Fleiri fréttir Atlantic Airways tekur flugið í Kauphöllinni Gengi bréfa í færeyska flugfélaginu Atlantic Airways tók flugið í Kauphöll Íslands í dag og hækkaði gengi þeirra um 11,8 prósent. Þetta er langmest hækkun dagsins skráðra félaga eftir afhroð í vikunni. Gengi einungis tveggja félaga lækkaði á sama tíma. Í Icelandic Group og 365. 24.1.2008 16:42 Nokia keyrir fram úr öðrum Nokia, stærsti farsímaframleiðandi í heimi, hagnaðist um tæpa 1,8 milljarða evra, jafnvirði 172 milljarða íslenskra króna, á síðasta ársfjórðungi nýliðins árs. Þetta er 44 prósenta aukning á milli ára. 24.1.2008 14:16 Tap Ford minnkar milli ára Bandaríski bílaframleiðandinn Ford tapaði 2,7 milljörðum dala, jafnvirði 178,6 milljörðum íslenskra króna, á síðasta ári. Þrátt fyrir tapið er þetta talsverður bati frá þarsíðasta ári þegar fyrirtækið tapaði 12,6 milljörðum dala. 24.1.2008 12:49 Storebrand og Sampo taka stökkið Norski fjármálarisinn Storebrand og finnska tryggingafélagið Sampo, sem Exista og Kaupþing eri stærstu hluthafar í, tóku sprettinn í norrænu kauphallarsamstæðunni þegar viðskipti hófust í dag. 24.1.2008 11:21 Citigroup mælir með sölu á Kaupþingsbréfum Samkvæmt frétt í sænska viðskiptablaðinu Dagens Industri mælir bandaríski stórbankinn Citigroup nú með sölu á hlutabréfum í Kaupþingi. Fyrir skömmu mældi bankinn með því að fjárfestar héldu bréfunum. 24.1.2008 11:20 Skuldabréfatryggingar tífalt dýrari hér en í Svíþjóð Skuldabréfatryggingar íslensku bankanna eru nú tífalt dýrari en hjá stærstu bönkunum í Svíþjóð. Þetta kemur fram í grein í viðskiptablaðinu Dagens Industri um erfiðleika íslenskra fjármálafyrirtækja þessa stundina. 24.1.2008 11:00 Kaupþing með viðskiptavakt á hlutum í Landsbanka Kaupþing hefur, fyrir eigin reikning, hafið viðskiptavakt með hlutabréf Landsbankans í viðskiptakefi OMX Nordic Exchange á Íslandi samkvæmt tilkynningu um viðskiptavakasamning. 24.1.2008 10:38 Sprettur í Kauphöllinni Exista og SPRON tóku sprettinn ásamt öllum bönkum og fjármálafyrirtækjum í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöll Íslands í dag en gengi þeirra rauk upp um fimm prósent. Gengi jafnaði sig fljótlega um eitt prósent að meðaltali en ekkert félag hefur lækkað enn sem komið er. 24.1.2008 10:05 Hlutabréf taka sprettinn í Evrópu Gengi hlutabréfa í Kaupþingi hefur hækkað um tæp 4,5 prósent í kauphöllinni í Stokkhólmi í Svíþjóð í dag en sprettur hefur verið á hlutabréfamörkuðum í Asíu og Evrópu í dag eftir mikla lækkun í gær. 24.1.2008 09:21 Risastórt fjármálahneyskli í Frakklandi Viðskipti með hluti í einum stærsta banka Frakklands, Société Générale, voru stöðvuð í morgun. 24.1.2008 08:47 Exista lækkaði mest 23.1.2008 16:53
Sjá næstu 50 fréttir
Atlantic Airways tekur flugið í Kauphöllinni Gengi bréfa í færeyska flugfélaginu Atlantic Airways tók flugið í Kauphöll Íslands í dag og hækkaði gengi þeirra um 11,8 prósent. Þetta er langmest hækkun dagsins skráðra félaga eftir afhroð í vikunni. Gengi einungis tveggja félaga lækkaði á sama tíma. Í Icelandic Group og 365. 24.1.2008 16:42
