Fleiri fréttir

Hálf milljón app-starfa

Samkvæmt nýlegri rannsókn hefur app-iðnaðurinn svokallaði búið til 466 þúsund störf í Bandaríkjunum, eða hátt í hálfa milljón. Þetta er afar merkilegt, sérstaklega fyrir þær sakir að þessi iðnaður var ekki einu sinni til fyrir fimm árum.

Sunna fær góða dóma

Djasspíanistinn Sunna Gunnlaugsdóttir hefur fengið góða dóma erlendis fyrir nýjustu plötu sína Long Pair Bond. Tveir afar jákvæðir dómar birtust um plötuna á djasssíðunni Allboutjass.com auk þess sem hún fékk fimm stjörnur í austurríska blaðinu Concerto. Long Pair Bond kom út fyrir síðustu jól og er tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem verða afhent í Hörpu 29. febrúar.

Geggjaður galakjóll

Leikkonan Sarah Jessica Parker, 46 ára, stillti sér upp á rauða dreglinum í bleikum Oscar de la Renta síðkjól sem fór henni mjög vel. Mistökin eru kannski örlög þín ef út í það er farið, lét Sarah hafa eftir sér. Leikkonan toppaði heildarútlitið með hvítum hönskum og Theyskens Theory leðurjakka.

Eiturgrænar buxur sem segja sex

Söngkonan Fergie, 36 ára, og eiginmaður hennar, leikarinn Josh Duhamel voru mynduð á LAX flugvellinum. Buxur sögnkonunnar vöktu sérstaka athygli en eins og sést í meðfylgjandi myndasafni er Fergie í eiturgrænum buxum, ljósblárri skyrtu og bláum jakka. Lífið gengur ekki út á að taka stöðugt við. Við verðum að gefa eitthvað á móti, sagði hún.

Létu laga axlirnar

Tortímandinn og Rambó, eða öllu heldur Arnold Schwarzenegger og Sylvester Stallone gengust báðir undir aðgerðir á öxl fyrir skömmu.

Hafdís með plötu og barn í maganum

"Ég viðurkenni að ég hef verið hressari en er öll að skána núna. Ég var frekar slöpp á tímabili,“ segir tónlistarkonan Hafdís Huld sem er komin rúma fjóra mánuði á leið með sitt fyrsta barn og á því von á sér í byrjun júlí.

Skælbrosandi eftir danstíma

Leikkonan Katie Holmes, 33 ára, var mynduð á leið í danstíma í gærdag með stílabók og vatnsflösku í hönd. Þá má sjá leikkonuna yfirgefa danstímann með bros á vör...

Útsendari valdi Axlar-Björn á þýska hátíð

Leikritið Axlar-Björn hefur verið valið til að taka þátt í leiklistarhátíðinni Theatre-Biennale New Plays from Europe sem haldin verður í 11 sinn í í Wisbaden í Þýskalandi 14-24 júní.

Sigruðu með flutningi til heiðurs látnum kennara

"Þetta var allt svolítið á hundavaði en við sungum lagið alls níu sinnum fyrir keppnina," segir Agnar Ólason, formaður og annar stofnandi Karlakórs Sjómannaskólans.Karlakór Sjómannaskólans gerði sér lítið fyrir og sigraði í undankeppni skólans fyrir Söngkeppni framhaldsskólanna nú á dögunum. Kórinn flutti lagið Undir bláhimni en flutningurinn var tileinkaður Einari G. Gunnarssyni, sem fórst með togaranum Hallgrími SI-77 í sjóslysi við Noregsstrendur 25. janúar síðastliðinn. Einar hafði verið kennari við skólann í hátt í 35 ár og mörgum kórmeðlimum mjög kær.

Guðjón leikstýrir í stað Baltasars

Velgengni Baltasars Kormáks vestanhafs hefur varla farið framhjá neinum og ljóst að leikstjórinn getur nú valið úr verkefnum í Hollywood. Sökum þess hefur Baltasar fengið sig lausan frá Þjóðleikhúsinu en hann átti að leikstýra verkinu Afmælisveislan eftir Harold Pinter.

Kærleikur og jákvæðir straumar

Gríðarlega góð stemning skapaðist þegar þúsund súkkulaðibrosum var dreift á árlegri ástar- og hvatningahátíð Bergljótar Arnalds í miðbænum....

Hrífandi ævintýri um Hugo

Dramatísku ævintýramyndinni um munaðarlausa drenginn Hugo hefur verið vel tekið vestanhafs en hún hlaut flestar tilnefningar til Óskarsverðlauna á dögunum. Myndin verður frumsýnd hér á landi á morgun.

Vill ekki krónu frá Kate

Kate Perry var brosmild á Super Bowl um helgina en ástæðan ku vera sú að fyrrum eiginmaður hennar Russell Brand vill enga peninga frá henni þó að hann eigi rétt á um 20 milljónum dollara.

