Fleiri fréttir Eftirminnileg lokaathöfn í London Ólympíuleikum fatlaðra lauk formlega í kvöld með eftirminnilegri lokaathöfn, þar sem fram komu Coldplay, Jay Z og Rihanna. Leikarnir hafa staðið yfir í ellefu daga. Skipuleggjendur leikanna voru ákaflega ánægðir með hvernig til tókst. "Þessir leikar hafa breytt okkur öllum um ókomna tíð,‟ sagði sir Phillip Craven, formaður alþjóða Ólympíunefndar fatlaðra. 9.9.2012 23:44 Bjarni Siguróli hreppti annað sætið Bjarni Siguróli Jakobsson varð í öðru sæti í matreiðslukeppninni "The Nordic Challenge“ í Árósum í Danmörku, sem fram fór í gær. Honum til aðstoðar var Sindri Geir Guðmundsson. Fram kemur á vefnum freisting.is að Jóhannes Steinn Jóhannesson matreiðslumaður sá um dómgæslu fyrir Ísland og var þar í hópi glæsilegra matreiðslumanna og blaðamanna. Það var Daninn Jonas Mikkelsen sem sigraði í keppninni. 9.9.2012 20:19 Harry í herþjálfun í Afganistan Harry, prins Breta, er um þessar mundir að ljúka við fyrsta stig í herþjálfun í Bastion í Afganistan. Harry kom til Afganistan á föstudag og mun byrja að fljúga Apache herþyrlum eftir nokkra daga. Búist er við því að hann muni í dag ljúka við tveggja daga námskeið í fyrstu hjálp, skotfærni og að bera kennsl á vegasprengjur. 9.9.2012 18:03 Justin Timberlake ætlar að kaupa hlut í Memphis Grizzlies Justin Timberlake hefur ákveðið að kaupa hlut í körfuboltaliðinu Memphis Grizzlies, sem leikur í NBA deildinni. Hann mun kaupa hlutinn í hópi með öðru fólki sem fjárfestirinn Robert Pera fer fyrir. Pera samþykkti í júní síðastliðnum að kaupa liðið fyrir 350 milljónir dala, en það samkomulag er háð samþykki eigenda NBA deildarinnar. Timberlake verur ekki fyrsta stórstjarnan til þess að eignast hlut í NBA liði því að rapparinn Jay-Z á hluta í Brooklyn Nets og leikarinn Will Smith á hlut í Philadelphia 76. 9.9.2012 15:03 Fjölmenni á afmælishátíð Kringlunnar Það var heilmikið um að vera í Kringlunni í gær þegar haldið var upp á 25 ára afmæli verslunarmiðstöðvarinnar við mikinn fögnuð. Verslanir voru opnar fram á rauða nótt. Ari Eldjárn og Björn Bragi voru á meðal þeirra sem skemmtu gestum en þeir voru með uppistand á bíógangi. Sambíóin í Kringlunni og Kringlan buðu í bíó á vel valdar myndir frá 1987 auk nýrra mynda. Kringlan var byggð árið 1987, að frumkvæði Pálma Jónssonar, eiganda Hagkaups en hefur stækkað og tekið miklum breytingum síðan þá. 9.9.2012 14:22 Um 300 manns mættu við opnun Ígló í Kringlunni Mikil gleði ríkti við opnun barnafataverslunar Ígló í Kringlunni á föstudagskvöld þar sem mættu um þrjúhundruð karlar, konur og börn. 9.9.2012 12:28 Húsfyllir á haustkynningu Stöðvar 2 Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem teknar voru í Hörpu í kvöld var fjölmennt á haustkynningu Stöðvar 2. Gleðin var svo sannarlega við völd eins og sjá má. Gestir gæddu sér á veglegum veitingum á meðan frábær haustdagskrá Stöðvar 2 var kynnt. Sjónvarpsstjörnur stöðvarinnar létu sig ekki vanta og má þar nefna Bubba Morthens, Sveppa, Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur, Friðriku Hjördísi Geirsdóttur, Loga Bergmann Eiðsson og Sindra Sindrason. 8.9.2012 00:17 Er leikandi listir um allan heim Þetta er það sem mér finnst skemmtilegast að gera. Ég hugsa að ég verði aldrei rík en bý við þá hamingju að hlakka til að fara í vinnuna á hverjum degi,“ segir Birta Benónýsdóttir um starfið sitt sem fimleikamaður í sirkus og heldur áfram að tíunda kosti þess. "Ég kynnist líka stöðugt nýju fólki og nýjum menningarheimum því starfinu fylgja mikil ferðalög og það eru líka þau sem heilla.