Nokia keyrir fram úr öðrum Nokia, stærsti farsímaframleiðandi í heimi, hagnaðist um tæpa 1,8 milljarða evra, jafnvirði 172 milljarða íslenskra króna, á síðasta ársfjórðungi nýliðins árs. Þetta er 44 prósenta aukning á milli ára. 24.1.2008 14:16
Tap Ford minnkar milli ára Bandaríski bílaframleiðandinn Ford tapaði 2,7 milljörðum dala, jafnvirði 178,6 milljörðum íslenskra króna, á síðasta ári. Þrátt fyrir tapið er þetta talsverður bati frá þarsíðasta ári þegar fyrirtækið tapaði 12,6 milljörðum dala. 24.1.2008 12:49
Storebrand og Sampo taka stökkið Norski fjármálarisinn Storebrand og finnska tryggingafélagið Sampo, sem Exista og Kaupþing eri stærstu hluthafar í, tóku sprettinn í norrænu kauphallarsamstæðunni þegar viðskipti hófust í dag. 24.1.2008 11:21
Citigroup mælir með sölu á Kaupþingsbréfum Samkvæmt frétt í sænska viðskiptablaðinu Dagens Industri mælir bandaríski stórbankinn Citigroup nú með sölu á hlutabréfum í Kaupþingi. Fyrir skömmu mældi bankinn með því að fjárfestar héldu bréfunum. 24.1.2008 11:20
Skuldabréfatryggingar tífalt dýrari hér en í Svíþjóð Skuldabréfatryggingar íslensku bankanna eru nú tífalt dýrari en hjá stærstu bönkunum í Svíþjóð. Þetta kemur fram í grein í viðskiptablaðinu Dagens Industri um erfiðleika íslenskra fjármálafyrirtækja þessa stundina. 24.1.2008 11:00
Kaupþing með viðskiptavakt á hlutum í Landsbanka Kaupþing hefur, fyrir eigin reikning, hafið viðskiptavakt með hlutabréf Landsbankans í viðskiptakefi OMX Nordic Exchange á Íslandi samkvæmt tilkynningu um viðskiptavakasamning. 24.1.2008 10:38
Sprettur í Kauphöllinni Exista og SPRON tóku sprettinn ásamt öllum bönkum og fjármálafyrirtækjum í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöll Íslands í dag en gengi þeirra rauk upp um fimm prósent. Gengi jafnaði sig fljótlega um eitt prósent að meðaltali en ekkert félag hefur lækkað enn sem komið er. 24.1.2008 10:05
Hlutabréf taka sprettinn í Evrópu Gengi hlutabréfa í Kaupþingi hefur hækkað um tæp 4,5 prósent í kauphöllinni í Stokkhólmi í Svíþjóð í dag en sprettur hefur verið á hlutabréfamörkuðum í Asíu og Evrópu í dag eftir mikla lækkun í gær. 24.1.2008 09:21
Risastórt fjármálahneyskli í Frakklandi Viðskipti með hluti í einum stærsta banka Frakklands, Société Générale, voru stöðvuð í morgun. 24.1.2008 08:47
Straumur ræður þrjá á skrifstofu sína í Stokkhólmi Straumur hefur ráðið til starfa á skrifstofu bankans í Stokkhólmi þá Mats Ericsson forstöðumann sölusviðs markaðsviðskipta í Svíþjóð, Peter Bengtsson sölustjóra í markaðsviðskiptum og Peter Näslund yfirmann greiningar. 23.1.2008 15:58
Exista fellur um tíu prósent Gengi bréfa í Existu hefur fallið um rúm tíu prósent í Kauphöll Íslands í dag. Á eftir fylgir SPRON líkt og fyrri daginn, sem hefur fallið um rúm 8,7 prósent en gengi beggja félaga hefur aldrei verið lægra. 23.1.2008 14:02
Buffett kaupir hlut í Sviss Re Hlutir í svissneska endurtryggingarfélaginu Sviss Re hafa hækkað verulega í morgun eftir að auðjöfurinn Warren Buffett keypti 3% hlut af því. 23.1.2008 11:16
