar

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) hefur ekki farið varhluta af fjármálakreppunni fremur en aðrir lífeyrissjóðir landsins. Haukur Hafsteinsson framkvæmdastjóri telur að beint tap LSR vegna hruns bankanna sé rúmlega 30 milljarðar kr. eða um 10% af eignum sjóðsins.

SPRON borgar út úr Peningamarkaðssjóði

SPRON hefur lokið við yfirferð og útreikninga á eignum Peningamarkaðssjóðsins. Útgreiðsluhlutfall sjóðsins er 85,52% og miðast við lokagengi þann þriðja október að því er segir í tilkynningu frá sparisjóðnum. Um heildargreiðslu er að ræða og verður greitt úr sjóðnum þann 17. nóvember 2008.

Iceland Express semur við stúdenta

Gengið hefur verið frá samkomulagi milli Iceland Express og Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík, um að Stúdentafélagið fái hér eftir hluta af þeim tekjum, sem verða til vegna sölu á farmiðum til námsmanna við skólann.

Ísland verður aðili að kolefnismarkaði ESB

Íslandi verður aðili að kolefnismarkaði Evrópusambandsins í "náinni framtíð" að því er segir í frétt á Bloomberg-fréttaveitunni. Þetta hefur Bloomberg eftir Þórunni Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra.

Bakkavör lækkar um tæpt prósent

Gengi hlutabréfa í Bakkavör hefur lækkað um 0,95 prósent í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöllinni. Gengi bréfa í fyrirtækinu stendur nú í 4,17 krónum á hlut og hefur aldrei verið lægra.

Tap Milestone á falli Carnegie rúmlega 2 milljarðar kr.

Móðurfélagið á bakvið Carnegie bankann verður leyst upp í framhaldi af því að sænska ríkið hefur yfirtekið bankann. Líklegt tap Milestone á falli Carnegie er rúmlega 2 milljarðar kr. þar sem hlutabréfin í bankanum eru nú talin verðlaus.

Össur hækkaði mest í Kauphöllinni

Gengi hlutabréfa í stoðtækjafyrirtækinu toppaði daginn með hækkun upp á 6,24 prósent í Kauphöllinni. Á eftir fylgdi Century Aluminum, móðurfélag álversins á Grundartanga, sem hækkaði um 2,58 prósent, og Marel Food Systems, sem hækkaði um 1,44 prósent.

Segja yfirtöku á Carnegie ekki hafa áhrif á sjóði bankans

VBS fjárfestingarbanki hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fullyrt er að yfirtaka sænskra stjórnvalda á Carnegie-fjárfestingarbankanum í dag hafi hvorki áhrif á dagleg viðskipti með hlutdeildarskírteini Carnegie sjóðanna né verðmæti þeirra.

Sænski seðlabankinn hafnaði beiðni SÍ um gjaldmiðlaskipti

Sænski seðlabankinn hafnaði nýlega beiðni Seðlabanka Íslands (SÍ) um að draga á gjaldmiðlaskiptalínu þá sem norrænu seðlabankarnir samþykktu í vor. SÍ hefur þegar dregið 200 milljónir evra frá norska seðlabankanum og sömu upphæð hjá danska seðlabankanum.

Lífeyrissjóðirnir tapa tugum milljarða króna á bankabréfum

Allt útlit er fyrir að lífeyrissjóðirnir muni tapa tugum milljarða króna á eign sinni í skuldabréfum banka og sparisjóða hér á landi. Áður en bankakerfið hrundi lágu lífeyrissjóðirnir með 80-90 milljarða króna í þessum skuldabréfum í eignasöfnum sínum.

Tíðni makaskiptasamninga í fasteignaviðskiptum stóreykst

Tíðni makaskiptasamninga í fasteignaviðskiptum hefur stóraukist undanfarna mánuði samkvæmt gögnum frá Fasteignamati ríkisins. Með makaskiptasamningi er átt við kaupsamning þar sem hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign.

Samþykktu að selja allt stofnfé SPM til Nýja Kaupþings

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti samhljóða á fundi sínum á föstudaginn var að taka tilboði frá Nýja Kaupþingi í allt stofnfé Sparisjóðs Mýrasýslu. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki stjórnar Nýja Kaupþings.

Ísland er ekki á dagkrá IMF þessa vikuna

Samkvæmt heimasíðu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) er Ísland ekki á dagkrá þar á bæ þessa vikuna. Hins vegar mun stjórn IMF ræða málefni Al Salvador, Líbanons, Seychelles-eyja og Armeníu í vikunni.

Viðskiptablaðið segir öllum upp og óskar eftir greiðslustöðvun

Vegna viðvarandi rekstrarerfiðleika hafa eigendur Viðskiptablaðsins afráðið að draga saman útgáfu blaðsins og einskorða hana hér eftir við eitt tölublað í viku. Jafnframt hefur útgáfufélag blaðsins, Framtíðarsýn hf. óskað eftir greiðslustöðvun og öllum starfsmönnum félagsins hefur verið sagt upp.

Össur hækkar einn í Kauphöllinni

Gengi hlutabréfa í stoðtækjafyrirtækinu Össuri hefur hækkað um 0,97 prósent í sex viðskiptum upp á 38 milljónir króna í Kauphöllinni í dag. Þetta er eina hreyfingin á íslenskum hlutabréfamarkaði frá því viðskipti hófust fyrir tæpum tuttugu mínútum.

Illa gengur að selja Sterling

Skiptaráðanda í þrotabúi danska flugfélagsins Sterling, sem var í eigu íslendinga, gengur illa að selja félagið, en stefnt var að því að sölu lyki fyrir helgi.

Sjá næstu 50 fréttir