“ 8.9.2012 15:00 Bara vinir? Rihanna, 24 ára, hefur vissulega sagt að söngvarinn Chris Brown, 23 ára, sem beitti hana... 7.9.2012 17:30 20 ára hjónabandssæla Sigga Hlö "Við kynntumst á vinsælasta skemmtistað þess tíma, á Broadway við Álfabakka, árið 1988. Þá var ég sjóðheitur útvarpsmaður á næturvöktum á Stjörnunni FM 102,2. Við giftum okkur fjórum árum síðar og vorum ekkert að hika við þetta," segir útvarpsmaðurinn Siggi Hlö, stoltur eiginmaður og faðir, en hann hefur verið kvæntur Þorbjörgu Sigurðardóttur í hvorki meira né minna en tuttugu ár. Saman eiga þau börnin Hlöðver og Matthildi sem eru að verða 23 og 19 ára. Bylgjuball í Vodafone-höllinni Siggi hefur í nægu að snúast burtséð frá því að rækta hjónabandið því hann heldur "Veistu hver ég var - Bylgjuball" í Vodafone-höllinni annað kvöld. Þar ætlar útvarpsstjarnan að fagna með hlustendum þáttarins sem hefur verið á dagskrá Bylgjunnar í tæp fimm ár en þetta verður fyrsta stóra ball þáttarins. Ansi breiður hópur hlustar á þáttinn hans Sigga en kjarninn er 25-50 ára. "Það er ekki skylda að koma í 80´s-fatnaði en grifflur og ennisbönd, eitthvað smá, myndi gera kvöldið frábært," segir Siggi. 7.9.2012 16:30 Zumba partý með Palla í Vodafone höll Einstakur Zumba viðburður fer fram í Vodafone höllinni á morgun, laugardag, klukkan 13:30. Lífið forvitnaðist hjá Jóhanni Erni Ólafssyni dansara með meiru um hvað er að ræða: "Þarna verður geggjað stuð og án efa verður þetta stærsta dans-, fitness-, zumba- og partý ársins. Hundrað mínútur af dúndur zumba tónlist, Páll Óskar syngur vinsælustu lögin sín á meðan við kennararnir leiðum alla í gegnum zumba dansa í takt. Þarna verða líka trommarar og breikarar," segir Jóhann. Viðburður á Facebook Zumbapartý - Bylgjan.is Midi.is 7.9.2012 15:00 Sindri heimsækir fagurkera Sindri fer af stað með nýja lífsstílsþætti, Heimsókn, á Stöð 2 þann 15. september. Þar kíkir hann í heimsókn til fólks sem hefur ekki opnað dyr sínar fyrir almenningi áður og kynnist heimilisháttum þeirra og persónulegu lífi. 7.9.2012 13:00 Stukku á tækifærið og opnuðu búð á mettíma Íslenska barnafatamerkið Ígló opnar sína eigin búð í Kringlunni í dag. Þetta er fyrsta íslenska barnafatabúðin í Kringlunni og fjórða íslenska merkið sem rekur sína eigin búð í Kringlunni. Lífið spjallaði við þær kjarnakonur sem koma að opnuninni. 7.9.2012 14:00 Hraðari, hressari og skemmtilegri "Það er mikil tilhlökkun í mannskapnum að hefja nýjan vetur," segir Björn Bragi Arnarsson, stjórnandi sjónvarpsþáttarins Týnda kynslóðin, sem hefur göngu sína að nýju í kvöld, en hann naut mikilla vinsælda síðastliðinn vetur. 7.9.2012 13:14 25 ára afmæli Cosmo Eins og sjá má á myndunum leiddist engum í 25 ára afmæli tískuverslunarinnar Cosmo... 7.9.2012 12:00 Stuð í Nike teiti Ragnhildur Steinunn fjölmiðlakona var kynnir... 7.9.2012 09:45 Ásdís Rán á leiðinni í sjónvarp "Fram undan er þátttaka mín í sjónvarpsþættinum "VIP Big Brother“ í Búlgaríu. Þættirnir eru með sama stíl og Big Brother nema þar eru þátttakendurnir þekktir einstaklingar og er þetta vinsælasta sjónvarpsefnið hérna. Ég er búin að fá tilboð frá þeim og núna er bara verið að ræða reglur og skilmála. Ef allt gengur vel og ég skrifa undir þá fer ég inn í Big Brother-húsið eftir tvær vikur, Þetta ætti allt að koma í ljós á næstu dögum en eins og er eru 50/50 líkur þar sem ég er ekki sátt við alla skilmála. Framleiðslufyrirtækið velur þátttakendur árlega í þættina en þeir höfðu samband við mig í júní, þannig bauðst mér þetta tækifæri. Ég fékk áður tilboð fyrir tveimur árum með Garðari (Gunnlaugssyni) en það gekk ekki upp þá. Þátturinn virkar þannig að vikulega er einhver kosinn út úr þættinum af almenning. Ég er ekki viss hvort Íslendingar geti kosið en hugsa nú að það sé bara hægt að senda sms úr búlgörskum númerum,“ segir Ásdís Rán spurð um háværar sögusagnir um þátttöku hennar í sjónvarpsraunveruleikaþætti. Ætlar þú að flytja aftur heim til Íslands? "Varðandi að flytja aftur heim þá er það alltaf möguleiki. Ég er að skoða einhver viðskiptatækifæri sem gætu orðið skemmtileg ef ég kem heim og ég er alveg opin fyrir því en ég verð fyrst og fremst að geta gengið inn í eitthvað starf sem gefur mér laun til að lifa, annars er lítið varið í það fyrir mig að koma í einhverja óvissu þegar ég hef það gott hérna,“ segir Ásdís. 