Fleiri fréttir Við áramót Bjarni Benediktsson skrifar Í lok árs er við hæfi að líta til baka yfir hið liðna, hvort sem er á hinum pólitíska vettvangi eða á öðrum sviðum þjóðlífsins. Til gleðiefna telst árangur fremsta íþróttafólks okkar á alþjóðavettvangi, ekki síst kvennalandsliðanna í handknattleik og knattspyrnu. 31.12.2011 13:13 Sterk staða Íslands Steingrímur J. Sigfússon skrifar Ársins 2011 verður tæpast minnst með söknuði í Evrópu almennt séð. Á efnahagssviðinu hafa hrannast upp óveðursský og fátt bendir til annars en áframhaldandi glímu við mikla efnahagserfiðleika álfunnar sem í vaxandi mæli smita yfir á heimsbúskapinn. Ekki er lengur eingöngu rætt einangrað um vandamál ríkja eins og Grikklands, Portúgals, Írlands, Ítalíu og Spánar. Nú er spurt hvaða ríki kunni næst að lenda í vandræðum, hver verði framtíð evrunnar og hverju þurfi til að kosta efnahagslega og pólitískt, eigi að takast að bjarga henni. 31.12.2011 13:00 Úr vörn í sókn! Jóhanna Sigurðardóttir skrifar Þegar frá líður verður ársins 2011 líklega minnst sem árs mikilla umskipta í efnahagslífi Íslands. Ársins þegar þjóðin spyrnti sér kröftuglega frá botninum og hóf sjálfbæra lífskjarasókn. Þó enn glími allt of margir við erfiðleika var þetta árið sem umheimurinn og vaxandi fjöldi landsmanna fengu aftur trú á Íslandi og þeim óþrjótandi tækifærum og krafti sem býr í landi og þjóð. 31.12.2011 13:00 Árið 2012 verður að nýta vel Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar Við lestur áramótagreina undanfarinna ára blasir við hversu ótrúlega mikil stöðnun hefur ríkt á Íslandi frá því að ríkisstjórn Alþýðubandalagsins tók við völdum. 31.12.2011 08:15 Lýðræðið í vörn Þór Saari skrifar Sé litið yfir hið pólitíska litróf hér á landi og í nágrannaríkjunum er ekki annað hægt en að fyllast áhyggjum af stöðu og vegferð lýðræðisins þessa dagana. Tæknikratar hafa verið ráðnir í vinnu sem forsætisráðherrar í stað kjörinna fulltrúa almennings í tveimur löndum og það meira að segja á Ítalíu, einu af þungavigtarríkjum Evrópusambandsins. Forsætisráðherra sem er ekki lýðræðislega kjörinn er alvarlegt mál. 31.12.2011 08:00 Hundar og áramótin Ekki eru allir sem hlakka til áramótanna og sprengjulátanna sem þeim fylgja. Hundar eru eðlilega almennt ekki hrifnir af þessum hávaða og látum og sumir eru svo helteknir hræðslu að það er til vandræða fyrir alla fjölskyldunna. Það er einstaklingsbundið hvernig hræðslan lýsir sér. Hundar leita vanalega til eigendanna þegar þeir eru hræddir, en þá er mikilvægt að eigendur ýti ekki undir hræðsluna með látbragði sínu, heldur haldi ró sinni. Í sumum tilfellum er hræðslan svo ofsaleg að dýrið gerir hvað sem er til að komast undan og getur farið sér að voða. Stundum breytist vandinn og hundurinn fer að vera hræddur við öll hvell hljóð og ljós, en ef vandamálið er orðið svo slæmt er rétt að leita til atferlisfræðings, sem getur gefið leiðbeiningar um meðhöndlun. 30.12.2011 14:11 Hernaðurinn gegn fólkinu Helgi Magnússon skrifar 29.12.2011 14:00
Sjá næstu 50 greinar