Lottó til að minnka veikindadaga hjá danska póstinum Forráðamenn dönsku póstþjónustunnar hafa gripið til þess ráðs að nota lottó til að draga úr fjölda veikindadaga meðal starfsmanna sinna. 23.1.2008 10:54
Illa unnin greining á Existu, segir stjórnarformaðurinn „Þessar hugleiðingar greiningarmanns Enskilda eru illa unnar og fjarri öllum veruleika. Greiningarmaðurinn þekkir greinilega ekki vel til Exista og gerir sig þar að auki sekan um rangfærslur í útreikningum,“ segir Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Existu. 23.1.2008 10:53
Töluverð lækkun í kauphöllinni Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,75% frá opnun markaðarins í morgun og stendur nú í 5.195 stigum. 23.1.2008 10:39
Gengi Existu og SPRON aldrei lægra Gengi bréfa í Existu féll um 5,3 prósent og SPRON um tæp 3,5 prósent skömmu eftir að viðskipti hófust í Kauphöll Íslands í dag en gengi félaganna hefur aldrei verið lægra. Fallið kemur í kjölfar greiningar sænska bankans Enskilda um finnska tryggingafélagið Sampo. Þar segir að eiginfjárstaða Existu sé verri en af sé látið. Nemi hún jafnvirði um 35 milljörðum króna og geti svo farið að félagið verði að losa um eignir, jafnvel með afslætti. 23.1.2008 10:17
AppliCon kaupir sænskt ráðgjafarfyrirtæki AppliCon AB í Svíþjóð, sem er í eigu Nýherja hf., skrifaði í dag undir samning um kaup á öllum hlutabréfum í sænska fyrirtækinu Marquardt & Partners AB. Kaupin eru í samræmi við þá stefnu AppliCon að útvíkka þjónustu sína á sviði hugbúnaðarlausna fyrir fjármálafyrirtæki í Norður-Evrópu. 23.1.2008 09:50
Seðlabankarnir eru kjölfestan Jean-Claude Trichet, bankastjóri evrópska seðlabankans, segir fjármálamarkaði víða um heim ganga í þessar mundir í gegnum harkalega leiðréttingu. Hann segir hræringarnar undanfarið minna fólk á að efnahagsástand í einu landi geti haft áhrif í öðru. 23.1.2008 09:39
Hækkanir á mörkuðum í Asíu Hlutbréf á mörkuðum í Asíu hækkuðu töluvert í morgun í kjölfar ákvörðunnar Seðlabanka Bandaríkjanna í gær að lækka stýrivexti verulega. 23.1.2008 09:27
Forstjóri Baugs í Bretlandi sér möguleika í stöðunni Gunnar Sigurðsson forstjóri Baugs Group í Bretlandi óttast ekki ástandið á fjármálamörkuðunum í dag heldur þvert á móti því hann telur ýmsa möguleika í stöðunni. 23.1.2008 08:46
Óvarlegt að draga of víðtækar ályktanir Hlutabréfamarkaðir lækkuðu skarpt um heim allan í byrjun vikunnar. Sérfræðingur Kaupþings varar við of mikilli svartsýni, teikn séu á lofti um að botni kunni að vera náð. 23.1.2008 06:00
Hráfæði og bjúgu geta farið saman Sólveig Eiríksdóttir, athafnakona og einn eigenda Himneskrar hollustu, hefur verið hér fremst í flokki við að kynna og koma á framfæri heilsufæði hvers konar. 23.1.2008 06:00
Japanar taka sprettinn Hlutabréf tóku sprettinn upp á við eftir að viðskipti hófust í kauphöllinni í Tókýó í Japan í dag en Nikkei-hlutabréfavísitalan hækkaði um tæp 3,9 prósent í byrjun dags. 23.1.2008 00:39
Vélmenni raðar lyfjum og sækir Vélmenni afgreiðir í apótekinu sem hefur verið opnað í nýju verslunarmiðstöðinni í Holtagörðum í Reykjavík. Vélmennið sér um að skipuleggja og raða lyfjum inn á lager og sækir lyf fyrir lyfjafræðing og skilar til afgreiðslumanns á örskammri stundu. 23.1.2008 00:01
