Lokka vinsælustu tónlistarmenn heims til landsins 13. febrúar 2012 13:15 Frá vinstri: David Guetta, Trond Opsahl og Christoffer Huse. Þeir vilja lokka heimsfræga erlenda flytjendur til Íslands. „
Við erum ekki að gera þetta fyrir peninginn heldur aðallega vegna þess að við elskum Ísland," segir Trond Opsahl sem rekur norska viðburðafyrirtækið Sky Agency ásamt Christoffer Huse. Fyrirtækið, sem hefur verið starfandi í nokkur ár, stendur fyrir komu hollenska plötusnúðsins Tiesto hingað til lands í næsta mánuði. „Ég fór í heimsókn til Íslands með félaga mínum [Huse] ásamt norskum vini okkar sem hefur unnið þar í um tíu ár. Þetta var í fyrsta sinn sem við komum þangað og við urðum ástfangnir af landinu," segir Trond. „Við vorum búnir að halda tónleika í Noregi þannig að það var ekki erfið ákvörðun að prófa að halda þá líka á Íslandi þegar við komum auga á tækifæri til þess." Ef vel gengur með Tiesto-tónleikana vonast þeir félagar til að fleiri flytjendur komi hingað á þeirra vegum og líklega verða margir þeirra töluvert frægari. „Við höfum talað við marga umboðsmenn og listamenn og það virðast allir vilja koma til Íslands. Sérstaklega ef þeir spila í Noregi á okkar vegum og fara síðan til Íslands." Eru þetta þekktir flytjendur? „Já, margir af þeim vinsælustu í heiminum. Þetta snýst nefnilega ekki svo mikið um peninga varðandi tónleika á Íslandi enda er það minna en önnur lönd. Listamennirnir hafa áhuga á að heimsækja Ísland og umboðsmenn þeirra vilja bæta við öðrum tónleikum á Norðurlöndunum," segir Trond. Sky Agency hefur nýlega staðið fyrir tvennum tónleikum í Noregi með franska plötusnúðinum og upptökustjóranum David Guetta, auk þess sem Roxette spilar á þeirra vegum í júlí. Aðspurður segist hann gera sér grein fyrir því að erfitt sé að græða á tónleikahaldi á Íslandi vegna lágs gengis krónunnar. Það sé samt ekki aðalmálið hjá þeim. „Auðvitað getum við ekki boðið listamönnunum sama pening fyrir að spila á Íslandi en við teljum að við höfum fundið svolítið sem virkar bæði fyrir þá og vonandi íslenska markaðinn. Miðaverðið yrði kannski aðeins hærra en það var fyrir hrunið en svo virðist sem Íslendingar séu tilbúnir til að borga aðeins meira fyrir góða tónleika. Það gekk til dæmis vel með Eagles-tónleikana í fyrra og þar var miðaverðið hærra en oft áður. Þetta mál er í góðum farvegi," segir Trond. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira