Fleiri fréttir

Nói verður ástarbréf til Íslands

Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn Darren Aronofsky hefur hug á því að taka upp stóran hluta af kvikmynd sinni um örkina hans Nóa hér á landi. Hann vill taka myndina á stöðum sem ekki hafa verið notaðir í kvikmyndum.

Hó hó hó þetta er sko rómantískt

Heitasta leikaraparið í Hollywood, Ryan Gosling og Eva Mendes, var myndað á Charles de Gaulle flugvellinum í París í Frakklandi um helgina..

Hættur að borða Subway

Neil Patrick Harris, stjarna þáttanna How I Met Your Mother, segist elska að búa með kokki.

Listakonur heiðraðar

Meðfylgjandi myndir voru teknar á föstudag þegar Rakel McMahon myndlistarkona, Hildur Yeoman fatahönnuður og Saga Sig tískuljósmyndari voru heiðraðar á listakvöldi Baileys. Þær fengu 100 þúsund króna styrk hver...

Enn má gerast hestamaður

Þetta er hugmynd sem byggir á eldri bók sem hét sama nafni og Bændasamtökin gáfu út um árabil,“ segir Hulda G. Geirsdóttir sem situr í ritstjórn bókarinnar Hrossaræktin 2011 sem út kom nýverið. „Í nokkur ár hefur þó ekki komið út neitt ársrit um hestamennskuna þar sem greint er frá því sem hæst bar á yfirstandandi ári og margir hafa saknað þess að fá ekki árbók með alls konar skemmtilegu efni til að fletta upp í.“

Blóðugt myndband Benna

"Ég hef ekki alveg fylgst með því hvað er satt og rétt í því,“ segir tónlistarmaðurinn Benedikt Hermann Hermannsson spurður hvort blóðugt myndband hans við lagið FF ekki CC hafi verið bannað á Youtube, enda finnst það ekki á síðunni.

Býður starfsfólki í kalkún

Söngkonan Rihanna gerir vel við starfsmenn sína, en hún bauð í stóra þakkargjörðarmáltíð á bar í Dublin í gærkvöldi. Rihanna er á tónleikaferðalagi og vorkenndi starfsmönnum sínum fyrir að vera frá fjölskyldunni yfir hátíðina, en starfslið söngkonunnar telur á yfir 100 manns.

Léttsveit Reykjavíkur í Hörpu

Léttsveitin undir stjórn Jóhönnu V. Þórhallsdóttur, hélt árlega aðventutónleika, Með eld í æðum, í Eldborgarsal Hörpu í gær fyrir troðfullu húsi...

Framtíðin er runnin upp

Danstónlistarþátturinn Skýjum ofar er fimmtán ára um þessar mundir. Haldið verður upp á afmælið með tónleikum á Barböru. Arnþór Snær Sævarsson stjórnaði Skýjum ofar ásamt Eldari Ástþórssyni og saman ætla þeir að spila jungle- og drum&bass-tónlist eftir Goldie, Roni Size, Squarepusher og fleiri. Þeir héldu á sínum tíma Skýjum ofar-kvöld á 22 þar sem stemningin var jafnan mikil og dansinn dunaði.

Sögunni sem varð að segja fagnað

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar útgáfu ævisögu Ingimars H. Ingimarssonar eftir Þorfinn Ómarsson var fagnað í Eymundsson, Austurstræti. Fjöldi mætti til að gleðjast með þeim félögum...

Náði í samning hjá einni fremstu umboðsskrifstofu heims

Edda Óskarsdóttir, 18 ára menntaskólamær, er komin á samning hjá Select í Bretlandi. "Ég átti nú alls ekki von á þessu og fannst þetta satt best að segja lengi vel ótrúlegt. Fyrst núna er að renna upp fyrir mér að draumurinn er orðinn að veruleika,“ segir Edda en Select er talin vera ein sú fremsta í heimi og hafa frægar fyrirsætur og leikarar á borð við Siennu Miller, Stellu Tennant, David Gandy og Danny Beauchamp verið á samningi hjá henni.

