Lífið

Hálendi og kynlífsráðgjöf í bíó

Tommy Lee Jones og Meryl Streep fara með hlutverk hjóna sem hressa upp á 31 árs langt hjónabandið með því að fara í hjónabandsráðgjöf í myndinni Hope Springs.
Tommy Lee Jones og Meryl Streep fara með hlutverk hjóna sem hressa upp á 31 árs langt hjónabandið með því að fara í hjónabandsráðgjöf í myndinni Hope Springs.
Tvær kvikmyndir eru frumsýndar í bíóhúsum um helgina auk myndarinnar The Bourne Legacy sem er fjallað um hér fyrir ofan.

Íslenska hasarmyndin Frost kemur á hvíta tjaldið annað kvöld og er hennar víða beðið af mikilli eftirvæntingu. Reynir Lyngdal leikstýrir myndinni og Björn Thors, Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Helgi Björnsson og Elma Lísa Gunnarsdóttir eru meðal leikara. Frost fjallar um parið Öglu og Gunnar.

Agla er jöklafræðingur og Gunnar er kvikmyndagerðamaður og þau lenda í háskalegu ævintýri á ferð sinni um hálendi Íslands þar sem þau eiga við óþekkt, en að því er virðist, banvænt afl að etja. Myndin var að stórum hluta tekin upp við erfiðar aðstæður á Langjökli.

Nýjasta mynd þreföldu Óskarsverðlaunaleikkonunnar Meryl Streep, Hope Springs, kemur einnig í bíóhúsin annað kvöld. Myndin er sannarlega stjörnum prýdd því mótleikarar hennar eru þeir Tommy Lee Jones og Steve Carell.

Streep og Jones leika hjón sem hafa verið gift í 31 ár. Henni finnst allur neisti vera farinn úr sambandinu og skráir þau því í vikulanga hjónabandsráðgjöf og fer Carell með hlutverk sálfræðings sem leiðir þau í gegnum vikuna og leggur fyrir þau hin ýmsu verkefni.

Meðan sum þeirra eru jafn auðveld og að haldast í hendur á almannafæri þá kafar hann einnig í samlíf hjónanna og tekur kynlíf þeirra fyrir.

- trs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.