7.9.2012 07:00 Walter Mitty eða Mitt Romney? Hollywood-stjörnurnar hafa verið landsmönnum hugleiknar undanfarin misseri og fjölmiðlar hafa verið duglegir að segja mismerkilegar fréttir af þeim stjörnum sem hér hafa dvalið. Í gærmorgun var stórstjarnan Ben Stiller til umræðu í morgunútvarpi Rásar 2. 7.9.2012 09:46 Nafngreind í The Guardian Fréttablaðið greindi frá því í ágúst að breska söngkonan Beth Orton hefði beðið leikstjórana Árna & Kinski og stílistann Hrafnhildi Hólmgeirsdóttur um að vinna tónlistarmyndband fyrir sig. 7.9.2012 09:41 Kate Boswoth trúlofuð Leikkonan Kate Boswoth og unnusti hennar til langs tíma, Michael Polish eru nú trúlofuð. 6.9.2012 20:00 Niðurlút vegna umtals um framhjáhald Meðfylgjandi má sjá Twilight stjörnuna niðurlúta... 6.9.2012 16:30 Baulað á sýningu Nýjasta kvikmynd Terrence Malick fékk vægast sagt slæmar móttökur við frumsýningu hennar á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum um síðustu helgi. 6.9.2012 16:00 Grennist hratt eftir skilnaðinn Það tekur ávallt á líkamlega og andlega að skilja það vita allir sem upplifað hafa þá erfiðu reynslu. Þá á fólk það til að hrynja niður í þyngd eins og franska fyrirsætan Vanessa Paradis, 39 ára, sem skildi nýverið við leikarann og barnsföður sinn, Johnny Depp. Eins og sjá má á myndunum sem teknar voru af henni í Los Angeles í gærdag hefur Vanessa lagt af eftir að hún skildi en hún var gift Johnny í hvorki meira né minna en fjórtán ár. Fyrirsætan lét hafa eftir sér í tímaritinu Harper’s Bazaar: "Ástin er það sterkasta og jafnvel það viðkvæmasta sem er til í veröldinni. Ekkert er öruggt!" Þar er hún væntanlega að vitna í sambandið milli hennar og leikarans. 6.9.2012 15:30 Pippa prúð á afmælinu Systir hertogaynjunnar af Cambridge, Pippa Middleton, vekur athygli hvert sem hún mætir. Hún var klædd í gulan kjól á 29 ára afmælisdeginum sínum þegar hún mætti með slegið hárið á US Open - stórglæsileg að vanda... 6.9.2012 14:00 Blómstrar eftir skilnaðinn Það er ekki hægt að segja annað en að leikkonan Katie Holmes, 33 ára, blómstri eftir að hún skildi við leikarann Tom Cruise. Hún mætti glæsileg eins og sjá má á myndunum með hárið tekið í tagl á verðlaunaafhendingu Style Awards í New York. Katie sat við sama borð og hönnuðurinn Joe See og leikkonan Katharine McPhee. Fatalína leikkonunnar Holmes & Yang verður frumsýnd næstu viku - það verður eitthvað. 6.9.2012 13:00 Rótaði í rusli Leikkonan Isla Fisher fer með hlutverk í gamanmyndinni Bachelorette sem segir frá vinkonuhópi sem sameinast að nýju fyrir brúðkaup einnar úr hópnum. "Atriðið þar sem við rótum í ruslapokum stendur upp úr sem það eftirminnilegasta. Ég man að ég hugsaði: "Jahérna, hvernig stendur á því að ég er hér á fjórum fótum með höfuðið á kafi í svörtum ruslapoka fyrir framan skemmtistað í New York klukkan fjögur að nóttu til?“ Það var gaman að leika skemmtanaglöðu stúlkuna því sjálf eyði ég helgunum með börnum mínum,“ sagði leikkonan um hlutverk sitt í myndinni. 6.9.2012 11:30 Heidi Klum blómstrar Ofurfyrirsætan Heidi Klum og hönnuðurinn Christian Siriano skemmtu sér vel saman við opnun nýrrar verslunar Siriano í New York í gær. 6.9.2012 10:30 Robbie Williams og Lana Del Rey hlutu verðlaun Breska tímaritið GQ hélt sína árlegu verðlaunahátíð í vikunni. Rauða dreglinum var rúllað út í London og stjörnurnar flykktust á viðburðinn í sínu fínasta pússi. Söngvarinn Robbie Williams var valinn átrúnaðargoð ársins og söngkonan dimmraddaða Lana Del Rey kona ársins. Svartir síðkjólar og stífpressuð jakkaföt voru vinsæl að þessu sinni. 6.9.2012 09:30 Frægir fjölmenntu á Frost Fjöldi þjóðþekktra einstaklinga mættu á frumsýningu kvikmyndarinnar Frost í leikstjórn Reynis Lyngdal í Sambíó Egilshöll i gærkvöldi. Eins og sjá má skein gleðin úr hverju andliti. Frost fjallar um ungt par, Öglu, sem er jöklafræðingur, og Gunnar, kvikmyndagerðarmann, sem koma að mannlausum rannsóknarbúðum á hálendi Íslands. Leiðangursmenn virðast hafa horfið á dularfullan hátt og Agla og Gunnar standa frammi fyrir óþekktu og banvænu afli. Með aðalhlutverkin fara Björn Thors, Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Helgi Björnsson, Hilmar Jónsson, Valur Freyr Einarsson og eiginkona Reynis, Elma Lísa Gunnarsdóttir. 6.9.2012 08:45 Hálendi og kynlífsráðgjöf í bíó Tvær kvikmyndir eru frumsýndar í bíóhúsum um helgina auk myndarinnar The Bourne Legacy sem er fjallað um hér fyrir ofan. 6.9.2012 17:30 Námskeið um búddisma frá Tíbet Endurmenntun Háskóla Íslands býður í haust upp á námskeið um búddisma í Tíbet undir stjórn Önnu Töru G. 6.9.2012 17:00 Átta kvölda uppistandssería Grínistarnir Ari Eldjárn, Þorsteinn Guðmundsson, Steinn Ármann Magnússon og Jóhannes Kristjánsson eftirherma verða hluti af nýrri Thule-uppistandsseríu á Gullöldinni í Grafarvogi. 6.9.2012 17:00 Ójöfnuðurinn er gríðarlegur Anna Elísabet Ólafsdóttir, fyrrverandi forstjóri Lýðheilsustöðvar, varði fyrir skemmstu doktorsritgerð sína í lýðheilsuvísindum við Brunel-háskóla í London. Ritgerðin fjallar um áhrif stjórnunarhátta á gæði og afköst heilbrigðiskerfa. 6.9.2012 16:30 Leit hafin að nýrri Elite-fyrirsætu Fyrirsætukeppni Elite á Íslandi er að fara af stað á ný. 6.9.2012 14:30 Ný hlið á Fassbender Michael Fassbender mun fara með titilhlutverkið í gamanmyndinni Frank. Fassbender leikur sérvitran rokktónlistarmann í myndinni og fer Domnhall Gleeson með hlutverk mislukkaðs tónlistarmanns sem óvart gengur í raðir rokksveitar Franks. Handrit myndarinnar er eftir rithöfundinn Jon Ronson og handritshöfundinn Peter Staughan, sem unnu áður að gerð handrits myndarinnar The Men Who Stare at Goats. Írinn Lenny Abrahamson leikstýrir myndinni. 6.9.2012 12:00 Verðugur arftaki Damons Spennumyndin The Bourne Legacy verður frumsýnd í kvikmyndahúsum annað kvöld. Þetta er fjórða myndin í kvikmyndaröðinni sem byggð er á skáldsögum Roberts Ludlum. 6.9.2012 10:31 Biggi í héraðsdómi Rokksveitin Maus hefur ekki verið starfandi í átta ár. 6.9.2012 09:28 Á rauða dregilinn Á rauða dregilinn Förðunarfræðingurinn Ísak Freyr Helgason sá um förðun bresku fyrirsætunnar Suki Waterhouse þegar hún sótti GQ Men of The Year Awards. 6.9.2012 09:24 Skotvöllur í brúðargjöf Brad Pitt hefur látið útbúa skotvöll fyrir tilvonandi eiginkonu sína Angelinu Jolie sem fyrirfram brúðargjöf. Pitt ku hafa pungað út hátt í 250 milljónum íslenskra króna fyrir skotvöll og vopn en völlurinn stendur í garði sumarhúss leikaraparsins í Frakklandi. 6.9.2012 09:00 Svaf og spilaði Alias með setuliðinu „Ég er eiginlega með víðáttubrjálæði núna, það eru svo margir staðir til,“ segir Brynja Sóley Plaggenborg, sem hreppti heimsreisu frá ferðaskrifstofunni KILROY með því að leggja á sig fjögurra sólarhringa setu utan við skrifstofuna í síðustu viku. „Ávísunin sem ég fékk er upp á 400 þúsund og ég ætla að fá ferðaskrifstofuna til að hjálpa mér að setja saman ferð,“ bætir hún við. 6.9.2012 08:00 Aronofsky hélt ekki vatni yfir hæfileikum Íslendinga Ben Stiller var gestur Kastljóss sjónvarpsins í kvöld þar sem hann fjallaði um mynd sína The secret life of Walter Mitty og dvöl sína á Íslandi. Stiller er hrifinn af landinu og segir það hafa upp á margt að bjóða. Til að mynda verði Ísland ekki bara Ísland í mynd Stillers heldur Grænland og Himalaya fjöllin að auki. 5.9.2012 20:39 Matargikkurinn Taylor Matur Leikkonan Elizabeth Taylor átti það til að borða hina undarlegustu rétti í þeim tilgangi að halda líkamsvexti sínum og heilsu. 5.9.2012 18:00 Meira D-vítamín Heilsa D-vítamín gæti hjálpað líkamanum að berjast gegn berklum. Þetta kemur fram í rannsókn vísindamanna við National Academy of Science í London. 5.9.2012 17:30 Velur hamingjuna fram yfir megrunarkúra Jessica Simpson segist fullkomlega meðvituð um að hún hafi bætt of miklu á sig á meðgöngunni og að það gangi ekki nógu vel að komast í fyrra horf. 5.9.2012 16:30 Tom Hanks syrgir Michael Clarke Duncan Tom Hanks er einn þeirra sem gefið hefur frá sér yfirlýsingu vegna fráfalls leikarans Michael Clarke Duncan. 5.9.2012 15:00 Sjá næstu 50 fréttir