Myndir frá opnun Lady Gaga-búðarinnar

Söngkonunni Lady Gaga er margt til lista lagt, en hún opnaði á dögunum búð í Barneys-verslunarmiðstöðinni í New York. Frægir flykktust á opnunina og mátti þar sjá mörg stærstu nöfnin í tísku-og skemmtanabransanum.

Þriðju barnabók Hendrikku fagnað

Skartgripahönnuðurinn og rithöfundurinn Hendrikka Waage fagnaði útgáfu bókarinnar Rikka og töfrahringurinn í Japan í vikunni. Bókin er sú þriðja í seríunni um stúlkuna Rikku og töfrahringinn hennar. Ungir sem aldnir gestir mættu í boðið og fengu að fletta nýju barnabókinni.

Nýtísku sushi og vatnsmelónufranskar

„Við ætlum að bjóða upp á nýtískulegt sushi sem er að slá í gegn út um allan heim ásamt suðrænum steikum,“ segir Gunnsteinn Helgi einn af eigendum nýs veitingarstaðar sem nefnist Sushisamba.

Mátti ekki lita hárið

Kate Beckinsale mátti ekki lita á sér hárið þegar hún var yngri. Móðir hennar, sjónvarpsleikkonan Judy Loe, var ströng þegar þetta umræðuefni var annars vegar og vildi hafa háralitinn náttúrulegan. „Mamma var mjög á móti því að ég litaði hárið mitt. Ég var alltaf stelpan sem mátti það ekki,“ sagði breska leikkonan. „Mamma hefði aldrei gefið mér bíl. Við þurftum alltaf að vinna fyrir slíku,“ bætti hin 38 ára Beckinsale við. Á meðal næstu kvikmynda hennar eru hin hálfíslenska Contraband og hasar-endurgerðin Total Recall.

Pálmi í læri hjá Jóni Ársæli

Þeir Spaugstofumenn með Pálma Gestsson í fararbroddi hafa í vikunni dvalið á heimili Jóns Ársæls Þórðarsonar að Litla-Skipholti í Reykjavík. Þar hefur Pálmi reynt að líkjast húsbóndanum, Jóni Ársæli, sem allra mest til að taka hann almennilega fyrir í Spaugstofunni.

Barnabók Bergljótar

"Mig langaði að gera bók sem fræðir börnin um íslensku húsdýrin og sýnir hversu mikilvæg þau eru fyrir samfélagið," segir Bergljót Arnalds, rithöfundur og söngkona, sem hélt útgáfuhóf í Iðnó í tilefni af útkomu barnabókarinnar Íslensku húsdýrin og Trölli. Bergljót og krakkar skelltu sér á hestbak og brugðu á leik eins og sjá má á myndunum.

Fallega fólkið lét sjá sig

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar E-Label hélt upp á endurkomu sína á íslenskan markað í versluninni 3 Smárum Smáralind á dögunum...

Fær hlutverk í Dog Fight

John Lithgow hefur bæst við stjörnum prýtt leikaralið gamanmyndarinnar Dog Fight. Tökur á myndinni eru hafnar og annast Jay Roach leikstjórnina. Hann á að baki grínsmelli á borð við Meet the Parents og Austin Powers-myndirnar.

Þakkar unnustanum

Leik- og söngkonan Jennifer Hudson þakkar unnusta sínum, David Otunga, fyrir að hafa bjargað lífi sínu. Hudson hefur gengið í gegnum erfiða tími eftir að móðir hennar og bróðir voru myrt á heimili sínu í Chigago í fyrra, en hún hefði einnig verið á staðnum þennan dag ef ekki væri fyrir unnustann. „Það bjargaði lífi mínu að David bað mig um að koma til sín í Flórída einmitt þennan dag, annars hefði ég verið heima hjá mömmu og líklega ekki á lífi í dag,“ segir Hudson í viðtali við blaðið Ebony, en þetta er í fyrsta sinn sem söngkonan talar um atburðina.