Við áramót Bjarni Benediktsson skrifar Í lok árs er við hæfi að líta til baka yfir hið liðna, hvort sem er á hinum pólitíska vettvangi eða á öðrum sviðum þjóðlífsins. Til gleðiefna telst árangur fremsta íþróttafólks okkar á alþjóðavettvangi, ekki síst kvennalandsliðanna í handknattleik og knattspyrnu. 31.12.2011 13:13
Sterk staða Íslands Steingrímur J. Sigfússon skrifar Ársins 2011 verður tæpast minnst með söknuði í Evrópu almennt séð. Á efnahagssviðinu hafa hrannast upp óveðursský og fátt bendir til annars en áframhaldandi glímu við mikla efnahagserfiðleika álfunnar sem í vaxandi mæli smita yfir á heimsbúskapinn. Ekki er lengur eingöngu rætt einangrað um vandamál ríkja eins og Grikklands, Portúgals, Írlands, Ítalíu og Spánar. Nú er spurt hvaða ríki kunni næst að lenda í vandræðum, hver verði framtíð evrunnar og hverju þurfi til að kosta efnahagslega og pólitískt, eigi að takast að bjarga henni. 31.12.2011 13:00
Úr vörn í sókn! Jóhanna Sigurðardóttir skrifar Þegar frá líður verður ársins 2011 líklega minnst sem árs mikilla umskipta í efnahagslífi Íslands. Ársins þegar þjóðin spyrnti sér kröftuglega frá botninum og hóf sjálfbæra lífskjarasókn. Þó enn glími allt of margir við erfiðleika var þetta árið sem umheimurinn og vaxandi fjöldi landsmanna fengu aftur trú á Íslandi og þeim óþrjótandi tækifærum og krafti sem býr í landi og þjóð. 31.12.2011 13:00
Árið 2012 verður að nýta vel Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar Við lestur áramótagreina undanfarinna ára blasir við hversu ótrúlega mikil stöðnun hefur ríkt á Íslandi frá því að ríkisstjórn Alþýðubandalagsins tók við völdum. 31.12.2011 08:15
Lýðræðið í vörn Þór Saari skrifar Sé litið yfir hið pólitíska litróf hér á landi og í nágrannaríkjunum er ekki annað hægt en að fyllast áhyggjum af stöðu og vegferð lýðræðisins þessa dagana. Tæknikratar hafa verið ráðnir í vinnu sem forsætisráðherrar í stað kjörinna fulltrúa almennings í tveimur löndum og það meira að segja á Ítalíu, einu af þungavigtarríkjum Evrópusambandsins. Forsætisráðherra sem er ekki lýðræðislega kjörinn er alvarlegt mál. 31.12.2011 08:00
Hundar og áramótin Ekki eru allir sem hlakka til áramótanna og sprengjulátanna sem þeim fylgja. Hundar eru eðlilega almennt ekki hrifnir af þessum hávaða og látum og sumir eru svo helteknir hræðslu að það er til vandræða fyrir alla fjölskyldunna. Það er einstaklingsbundið hvernig hræðslan lýsir sér. Hundar leita vanalega til eigendanna þegar þeir eru hræddir, en þá er mikilvægt að eigendur ýti ekki undir hræðsluna með látbragði sínu, heldur haldi ró sinni. Í sumum tilfellum er hræðslan svo ofsaleg að dýrið gerir hvað sem er til að komast undan og getur farið sér að voða. Stundum breytist vandinn og hundurinn fer að vera hræddur við öll hvell hljóð og ljós, en ef vandamálið er orðið svo slæmt er rétt að leita til atferlisfræðings, sem getur gefið leiðbeiningar um meðhöndlun. 30.12.2011 14:11
Er hægt að koma í veg fyrir alvarleg vinnuslys? Kristján Kristinsson skrifar Það er því miður fátt um stórframkvæmdir hér á landi um þessar mundir. Þó eru nokkrar í gangi og ein þeirra er bygging Búðarhálsvirkjunar. Tæplega 300 manns hafa á haustmánuðum unnið að þessu verkefni. Bygging virkjunar er flókið og hættulegt verk burtséð frá því að unnið er allt árið um kring og nánast í öllum veðrum. Áhættuþættir eru margir, s.s. langir vinnudagar, löng úthöld og síbreytilegar aðstæður. 29.12.2011 06:00
