Fleiri fréttir
Sjá næstu 50 greinar
Sparað hér og skorið þar Ingimar Einarsson skrifar Víða um lönd er tilvísanaskyldu beitt til að efla heilsugæsluna, tryggja sem mesta samfellu í þjónustu við sjúklinga og stuðla að skilvirkri verkaskiptingu í heilbrigðiskerfinu. Í stuttu máli sagt felur tilvísanaskyldan í sér að hið opinbera eða sjúkratryggingar af ýmsum toga greiða að jafnaði ekki fyrir meðferð sjúklings hjá sérgreinalækni eða á sjúkrahúsi nema honum hafi verið vísað þangað af heimilislækni. Heilsugæslan er því við venjulegar kringumstæður fyrsti viðkomustaðurinn í heilbrigðiskerfinu. Útfærsla tilvísanaskyldu er samt sem áður breytileg frá einu landi til annars. 20.12.2011 06:00
Ójöfnuður og afskipti ríkisvaldsins Jón Gunnar Bernburg og Sigrún Ólafsdóttir skrifar Umræða um ójöfnuð lífskjara meðal almennings skýtur reglulega upp kollinum hérlendis, enda er þetta málefni mikilvægt viðfangsefni stjórnmála og vinnumarkaðar. Stefnumörkun á þessum sviðum, til að mynda í skatta- og velferðarmálum, hefur veruleg áhrif á dreifingu lífskjara í þjóðfélaginu. Í þessari grein kynnum við niðurstöður úr nýlegri könnun sem gefur vísbendingu um hve mikinn ójöfnuð Íslendingar vilja og hvaða hlutverk þeir telja að ríkisvaldið eigi að hafa í að sporna við ójöfnuði í þjóðfélaginu. 20.12.2011 06:00
Opið bréf til íslenskra augnlækna Flestir þeirra sem verða blindir eða alvarlega sjónskertir á unga aldri eða snemma á fullorðinsárum verða það sökum arfgengra hrörnunarsjúkdóma í sjónhimnunni (RP og tengdir sjúkdómar). Engar meðferðir eru til við þessum augnsjúkdómum í dag og því er það hlutskipti þeirra sem eru með þessa sjúkdóma að tapa sífellt meiri sjón með árunum og getur sjónmissirinn endað í alblindu. Mjög misjafnt er hversu hratt þessir sjónhimnusjúkdómar þróast, allt frá árum yfir í áratugi, og því er það mjög einstaklingsbundið hvenær og hverjir verða blindir, sumir á unglingsárum og aðrir seinna á fullorðinsárum. 19.12.2011 08:00
Væntur lífeyrir og lánakjör Sigríður Ingibjörg Ingadóttir þingkona skrifar grein í Fréttablaðinu þar sem hún spyr hversu raunsætt það sé að byggja lífeyriskerfi á ávöxtun upp á 3,5%, sem er viðmið lágmarks árlegrar raunávöxtunar lífeyrissjóða. Þetta viðmið var hugsanlega ekki fráleitt þegar lögin voru sett árið 1997 því að árlegur hagvöxtur hafði þá að meðaltali aukist síðustu 30 ár (1966 til 1995) um 3,5% og raunar 4% síðustu 50 ár. Hagvöxtur hefur hins vegar ekki verið nálægt þessum forsendum lengi. Þetta meðaltal síðustu þrjá áratugi hefur verið um 2,5% og miðað við nýjustu tölur Hagstofunnar er það meðaltal stöðugt að lækka. 19.12.2011 08:00
Vernd fæðingarorlofslaga ofmetin Lára V. Júlíusdóttir skrifar Full ástæða er til að vekja athygli launafólks á nýlegri dómaframkvæmd í fæðingarorlofsmálum. 19.12.2011 07:00
Uppvaxtarskilyrði vaxtarbroddsins Á hátíðis- og tyllidögum tala framámenn um ferðaþjónustu sem „vaxtarbrodd atvinnulífsins“ og hafa raunar gert það allt frá því að ég fór fyrst að vinna við ferðamál fyrir 30 árum. Þessi vaxtarbroddur hefur verið ákaflega renglulegur allan þennan tíma þrátt fyrir fögur orð og fyrirheit. Uppvaxtarskilyrðin hafa verið skipulagsleysi, fálmkennd markaðsmál, skattpíning og sáralítil arðsemi. Það eina sem forystumenn hins opinbera hafa skreytt sig með er vaxandi fjöldi ferðamanna. Það að telja rollurnar inn í réttina segir ekkert um fallþunga dilkanna sem, að því að virðist, eru við það að falla úr hor. Atvinnugreinin hefur sjálf reynt að beina sjónum að vandanum án þess að fá teljandi áheyrn. 19.12.2011 07:00