Frumleg afmælisgjöf

Leikkonan Katherine Heigl fékk frumlega afmælisgjöf frá eiginmanni sínum, tónlistarmanninum Josh Kelley, en hann fékk sér húðflúr til heiðurs henni og dóttur þeirra. Heigl lýsir því yfir á Twitter-síðu sinni að gjöfin sé sú rómantískasta sem hún hafi fengið, en húðflúrið er á handlegg Kelley með mynd af sameiginlegu stjörnumerki mæðgnanna og fæðingardögum þeirra.

Finnst tískusýningar leiðinlegar

Leikkonan Chloë Sevigny viðurkennir að hún hafi ekki mikinn áhuga á tísku og leiðist að fara á tískusýningar. Þessi ummæli Sevigny koma nokkuð á óvart þar sem leikkonan er þekkt fyrir fatastílinn og er gjarnan talin ein af helstu tískufyrirmyndum í heimi.

Dreymir um að fara á skíði

Britney Spears segir að draumafríið sitt sé skíðaferð með sonum sínum og kærasta. Poppsöngkonan viðurkennir í viðtali við blaðið Stylist að hæfileikar hennar í brekkunum séu takmarkaðir en hún vilji gjarnan læra. „Það væri yndislegt að fara í frí í snjóinn og drekka heitt súkkulaði með strákunum mínum.“ Spears viðurkennir einnig að hana langi stundum til að fara í dulargervi og fara út að borða óáreitt.

Dikta fagnaði á Nasa

Aðdáendur hljómsveitarinnar Diktu fylltu Nasa á fimmtudagskvöldið þegar útgáfutónleikar sveitarinnar fóru fram. Dikta gaf á dögunum út fjórðu plötu sína, Trust Me, og flutti nýju lögin við mikinn fögnuð viðstaddra.

Rocky kjörin best

Rocky hefur verið kjörin besta íþróttamynd allra tíma í skoðanakönnun á vegum síðunnar Lovefilm. Í myndinni, sem er frá árinu 1976, leikur Sylvester Stallone hnefaleikakappann Rocky Balboa. Rocky er ein af fimm boxmyndum sem komust á topp tíu í könnuninni. Í öðru sæti lenti bobbsleðamyndin Cool Runnings, í því þriðja varð Million Dollar Baby og saman í fjórða sæti voru Raging Bull og The Wrestler. "Hvort sem um er að ræða ruðningshetjur, bobbsleðagaura eða Balboa þá elskum við að horfa á íþróttahetjur komast yfir endalínuna á dramatískan hátt," sagði ritstjóri Lovefilm.

Ánægðir gestir á Freddie Mercury-tónleikum

Tvennir tónleikar til heiðurs Freddie Mercury, hinum sáluga söngvara Queen, voru haldnir í Hörpu á miðvikudagskvöld. Stemningin í salnum var góð enda sá hópur góðra söngvara og tónlistarmanna um að lög Mercury kæmust vel til skila.

Prófaði öll eiturlyfin

Leikkonan Angelina Jolie segist vera heppin að vera á lífi miðað við óheilbrigt lífernið á sínum yngri árum. "Ég tók öll eiturlyf sem til voru; kókaín, e-pillu, heróín og hreinlega allt," sagði hin 36 ára Jolie í viðtali við 60 Minutes. "Ég fór í gegnum mikið myrkur og ég komst í gegnum það. Ég dó ekki ung, þannig að ég er mjög heppin. Margir aðrir listamenn og manneskjur hafa ekki lifað slíkt af." Hún viðurkennir að vera ekki laus við allt myrkrið en aðeins kærastinn Brad Pitt fær að kynnast því. "Þessi hluti af mér er enn til staðar. Hann er bara á sínum stað og er bara fyrir Brad og okkar ævintýri."

