Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hlutur FL Group í Commerzbank er 1,15% FL Group hefur minnkað hlut sinn í þýska bankanum Commerzbank. Í ljósi lækkunar hlutabréfa í Commerzbank undanfarna daga hefur FL Group ákveðið að upplýsa um núverandi eignarhlut sinn í bankanum sem er um 1,15% (18. janúar 2008). 21.1.2008 10:35
Vikan byrjar í mínus í kauphöllinni Úrvalsvísitalan hefur fallið um 1,95% í fyrstu viðskiptum dagsins í kauphöllinni. Stendur vísitalan nú í 5.423 stigum. 21.1.2008 10:25
Kaupþing semur við Landsbankann um viðskiptavakt Kaupþing banki hf. hefur samið við Landsbanka Íslands hf. um viðskiptavakt með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. fyrir eigin reikning Landsbankans. 21.1.2008 10:21
VBS flytur starfsemi sína í Borgartún VBS fjárfestingarbankihefur flutt starfsemi sína í nýtt húsnæði að Borgartúni 26. 21.1.2008 09:47
Kínverskir fjárfestar í Nyhedsavisen Það eru kínverskir fjárfestar sem standa á bakvið Morten Lund í kaupum hans á fríblaðinu Nyhedsavisen. Þetta hefur Jyllands Posten eftir fleiri en einum heimildarmanni á vefsíðu sinni í morgun. Ekki er vitað um hvort einn eða fleiri kínverskir fjárfestar séu með Morten í kaupunum. 21.1.2008 09:15
Fall á erlendum hlutabréfamörkuðum Gengisfall hefur verið á evrópskum hlutabréfamörkuðum frá upphafi viðskiptadagsins í dag. Ótti fjárfesta um yfirvofandi samdráttarskeið og efnahagskreppu fékk byr undir báða vængi í morgun þegar Nikkei-vísitalan féll um tæp fjögur prósent. 21.1.2008 08:32
Þjóðverjar reiðir út í Nokia -ráðherrar henda símum sínum Landbúnaðarráðherra Þýskalands er svo súr yfir því að Nokia skuli vera að loka verksmiðju sinni í Þýskalandi að hann hefur lýst því yfir að hann ætli að skipta um síma. 20.1.2008 16:28
Örlög Northern Rock ráðast á mánudaginn Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, mun gefa út yfirlýsingu í breska þinginu á mánudaginn um aðgerðir stjórnvalda vegna bankans Northern Rock. 19.1.2008 11:10
Nova kærir Símann til Samkeppnisráðs Nova ehf. hefur lagt fram kæru til Samkeppniseftirlitsins á hendur Símanum hf. fyrir ólögmæta misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. 18.1.2008 22:35
Teymi leiddi hækkun dagsins Gengi hlutabréfa í Teymi hækkaði mest skráðra félaga í Kauphöll Íslands í dag, eða um 2,03 prósent. Það er jafnframt eina félagið sem hefur hækkað á árinu. Á eftir fylgdu Flaga, sem hefur fallið í vikunni, Exista og Eimskipafélagið en gengi þeirra hækkaði um rúmt prósent. 18.1.2008 16:57
Deildarstjóri Matís varði doktorsverkefni í iðnaðarverkfræði Sveinn Margeirsson, deildarstjóri hjá Matís, varði doktorsverkefni sitt í iðnaðarverkfræði við verkfræðideild Háskóla Íslands í dag. Verkefnið, sem nefnist Vinnsluspá þorskafla, fjallar um hvernig hægt er að hámarka afrakstur fiskveiða. 18.1.2008 16:55
Teymi hækkaði mest í dag Íslenska úrvalsvísitalan hækkaði um 0,2% í dag. Mest voru viðskiptin með bréf í Kaupþingi. Það var hins vegar Teymi hf sem hækkaði mest eða um 2,03%. Flaga hækkaði um 1,85% og Exista hækkaði um 1,36%. Century Alumninum Company, móðurfélag Norðuráls, lækkaði hins vegar mest, eða um 8,47%. Atlantic Petroleum lækkaði um 4,05% og Foroyja Banki lækkaði um 1,33%. 18.1.2008 16:51