Mikil arðsemi af raforkusölu til stóriðju Þorsteinn Víglundsson skrifar Ekkert íslenskt fyrirtæki er með meira eigið fé en Landsvirkjun, samkvæmt úttekt Frjálsrar verslunar á 300 stærstu fyrirtækjum landsins miðað við árið 2010. Arðsemi Landsvirkjunar á liðnum áratug hefur enda verið með miklum ágætum. Eigið fé félagsins hefur liðlega fjórfaldast og nam nærri 190 milljörðum króna í árslok 2010. 19.12.2011 07:00
Staðgöngumæðrun: horfst í augu við staðreyndir Velferðarnefnd Alþingis samþykkti nýja þingsályktunartillögu um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni. Tillagan er nokkuð breytt frá fyrra þingi þar sem heilbrigðisnefnd fjallaði um hana og samþykkti með breytingum. Tillagan hefur nú verið samþykkt af tveimur þingnefndum, nú með yfirgnæfandi meirihluta, og er það vísbending um vönduð vinnubrögð beggja nefnda við að skilja staðreyndir frá kenningum og fordómum. 19.12.2011 06:00
Stöðvum málið á hendur Geir Haarde Atli Heimir Sveinsson skrifar Undanfarna mánuði hef ég dvalið í Þýskalandi og ekkert fylgst með því sem er að gerast heima á Íslandi. Ég les Der Spiegel (Spegilinn) vikulega og þannig fæ ég greinargóðar fréttir. 17.12.2011 07:00
Voru föllnu bankarnir ein stór svikamylla? Helgi Gunnlaugsson skrifar Kastljós RÚV gaf okkur á dögunum áhugaverða innsýn í flókið net viðskipta föllnu bankanna með eigin bréf. Fyrir venjulega borgara líta gjörningar af þessu tagi út sem hreinræktaðar svikamyllur en dómstólarnir munu hugsanlega gefa okkur allt aðra mynd. Almennt er þó víðtæk samstaða í fræðaheiminum um að efnahagsbrot séu með alvarlegustu brotum samfélagsins og kostnaðurinn margfalt meiri en hlýst af venjulegum auðgunar- og strætisbrotum. 17.12.2011 11:00
Jólasveinarnir – nýir tímar og nýir hrekkir Eiríkur Valdimarsson skrifar Allir vita að jólasveinarnir sem nú tínast til byggða einn af öðrum hafa í gegnum tíðina þótt stríðnir, ódælir og hrekkjóttir svo mörgum þótti og þykir nóg um! Já, þessir sveinar hafa hrellt þjóðina og skemmt henni á víxl, kallað fram óttablandin tár eina stundina og gleðitár þá næstu. 17.12.2011 07:00
Kötturinn í sekknum? Opin hugmyndasamkeppni á vegum borgaryfirvalda um svæðið Ingólfstorg og Víkurgarð á að taka ríkt tillit til elstu byggðar í borginni. Þar er bara einn hængur á og hann ekki lítill. Í keppninni er endurvakin hugmynd lóðarhafa við Vallarstræti um allt að 130 herbergja og allt að 4.500 fm hótel á einstöku svæði þar sem sum af elstu húsum borgarinnar mynda elstu götumyndir landsins. 17.12.2011 07:00
Hænufet í rétta átt Svandís Svavarsdóttir skrifar Nýlokið er árlegri loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem þetta skiptið var haldin í Durban í Suður-Afríku. 17.12.2011 07:00
Vantrú og HÍ Pétur Björgvin Þorsteinsson skrifar Nokkur umræða hefur spunnist síðustu daga í kjölfar fréttaflutnings fjölmiðla af málþófi því sem hefur átt sér stað innan veggja HÍ frá því í febrúar 2010. Það er miður að siðanefnd HÍ, háskólayfirvöld og málsaðilar hafi ekki náð samstöðu um að færa málið í málefnalegan farveg. 16.12.2011 06:00
Upplýsingar frá Mænuskaðastofnun Íslands Eins og ýmsum er kunnugt samþykkti Norðurlandaráð íslenska tillögu um mænuskaða á þingi sínu í nóvember sl. 16.12.2011 06:00