Kanar kynnast Gnarr

Heimildarmyndin Gnarr í leikstjórn Gauks Úlfarssonar um framboð Besta flokksins í borgarstjórnarkosningunum árið 2010 hlaut ágætis viðtökur þegar hún kom út hér á landi. Myndin var í kjölfarið kynnt á fjölda kvikmyndahátíða erlendis og hlaut sums staðar talsvert lof.

Madonna klippti út dóttur sína

Tónlistarkonan og nú leikstjórinn Madonna klippti dóttur sína, Lourdes, út úr mynd sinni W.E. Madonna fékk Lourdes, sem er 17 ára gömul, til að hoppa inn í lítið hlutverk í myndinni en klippti svo atriðið út á síðustu stundu.

Jogginggallinn gerir góða hluti

Meðfylgjandi má sjá Khloe Kardasian stilla sér upp á rauða dreglinum og þar sem hún fær sér kaffitár klædd í bláan íþróttagalla. Eins og sjá má á myndunum er hún alls ekki síðri í gallanum en sparifötunum. Þú skalt hafa það fyrir reglu að fyrirgefa óvinum þínum. Ekkert pirrar þá jafn mikið og fyrirgefning, lét Khloe hafa eftir sér.

Spilar í Pompidou-listasafninu

„Það verður mjög spennandi að spila þarna,“ segir tónlistarkonan Jarþrúður Karlsdóttir, Jara, sem hefur verið boðið að spila í Pompidou, nýlistasafni Frakklands og einu virtasta listasafni heims. „Þetta er mikill heiður. Það er ekkert auðvelt að komast þarna inn.“

Hilmar til Berlínar

Leikarinn Hilmar Guðjónsson fer á Kvikmyndahátíðina í Berlín um næstu helgi þar sem hann tekur þátt í verkefninu Shooting Stars á kvikmyndahátíðinni.

Lindsay mætt á rauða dregilinn

Leikkonan Lindsay Lohan, 25 ára, stillti sér upp á rauða dreglinum í hvítum Tom Ford kjól og Prada skóm. Ég hef lært að kunna að meta það sem náttúran gaf mér, segir Lindsay sem er orðin hvíthærð eins og sjá má í myndasafni.

Arabískur plötusnúður á Selfossi

„Ég elska Ísland. Þetta er í fyrsta sinn sem ég kem hingað og þetta er mjög fallegt land,“ segir plötusnúðurinn DJ Slim sem kom til Akureyrar í gær eftir sólarhringsferðalag frá Katar. „Ég gæti vel hugsað mér að taka upp næsta tónlistarmyndband mitt hérna.“

Ísland á að draga sig út úr Eurovisionkeppninni í ár

"Mín afstaða er mjög skýr: Ísland á að draga sig út úr Eurovisionkeppninni í ár til að mótmæla framferði borgaryfirvalda í Aserbaidsjan gagnvart þegnum sínum. Þetta er skýrt og klárt mannréttindabrot,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson í forsíðuviðtali Lífsins, fylgiblaði Fréttablaðsins á morgun, föstudag. "Ég upplifi mig alls ekki einan hvað þetta mál varðar. Ég hef ekki fundið einn gallharðan Eurovisionaðdáanda sem er ekki sammála mér.“ Páll Óskar heldur engu aftur þegar kemur að Eurovision, ástinni eða forsetaframboði.

Drengur fæddur

Exton Elias Downey heitir glænýr sonur Roberts Downey Jr. og konu hans, Susan Downey. Drengurinn er við hestaheilsu og litla fjölskyldan er sögð í skýjunum yfir þessari nýju viðbót sem kom í heiminn síðastliðinn þriðjudag.

Hinn frábæri köngulóarmaður

Nýju sýnishorni frá myndinni The Amazing Spider-Man hefur verið lekið á netið en myndin verður frumsýnd í sumar. Um fjórðu Spiderman-myndina er að ræða en leikarinn ungi, Andrew Garfield, tekur við af Tobey Maquire sem köngulóarmaðurinn knái undir leikstjórn Marcs Webb.

Don Juan nútímans

Leikarinn ungi Joseph Gordon-Levitt stefnir nú að gerð myndar þar sem hann leikur aðalhlutverkið, leikstýrir og skrifar handritið. Myndin hefur enn ekki hlotið nafn en Gordon-Levitt segir hana koma til með að vera gamanmynd um mann sem er eins konar Don Juan nútímans.

Heidi ennþá með hringinn

Project Runway stjarnan, þýska fyrirsætan Heidi Klum, sem er nýskilin við eiginmann sinn og barnsföður, söngvarann Seal, var mynduð á LAX flugvelli í Los Angeles á leiðinni til New York...