Eftirminnileg lokaathöfn í London Ólympíuleikum fatlaðra lauk formlega í kvöld með eftirminnilegri lokaathöfn, þar sem fram komu Coldplay, Jay Z og Rihanna. Leikarnir hafa staðið yfir í ellefu daga. Skipuleggjendur leikanna voru ákaflega ánægðir með hvernig til tókst. "Þessir leikar hafa breytt okkur öllum um ókomna tíð,‟ sagði sir Phillip Craven, formaður alþjóða Ólympíunefndar fatlaðra. 9.9.2012 23:44
Bjarni Siguróli hreppti annað sætið Bjarni Siguróli Jakobsson varð í öðru sæti í matreiðslukeppninni "The Nordic Challenge“ í Árósum í Danmörku, sem fram fór í gær. Honum til aðstoðar var Sindri Geir Guðmundsson. Fram kemur á vefnum freisting.is að Jóhannes Steinn Jóhannesson matreiðslumaður sá um dómgæslu fyrir Ísland og var þar í hópi glæsilegra matreiðslumanna og blaðamanna. Það var Daninn Jonas Mikkelsen sem sigraði í keppninni. 9.9.2012 20:19
Harry í herþjálfun í Afganistan Harry, prins Breta, er um þessar mundir að ljúka við fyrsta stig í herþjálfun í Bastion í Afganistan. Harry kom til Afganistan á föstudag og mun byrja að fljúga Apache herþyrlum eftir nokkra daga. Búist er við því að hann muni í dag ljúka við tveggja daga námskeið í fyrstu hjálp, skotfærni og að bera kennsl á vegasprengjur. 9.9.2012 18:03
Justin Timberlake ætlar að kaupa hlut í Memphis Grizzlies Justin Timberlake hefur ákveðið að kaupa hlut í körfuboltaliðinu Memphis Grizzlies, sem leikur í NBA deildinni. Hann mun kaupa hlutinn í hópi með öðru fólki sem fjárfestirinn Robert Pera fer fyrir. Pera samþykkti í júní síðastliðnum að kaupa liðið fyrir 350 milljónir dala, en það samkomulag er háð samþykki eigenda NBA deildarinnar. Timberlake verur ekki fyrsta stórstjarnan til þess að eignast hlut í NBA liði því að rapparinn Jay-Z á hluta í Brooklyn Nets og leikarinn Will Smith á hlut í Philadelphia 76. 9.9.2012 15:03
Fjölmenni á afmælishátíð Kringlunnar Það var heilmikið um að vera í Kringlunni í gær þegar haldið var upp á 25 ára afmæli verslunarmiðstöðvarinnar við mikinn fögnuð. Verslanir voru opnar fram á rauða nótt. Ari Eldjárn og Björn Bragi voru á meðal þeirra sem skemmtu gestum en þeir voru með uppistand á bíógangi. Sambíóin í Kringlunni og Kringlan buðu í bíó á vel valdar myndir frá 1987 auk nýrra mynda. Kringlan var byggð árið 1987, að frumkvæði Pálma Jónssonar, eiganda Hagkaups en hefur stækkað og tekið miklum breytingum síðan þá. 9.9.2012 14:22
Um 300 manns mættu við opnun Ígló í Kringlunni Mikil gleði ríkti við opnun barnafataverslunar Ígló í Kringlunni á föstudagskvöld þar sem mættu um þrjúhundruð karlar, konur og börn. 9.9.2012 12:28
Húsfyllir á haustkynningu Stöðvar 2 Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem teknar voru í Hörpu í kvöld var fjölmennt á haustkynningu Stöðvar 2. Gleðin var svo sannarlega við völd eins og sjá má. Gestir gæddu sér á veglegum veitingum á meðan frábær haustdagskrá Stöðvar 2 var kynnt. Sjónvarpsstjörnur stöðvarinnar létu sig ekki vanta og má þar nefna Bubba Morthens, Sveppa, Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur, Friðriku Hjördísi Geirsdóttur, Loga Bergmann Eiðsson og Sindra Sindrason. 8.9.2012 00:17
Er leikandi listir um allan heim Þetta er það sem mér finnst skemmtilegast að gera. Ég hugsa að ég verði aldrei rík en bý við þá hamingju að hlakka til að fara í vinnuna á hverjum degi,“ segir Birta Benónýsdóttir um starfið sitt sem fimleikamaður í sirkus og heldur áfram að tíunda kosti þess. "Ég kynnist líka stöðugt nýju fólki og nýjum menningarheimum því starfinu fylgja mikil ferðalög og það eru líka þau sem heilla.“ 8.9.2012 15:00
Bara vinir? Rihanna, 24 ára, hefur vissulega sagt að söngvarinn Chris Brown, 23 ára, sem beitti hana... 7.9.2012 17:30