Að synda í skítköldum sjó Fyrir rúmum þrem árum hringdi systir mín í mig og sagði mér að hún hefði skellt sér í sjósund. Mér fannst það frekar kjánalegt en var svo sem ekkert að láta hana heyra það. Gretti mig pínulítið hinum megin á símalínunni og sagði "ó, en frábært“ án þess að meina það alveg frá hjartanu. En systir mín fór aftur og aftur í sjósund og dásamaði þetta alltaf meir og meir í hvert skipti. Heima sat ég hálf partinn undrandi á henni en samt hreykin af dugnaði hennar og ákvað síðan að skella mér með, prófa bara einu sinni. 29.12.2011 06:00
Eru ráðamenn þjóðarinnar veruleikafirrtir ? Það er uppgangur í útflutningsgreinum okkar svo sem álútflutningi sem hefur aldrei verið meiri, ásamt hagstæðu verði, einnig í sjávarútveginum sem er ranglega skipt. Atvinnustiginu hefur verið haldið uppi með lántökum síðustu 20 ár ef ekki lengur, svo sem hjá sveitarfélögum, fyrirtækjum og heimilum sem eru skuldsett upp í rjáfur. Okkur stendur ekki lengur til boða að halda byggingariðnaðinum í gangi með skuldasöfnun, sem er búin að vera mikið lengur en 2007 bólan og við getum síðan ekki borgað. 29.12.2011 06:00
Refsilækkunarástæður Leifur Runólfsson skrifar Í dag eru fjölmiðlar oft á tíðum nokkurs konar gapastokkur nútímans. Fyrr á öldum var ekki óalgengt að sakamenn væru settir í gapastokk. Hinn íslenski gapastokkur samanstóð af hálsjárni sem var fest utan um brotamanninn og keðju er var fest í vegg. Passað var upp á að gapastokkurinn væri á almenningsstöðum til að sem flestir sæju viðkomandi brotamann. Það þótti mikil smán að lenda í gapastokknum og menn áttu erfitt uppdráttar á viðkomandi svæði lengi á eftir. 29.12.2011 06:00
Ekki taka sénsinn – hávaði frá flugeldum Hvellur frá flugeldum og öðrum sprengjum framkallar sterkt hljóð sem leitt getur til heyrnarskerðingar og eyrnasuðs. Styrkur hljóðsins í eyranu fer eftir því hversu nálægt eyranu hljóðið er. 29.12.2011 06:00
Nýr Landspítali: Slys aldarinnar? Guðjón Baldursson skrifar Látið er að því liggja að bygging nýs Landspítala verði fjármögnuð fyrir sparifé landsmanna í lífeyrissjóðum sem verði fengið að láni og hafa margir af stærstu lífeyrissjóðunum undirritað viljayfirlýsingu þar að lútandi. Þá hefur verið talað um að „hagræðing muni borga byggingarkostnaðinn"! Þannig að við getum komið út í stórgróða, fengið spítalann gefins! Maður fyllist bara lotningu yfir svo mikilli reiknilist. 29.12.2011 06:00
Hvað kostar leigubíll? Fram undan er skemmtilegur tími, áramótin. Tækifæri til að hitta vini og fjölskyldu og fagna saman. Það er ekki óalgengt að fagna nýju ári með því að skála. Margir láta það ekki nægja heldur fá sér í glas í góðra vina hópi, sem ekkert athugavert er við. 29.12.2011 06:00
Flest flugeldaslys verða þegar leiðbeiningum er ekki fylgt Gunnar Stefánsson skrifar Áramótin eru sá tími þegar Íslendingar safnast saman og gera sér glaða kvöldstund, skjóta flugeldum til að fagna nýju ári og kveðja það gamla. Margir eru kappsamir við þessa iðju en þá er slysahættan mest og gamanið getur breyst í viðveru á slysadeild með brunasár eða verri meiðsl. Til að koma í veg fyrir það þarf að umgangast flugelda með varúð. Verum góð fyrirmynd barnanna okkar, látum áfengi vera og förum eftir leiðbeiningum. Þá er líklegt að við förum inn í nýtt ár með bros á vör eftir mikinn ljósagang með tilheyrandi sprengingum. 28.12.2011 06:00