Hallgrímur Helgason við 1000°

Í kvöld klukkan 20 verður blásið til dagskrár á kaffihúsinu Súfistanum í Bókabúð Máls og menningar við Laugaveg. Þar verður fjallað um bókina Konan við 1000° eftir Hallgrím Helgason en sú bók hefur talsvert verið í umræðunni uppá síðkastið.

Stórglæsileg korter eftir barnsburð

Beyonce Knowles, 30 ára, var stórglæsileg í Monique Lhuillier kjól og Gucci skóm, með Chanel veski og Lorraine Schwartz skartgripi þegar hún var mynduð á tónleikum eiginmannsins Jay-Z. Eins og sjá má á myndunum lítur Beyonce stórkostlega út aðeins rúmum mánuði eftir að hún fæddi dóttur sína Blue Ivy.

Sólstafir spila Svarta sanda í heild sinni

Rokksveitin Sólstafir heldur útgáfutónleika í Gamla bíói á fimmtudag þar sem platan Svartir sandar verður leikin í heild sinni með aðstoð reynslubolta úr rokksenunni.

Stjórnmálamenn fá ekki að veita verðlaun Xins

Útvarpsstöðin X977 stendur fyrir tónlistarverðlaunum í næstu viku. Útvarpsmaðurinn Máni Pétursson segir stöðina vera að svara kallinu, enda hafi slíkar hátíðir verið leiðinlegar síðustu ár.

Leita að ungu fólki í raunveruleikaþátt

„Þetta þurfa að vera einstaklingar sem eru tilbúnir að opinbera sig og fara í smá sjálfskoðun í leiðinni,“ segir Hildur Margrétardóttir, framleiðandi sem leitar nú að ungu fólki til að taka þátt íslenskum raunveruleikaþáttum.

Beckham mæðgur án lífvarða

Victoria Beckham og dóttir hennar Harper Seven voru myndaðar á LAX flugvellinum í Los Angeles. Með mæðgunum var barnfóstra í för en engir lífverðir. Öryggisverðir fylgdu þeim úr flugstöðvarbyggingunni sökum ágengra ljósmyndara.

Keðjur og fuglafætur í myndbandinu

Stúlkurnar í The Charlies eru nú komnar aftur til Los Angeles eftir stutt jólafrí á Íslandi og slá ekki slöku við. Á Facebook síðu sveitarinnar greina þær frá því að þær séu byrjaðar að taka upp myndband við lagið Tickin Like a Bomb. Leikstjóri myndbandsins er Raphael Chatelain og hefur undirbúningur staðið yfir í þrjár vikur. Alma, Klara og Steinunn leika lykilhlutverk í myndbandinu ásamt dönsurunum en þær greina einnig frá því að kampavín, slökkviliðsbúningur, sprengjuefni, fuglafætur og keðjur verði hluti af leikmunum. Ekki er vitað hvenær myndbandið fer í sýningu. -áp

Sætari bumbur sjást varla

Leikkonan Jennifer Garner, 39 ára, var mynduð ásamt eldri dóttur sinni, Violet, í Santa Monica í Kaliforníu. Fegurðin kemur frá reynslu okkar í lífinu. Ef þú hefur átt hamingjusamt líf eru broslínurnar þínar á réttum stað, lét leikkonan hafa eftir sér. Eins og sjá má á myndunum er ekki langt þangað til Jennifer eignast sitt þriðja barn.

Í ullarpeysum á Prikinu

Lopapeysan 2012 var haldin hátíðleg á Prikinu um helgina. Lopapeysan er árlegt þorrablót skemmtistaðarins en fjölmargir lögðu leið sína á Prikið þar sem flestir skörtuðu þjóðlegum lopapeysum í tilefni kvöldsins.

Ómótstæðileg þrátt fyrir gretturnar

Þegar krakkarnir hótuðu að lumbra á mér eftir skóla ráðlagði pabbi mér að ráðast á þá strax í staðinn fyrir að bíða óttaslegin heilan skóladag með hnút í maganum, sagði leikkonan Cameron Diaz sem skoða má gretta sig í meðfylgjandi myndaalbúmi. Cameron er glæsileg eins og ávallt þrátt fyrir gretturnar.

Nei alls ekki fleiri lýtaaðgerðir

Bandaríska sjónvarpsraunveruleikastjarnan Angela "Big Ang" Raiola sem hefur vakið athygli vestan hafs fyrir útlit sitt sér í lagi og hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Mob Wives stillti sér upp á rauða dreglinum. Eins og sjá má á myndunum hefur hún látið eiga við nefið, varirnar og barminn. Sjón er sögu ríkari.

Undrandi á Bítlunum

Sir Paul McCartney er ennþá undrandi á því að hafa verið meðlimur í einni vinsælustu hljómsveit heims, Bítlunum.

Sjá næstu 50 fréttir