20 ára hjónabandssæla Sigga Hlö "Við kynntumst á vinsælasta skemmtistað þess tíma, á Broadway við Álfabakka, árið 1988. Þá var ég sjóðheitur útvarpsmaður á næturvöktum á Stjörnunni FM 102,2. Við giftum okkur fjórum árum síðar og vorum ekkert að hika við þetta," segir útvarpsmaðurinn Siggi Hlö, stoltur eiginmaður og faðir, en hann hefur verið kvæntur Þorbjörgu Sigurðardóttur í hvorki meira né minna en tuttugu ár. Saman eiga þau börnin Hlöðver og Matthildi sem eru að verða 23 og 19 ára. Bylgjuball í Vodafone-höllinni Siggi hefur í nægu að snúast burtséð frá því að rækta hjónabandið því hann heldur "Veistu hver ég var - Bylgjuball" í Vodafone-höllinni annað kvöld. Þar ætlar útvarpsstjarnan að fagna með hlustendum þáttarins sem hefur verið á dagskrá Bylgjunnar í tæp fimm ár en þetta verður fyrsta stóra ball þáttarins. Ansi breiður hópur hlustar á þáttinn hans Sigga en kjarninn er 25-50 ára. "Það er ekki skylda að koma í 80´s-fatnaði en grifflur og ennisbönd, eitthvað smá, myndi gera kvöldið frábært," segir Siggi. 7.9.2012 16:30
Zumba partý með Palla í Vodafone höll Einstakur Zumba viðburður fer fram í Vodafone höllinni á morgun, laugardag, klukkan 13:30. Lífið forvitnaðist hjá Jóhanni Erni Ólafssyni dansara með meiru um hvað er að ræða: "Þarna verður geggjað stuð og án efa verður þetta stærsta dans-, fitness-, zumba- og partý ársins. Hundrað mínútur af dúndur zumba tónlist, Páll Óskar syngur vinsælustu lögin sín á meðan við kennararnir leiðum alla í gegnum zumba dansa í takt. Þarna verða líka trommarar og breikarar," segir Jóhann. Viðburður á Facebook Zumbapartý - Bylgjan.is Midi.is 7.9.2012 15:00
Sindri heimsækir fagurkera Sindri fer af stað með nýja lífsstílsþætti, Heimsókn, á Stöð 2 þann 15. september. Þar kíkir hann í heimsókn til fólks sem hefur ekki opnað dyr sínar fyrir almenningi áður og kynnist heimilisháttum þeirra og persónulegu lífi. 7.9.2012 13:00
Stukku á tækifærið og opnuðu búð á mettíma Íslenska barnafatamerkið Ígló opnar sína eigin búð í Kringlunni í dag. Þetta er fyrsta íslenska barnafatabúðin í Kringlunni og fjórða íslenska merkið sem rekur sína eigin búð í Kringlunni. Lífið spjallaði við þær kjarnakonur sem koma að opnuninni. 7.9.2012 14:00
Hraðari, hressari og skemmtilegri "Það er mikil tilhlökkun í mannskapnum að hefja nýjan vetur," segir Björn Bragi Arnarsson, stjórnandi sjónvarpsþáttarins Týnda kynslóðin, sem hefur göngu sína að nýju í kvöld, en hann naut mikilla vinsælda síðastliðinn vetur. 7.9.2012 13:14
25 ára afmæli Cosmo Eins og sjá má á myndunum leiddist engum í 25 ára afmæli tískuverslunarinnar Cosmo... 7.9.2012 12:00
Ásdís Rán á leiðinni í sjónvarp "Fram undan er þátttaka mín í sjónvarpsþættinum "VIP Big Brother“ í Búlgaríu. Þættirnir eru með sama stíl og Big Brother nema þar eru þátttakendurnir þekktir einstaklingar og er þetta vinsælasta sjónvarpsefnið hérna. Ég er búin að fá tilboð frá þeim og núna er bara verið að ræða reglur og skilmála. Ef allt gengur vel og ég skrifa undir þá fer ég inn í Big Brother-húsið eftir tvær vikur, Þetta ætti allt að koma í ljós á næstu dögum en eins og er eru 50/50 líkur þar sem ég er ekki sátt við alla skilmála. Framleiðslufyrirtækið velur þátttakendur árlega í þættina en þeir höfðu samband við mig í júní, þannig bauðst mér þetta tækifæri. Ég fékk áður tilboð fyrir tveimur árum með Garðari (Gunnlaugssyni) en það gekk ekki upp þá. Þátturinn virkar þannig að vikulega er einhver kosinn út úr þættinum af almenning. Ég er ekki viss hvort Íslendingar geti kosið en hugsa nú að það sé bara hægt að senda sms úr búlgörskum númerum,“ segir Ásdís Rán spurð um háværar sögusagnir um þátttöku hennar í sjónvarpsraunveruleikaþætti. Ætlar þú að flytja aftur heim til Íslands? "Varðandi að flytja aftur heim þá er það alltaf möguleiki. Ég er að skoða einhver viðskiptatækifæri sem gætu orðið skemmtileg ef ég kem heim og ég er alveg opin fyrir því en ég verð fyrst og fremst að geta gengið inn í eitthvað starf sem gefur mér laun til að lifa, annars er lítið varið í það fyrir mig að koma í einhverja óvissu þegar ég hef það gott hérna,“ segir Ásdís. 7.9.2012 07:00