Hjarta í ökuskírteinið Margrét S. Sölvadóttir skrifar Það er yndislegt að fá að koma heim í jólafrí þegar maður býr ekki lengur á landinu kalda. Hvergi í heiminum er jólalegra eða hátíðlegra en á Íslandi á jólum. Íslendingar kunna að halda jól betur en nokkrar aðrar þjóðir að mínu mati. Svo á það svo vel við að hafa jólasnjóinn sem gerir birtu jólaljósanna enn fallegri. Mér finnst líka að það ríki einstök samkennd og hlýja í garð náungans á jólunum á Íslandi. Já, þetta er mín upplifun í hvert sinn sem ég kem til að halda jól hér heima. Íslendingar eru líka fyrstir þjóða til að taka upp nýjungar, eða það segi ég öllum erlendum vinum og kunningjum sem spyrja mikið um land og þjóð. 28.12.2011 06:00
Sanngirni og jafnræði í sjávarútvegi Þessa dagana stendur yfir endurskoðun á frumvarpi sjávarútvegsráðherra frá því í vor um fiskveiðistjórnun. Frumvarpið byggði á svokallaðri samningaleið sem hagsmunaaðilar í greininni höfðu lagt þunga áherslu á að lægi til grundvallar. Eins og marga rekur minni til var frumvarpinu þó fálega tekið af öllum þeim sem um það hafa fjallað, bæði fylgjendum og andstæðingum breytinga á kvótakerfinu. Er því ljóst að frumvarpið þarf að taka gagngerum breytingum. 28.12.2011 06:00
Ofan í kassana! Ögmundur Jónasson skrifar Hrunskýrslurnar sögðu að á Íslandi skorti umræðuhefð. Reyndar held ég að þetta sé ekki einskorðað við Ísland. Víða gengur mönnum illa að höndla málefnalega umræðu. Á tímum Kalda stríðsins voru sósíalistar, ekki aðeins hér á landi heldur víða erlendis, afgreiddir sem aftaníossar Sovétmanna þegar þeir tefldu fram málefnalegum rökum um mikilvægi jöfnuðar í þjóðfélaginu; hvort þeir vildu ekki líka senda alla í nauðungarvist til Síberíu! Þetta var gjarnan viðkvæðið til að slökkva á allri umræðu þegar reistar voru kröfur um þjóðfélagsumbætur. 28.12.2011 06:00
Nýr Landspítali: Slys aldarinnar? Guðjón Baldursson skrifar Nýr Landspítali hefur verið á teikniborðinu frá því fyrir aldamót. Fjöldi starfsmanna spítalans hefur verið á launaskrá vegna verkefnisins og sérfræðingar erlendir sem innlendir hafa verið ráðnir til þess að undirbúa framkvæmdir. Af forvarsmönnum spítalans hefur því verið haldið á lofti að hinir erlendu aðilar hafi tvívegis komist að sömu niðurstöðu varðandi staðsetningu spítalans við Hringbraut. Látið að því liggja að um hafi verið að ræða „hlutlausa" aðila. Staðreyndin er engu að síður sú að þessum aðilum hefur frá upphafi verið fullkunnugt um álit forsvarsmanna spítalans: Að hafa spítalann á Hringbrautarsvæðinu. Dæmi nú hver fyrir sig um „hlutleysi". Fyrir liggja teikningar að nýjum Landspítala við Hringbraut. Sitt sýnist hverjum um ágæti þeirra, einkum um staðsetninguna. Stjórnendur spítalans yfir sig hrifnir en andmælendur hafa lítt haft sig í frammi. 28.12.2011 06:00