Biel stjórnar sambandinu

Þegar Justin Timberlake og Jessica Biel tóku aftur saman eftir fimm mánaða hlé á sambandinu töldu flestir vina þeirra að loksins væri komið að því að þau myndu ganga í það heilaga. Timberlake er hins vegar tregur til, því hann heldur að hjónaband myndi hafa skaðleg áhrif á feril hans, sem byggist mikið á vinsældum hans hjá kvenþjóðinni.

Óánægð með kærastann

Jennifer Lopez hefur ekki verið heppin í ástarmálunum undanfarið. Eftir að hafa skilið við eiginmann sinn til sjö ára, Marc Anthony, í sumar hóf hún ástarsamband með 24 ára dansaranum Casper Smart. Nú hefur komið í ljós að sá á mögulega fangelsisvist yfir höfði sér fyrir ýmis umferðarbrot. Lopez er að sögn heimildamanna ekki ánægð með kærastann og hefur ekki gert upp við sig hvort hún muni mæta í dómssal til að styðja hann þegar málið verður tekið fyrir.

Skúrkur afhjúpaður í Týndu kynslóðinni

Í Týndu kynslóðinni í kvöld verður frumsýndur nýr dagskrárliður sem kallast Sönn íslensk swagamál. Þar verður hulunni svipt af skúrkinum Steinari Bárðarsyni sem Týnda kynslóðin vill meina að hafi farið illa með marga íslenska tónlistarmenn og sé núverandi umboðsmaður stúlknasveitarinnar Charlies.

Stjörnurnar horfa til Íslands

Bandarískar kvikmyndastjörnur og leikstjórar hafa verið tíðir gestir á Íslandi á þessu ári. Fréttablaðið tók saman lista yfir fræga fólkið sem hefur heiðrað Íslendinga með nærveru sinni árið 2011.

Gibb á batavegi

Söngvarinn Robin Gibb hefur fullvissað aðdáendur sína um að hann sé ekki á grafarbakkanum eins og breskir fjölmiðlar hafa gefið í skyn. Hann sé þvert á móti á góðum batavegi þrátt fyrir að hafa verið lagður inn á sjúkrahús í annað sinn á skömmum tíma í síðustu viku. Gibb ætlaði að koma fram á jólatónleikum Björgvins Halldórssonar en varð að aflýsa komu sinni sökum veikinda.

Star Trek 3D kemur 2013

Framhaldsmyndin Star Trek 3D er væntanleg í kvikmyndahús 17. maí 2013. Hinir fjölmörgu Trekkarar, dyggir aðdáendur Star Trek, geta því byrjað að telja niður dagana í rólegheitum. Tökur hefjast í janúar á næsta ári og sem aftur eru þau Zoe Saldana, Chris Pine og Zachary Quinto í aðalhlutverkum. Orðrómur er einnig uppi um að Benecio Del Toro leiki illmennið í myndinni. Star Trek 3D átti upphaflega að koma út næsta sumar en var frestað af kvikmyndaverinu Paramount. Í staðinn var farið í framleiðslu á G.I. Joe 2. Retaliation.

Ný barnabók Hendrikku Waage

Meðfylgjandi myndir voru teknar í gær þegar Hendrikka Waage skartgripahönnuður fagnaði útkomu barnabókar, Rikka og töfrahringurinn í Japan, hjá bókaútgáfunni Sölku með vinum og fjölskyldu....

Í makaleit á netinu

Leikkonan, Playboy-fyrirsætan og dagskrágerðarkonan Jenny McCarthy hefur gefist upp á að finna maka i Los Angeles og leitað á náðir internetsins. McCarthy hætti með leikaranum Jim Carrey fyrir nokkru og hefur nú sett auglýsingu á einkamálasíðuna Match.com undir dulnefni. McCarthy skrifaði í auglýsingunni að hún væri komin með leið á karlmönnunum í Los Angeles. „Mennirnir hérna líta allir út eins og konur. Ég er að leita að einhverjum sem er ekki héðan.“ Það er vefsíðan Perezhilton.com sem uppljóstrar um makaleit leikkonunnar.