Walter Mitty eða Mitt Romney? Hollywood-stjörnurnar hafa verið landsmönnum hugleiknar undanfarin misseri og fjölmiðlar hafa verið duglegir að segja mismerkilegar fréttir af þeim stjörnum sem hér hafa dvalið. Í gærmorgun var stórstjarnan Ben Stiller til umræðu í morgunútvarpi Rásar 2. 7.9.2012 09:46
Nafngreind í The Guardian Fréttablaðið greindi frá því í ágúst að breska söngkonan Beth Orton hefði beðið leikstjórana Árna & Kinski og stílistann Hrafnhildi Hólmgeirsdóttur um að vinna tónlistarmyndband fyrir sig. 7.9.2012 09:41
Kate Boswoth trúlofuð Leikkonan Kate Boswoth og unnusti hennar til langs tíma, Michael Polish eru nú trúlofuð. 6.9.2012 20:00
Niðurlút vegna umtals um framhjáhald Meðfylgjandi má sjá Twilight stjörnuna niðurlúta... 6.9.2012 16:30
Baulað á sýningu Nýjasta kvikmynd Terrence Malick fékk vægast sagt slæmar móttökur við frumsýningu hennar á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum um síðustu helgi. 6.9.2012 16:00
Grennist hratt eftir skilnaðinn Það tekur ávallt á líkamlega og andlega að skilja það vita allir sem upplifað hafa þá erfiðu reynslu. Þá á fólk það til að hrynja niður í þyngd eins og franska fyrirsætan Vanessa Paradis, 39 ára, sem skildi nýverið við leikarann og barnsföður sinn, Johnny Depp. Eins og sjá má á myndunum sem teknar voru af henni í Los Angeles í gærdag hefur Vanessa lagt af eftir að hún skildi en hún var gift Johnny í hvorki meira né minna en fjórtán ár. Fyrirsætan lét hafa eftir sér í tímaritinu Harper’s Bazaar: "Ástin er það sterkasta og jafnvel það viðkvæmasta sem er til í veröldinni. Ekkert er öruggt!" Þar er hún væntanlega að vitna í sambandið milli hennar og leikarans. 6.9.2012 15:30
Pippa prúð á afmælinu Systir hertogaynjunnar af Cambridge, Pippa Middleton, vekur athygli hvert sem hún mætir. Hún var klædd í gulan kjól á 29 ára afmælisdeginum sínum þegar hún mætti með slegið hárið á US Open - stórglæsileg að vanda... 6.9.2012 14:00
Blómstrar eftir skilnaðinn Það er ekki hægt að segja annað en að leikkonan Katie Holmes, 33 ára, blómstri eftir að hún skildi við leikarann Tom Cruise. Hún mætti glæsileg eins og sjá má á myndunum með hárið tekið í tagl á verðlaunaafhendingu Style Awards í New York. Katie sat við sama borð og hönnuðurinn Joe See og leikkonan Katharine McPhee. Fatalína leikkonunnar Holmes & Yang verður frumsýnd næstu viku - það verður eitthvað. 6.9.2012 13:00
Rótaði í rusli Leikkonan Isla Fisher fer með hlutverk í gamanmyndinni Bachelorette sem segir frá vinkonuhópi sem sameinast að nýju fyrir brúðkaup einnar úr hópnum. "Atriðið þar sem við rótum í ruslapokum stendur upp úr sem það eftirminnilegasta. Ég man að ég hugsaði: "Jahérna, hvernig stendur á því að ég er hér á fjórum fótum með höfuðið á kafi í svörtum ruslapoka fyrir framan skemmtistað í New York klukkan fjögur að nóttu til?“ Það var gaman að leika skemmtanaglöðu stúlkuna því sjálf eyði ég helgunum með börnum mínum,“ sagði leikkonan um hlutverk sitt í myndinni. 6.9.2012 11:30
Heidi Klum blómstrar Ofurfyrirsætan Heidi Klum og hönnuðurinn Christian Siriano skemmtu sér vel saman við opnun nýrrar verslunar Siriano í New York í gær. 6.9.2012 10:30
Robbie Williams og Lana Del Rey hlutu verðlaun Breska tímaritið GQ hélt sína árlegu verðlaunahátíð í vikunni. Rauða dreglinum var rúllað út í London og stjörnurnar flykktust á viðburðinn í sínu fínasta pússi. Söngvarinn Robbie Williams var valinn átrúnaðargoð ársins og söngkonan dimmraddaða Lana Del Rey kona ársins. Svartir síðkjólar og stífpressuð jakkaföt voru vinsæl að þessu sinni. 6.9.2012 09:30
Frægir fjölmenntu á Frost Fjöldi þjóðþekktra einstaklinga mættu á frumsýningu kvikmyndarinnar Frost í leikstjórn Reynis Lyngdal í Sambíó Egilshöll i gærkvöldi. Eins og sjá má skein gleðin úr hverju andliti. Frost fjallar um ungt par, Öglu, sem er jöklafræðingur, og Gunnar, kvikmyndagerðarmann, sem koma að mannlausum rannsóknarbúðum á hálendi Íslands. Leiðangursmenn virðast hafa horfið á dularfullan hátt og Agla og Gunnar standa frammi fyrir óþekktu og banvænu afli. Með aðalhlutverkin fara Björn Thors, Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Helgi Björnsson, Hilmar Jónsson, Valur Freyr Einarsson og eiginkona Reynis, Elma Lísa Gunnarsdóttir. 6.9.2012 08:45