Dögg Pálsdóttir segir of snemmt að fagna „Ég er mjög ánægð en bíð með að fagna þar til hæstiréttur hefur staðfest þessa niðurstöðu,“ segir Dögg Pálsdóttir varaþingmaður og hæstaréttarlögmaður um niðurstöðu héraðsdóms Reykjavíkur. 18.1.2008 15:17
Dögg vann í héraðsdómi Dómur hefur verið kveðinn upp í máli Saga Capital gegn Insolidum, fyrirtæki í eigu Daggar Pálsdóttur lögfræðings og varaþingmanns. Kröfu gerðarbeiðanda var hafnað. Saga Capital gerði kröfu um að fyrirtækið fengi öll umráð yfir Insolidum en dómari féllst ekki á þá kröfu og var málskostnaður felldur niður. 18.1.2008 14:30
Salan á hlut sænska ríkisins í Nordea frestast Kreppan á fjármálamörkuðum heimsins gerir það að verkum að salan á tæplega 20% hlut sænska ríkisins í stórbankanum Nordea frestast. Og raunar eru líkur á að við núverandi stöðu muni sænska hægristjórnin falla á tíma með söluna. 18.1.2008 11:05
Zimbabvebúar fá tugmilljónadalaseðilinn Seðlabanki Afríkuríkisins Zimbabve hefur undanfarið brugðist við ógnarhárri verðbólgu með prentun og útgáfu nýrra peningaseðla. Seðlarnir hlaupa á milljónum Zimbabve-dala og var tíu milljónadalaseðillinn settur í umferð í dag. 18.1.2008 10:44
Actavis kaupir lyfjaverksmiðju á Ítalíu Actavis hefur samið við lyfjafyrirtækið Pfizer um kaup á lyfjaverksmiðju sem sérhæfð er í framleiðslu krabbameinslyfja. Í tilkynningu frá félaginu segir að verksmiðjan sé staðsett í bænum Nerviano, um 30 km frá Mílanó á Ítalíu, verksmiðjusvæðið er um 300,000 fermetrar og fastir starfsmenn um 340 talsins. Að auki hefur Actavis samið til nokkurra ára um framleiðslu á krabbameinslyfjum fyrir Pfizer. 18.1.2008 10:27
Teymi og Bakkavör ein á uppleið Gengi bréfa í Teymi og Bakkavör var það eina sem hækkaði í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöll Íslands. Félögin eru jafnframt þau einu sem greiningardeild Glitnis mælti með að fjárfestar keyptu í vikunni. 18.1.2008 10:18
Nær 100 milljarða kr. viðsnúningur til hins verra hjá FL Group Samkvæmt meðalspá greiningardeilda bankanna um afkomu félaga í kauphöllinni á síðasta ársfjórðungi stefnir í 100 milljarða kr. viðsnúning til hins verra fyrir FL Group. 18.1.2008 10:15
Danski auðjöfurinn Morten Lund elskar íslendinga Danski auðjöfurinn Morten Lund er undrabarn í viðskiptum. Þrátt fyrir ungan aldur er hann einn ríkasti maður Danmerkur. Þessi 34 ára gamli viðskiptamaður hagnaðist gríðarlega þegar hann stofnaði hinn svokallaða Skype síma á netinu. 18.1.2008 10:06
Lækkun á evrópskum hlutabréfamörkuðum Gengi hlutabréfa hefur almennt lækkað á hlutabréfamörkuðum í Evrópu þrátt fyrir hækkun á asískum mörkuðum. Útlitið var hins vegar ekki bjart framanaf í Japan en Nikkei-vísitalan féll um tæp þrjú prósent við upphaf viðskiptadagsins og virtust asískir markaðir almennt á niðurleið. 18.1.2008 09:30
Var Nyhedsavisen selt á eina danska krónu? Jyllandsposten, stærsta dagblað Danmerkur, telur að Morten Lund hafi keypt hið íslenskættaða Nyhedsavisen á aðeins eina krónu-danska. 18.1.2008 08:16