Draumur að rætast að fá að hitta poppkónginn

„Ég held alveg sérstaklega upp á Pál Óskar. Ég hef haft áhuga á tónlistinni hans síðan 1987 og Eurovision síðan hann flutti Minn hinsti dans. Í raun og veru er það hann sem vakti hjá mér áhuga á íslenskri tónlist og þá sérstaklega Eurovision.“ Þetta segir Craig Murray, einlægur ástralskur Íslandsvinur og tónleikagestur Frostrósa, sem langar alveg sérstaklega til að hitta Pál Óskar Hjálmtýsson þegar hann og sambýlingur hans, Daryl Brown, koma hingað til Íslands skömmu fyrir jól.

Það er ekkert að þessum kjól

Breska leikkonan Sienna Miller stillti sér upp á rauða dreglinum í svörtum Emilio Pucci kjól sem fór henni þetta líka svona vel...

Frægar fæða fátæka

Sjónvarpsstjarnan Kim Kardashian og leikkonurnar Zoe Saldana og Jennifer Love Hewitt, stilltu sér upp á milli þess sem þær gerðu góðverk í gær...

Brjálaðar í Bieber

Í meðfylgjandi myndskeiði og myndum má sjá Justin Bieber, 17 ára, og óteljandi aðdáendur sem biðu hvorki meira né minna en í heilan sólahring til að fylgjast með honum syngja í sjónvarpsþættinum The Today Show í New York...

Gaga jól

Söngkonan Lady Gaga, 25 ára, er greinilega komin í jólaskap eins og heyra má í meðfylgjandi myndskeiði...

Hendrix þótti bestur

Jimi Hendrix hefur verið kjörinn besti gítarleikari sögunnar af tímaritinu Rolling Stone. Þessi niðurstaða kemur líklega fáum á óvart enda hefur Hendrix lengi verið talinn einn sá allra fremsti. Í öðru sæti lenti Eric Clapton og þar á eftir kom Jimmy Page úr Led Zeppelin.

Lollapalooza í Brasilíu

Bandarísku rokkararnir í Foo Fighters ætla að spila á fyrstu brasilísku útgáfunni af tónlistarhátíðinni Lollapalooza. Hátíðin var haldin í Síle í fyrra og verður haldin aftur þar í ár. Brasilíska hátíðin verður haldin í Sao Paulo 7. og 8. apríl á næsta ári, skömmu eftir að stuðinu í Síle lýkur. Á meðal annarra sem stíga á svið í Sao Paulo verða Jane"s Addiction, MGMT og TV on the Radio.

Synirnir aðstoða við hönnunina

Söngkona Gwen Stefani úr hljómsveitinni No Doubt viðurkennir að hún lætur syni sína hjálpa sér við hönnun barnafatalínu sinnar. Þeir Kingston, sem er fimm ára, og Zuma, tveggja ára, aðstoðuðu móður sína við að hanna fatalínuna Harajuku Mini fyrir Target-búðina í Bandaríkjunum.

Skelltu sér á tónleika

Leikararnir Kristen Stewart og Robert Pattinson sáust saman á tónleikum með Lauru Marling í London um helgina. Þau höfðu hægt um sig og stóðu aftast með hettu á höfði. Eftir tónleikana voru þau ekki lengi að láta sig hverfa en starfsfólk staðarins þekktu þau. Stewart og Pattinson hafa ávallt farið leynt með samband sitt en þau leika par í Twilight myndunum og eiga nú stund milli stríða á meðan næst síðasta vampírumyndin, The Twilight Saga Breaking Dawn part 1, er sýnd á hvíta tjaldinu.

Sjá næstu 50 fréttir