Hálendi og kynlífsráðgjöf í bíó Tvær kvikmyndir eru frumsýndar í bíóhúsum um helgina auk myndarinnar The Bourne Legacy sem er fjallað um hér fyrir ofan. 6.9.2012 17:30
Námskeið um búddisma frá Tíbet Endurmenntun Háskóla Íslands býður í haust upp á námskeið um búddisma í Tíbet undir stjórn Önnu Töru G. 6.9.2012 17:00
Átta kvölda uppistandssería Grínistarnir Ari Eldjárn, Þorsteinn Guðmundsson, Steinn Ármann Magnússon og Jóhannes Kristjánsson eftirherma verða hluti af nýrri Thule-uppistandsseríu á Gullöldinni í Grafarvogi. 6.9.2012 17:00
Ójöfnuðurinn er gríðarlegur Anna Elísabet Ólafsdóttir, fyrrverandi forstjóri Lýðheilsustöðvar, varði fyrir skemmstu doktorsritgerð sína í lýðheilsuvísindum við Brunel-háskóla í London. Ritgerðin fjallar um áhrif stjórnunarhátta á gæði og afköst heilbrigðiskerfa. 6.9.2012 16:30
Leit hafin að nýrri Elite-fyrirsætu Fyrirsætukeppni Elite á Íslandi er að fara af stað á ný. 6.9.2012 14:30
Ný hlið á Fassbender Michael Fassbender mun fara með titilhlutverkið í gamanmyndinni Frank. Fassbender leikur sérvitran rokktónlistarmann í myndinni og fer Domnhall Gleeson með hlutverk mislukkaðs tónlistarmanns sem óvart gengur í raðir rokksveitar Franks. Handrit myndarinnar er eftir rithöfundinn Jon Ronson og handritshöfundinn Peter Staughan, sem unnu áður að gerð handrits myndarinnar The Men Who Stare at Goats. Írinn Lenny Abrahamson leikstýrir myndinni. 6.9.2012 12:00
Verðugur arftaki Damons Spennumyndin The Bourne Legacy verður frumsýnd í kvikmyndahúsum annað kvöld. Þetta er fjórða myndin í kvikmyndaröðinni sem byggð er á skáldsögum Roberts Ludlum. 6.9.2012 10:31
Á rauða dregilinn Á rauða dregilinn Förðunarfræðingurinn Ísak Freyr Helgason sá um förðun bresku fyrirsætunnar Suki Waterhouse þegar hún sótti GQ Men of The Year Awards. 6.9.2012 09:24
Skotvöllur í brúðargjöf Brad Pitt hefur látið útbúa skotvöll fyrir tilvonandi eiginkonu sína Angelinu Jolie sem fyrirfram brúðargjöf. Pitt ku hafa pungað út hátt í 250 milljónum íslenskra króna fyrir skotvöll og vopn en völlurinn stendur í garði sumarhúss leikaraparsins í Frakklandi. 6.9.2012 09:00
Svaf og spilaði Alias með setuliðinu „Ég er eiginlega með víðáttubrjálæði núna, það eru svo margir staðir til,“ segir Brynja Sóley Plaggenborg, sem hreppti heimsreisu frá ferðaskrifstofunni KILROY með því að leggja á sig fjögurra sólarhringa setu utan við skrifstofuna í síðustu viku. „Ávísunin sem ég fékk er upp á 400 þúsund og ég ætla að fá ferðaskrifstofuna til að hjálpa mér að setja saman ferð,“ bætir hún við. 6.9.2012 08:00
Aronofsky hélt ekki vatni yfir hæfileikum Íslendinga Ben Stiller var gestur Kastljóss sjónvarpsins í kvöld þar sem hann fjallaði um mynd sína The secret life of Walter Mitty og dvöl sína á Íslandi. Stiller er hrifinn af landinu og segir það hafa upp á margt að bjóða. Til að mynda verði Ísland ekki bara Ísland í mynd Stillers heldur Grænland og Himalaya fjöllin að auki. 5.9.2012 20:39
Matargikkurinn Taylor Matur Leikkonan Elizabeth Taylor átti það til að borða hina undarlegustu rétti í þeim tilgangi að halda líkamsvexti sínum og heilsu. 5.9.2012 18:00
Meira D-vítamín Heilsa D-vítamín gæti hjálpað líkamanum að berjast gegn berklum. Þetta kemur fram í rannsókn vísindamanna við National Academy of Science í London. 5.9.2012 17:30
Velur hamingjuna fram yfir megrunarkúra Jessica Simpson segist fullkomlega meðvituð um að hún hafi bætt of miklu á sig á meðgöngunni og að það gangi ekki nógu vel að komast í fyrra horf. 5.9.2012 16:30
Tom Hanks syrgir Michael Clarke Duncan Tom Hanks er einn þeirra sem gefið hefur frá sér yfirlýsingu vegna fráfalls leikarans Michael Clarke Duncan. 5.9.2012 15:00