Stærsta rán Íslandssögunnar Samkvæmt úrskurði Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna brýtur núverandi kvótakerfi á mannréttindum okkar og er til þess fallið að hamla nýliðun og jöfnun í sjávarútvegi með óbreyttu fyrirkomulagi. Ísland hefur samþykkt og undirritað og fullgilt alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi til að virða úrskurðarvald mannréttindanefndarinnar í kærumálum um meint brot á samningum og skuldbundið sig að þjóðarrétti til að fylgja niðurstöðum hennar eftir. Úr Þskj. 575 – 339. Máli, 135. Löggjafarþing 2007 -2008. 16.12.2011 06:00
Leyndarmál Kiljunnar: Hver var Arnliði Álfgeir? Freyr Þórarinsson skrifar Sjónvarpsþættinum Kiljunni lýkur jafnan á því að Bragi bóksali dregur fram einhverjar bækur og pappíra til að sýna Agli þáttastjórnanda og lætur þeim gjarnan fylgja kjaftasögur um nafngreinda einstaklinga. Þetta er þjóðleg skemmtun hér í fámenninu, enda fylgt þeirri meginreglu að góð saga þarf ekki endilega að vera sönn. 16.12.2011 06:00
Frá degi til dags Vissulega er það rétt athugað hjá Kolbeini Óttarssyni Proppé, blaðamanni Fréttablaðsins, að menn ættu heldur að sitja á strák sínum en fullyrða um óorðnar niðurstöður í Icesave-málinu, eins og hann ræddi í dálki sínum Frá degi til dags í blaðinu í gær. Við vitum auðvitað ekki hvernig fer. 16.12.2011 06:00
Framsóknarflokkurinn 95 ára – Bjarta framtíð Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar Framsóknarflokkurinn fagnar 95 ára afmæli í dag sem elsti starfandi stjórnmálaflokkur landsins. Hann var stofnaður á Alþingi hinn 16. desember 1916 og hefur síðan orðið að fjöldahreyfingu yfir tólf þúsund félagsmanna á öllu landinu. 16.12.2011 06:00
Sköpum samstöðu Forysta stjórnarflokkanna nærist á átökum. Það er gömul saga og ný. Það er því eftir öðru að helsta markmið formanns VG virðist nú vera að losna við efnahags- og viðskiptaráðherrann úr ríkisstjórn. Hann hefur ógnað foringjaræðinu sem forsætisráðherra og fjármálaráðherra virðast hafa tileinkað sér. Enginn treystir Steingrími Joð fyrir alvaldi í efnahagsmálum, en hann virðist ekki hlusta nú frekar en fyrri daginn. 16.12.2011 06:00
Mikil arðsemi af raforkusölu til stóriðju Á undanförnum áratug eða svo hefur raforkuverð til stóriðju hækkað um liðlega 120% í bandaríkjadölum. Á sama tíma hefur raforkuverð til almennings lækkað um 10% í bandaríkjadölum. 16.12.2011 06:00
Staðgöngumæðrun: fáeinar konur þurfa veglyndi samfélagsins Reynir Tómas Geirsson skrifar Að eignast barn sem verður til úr eigin kynfrumu og er beinn hluti arfleifðar og fjölskyldu, fætt í ástarsambandi af konunni, það þrá flestir. Höfum á hreinu að til eru konur sem eru heilbrigðar að öllu leyti en geta ekki gengið með barn af því að þær fæddust án legs eða misstu það. Sumar konur geta hugsað sér að ganga með barn fyrir slíka kynsystur og gera það af fúsum vilja og án þess að nokkuð sérstakt komi í staðinn. Líkt og að gefa öðrum einstaklingi nýra. 15.12.2011 06:00
Leyndarhyggja eða lýðskrum? Gunnar Axel Axelsson skrifar Það er vond staða fyrir pólitískt kjörna fulltrúa að geta ekki upplýst umbjóðendur sína um innihald svo stórra og mikilvægra samninga sem nýgerður samningur Hafnarfjarðarbæjar við þýska skilanefnd Depfa bankans er. Satt best að segja er sú staða ómöguleg og hún getur ekki gengið til lengdar. 15.12.2011 06:00