Staðan í ESB-viðræðunum Stefán Haukur Jóhannesson og Björg Thorarensen og Þorsteinn Gunnarsson skrifa Á ríkjaráðstefnu í Brussel hinn 12. desember sl. voru opnaðir fimm samningskaflar í aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins (ESB). Þetta var þriðja ráðstefnan sem haldin er frá því að efnislegar samningaviðræður hófust í júní í sumar. 27.12.2011 17:00
Rangar staðhæfingar um bóluefni – enn og aftur Haraldur Briem og Þórólfur Guðnason skrifar Í Fréttablaðinu 22.12.2011 er birt grein eftir Þorstein Sch. Thorsteinsson um meinta skaðsemi bólusetninga og vanrækslu sóttvarnalæknis er varðar upplýsingar til almennings um innihaldsefni bóluefna. Þó að flestu af því sem fram kemur í greininni hafi margsinnis verið svarað áður er rétt að ítreka nokkur atriði. 27.12.2011 16:30
Í fínu lagi á Íslandi en glæpur í Flórída Pétur Sigurðsson skrifar Ástæðan fyrir því að ég settist niður til þess að rita þessa grein er frétt sem ég sá í íslensku dagblaði, þar sem blaðamaður ræddi við starfsmann (ekki löggiltan) á leigumiðlun. Þau voru að fjalla um leigumarkaðinn og tjáði starfsmaðurinn sig frjálslega um leigusalana og þeirra hagsmuni með niðrandi athugasemdum. Einnig hef ég heyrt að fasteignasölur geti ráðið til sín sölumenn án nokkurra réttinda og leyft þeim að selja og taka í sölu eignir. 27.12.2011 06:00
Íþróttir og tóbaksnotkun Reynir Björn Björnsson skrifar Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan ég byrjaði mína knattspyrnuiðkun í kringum 1973-74. Þá var algengt að reykt væri á hliðarlínunni á kappleikjum barna og unglinga og íþróttasvæði voru ekki reyklaus. 27.12.2011 06:00
Lyfjaverð á Íslandi Jakob Falur Garðarsson skrifar Í síðasta mánuði kom út athyglisverð skýrsla Ríkisendurskoðunar, Þróun lyfjakostnaðar 2008-2010. Rétt er að rifja upp að árið 2005 gaf Ríkisendurskoðun út sambærilega skýrslu sem sýndi fram á að lyfjaverð á Íslandi var hærra en í helstu samanburðarlöndum okkar. Sú spurning sem Ríkisendurskoðun leggur til grundvallar í hinni nýju skýrslu er því áhugaverð og hlýtur að vekja forvitni almennings: er lyfjaverð á Íslandi svipað og á Norðurlöndunum? 27.12.2011 06:00
Opnir nefndafundir Alþingis – aukið gegnsæi í þingstörfum Ásta R. Jóhannesdóttir skrifar Í sumar voru gerðar margvíslegar breytingar á þingskaparlögum í því skyni að styrkja eftirlit Alþingis með framkvæmdarvaldinu. Einn liður í þessum breytingum voru ákvæði um opna upplýsingafundi nefnda. Hlutverk slíkra funda er að vera vettvangur fyrir samræðu þingnefndar við aðila utan hennar þar sem nefndarmenn geta leitað upplýsinga eða skýringa á tilteknum málum fyrir opnum tjöldum. Þessir upplýsingafundir eru tvenns konar. Annars vegar eru fundir sem eru opnir almenningi og fréttamönnum og sem er jafnframt sjónvarpað beint og sendir út á vef Alþingis. Hins vegar eru upplýsingafundir sem ekki eru sendir út en sem opnir eru fyrir fréttamönnum. 27.12.2011 06:00
Rómantísk jól Sr. Þórhallur Heimisson skrifar Rómantík er eitthvað sem flestir þrá svona innst inni þó sumir telji sig of mikil hörkutól til að viðurkenna það fyrir öðrum. Rómantíkin felur í sér eitthvað gott, einhverja sælu, einhverja hamingju sem gefur lífinu gildi. En því miður þá leyfum við rómantíkinni allt of sjaldan að blómstra í lífi okkar. Og þess vegna förum við allt of oft á mis við hamingjuna og sæluna sem rómantíkin gefur okkur. Rómantíkin er látin bíða framtíðarinnar á meðan við látum okkur dreyma um betri tíð með blóm og rómantík í haga, sæta langa sæludaga. 23.12.2011 06:00
