Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Maria Shriver sækir lögformlega um skilnað Maria Shriver eiginkona Arnolds Schvarzenegger hefur sótt lögformlega um skilnað eftir að hafa verið gift stjörnunni í 25 ár. Sex vikur eru nú liðnar frá því að upp komst um framhjáhald vöðvatröllsins en hann eignaðist son með húshjálpinni á heimilinu fyrir mörgum árum síðan. Hjónin tilkynntu fyrst um að þau væru skilin að borði og sæng og skömmu síðar greindi Schwarzenegger sjálfur frá lausaleikskróganum. 6.7.2011 12:00
Halda í víking til Noregs "Félagi minn sagði einu sinni við mig að þar sem peningarnir eru þar gerast hlutirnir. Fjörið er búið hér á Íslandi og í Danmörku. Nú tekur Noregur við,“ segir Jói Kjartans ljósmyndari og grafískur hönnuður en hann hyggst leggja land undir fót í haust og flytja til Noregs ásamt kærustu sinni Hildi Hermannsdóttur en hún er þegar komin út. 6.7.2011 09:00
Logi Geirs hættur í Silver „Ég er hættur, seldi minn hlut í desember,“ segir Logi Geirsson, leikmaður FH í handbolta. Hann er hættur afskiptum af hárgels-fyrirtækinu Silver sem hann stofnaði ásamt Björgvin Páli Gústavssyni, markverði íslenska landsliðsins. 6.7.2011 08:00
Skin og skúrir á Hróarskeldu Hróarskelduhátíðin fór fram um helgina, en þessi danska tónlistarhátíð er meðal stærstu hátíða í heiminum í dag og telur um 80.000 gesti. Tískan er jafn fjölbreytt og mannlífið en ef marka má myndir af útpældum hátíðargestum má sjá að gúmmístígvél og gallastuttbuxur voru ríkjandi tískubóla meðal gesta. Röndóttir bolir, blómakjólar og klútar í hári voru einnig áberandi. 6.7.2011 07:30
Ashley nær í Cheryl aftur Hið ótrúlega hefur gerst; Ashley og Cheryl Cole eru byrjuð aftur saman. Breskir fjölmiðlar vita varla í hvorn fótinn þeir eiga að stíga því endurnýjaðar örvar Amors koma eins og þruma úr heiðskíru lofti. 6.7.2011 07:00
Madonna í hljóðver á ný Poppdrottningin Madonna er byrjuð að taka upp nýja plötu. Þrjú ár eru liðin frá útgáfu síðustu plötu hennar, sem sló í gegn um allan heim. 6.7.2011 04:00
Bíladellan er ákveðinn genagalli Áhugi á kraftmiklum farartækjum blundar í fjölskyldunni og er líklega ákveðinn genagalli,“ segir Gunnar Pálmi Pétursson, bifvélavirki og fyrrum torfærukappi hlæjandi. Hann er nýbúinn að kaupa sér Mercedes Benz AMG sportbíl, þann eina hérlendis með sex strokka 360 hestafla vél, og sýndi flotta takta í spyrnukeppni Bíladaga á Akureyri nýlega. 5.7.2011 23:00
Steed Lord leikur og leikstýrir auglýsingu Hljómsveitin Steed Lord leikstýrir og leikur í nýrri auglýsingu fyrir sænska tískumerkið WeSC. Auk þess heyrist lag sveitarinnar, Don‘t Hurt Love, í auglýsingunni. Auglýsingin er fyrir sólgleraugu sem WeSC hannar í samstarfi við ítalska fyrirtækið Super. Svala Björgvinsdóttir, söngkona sveitarinnar, segir tökurnar hafa gengið vel og að fyrirtækin tvö séu himinlifandi yfir afrakstrinum. 5.7.2011 17:00
Börnin njóta myndanna Bergrún Íris Sævarsdóttir málaði herbergi fyrir son sinn þegar hún var ólétt. Málunin hefur undið upp á sig og hefur hún síðan gert barnaherbergi víðar. Bergrún segir að hvert herbergi eigi að vera einstakt. 5.7.2011 13:00
Frikki Weiss á flótta "Það kom smá í kjallarann og við vorum alveg fimm tíma að þrífa það. En sem betur fer var þetta bara hreint vatn og því fylgdu engar rottur,“ segir Friðrik Weisshappel, veitingamaður á The Laundromat Café í Kaupmannahöfn. Verslanir í nágrenni við veitingastaði Friðriks voru ekki alveg jafn heppnar og veitingamaðurinn aðstoðaði verslunareigendur eftir fremsta megni. 5.7.2011 07:15
Fagnaði þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna í þyrluferð Bandaríski rokksöngvarinn Jon Bon Jovi er staddur á landinu, eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær. Hann kom til landsins ásamt fjölskyldu sinni um helgina. 5.7.2011 07:00
Og þá var kátt í höllinni Einn frægasti kvennabósi heims, Albert prins, gekk að eiga sunddrottninguna Charlene Wittstock á laugardaginn við hátíðlega athöfn. Varla varð þverfótað fyrir fyrirmönnum í smáríkinu Mónakó þegar hjónavígslan fór fram en meðal gesta voru íslensku forsetahjónin Ólafur Ragnar og Dorrit Moussaieff. 5.7.2011 06:00