Dýrafjarðargöng eru lífsnauðsyn fyrir samfélagið Dýrafjarðargöng eru mikilvægasta samgöngubót á Vestfjörðum til að tengja saman þéttbýlisstaði og byggðir Ísafjarðarsýslu og Barðastrandarsýslu. Dýrafjarðargöng munu leysa af veginn um Hrafnseyrarheiði, einn hæsta og erfiðasta fjallveg á landinu, og stytta leiðina á milli Ísafjarðar og Patreksfjarðar um 27 kílómetra. Hrafnseyrarheiði er sú heiði sem yfirleitt verður fyrst ófær, af öllum heiðum Vestfjarða, og sú heiði sem síðast er opnuð á vorin. Hrafnseyrarheiði er versta hindrun í frekari samvinnu og samtengingu byggða á Vestfjörðum. Vestfirðingar vilja Dýrafjarðargöng. 15.12.2011 06:00
Gerendur taki ábyrgð á sjálfum sér Ég er ein af þeim manneskjum sem urðu fyrir kynferðislegu ofbeldi sem barn. Eins og svo oft tengdist gerandinn inn í fjölskylduna mína. Ég er líka dæmigerður þolandi sem tók á sig ábyrgðina á ofbeldinu, bar sökina og skömmina í hljóði. Ég réði ekkert við að burðast með ljótu sjálfsmyndina mína en hafði bara alls ekki hugmynd um það. Vissi ekki að ég yfirgaf sjálfa mig daginn sem ofbeldið hófst, hætti að lifa en varð snillingur í að lifa af. Ég afbar það einfaldlega ekki að vera ljóta ég. 15.12.2011 06:00
Framtíð mannkyns veltur á menntun kvenna Valdimar Tr. Hafstein skrifar Ein af hverjum fjórum stúlkum á aldrinum 11-15 ára á ekki völ á skólagöngu. Í Afríku fær ekki nema ein af hverjum þremur stúlkum gagnfræðamenntun. Af 796 milljónum fullorðinna jarðarbúa sem eru ólæsir eru 2/3 konur. Aðeins í þriðjungi ríkja heimsins hafa drengir og stúlkur jafna möguleika á að ganga í gagnfræðaskóla. 15.12.2011 06:00
Breytingar í Bláfjöllum Í mars 2007 skrifaði ég grein í Morgunblaðið sem bar heitið „Snjóleysi í Bláfjöllum?“ Greinin var ádeila á rekstur skíðasvæðisins, sér í lagi hvers vegna ekki væru snjógirðingar til staðar til að tryggja snjó í helstu skíðaleiðum svæðisins. Sérstaklega í ljósi þess hve gríðarlega vindasamt er á svæðinu og snjór sest og helst illa í brekkunum. Bent var á að nauðsyn þess að að virkja þá gríðarlegu ókeypis efnisflutninga sem eiga sér stað í skafrenningi með einföldum snjógirðingum. Fanga þannig efnið og halda því í brekkunum. 15.12.2011 06:00
Skúli 300! Ófeigur Sigurðsson skrifar Í dag, 12ta desember, þegar þetta er skrifað, er 300 ára afmæli Skúla Magnússonar landfógeta. Það var undarleg reynsla sem endranær að fletta í gegnum Fréttablaðið í morgun og sjá að hvergi er á þessi tímamót minnst. Þar kemur fram að það markverðasta sem gerst hefur 12ta desember í íslenskri sögu er að þá fékk háhyrningurinn Keikó lungnasjúkdóm. Þá er auglýsing frá Viðeyjarstofu, heimili Skúla og fyrsta steinhúsi landsins, sem þá var höll, og á meðan bygging þess stóð yfir á árunum 1752-1755 bjó Skúli í tjaldi úti í Viðey frekar en að deila Bessastöðum með dönsku yfirvaldi, honum Pingel stiftamtmanni; í auglýsingunni frá Viðeyjarstofu í Fréttablaðinu í dag er boðið upp á lifandi flutning jólalaga á píanó yfir jólahlaðborði. Þó ekki í dag, því í dag er húsið laust, tómt, þar er ekkert að gerast. 15.12.2011 06:00
Af hverju var ekki horft á arðsemi eiginfjár Landsvirkjunar? Sigurður Jóhannesson skrifar Þorsteinn Víglundsson fjallar í grein hér í blaðinu 13. desember um skýrslu okkar Ásgeirs Jónssonar um arðsemi orkusölu til stóriðju, sem unnin var fyrir fjármálaráðuneytið. Hann spyr hvers vegna við lítum framhjá þeirri augljósu staðreynd að arðsemi eiginfjár Landsvirkjunar hafi verið með besta móti miðað við almennt atvinnulíf hér á landi undanfarin ár, en látum nægja að skoða arðsemi heildarfjár fyrirtækisins (það er bæði eiginfjár og lánsfjár). 15.12.2011 06:00