Það væri góð jólagjöf Jónas Þ. Þórisson skrifar Nú er Hjálparstarf kirkjunnar að safna fyrir neyðarhjálp í Austur-Afríku og er sú hjálp unnin í samstarfi við ACT Alliance, alþjóðleg neyðar- og þróunarsamtök. Á þeim vettvangi er krafan um fagleg vinnubrögð og samstarf mjög mikil. Aðilar sem sinna slíkri hjálp skipta með sér verkum og sinna mismunandi hópum og þáttum hjálparstarfsins. 23.12.2011 06:00
Hafnarfjarðarbær ekki féflettur Dr. Bjarki Jóhannesson skrifar Í Fréttablaðinu 21. desember birtist greinin „Hafnarfjarðarbær féflettur – og öllum er sama“ eftir Karl Garðarsson. Karli er þakkað fyrir að opna mjög þarfa umræðu, en þó eru nokkur atriði varðandi aðkomu embættis byggingarfulltrúa sem ástæða er til að leiðrétta, og jafnframt að minnast á ábyrgð byggingarstjóra í þessu máli. 23.12.2011 06:00
Bandaríkin á alræðisbraut? Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Um þessar mundir standa bandarískir þingmenn frammi fyrir ákvörðunum sem gætu markað tímamót í sögu Bandaríkjanna. Þessi mál hafa furðu litla umfjöllun fengið hérlendis og er full ástæða til að bæta úr því. Á Bandaríkjaþingi er svokallað varnarlagafrumvarp til umræðu, en þar er að finna óhugnanleg ákvæði sem margir telja að tengist þeirri mótmælaöldu sem nú fer um landið. 22.12.2011 11:00
Bólusetningaræðið með eiturefnum Þorsteinn Scheving Thorsteinsson skrifar Eitt af því sem Landlæknisembættið (sóttvarnalæknir) á að fylgjast með og gefa upplýsingar um til almennings er allt í sambandi við eiturefni. Ekki er hægt að segja að sóttvarnalæknir hafi nokkurn tíma farið eftir þessum lögum hvað varðar innihaldsefni bóluefna, þar sem embættið hefur svo vitað sé aldrei prentað eitt eða neitt í því sambandi handa almenningi. 22.12.2011 06:00
Sögulegt skref í heimsviðskiptum Stefán Haukur Jóhannesson skrifar Niðurstaða samninga um aðild Rússlands að Alþjóðaviðskiptastofnuninni (World Trade Organisation – WTO) var samþykkt á ráðherrafundi föstudaginn 16. desember sl. Þar með lauk erfiðum og flóknum samningum en undirritaður hafði það hlutverk að leiða þessar viðræður síðustu átta árin af alls átján sem viðræðurnar tóku. 22.12.2011 06:00
Lýsi þeim sem sitja í myrkri Toshiki Toma skrifar Um daginn samþykkti Alþingi frumvarp um að veita 24 einstaklingum ríkisborgararétt. Þá fékk hælisleitandi frá Íran, Mehdi Kavyanpoor, að verða Íslendingur. Mehdi hafði dvalið um sjö ár hérlendis en hann sótti um hæli á Íslandi árið 2005. Sem prestur innflytjenda og vinur hans fagna ég þessum úrslitum í máli Mehdi. 22.12.2011 06:00
Meira um leikskóla Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir skrifar Opinber kerfi í Evrópu, þar með talið á Íslandi, eru orðin of stór og of dýr. Þau hafa stækkað á undanförnum árum að því er virðist án mikillar fyrirstöðu. Nú er svo komið að þjónusta hins opinbera kostar meira en samfélagið stendur undir. Verkefnið fram undan felst í forgangsröðun og hagræðingu en á sama tíma þarf að leita leiða til að auka vöxt efnahagslífsins. Þetta samþykkja ekki allir og síst af öllum íslenskir vinstriflokkar sem velja frekar þá leið að ná í enn meiri fjármuni hjá skattgreiðendum og fyrirtækjum. Þær leiðir endurspegla fælni við skilgreiningar og stefnumótun um þjónustustig og hagræðingu. 22.12.2011 06:00
