Úr fyrirsætustörfum í fyrirtækjarekstur 13. febrúar 2012 10:15 Nóg að gera Þær Helga Björndóttir og Sigríður Hrönn Guðmundsdóttir kynntust við fyrirsætustörf á Indlandi og reka núna saman fyrirtækið Minicards. Fréttablaðið/anton „
Við kynntumst á Indlandi árið 2006 en þá grunaði okkur ekki að við mundum enda á að reka saman fyrirtæki," segir Helga Björnsdóttir, annar eigandi Minicards á Íslandi, sem hún rekur ásamt vinkonu sinni Sigríði Hrönn Guðmundsdóttur. Helga og Sigríður kynntust er þær héldu út til Indlands á vegum Eskimo fyrirsætuskrifstofunnar til að vinna í nokkra mánuði. „Það var mikið ævintýri og í raun alveg ótrúleg upplifun að búa þarna. Sigga var búin að vera úti í eitt ár þegar ég flutti út og hún var orðin þjóðþekkt persóna á Indlandi. Prýddi risa auglýsingaskilti, lék í bíómyndum og sjónvarpsauglýsingum. Við urðum miklar vinkonur úti, sem var í raun fyndið því við vorum í samkeppni um verkefnin þarna úti," segir Helga en það var hún sem fékk hugmyndina að því að stofna Minicards hér heima. Minicards er auglýsingamáti sem innlend fyrirtæki geta nýtt sér til að koma vöru sinni á framfæri við erlenda, sem og innlenda ferðamenn. Um er að ræða lítil spjöld sem hanga á þar til gerðum stöndum á stöðum þar sem ferðamenn eiga helst leið um. Helga uppgötvaði Minicards ásamt foreldrum sínum í Amsterdam fyrir nokkrum árum. „Okkur fannst þetta svo sniðugt hugmynd og eitthvað sem ætti erindi hingað heim. Þetta gengur mjög vel og þessa dagana erum við á leiðinni með fyrirtækið til Akureyrar líka," segir Helga en bæði hún og Sigríður eru í fullu háskólanámi samhliða fyrirtækjarekstrinum og með börn á sama aldri. „Nú erum við á fullu að búa okkur undir komandi ferðamannatímabil. Það er því mikið fjör og nóg að gera." - áp
Mest lesið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM Tíska og hönnun Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Fleiri fréttir Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Sjá meira