Fleiri fréttir

Obbosí vandræðagangur

Ljósmyndarar tóku andköf þegar fyrirsætan Tali Lennox, 19 ára, stillti sér upp í einstaklega fallegum Julien Macdonald kjól á Elle style verðlaunahátiðinni sem fram fór í London. Ástæðan var að ekki hafði verið hugað nægilega vel að bakhluta kjólsins en flíkin náði ekki að hylja undirfatnað fyrirsætunnar. Skoða má kjólinn í meðfylgjandi myndasafni.

Háspenna í græna herberginu

Ljósmyndari Fréttablaðsis var í Hörpu á laugardagskvöld og fangaði stemninguna í græna herberginu og þegar úrslitin voru kynnt.

Íbúð er ekki íbúð og bíll er ekki bíll

Gallerí 002, sem rekið er í íbúðarblokk í Hafnarfirði, er bókað vel fram á árið 2013. Galleríið er hugarsmíð og heimili myndlistarmannsins Birgis Sigurðssonar.

Lindsay Lohan með glæný gleraugu

Leikkonan Lindsay Lohan, 25 ára, og systir hennar Ali Lohan, 18 ára, voru myndaðar á LAX flugvelli í Los Angeles í gær. Ég er algjör engill samanborið við flesta vini mína, lét Lindsay hafa eftir sér. Eins og sjá má á myndunum er leikkonan með ný gleraugu á nefinu með svartri umgjörð.

Jolie pósar gengin fjóra mánuði

Leikkonan Angelina Jolie, 36 ára, stillti sér upp í Berlín í Þýskalandi þegar kvikmyndin hennar In The Land Of Blood And Honey var frumsýnd um helgina. Eins og lesa má hér - er leikkonan gengin rúma þrjá mánuði. Um er að ræða sjöunda barn hennar og unnustans, Brad Pitt.

Gwyneth í geggjuðum kjól

Leikkonan Gwyneth Paltrow, 39 ára, var stórglæsileg í svörtum Stellu McCartney kjól á Grammy verðlaunahátíðinni í gærkvöldi. Eins og sjá má var hún með hárið tekið aftur og náttúrulega förðuð. Þá má sjá Gwyneth stilla sér upp með söngkonunni Taylor Swift baksviðs.

Lokka vinsælustu tónlistarmenn heims til landsins

"Við erum ekki að gera þetta fyrir peninginn heldur aðallega vegna þess að við elskum Ísland,“ segir Trond Opsahl sem rekur norska viðburðafyrirtækið Sky Agency ásamt Christoffer Huse.

Þessi flutningur fær hárin til að rísa

Í meðfylgjandi myndskeið má sjá og heyra söngkonuna Jennifer Hudson, 30 ára, syngja lagið I Will Always Love You til heiðurs Whitney Houston sem féll frá um helgina aðeins 48 ára gömul...

Yrsa gerir það gott í Noregi

"Þetta er glæsilegt. Hún hefur aldrei farið svona hátt,“ segir Pétur Már Ólafsson, útgefandi hjá Bjarti Veröld.

Bestu vinkonur í bransanum

Vinkonurnar Katy Perry og Rihanna sátu saman á Grammy verðlaunahátíðinni sem fram fór í Los Angeles í gærkvöldi. Eins og sjá má á myndunum fór vel á með söngkonunum. Katy sem var tilnefnd fyrir bestu plötu ársins, Firework, skemmti sér vel þrátt fyrir að söngkonan Adele hafi farið með sigur af hólmi. Katy var í glæsilegum Gucci síðkjól, Louboutin hælaskóm með blátt litað hárið.

Úr fyrirsætustörfum í fyrirtækjarekstur

"Við kynntumst á Indlandi árið 2006 en þá grunaði okkur ekki að við mundum enda á að reka saman fyrirtæki,“ segir Helga Björnsdóttir, annar eigandi Minicards á Íslandi, sem hún rekur ásamt vinkonu sinni Sigríði Hrönn Guðmundsdóttur.

David hélt þéttingsfast utan um dóttur sína

Fótboltakappinn David Beckham hélt þéttingsfast utan um dóttur sína, Harper Seven, eins og sjá má á myndunum sem teknar voru af honum og Victoriu þegar þau yfirgáfu veitingahúsið Balthazar í New York í gær. Ef myndirnar eru skoðaðar má greinilega sjá þvöguna sem myndaðist fyrir utan veitingahúsið þar sem fólk beið með símana sína til að mynda fjölskylduna.

Þakkaði læknum fyrir röddina

Það var breska söngkonan Adele sem kom sá og sigraði á Grammy verðlaunahátíðinni í gærkvöldi. Eins og sjá má á myndunum var hún glæsileg klædd í svartan kjól. Adele var útnefnd í sex flokkum og vann þá alla en hún fékk m.a. verðlaun fyrir bestu plötu ársins og besta lag ársins. Ég þarf að fá að þakka læknunum sem gáfu mér röddina á ný, sagði Adele í þakkarræðunni í gær.