Úlpan í bílskúrnum Úrsúla Junemann skrifar Ég var á leiðinni út í búð í gær. Veðrið var fallegt, snjór yfir öllu og 8 stiga frost. Ég var vel búin, klædd í kuldagalla og gönguskó og naut þess að vera úti. Þá stoppaði bíll við hliðina á mér og bílstjórinn ávarpaði mig: „Hei, talar þú íslensku?“ Og svo spurði hann mig til vegar. Þegar ég var búin að leiðbeina honum varð ég hugsi. Af hverju hélt hann að ég talaði ekki landsmálið? 15.12.2011 06:00
Auðvitað er rekið kjördæmapot Ólafur Stephensen skrifar merka grein á vísir.is 3. desember sl. sem hann kallar Úr fangelsi kjördæmapotsins. Það er gaman að lesa eftir Ólaf þó ég sé vissulega ekki alltaf sammála honum og alls ekki núna. 15.12.2011 06:00
Á leikskóla Á leikskólum er unnið öflugt starf til þess að auka samskiptahæfni barna. Þó gerir enginn kröfu um að börn séu alltaf málefnaleg. Þau hafa ekki náð þroska til að skilja að setning eins og "þú ert fitubolla“ er ómálefnaleg á meðan "það er erfitt að framreiða hollan mat fyrir 232 kr. á dag“ telst málefnaleg fullyrðing. Þetta er skýringin á því að leikskólabörn segja "pabbi minn er sterkari en pabbi þinn“ til að útkljá deilumál. 15.12.2011 06:00
Frelsi og vernd: Stóra spurningin um netið Hvernig geta þjóðir tekist á við kynferðisofbeldi gegn börnum á netinu án þess að hindra netaðgang barna? Þetta er snúið vandamál sem enn hefur ekki tekist að svara með fullnægjandi hætti, en nú hefur með skipulagðri nálgun verið hafist handa við að skilja staðreyndirnar frá þeim tilfinningum – og jafnvel æsingi – sem einkennt hafa umræðuna. 14.12.2011 06:00
Árás á lífeyrissjóðina Lífeyrissjóðirnir eru eignir almennings. Nýlegar árásartillögur ríkisstjórnarinnar að undirlagi fjármálaráðherra eru algjörlega óþolandi og eignaupptaka sem brýtur gegn stjórnarskránni (72. gr). Það er eins og menn haldi að lífeyrissjóðirnir séu bara fullir af peningum sem enginn á og sem enginn notar. 14.12.2011 06:00
Mikil arðsemi af raforkusölu til stóriðju Á árabilinu 2001 til 2010 hefur eigið fé Landsvirkjunar í bandaríkjadölum liðlega fjórfaldast. Þar hefur ekki komið til nein hlutafjáraukning af hálfu eigenda fyrirtækisins heldur hefur fyrirtækið þvert á móti greitt 45 milljónir bandaríkjadala í arð til eigenda sinna á sama tíma. Það eru fá íslensk fyrirtæki sem geta státað af viðlíka arðsemi eigin fjár á þessu tímabili. 14.12.2011 06:00
Velferðarborgin Reykjavík Við í Reykjavík getum verið stolt af þeirri velferðarþjónustu sem við veitum. Við gerum í mörgu umtalsvert meira en önnur sveitarfélög. Til marks um það veitir Reykjavíkurborg um 18% af útsvarstekjum sínum til velferðarmála á meðan önnur sveitarfélög veita um 6-9%. 14.12.2011 06:00
Óstöðugur gjaldmiðill kallar á háa vexti Óstöðugur gjaldmiðill er ein meginorsök þess að vextir eru miklu hærri á Íslandi en í nágrannalöndunum. Þessir háu vextir hafa margvísleg áhrif á okkur. 14.12.2011 06:00
Mikil arðsemi af raforkusölu til stóriðju Á árabilinu 2001 til 2008 liðlega fjórfaldaðist eigið fé Landsvirkjunar, óx úr 37 milljörðum króna í 166 milljarða. Á sama tíma helmingaðist eigið fé íslenskra fyrirtækja, annarra en fjármálafyrirtækja, veitufyrirtækja og stóriðju. Árið 2010 nam eigið fé Landsvirkjunar liðlega 190 milljörðum króna en ekki liggja fyrir samanburðartölur fyrir annað atvinnulíf það ár. 13.12.2011 06:00
