Lífið

Walter Mitty eða Mitt Romney?

Guðmundur Pálsson.
Guðmundur Pálsson.
Hollywood-stjörnurnar hafa verið landsmönnum hugleiknar undanfarin misseri og fjölmiðlar hafa verið duglegir að segja mismerkilegar fréttir af þeim stjörnum sem hér hafa dvalið. Í gærmorgun var stórstjarnan Ben Stiller til umræðu í morgunútvarpi Rásar 2.

Guðmundur Pálsson þáttastjórnandi talaði þá um myndina sem Stiller er að taka upp hér á landi. Guðmundur blandaði þó saman fréttunum af stórstjörnunum við fréttir af bandarískri pólitík, sem einnig hefur verið mikið rædd undanfarið.

Hann talaði um mynd Stillers, The Secret Life of Walter Mitty, sem The Secret Life of Mitt Romney. Romney er sem kunnugt er forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.

- sm, - þeb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×