Um lífeyri og langtíma viðmið Gylfi Arnbjörnsson skrifar Undanfarið hefur mikið verið fjallað um það viðmið um raunávöxtun, sem notuð er í lífeyriskerfinu til að ákvarða framtíðar lífeyrisréttindi og núvirða framtíðartekjur og -gjöld sjóðanna. Umræða um lífeyrismál er mikilvæg, en því miður byggir þessi umfjöllun á misskilningi á nokkrum grundvallaratriðum sem leiðir til þess að einblínt er á ranga þætti í þróun fjármálamarkaðar og lífeyriskerfis. 21.12.2011 06:00
Land tækifæranna Andri Guðmundsson skrifar Á fróðlegri ráðstefnu VÍB um daginn sagði Martin Wolf, aðalhagfræðingur FT, eitthvað á þá leið að hann væri hættur að vorkenna Íslendingum. Vissulega var hér stór skellur, en Íslendingar fóru frá því að vera rosalega rík þjóð, yfir í það að vera "bara“ rík þjóð. Þrátt fyrir allt, þá eru lífskjör Íslendinga enn meðal þeirra bestu í heimi. 21.12.2011 06:00
Þjóðgarðsvörður Vatnajökuls-þjóðgarðs á villigötum Guðmundur G. Kristinsson skrifar Í grein í Fréttablaðinu 29. október 2011 setur Snorri Baldursson, þjóðgarðsvörður á Vestursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs, fram ótrúlegar dylgjur um Ferðaklúbbinn 4x4 og gerir félagsmönnum klúbbsins það upp að þeir skælist yfir land utanvega til að GPS-ferlar eftir þá séu skilgreindir sem vegir. 21.12.2011 06:00
Skömm fjármálaráðherra Vilhelm Jónsson skrifar Fjármálaráðherra þorir ekki að anda á bankasýsluna og fjármagnseigendur, sem halda ríkisstjórninni í heljargreipum í krafti auðvalds. Ábyrgð hans er mikil þegar hann rétti vogunarsjóðum og hrægömmum skuldakröfur á heimili og fyrirtæki á slikk, sem eru síðan rukkaðar af fullri hörku. Fjármálastofnarnir ætla svo að hámarka arðsemi með því að innheimta skuldug heimili og halda þeim í gíslingu með 110% leiðinni, sem er gjörsamlega galin og dæmd til að mistakast. 21.12.2011 06:00
Stundum verðum við að föndra grös og róla í núinu Brynja Dís Björnsdóttir skrifar Samfélag okkar rótast í skólamálum og veit sífellt minna um ætlan yfirvalda og ætlan þjóðarinnar. Þjóðin mun föndra það sem þarf til að skólakerfið geti starfað og undirbúið börnin okkar undir lífið. Læti samfélagsins í dag verða skólunum erfið og ýmislegt spennandi á eftir að koma í ljós þegar þjóðin öðlast reynslu í framtíðinni varðandi tækni í rafiðnaði og sölu á raforku. 21.12.2011 06:00
Hönnunarstefna Íslands Björk Guðmundsdóttir skrifar Hvað er hönnun? Er það starf? Líklegt er að tónlistarmenn kannist við þessa spurningu. Að mörgu leyti er líkt með tónlist og hönnun, varðandi það að sumir vinna þetta svolítið sem markaðsdrifnar tækniútfærslur en aðrir eru að þessu listarinnar vegna. 21.12.2011 06:00