Applerisinn féll á Wall Street Gengi hlutabréfa í bandaríska tölvuframleiðandanum Apple féll um fimmtán prósent eftir að fyrirtækið birti uppgjörstölur sínar fyrir síðasta ársfjórðung á bandarískum hlutabréfamarkaði í kvöld. 22.1.2008 23:09
Enn lækkar SPRON Íslenska úrvalsvísitalan lækkaði um 0,77% í dag. Century Aluminum Company, móðurfélag Norðuráls, lækkaði mest, eða um 2,74%. FL Group hf lækkaði um 0,79%. Foroya Banki lækkaði um 0,36%. Icelandair Group hf lækkaði um 0,19% og Kaupþing banki hf. um 0,14%. 22.1.2008 17:22
Viðsnúningur á hlutabréfamörkuðum Gengi hlutabréfa í Century Aluminum hækkaði um tæp fimm prósent í Kauphöll íslands í dag skömmu eftir að bandaríski seðlabankinn lækkaði óvænt stýri- og daglánavexti sína um 75 punkta. 22.1.2008 16:31
Afkoma Bank of America dregst saman Hagnaður bandaríska bankans Bank of America nam 268 milljónum dala, jafnvirði rúmum 17,6 milljörðum íslenskra króna, á síðasta fjórðungi nýliðins árs. Til samanburðar nam hagnaðurinn 5,26 milljörðum dala á sama tíma í hitteðfyrra. Þetta er 95 prósenta samdráttur á milli ára. 22.1.2008 16:01
Óvænt vaxtalækkun í Bandaríkjunum Seðlabanki Bandaríkjanna lækkaði stýri- og daglánavexti óvænt í dag um heila 75 punkta. Ekki vart gert ráð fyrir viðlíka aðgerðum til að sporna gegn frekara falli á fjármálamörkuðum fyrr en á næsta vaxtaákvörðunarfundi seðlabankans í næstu viku. Vextir vestanhafs fara við þetta úr 4,25 í 3,5 prósent. 22.1.2008 13:26
412 milljarða rýrnun fjármálafyritækja frá áramótum Virði fjármálafyrirtækjanna sjö í Kauphöll Íslands hefur rýrnað um 412 milljarða frá áramótum. Mest hefur virði Kaupþings rýrnað eða um 137 milljarða. 22.1.2008 13:01
Raunhæft að sameina Landsbankann og Straum Í þeirri stöðu sem komin er upp á fjármálamarkaðinum búast menn við samruna eða sameiningu félaga í einhverjum mæli. Raunhæft er til dæmis að sameina Landsbankann og Straum-Burðarás vegna eignatengsla að mati Jafets Ólafssonar sérfræðings í fjármálum. 22.1.2008 11:25
Íslensk fjárfesting ehf. með 73% hlut í Kilroy Travels Íslensk fjárfesting ehf., sem keypti meirihluta í ferðaskrifstofukeðjunni Kilroy Travels International A/S í mars sl., hefur nýtt forkaupsrétt sinn á 20% hlut í félaginu og á nú 73% hlut. 22.1.2008 10:58
Erfiðar aðstæður seinka nýskráningum í kauphölinni Búast má við því að erfiðar markaðsaðstæður í Kauphöllinni nú í upphafi árs verði til þess að seinka þeim nýskráningum sem fyrirhugaðar eru á árinu. 22.1.2008 10:54
Rúm tvö ár horfin úr Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í SPRON féll um átta prósent í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöll Íslands í dag og fór í rétt tæpar sex krónur á hlut. Á eftir fylgdi Exista, sem féll um tæp 5,3 prósent. 22.1.2008 10:07
Fall í Asíu en rólegt í Evrópu Helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu eru beggja vegna núllsins í dag þrátt fyrir mikið gengisfall í Asíu í morgun. 22.1.2008 09:10