Ekkert sérlega rómantísk

Hvað varðar rómantík þá get ég nú varla sagt að ég sé eitthvað sérlega rómantísk, segir Lísa Einarsdóttir sem heldur tónleika á morgun...

Rödd hennar var gjöf frá guði - myndband

Það er alveg ljóst að tónlistarheimurinn er sleginn yfir fráfalli söngdívunnar Whitney Houston. Það var undarlegt andrúmsloftið í veislu vegna Grammy-verðlaunanna sem var haldin á sama hóteli og Houston fannst látin á, aðeins klukkustundum eftir andlátið. Verðlaunin verða hinsvegar afhent í kvöld.

Skemmtu sér á hótelinu nokkrum klukkustundum eftir andlát Houston

Það er ekki ofsagt að sýningin verði að halda áfram í skemmtanabransanum. Þannig mættu stjörnurnar til þess að skemmta sér á sama hótelið og Whitney Houston fannst látin á, aðeins nokkrum klukkustundum eftir andlát hennar. Um var að ræða fyrirpartý vegna Grammy verðlaunanna sem fram fara í kvöld.

Whitney Houston 1963-2012

Meðfylgjandi má sjá myndasyrpu af söngkonunni Whitney Houston sem lest í gær, 48 ára að aldri. Whitney var ein dáðasta söngkona heims og hlaut fjölda verðlauna fyrir söng sinn. Hún átti lengi við vímuefnavanda að stríða og fór síðast í meðferð í fyrra. Whitney lætur eftir sig eina dóttur, Bobbi Kristina, sem hún átti með fyrrverandi eiginmanni sínum, Bobby Brown.

Scarlett í sólbaði með nýjum kærasta

Leikkonan Scarlett Johansson, 27 ára, og kærasti hennar, athafnamaðurinn Nate Naylor , 38 ára, eru stödd á Hawaii. Eins og sjá má á myndunum sleikja þau sólina saman ásamt vinkonu...

Baksviðs í Eurovision

Meðfylgjandi má sjá myndir sem teknar voru baksviðs á Söngvakeppni Sjónvarpsins sem fram fór í Hörpu í gærkvöldi. Lagið Mundu eftir mér, eftir Gretu Salóme Stefánsdóttur, sem er aðeins 25 ára gömul sigraði. Í öðru sæti var lagið Stattu Upp eftir Ingólf Þórarinsson og Axel Árnason.

Gói klikkar ekki frekar en fyrri daginn

Leikarinn Gói, sem heitir réttu nafni, Guðjón Davíð Karlsson og kollegi hans, leikarinn Þröstur Leo Gunnarsson, vöktu mikla lukku áhorfenda á frumsýningu leikverksins Gói og Baunagrasið í Borgarleikhúsinu í dag. Félagarnir héldu unga fólkinu og ekki síður fullorðna fólkinu við efnið í þessari frábæru barnasýningu. Meðfylgjandi myndir voru teknar fyrir og eftir sýninguna. Sjá meira um Góa og Baunagrasið hér - heimasíða Borgarleikhússins.

Óskar þór ánægður með viðtökurnar

„Það er óneitanlega gaman að myndin fái svona mikla athygli,“ segir Óskar Þór Axelsson leikstjóri myndarinnar Svartur á Leik. Bandaríski vefmiðillinn Hollywood Reporter telur íslensku myndina vera eina af sjö myndum sem vert er að fylgjast með á kvikmyndahátíðinni í Berlín.

Stolt af línunum

Netheimar hafa logað að undanförnu eftir að fatahönnuðurinn Karl Lagerfeld tjáði sig um líkamsvöxt söngkonunnar Adele í viðtali við blaðið Metro. Adele hefur nú svarað ummælum Karls um að hún væri of feit og segist vera stolt af vaxtarlagi sínu.

Barnshafandi Hafdís Huld í góðum fíling

Meðfylgjandi myndir voru teknar á tónleikum Hafdísar Huldar, sem er gengin rúma fjóra mánuði með sitt fyrsta barn, á Gljúfrasteini sem haldnir voru í tengslum við Safnanótt í gærkvöldi...

Beyonce sýnir frumburðinn

Beyonce og hennar heittelskaði, Jay Z sýndu heiminum fallegu stúlkuna sína Blue Ivy á nýrri heimasíðu tileinkaðri henni...

Sigur Rós á fullu

Jónsi og félagar í Sigur Rós hafa bókað sig á tónlistarhátíðirnar Summer Sonic í Japan sem verður haldin 18. og 19. ágúst og á Winterthur í Sviss sem verður haldin viku síðar.

Naomi Watts sem Díana

Naomi Watts mun leika Díönu prinsessu í nýrri mynd sem talið er að fjalli um samband hennar við hjartalækninn Hasnat Khan. Þau áttu í leynilegu ástarsambandi sem hófst árið 1995 en lauk nokkrum mánuðum fyrir dauða hennar 1997.

Endurnýja kynni sín

Mickey Rourke og Kim Basinger ætla að leiða hesta sína saman á ný í pólitísku dramamyndinni Black November. Þau hafa áður leikið hvort á móti öðru á hvíta tjaldinu í hinni erótísku Níu og hálfri viku frá árinu 1986. Þau léku einnig bæði í The Informers sem kom út fyrir fimm árum en ekki hvort á móti öðru.

House hættir göngu sinni

Bandarísku sjónvarpsþættirnir House ljúka göngu sinni í Bandaríkjunum í apríl þegar sýningum lýkur á áttundu þáttaröðinni. Framleiðendurnir, þar á meðal aðalleikarinn Hugh Laurie, sögðu að ákvörðunin hefði verið sársaukafull en tími væri kominn að binda enda á þættina.

Nanna lærir handritagerð

Nanna Kristín Magnúsdóttir, leikkona og einn af stofnendum Vesturports, er nú að búa sig og fjölskyldu sína undir flutning til Vancouver í Kanada. Þangað hyggst leikkonan flytjast á næstu mánuðum til að setjast á skólabekk í Vancouver Film School og takast á við nám í handritagerð fyrir kvikmyndir og sjónvarp.

Eltihrellir gengur laus

Maður sem var dæmdur fyrir að hafa setið um söngkonuna Madonnu og hótað að stinga hana með hnífi slapp af heimili fyrir geðfatlaða í Kaliforníu fyrir skömmu og er leitað af lögreglunni.

Hitta ráðgjafa vegna sonarins

Sir Elton John og maðurinn hans, David Furnish, hafa hitt ráðgjafa vegna uppeldis sonar þeirra, Zachary. Þeir óttast að hann verði litinn hornauga þegar hann vex úr grasi.

Vala Grand trúlofuð

Vala Grand og kærasti hennar Eyjólfur Svanur Kristinsson eru trúlofuð, ef marka má tilkynningu á Facebook-síðu parsins. Vala Grand setti inn stöðu uppfærslu á síðuna síðdegis í dag þar sem hún sagðist vera í skýjunum með trúlofunina.

Heillaðist af kríubeinum

Jóhanna Methúsalemsdóttir skartgripahönnuður, sem búsett er í stórborginni New York, stendur fyrir merkinu Kría Jewelry

Hreiðurgerð á Kvisthaganum

María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona og eiginmaður hennar Pétur Árni Jónsson útgefandi eru flutt á Kvisthagann í Vesturbænum. Pétur og María gengu í það heilaga síðasta sumar. Þau voru gefin saman í Dómkirkjunni og brúðkaupsveislan var haldin á Kjarvalsstöðum...

Stíf keyrsla á Bloodgroup

Fernir tónleikar eru eftir af stífu ferðalagi elektró poppsveitarinnar Bloodgroup um Evrópu og verða þeir síðustu haldnir í London og Nottingham á Englandi í næstu viku. Alls verða tónleikarnir 23 talsins, þar af fimmtán í Þýskalandi.

Frægir flykkjast í úthverfin

Hárgreiðslumeistarinn, sjónvarpsmaðurinn og tískulöggan Svavar Örn Svavarsson og sambýlismaður hans, Daníel Örn Hinriksson, sem búsettir eru í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík hafa nú ákveðið að færa sig um set og breyta um lífsstíl svo um munar.

Tveir tímar í súginn hjá Bubba og Frikka

Tæknin á það til að gera mönnum erfitt fyrir í lífinu. Þetta fengu kollegarnir Bubbi Morthens og Friðrik Dór Jónsson að reyna á dögunum þegar sá síðarnefndi var gestur hins í úvarpsþættinum Stáli og hníf á Bylgjunni.

Morgan Freeman mögulega á leið til Íslands með Tom Cruise

Stórleikarinn Morgan Freeman hefur staðfest þátttöku sína í spennumyndinni Oblivion þar sem Tom Cruise fer fremstur í flokki. Gert er ráð fyrir að myndin verði tekin að miklu leyti hér á landi síðsumars og því gæti farið svo að Freeman heimsæki landið. Þetta kemur fram á kvikmyndavefnum Svarthöfða en þar segir ennfremur að myndin kosti tæpa 25 milljarða króna í framleiðslu sem myndi gera hana að dýrustu kvikmynd sem gerð hafi verið hér á landi.

Sjá næstu 50 fréttir