Gangið hægt um gleðinnar dyr Umræðan um kaup kínversks ferðamálafrömuðar á 300 ferkílómetra svæði á Íslandi er kunnari en frá þurfi að segja. Einn þáttur þessa máls hefur þó lítt verið í umræðunni af Íslendinga hálfu, en það er hvaða þýðingu hernaðarleg staða Íslands í miðju Atlantshafi gæti haft á þróun mála í framtíðinni. 13.12.2011 06:00
Fáni Palestínu dreginn að húni í Unesco í dag Í dag, 13. desember, bætist nýr fáni við fánaborg alþjóðasamfélagsins í höfuðstöðvum Unesco í París: Fáni Palestínumanna. Fyrir sex vikum samþykktu ríki heims með yfirgnæfandi meirihluta umsókn Palestínu um að gerast fullgildur meðlimur Unesco, mennta-, vísinda-, fjölmiðla- og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Palestína hefur átt áheyrnarfulltrúa á fundum stofnunarinnar frá 1974 en aðildin nú markar þáttaskil í baráttu palestínsku þjóðarinnar fyrir eigin ríki og fullveldi í eigin málum. Alþjóðasamfélagið í Unesco viðurkennir Palestínumenn sem þjóð meðal þjóða, með sömu réttindi og skyldur og önnur ríki á fundum stofnunarinnar. 13.12.2011 06:00
Feðraveldi/frjálslyndi – Raunveruleg átakalína stjórnmálanna Hvernig eru hagsmunir almennings best tryggðir? Er það með gagnsæju og skilvirku regluverki og eftirliti án mismununar eða er mikilvægast að tryggja að eignarhald og völd liggi hjá „réttum“ aðilum? Þessi virka átakalína í íslenskum stjórnmálum litar afstöðu til mála allt frá erlendum fjárfestingum og auðlindastefnu til aðildar að ESB og skýrir hvers vegna hefðbundnir pólitískir andstæðingar ná saman um afstöðu til helstu álitamála samtímans. 13.12.2011 06:00
Er þér boðið ódýrasta lyfið í þínu apóteki? Regína Hallgrímsdóttir skrifar Undanfarin ár hefur reglulega sprottið upp umræða um hátt lyfjaverð á Íslandi og hvað er til ráða til að draga úr lyfjakostnaði ríkisins. Ætlunin er í þessari grein að skýra frá þeirri reynslu sem nýtt samheitalyfjafyrirtæki á íslenskum markaði, LYFIS ehf., hefur upplifað við það að koma samheitalyfjum á markað og reynt að leggja sitt að mörkum við að lækka lyfjaverð í landinu, neytendum og ríkinu til góða. 13.12.2011 06:00
Erfðabreytt matvæli og afneitun áhættunnar Í grein sinni í Fbl. 1. des. sl. heldur Jón Hallsson áfram umræðu okkar um erfðabreytt matvæli og reynir að kasta rýrð á rannsókn franska vísindamannsins G.E. Seralini o.fl. frá 2009 sem ég vísaði til í grein 23. nóv. Niðurstaða Seralini var að gögn sem líftæknirisinn Monsanto afhenti ESB í því skyni að afla ræktunarleyfis á erfðabreyttum Bt-maís væru ótraust. Engan þarf að undra þótt Monsanto og EFSA (Matvælaöryggisstofnun Evrópu sem annast áhættumat fyrir framkvæmdanefnd ESB) hafi hafnað niðurstöðum Seralini. EFSA er nefnilega ekki eins „óháð“ og Jón heldur fram. 13.12.2011 06:00
Yfirlýsing vegna kæru á hendur Bjarna Randveri Sigurvinssyni Undanfarna daga hefur hart verið tekist á um mál Bjarna Randvers Sigurvinssonar, stundakennara við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. Þótt útilokað sé að greiða úr öllum flækjum í svo stuttri umfjöllun er rétt að rekja hér mikilvægustu ágreiningsatriði málsins. 13.12.2011 06:00
Að gefnu tilefni Halldór Jörgensson skrifar Mér er bæði ljúft og skylt að leiðrétta misskilning sem gætir í grein Bjarna Ákasonar framkvæmdastjóra Epli.is, sem birtist í Fréttablaðinu fimmtudaginn 8. desember síðastliðinn. 12.12.2011 06:00
Er slysahætta í kringum sorpílátið heima hjá þér? Anna Jóna Kjartansdóttir,Pétur Gísli Jónsson Skoðun
Betri vegir, fleiri lögreglumenn og hægt að komast í meðferð á sumrin Þórður Snær Júlíusson Skoðun