Takmarkanir reykinga, Ísland og önnur lönd Sigríður Ólína Haraldsdóttir skrifar Nýlega kom út rúmlega 700 síðna skýrsla á vegum bandaríska landlæknisembættisins um áhrif beinna og óbeinna reykinga á heilsu og líf einstaklinga (1). Þar eru niðurstöður vísindarannsókna dregnar saman og tekin af öll tvímæli um skaðsemi reykinga. Í ljós hefur komið að fyrsta sígarettan getur valdið stökkbreytingum í frumum sem síðar þróast í krabbamein. Nú á dögum er ekki deilt um áhættu vegna beinna og óbeinna reykinga. Það er sannað að þær eru heilsuspillandi, valda sjúkdómum og dauða. 21.12.2011 06:00
Er lítill lyfjamarkaður á Íslandi ástæða lítils lyfjaframboðs? Jakob Falur Garðarsson skrifar Í síðasta mánuði kom út skýrsla Ríkisendurskoðunar, Þróun lyfjakostnaðar 2008-2010. Helsta niðurstaða hennar er sú að þrátt fyrir smæð íslenska lyfjamarkaðarins sé lyfjaverð hérlendis bæði sambærilegt við lyfjaverð í þeim löndum sem við berum okkur jafnan saman við og í mörgum tilfellum sé lyfjaverð meira að segja lægra en í þessum löndum. 21.12.2011 06:00
Mikil arðsemi af raforkusölu til stóriðju Þorsteinn Víglundsson skrifar Í nóvember 2006 keypti ríkissjóður 50% hlut Reykjavíkurborgar og Akureyrarkaupstaðar í Landsvirkjun á 30,25 milljarða króna. Kaupverð samsvaraði því að markaðsverðmæti Landsvirkjunar væri liðlega 60 milljarðar króna, álíka mikið og eigið fé félagsins í árslok 2005. 21.12.2011 06:00
Hafnarfjarðarbær féflettur – og öllum er sama Karl Garðarsson skrifar Hvernig finnst íbúum í Hafnarfirði að greiða tugi þúsunda króna í fasteignagjöld á mánuði á meðan nágranninn, sem býr í sams konar húsi, borgar kannski helmingi minna? 21.12.2011 06:00
Framtaks er þörf Þorkell Sigurlaugsson skrifar Þegar Framtakssjóður Íslands var stofnaður í desember 2009, fyrir tveimur árum, var staðan í íslensku atvinnulífi um margt sérstök. Fjölmörg fyrirtæki höfðu lent í verulegum erfiðleikum og leystu bankarnir þau til sín. Það var ljóst að eignarhald banka á atvinnufyrirtækjum yrði aldrei til frambúðar og nauðsynlegt að skapa farveg fyrir eðlilegt eignarhald. Fjárfestar, meðal annars lífeyrissjóðir, voru illa brenndir af hruninu og almenningur hafði misst tiltrú á hlutabréfamarkaði. Við þessar aðstæður ákváðu 16 lífeyrissjóðir að stofna Framtakssjóðinn, sem hefði það að markmiði að fjárfesta í íslenskum fyrirtækjum sem eiga sér vænlegan rekstrargrundvöll. Markmiðið var að byggja upp öflug fyrirtæki og um leið skila góðri ávöxtun til fjárfesta. Það er ekki markmið Framtakssjóðsins að eiga fyrirtæki til lengri tíma, þvert á móti á Framtakssjóðurinn að selja eignarhluti sína að hluta eða öllu leyti innan nokkurra ára, eða þegar hlutverki hans er lokið, meðal annars með skráningu á hlutabréfamarkað. 21.12.2011 06:00
Mikil arðsemi af raforkusölu til stóriðju Þorsteinn Víglundsson skrifar Á liðnum áratug hefur handbært fé Landsvirkjunar frá rekstri fjórfaldast í Bandaríkjadölum. Handbært fé frá rekstri er það fjármagn sem Landsvirkjun hefur til umráða í lok hvers rekstrarárs eftir að hafa staðið skil á rekstrargjöldum og vöxtum. Á sama tímabili hefur raforkusala Landsvirkjunar aukist úr 6.800 GWh í nær 13.000 GWh, eða því sem næst tvöfaldast. Stærstur hluti þessarar aukningar er tilkominn vegna raforkusölu til stóriðju. 20.12.2011 06:00
„Elska skaltu náunga þinn“ – gegn rasisma, hatri og sögufölsunum öfga hægrisins Guðrún Ósk Þórudóttir Skoðun