Nýtísku sushi og vatnsmelónufranskar 26. nóvember 2011 15:00 Gunnsteinn Helgi stendur hér á nýja veitingastaðnum Sushisamba ásamt kokkunum Eyþór Mar, Oliveira og Ara Alexander. „
Við ætlum að bjóða upp á nýtískulegt sushi sem er að slá í gegn út um allan heim ásamt suðrænum steikum,“ segir Gunnsteinn Helgi einn af eigendum nýs veitingarstaðar sem nefnist Sushisamba. Staðurinn, sem opnar á þriðjudaginn, sérhæfir sig í matargerð frá Japan og Suður-Ameríku. Eigendur staðarins hafa fengið til liðs við sig japanska sushimeistarann Schinichiro Hara, en hann hefur starfað við sushigerð út um allan heim og nú síðast í Mónakó. Einnig ætlar sushikokkurinn Ari Alexander og Oliveira að standa vaktina í eldhúsinu en sá síðarnefndi hefur til dæmis starfaði á veitingastaðnum Sticks og Sushi í Kaupmannhöfn. Það eru því engir aukvisar sem ætla að elda sushi ofaní landann. „Við höfum verið á fullu síðustu mánuði að koma staðnum heim og saman en það er mjög mikilvægt fyrir okkur að skapa réttu stemminguna. Við höfum við verið í sambandi við fólk í Brasilíu, Perú og Japan til að leita að réttu hlutunum inn á staðinn,“ segir Gunnsteinn Helgi en meðal innanstokksmuna á staðnum eru 50 japönsk fuglabúr og handgerðir trémuni frá þorpinu Abaetetuba í Brasilíu. Blöndun matargerðar frá Suður-Ameríku og Japan er löngu þekkt í matreiðsluheiminum og hófst strax í byrjun síðustu aldar þegar Japanir fluttust búferlum til Suður-Ameríku. Meðal nýjunga á matseðlinum eru smáréttir á borð við hrefnu tataki, taquitos chevice og vatnsmelónufranskar. Staðurinn opnar sem fyrr segir á þriðjudag og er staðsettur á Þingholtstræti. -áp
Mest lesið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf „Það má herma“ Tíska og hönnun Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Lífið Fleiri fréttir Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Sjá meira