Nikkei niður fyrir 13000 stigin Fjármálamarkaðir um alla Asíu héldu áfram að falla mikið í morgun annan dagsinn í röð. Nikkei-vísitalan í Japan fór niður fyrir 13.000 stig en það hefur ekki gerst í 26 mánuði. Í kauphöllinni í Bombay á Indlandi voru viðskipti stöðvuð í klukkutíma eftir að vísitalan þar féll um tæp 10%. Það eru rauðar tölur í öllum kauphöllum álfunnar í morgun þar á meðal kauphöllinni í Shanghai í Kína þar sem vísitalan féll um 7%. Á öðrum mörkuðum er fallið á bilinu 5 til 7%. 22.1.2008 08:58
Fall við upphaf viðskiptadags í Japan Hlutabréf tóku dýfu við upphaf viðskiptadagsins í kauphöllinni í Tókýó í Japan í morgun, um eittleytið að íslenskum tíma í nótt, en fjárfestar í Asíu óttast mjög áhrif af hugsanlegum samdrætti í Bandaríkjunum. Nikkei-hlutabréfavísitalan féll um rúm 4,5 prósent við upphaf dags en jafnaði sig nokkuð eftir því sem á leið. 22.1.2008 01:48
SPRON lækkaði um tæp 10,6% Það var eldrauður dagur í Kauphöllinni í dag og úrvalsvísitalan lækkaði um 4%. Sparisjóður Reykjavíkur og Nágrennis lækkaði mest, eða um 10,57. Atlantic Petroleum lækkaði um 7,86%. FL Group hf lækkaði um 6,15% og Exista lækkaði um 5,77%. Foroya Banki lækkaði minnst, eða um 5,74%. Ekkert fyrirtæki hækkaði í dag. 21.1.2008 16:42
Hluthafafundur felldi tillögu Novator um breytingar á stjórn Á hluthafafundi hjá fjarskiptafélaginu Elisa í Helsinki í dag bar Novator upp tillögu um breytingar á stjórn félagsins þannig að Orri Hauksson og Tómas Ottó Hansson tækju sæti í stjórn félagsins. Tillaga Novators um tvö stjórnarsæti var felld með 53% atkvæða, en 47% studdu tillöguna. 21.1.2008 16:39
Kröfu Novators hafnað Krafa Novators, félags Björgólfs Thors Björgólfssonar, um að fá tvo menn í stjórn finnska fjarskiptafélagsins Elisa, náði ekki fram að ganga, á fjölmennum hluthafafundi sem haldinn var í dag. 21.1.2008 16:11
Landsvirkjun segir arðsemi Kárahnjúkavirkjunar meiri en áður var talið Ný endurskoðun arðsemismats vegna Kárahnjúkavirkjunar leiðir í ljós að arðsemin er meiri en fyrri athuganir hafa sýnt. Meginskýringin er sú að tekjur reiknast hærri en gert var ráð fyrir og vegur þar þyngst hærra álverð. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landsvirkjun, sem hefur uppfært arðsemismat vegna Kárahnjúkavirkjunar, sem stuðst var við þegar ákvörðun var tekin í árslok 2002. 21.1.2008 15:50
Viðskiptaráðuneytið styrkir rannsóknir á áhrifum erlendra mynta Viðskiptaráðuneytið hefur ákveðið að styrkja Rannsóknastofnun í Fjármálum við Háskólann í Reykjavík, Evrópuréttarstofnun Háskólans í Reykjavík, Evrópufræðasetur Háskólans á Bifröst og Rannsóknarsetur verslunarinnar við Háskólann á Bifröst til rannsókna á áhrifum aukinnar notkunar erlendra mynta á vörumarkað, fjármálamarkað og samfélag á Íslandi almennt. 21.1.2008 12:57
Evrópa fellur Skellur hefur verið á hlutabréfamörkuðum víða um heim í dag, þar á meðal í Kauphöllinni. Gengi bréfa í SPRON og FL Group hefur fallið um á milli sjö til átta prósent. Stórar eignir FL Group og Existu erlendis hafa fallið um allt að átta prósent. 21.1.2008 12:55