Ein stærstu kaupin frá upphafi fjármálakrísu Yfirtaka London Acquisition á Stork iðnsamstæðunni í Hollandi eru ein stærstu fyrirtækjakaup í Evrópu frá upphafi fjármálakrísunnar, upp á 1,7 milljarða evra. 18.1.2008 06:00
FL Group tók flugið Gengi hlutabréfa í FL Group hækkaði mest skráðra félaga í Kauphöll Íslands í dag, eða um 3,33 prósent. Gengið í enda viðskiptadagsins í 10,85 krónum á hlut og hefur það fallið um rúm 25 prósent frá áramótum. 17.1.2008 16:42
Gengi FL Group hefur hækkað um 4,57% í dag Úrvalsvísitalan í Kauphöll Íslands hefur hækkað um 1,4% frá opnun markaða í morgun og hefur gengi FL Group hækkað mest, eða um 4,57%. Gengi bréfa í Bakkavör Group hefur hækkað um 1,92%. 17.1.2008 14:06
Tap Merrill Lynch meira en spáð var Bandaríski fjárfestingabankinn Merrill Lynch skilaði tapi upp á 9,83 milljarða dala, jafnvirði 642 milljarða íslenskra króna, á fjórða ársfjórðungi síðasta árs samanborið við 2,35 milljarða dala hagnað árið á undan. Langmestu munar um 15 milljarða dala afskriftir á skuldabréfavöndlum og verðbréfum sem tengjast bandarískum undirmálslánum. 17.1.2008 13:50
Merrion Landsbanki fremst í flokki írskra verðbréfafyrirtækja Merrion Landsbanki, dótturfyrirtæki Landsbankans á Írlandi, varð á dögunum hlutskarpast írskra verðbréfafyrirtækja í árlegu vali sem viðskiptatímaritið Finance Magazine í Dublin stendur fyrir. 17.1.2008 12:49
Nýr forstjóri yfir Carnegie Mikael Ericson hefur verið ráðinn forstjóri sænska fjárfestingarbankans Carnegie og mun hann taka við starfinu eigi síðar en í júlí í sumar. Bankinn lenti í miklum vandræðum í fyrrahaust þegar rannsókn efnahagsbrotayfirvalda leiddi til þess að fyrrum yfirmaður hans var dæmdur í hálfs árs fangelsi vegna innherjasvika. Maðurinn mun hafa gefið vini sínum trúnaðarupplýsingar um að góðar fréttir væru á leiðinni frá einu félagi í sænsku kauphöllinni og hagnaðist sá um tæplega 5 milljónir króna á þeim. 17.1.2008 11:33
Glitnir með góða lausafjárstöðu Glitnir er í góðri stöðu með yfir 6 milljarða evra í lausafé eða um 550 milljarða króna og endurfjármögnunarþörf móðurfélags um 2,5 milljarða evra og 1 milljarð evra hjá dótturfélagi Glitnis í Noregi. 17.1.2008 11:08
Góð jól hjá HMV Breska bóka- og tónlistarverslunin HMV átti góð jól, að sögn stjórnenda hennar en salan jókst um 9,4 prósent á milli ára í desember. Þetta er nokkuð annað hljóð en hjá öðrum verslunum í Bretlandi en í heildina talið dróst velta saman á milli ára. 17.1.2008 10:52
Stærsti flatskjár í heimi er 150 tommur Panasonic kynnti stærsta flatskjá heimsins á tæknimessunni CES í Las Vegas í vikunni. Skjár þess er 150 tommur að stærð og getur því dekkað að mestu meðalstórann stofuvegg. 17.1.2008 10:42
Grænt upphaf í Kauphöllinni Íslensku bankarnir og fjármálafyrirtækin tóku sprettinn við upphaf viðskiptadagsins í Kauphöll Íslands í dag og stóðu á grænu. Þetta er nokkuð í samræmi við þróunina á erlendum hlutabréfamörkuðum eftir dapurt gengi undanfarna daga. 17.1.2008 10:18
Sameining fær byr undir báða vængi Hugsanlegar sameiningar flugfélaga hafa fengið byr undir báða vængi í Bandaríkjunum en Delta Air Lines þykir vera að þreifa fyrir sér að kaupa ýmist United Airlines eða Northwest Airlines. 17.1.2008 09:46
Hlutabréfaverð á uppleið víða um heim Gengi hlutabréfa í Evrópu og Asíu hefur almennt hækkað í dag eftir skell í byrjun vikunnar. 17.1.2008 09:05
Milljarðamæringur kaupir 51% í Nyhedsavisen Danski milljarðamæringurinn og fjárfestirinn Morten Lund hefur fest kaup á 51% hlut í hinu íslenskættaða fríblaði Nyhedsavisen í Danmörku. 17.1.2008 07:45
Evrunefnd viðskiptaráðherra tekin til starfa Nefnd viðskiptaráðherra sem fara á yfir lagaumhverfi hér vegna evruskráningar hlutabréfa er tekin til starfa og hefur fundað einu sinni í liðinni viku. 17.1.2008 05:00
Kólnun á fasteignamarkaði hafin Velta síðustu fjögurra vikna er tuttugu prósentum minni en á sama tíma í fyrra. Sérfræðingar spá lækkun raunverðs á árinu. 17.1.2008 00:01
Fjármagnstekjur veikur hlekkur „Ég hef vakið á því athygli við umræður á Alþingi að óvissa væri í fjárlagagerðinni. Það er matið á fjármagnstekjuskattinum og tekjum fyrirtækja,“ segir Pétur H. Blöndal, formaður efnahags- og skattanefndar Alþingis. 17.1.2008 00:01
Novator bætir við sig í Elisa Novator, félag Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur aukið hlut sinn í finnska fjarskiptafélaginu Elisa. 17.1.2008 00:01
Hagnaður yfir árið en tap á fjórðungnum Flugrekstrarsamstæðan AMR, móðurfélag American Airlines, stærsta flugfélags Bandaríkjanna, tapaði 69 milljónum dala, jafnvirði 4,5 milljörðum króna, á fjórða ársfjórðungi nýliðins árs. 17.1.2008 00:01
Tilnefningar streyma inn Á morgun rennur út frestur til að tilnefna vefi til Íslensku vefverðlaunanna 2007. Að sögn Þórlaugar Ágústsdóttur, formanns Samtaka vefiðnaðarins (SVEF), hafa tugir tilnefninga þegar borist. 17.1.2008 00:01
Skype-milljarðamæringur kaupir Nyhedsavisen Morten Lund, sem þénaði milljarða þegar Skype var selt til Ebay árið 2005, hefur keypt 51% hlut af Baugi Group í Dagsbrun Media Fond sem gefur út Nyhedsavisen í Danmörku og Bosto Now í Bandaríkjunum. 16.1.2008 23:27
Bréf í Kauphöll þokast upp á við Við lok dags í Kauphöllinni hafði Úrvalsvísitalan þokast upp á við um 0,03 prósent. Bakkavör Group hækkaði mest allra eðaum 2,56 prósent og Icelandair fór upp um 1,87 prósent. Þá hækkaði Exista, sem er í eigu svokallaðra Bakkabræðra líkt og Bakkavör, um 1,68 prósent. 16.1.2008 16:54
Jón Ásgeir einn áhrifamesti maður dansks fjölmiðlaheims Jón Ásgeir Jóhannesson er þriðji valdamesti maðurinn í dönskum fjölmiðlaheimi. Þetta er álit valnefndar sem tók saman lista yfir 200 valdamikla einstaklinga í fjölmiðlageiranum þar í landi. Jón Ásgeir, starfandi stjórnarformaður Baugs sem á danska fríblaðið Nyhedsavisen. Listinn er birtur í tímariti danskra blaðamanna, Journalisten. 16.1.2008 15:48
Kaupþing ekki hætt við kaupin á NIBC „Kaupþing stefnir að því að kaupa NIBC og bíður samþykkis Fjármálaeftirlitsins fyrir kaupunum," segir Jónas Sigurgeirsson, 16.1.2008 14:13