Með vatnspoka á bakinu hjá Björk „Það er búið að ganga mjög vel og ótrúleg tilfinning að taka þátt í þessu,“ segir Jóna G. Kolbrúnardóttir um tónleika Bjarkar Guðmundsdóttur í Manchester en Jóna er hluti af kórnum Graduale Nobili sem syngur bakraddir hjá Björk. Núna er tveimur tónleikum lokið af sex en kórinn verður í Manchester í tæpan mánuð ásamt stórstjörnunni og fylgdarliði hennar. 5.7.2011 04:45
Guðjohnsen-feðgar veðja á internetið Feðgarnir Arnór Guðjohnsen og Eiður Smári Guðjohnsen hafa stofnað hlutafélag undir nafninu aeae ehf. ásamt Emil Tómasi Vigfússyni og Andrew Thomas Mitchell. Arnór og Eiður Smári hafa verið litlir hluthafar í samskiptasíðunni skoost.com sem þeir Emil og Andrew hafa rekið síðan 2009 en ætla nú færa út kvíarnar samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. 5.7.2011 04:15
Forstjóri CCP skammaður Forsvarsmenn tölvuleikjafyrirtækisins CCP og hinir svokölluðu CSM-leiðtogar EVE Online-tölvuleiksins sendu í gær frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem atburðir síðustu daga eru harmaðir. Í sérstakri yfirlýsingu CSM-leiðtoganna er tölvupóstur frá framkvæmdastjóra CCP, Hilmari Veigari Péturssyni, fordæmdur – hann hafi verið úr öllum tengslum við EVE Online-samfélagið. "Við skiljum vel þá leikmenn sem fannst pósturinn óviðeigandi og móðgandi.“ 5.7.2011 08:00
Vorum sneggri Leikurinn fór 45-26 fyrir okkur. Úrslitin komu okkur nokkuð á óvart enda höfðum við engar væntingar,“ segir Kristinn Þór Sigurjónsson, varaformaður Rugby-félags Reykjavíkur, sem tók á sunnudaginn á móti Thunderbird Old Boys rugby-liðinu frá Bandaríkjunum. Leikurinn fór fram á Vodafonevellinum og var fyrsti opinberi rugby-leikurinn hér á landi. "Við unnum á því að vera yngri og sneggri. Þeir voru hins vegar tæknilega betri og áttu betri högg og tæklingar enda mun reynslumeiri,“ segir Kristinn. 5.7.2011 05:00
Leikstýrir ekki Thor 2 Bretinn Kenneth Branagh verður ekki leikstjóri framhaldsmyndarinnar Thor 2 sem verður frumsýnd í júlí árið 2013. Branagh hafði lýst yfir áhuga sínum á að leikstýra myndinni, eins og þeirri fyrri, en verður þess í staðinn einn af framleiðendunum. Ekki er ljóst hver tekur við keflinu af Branagh. Chris Hemsworth mun endurtaka hlutverk sitt sem Þór, enda þótti hann standa sig einstaklega vel í fyrri myndinni. Hann sést næst á hvíta tjaldinu í þriðju Iron Man-myndinni og The Avengers. 4.7.2011 22:00
Bloodgroup tók úr sambandi og sló í gegn Hljómsveitin Bloodgroup kom fram á vel heppnuðum "unplugged" tónleikum á fimmtudaginn. Tónleikarnir voru hluti af Gogoyoko Wireless-tónleikaröðinni sem kemur út á DVD fyrir jólin. 4.7.2011 20:00
Jennifer langar að flytja Jennifer Lopez vill flytja til New York en hún og eiginmaður hennar, Marc Anthony, búa í Los Angeles um þessar mundir. Lopez þráir að ala börnin sín upp í eðlilegu umhverfi þar sem glys og prjál kvikmyndaborgarinnar er víðsfjarri. 4.7.2011 20:00
Leiðar á krepputali "Ástæðan fyrir því að við byrjuðum á þessu var að við vorum svo leiðar á þessu krepputali," segir Karlotta Sigurðardóttir í meðfylgjandi myndskeiði spurð út í félagsskap sem hún tilheyrir, sem kallast Maddömurnar frá Sauðárkróki, en þær bökuðu gómsætar lummur fyrir börnin á Landsmóti hestamanna í ár. Sjá myndir frá Landsmóti hér. 4.7.2011 18:19
Með fjörutíu feta gám á Landsmót „Við bara fórum norður með fjörutíu feta gám þó það væri þriggja stiga hiti. Okkur leist ekki á blikuna en létum vaða," sögðu Bergþóra Þorgeirsdóttir framkvæmdastjóri verslunarinnar Lífland og Rúnar Þór Guðbrandsson. Eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði tóku þau sig til og fluttu heila verslun norður á Landsmót hestamanna sem fram fór á Vindheimamelum í Skagafirði. Lífland.is Sjá myndir frá Landsmóti hér. 4.7.2011 17:45
Fjölbreytt mannlíf á Landsmóti hestamanna Í meðfylgjandi myndasafni má greinilega sjá þá góðu stemningu sem ríkti á meðal fjölda gesta sem nutu þess að fylgjast með flestum af fallegustu gæðingum landsins á Landsmóti hestamanna sem lauk í gær. 4.7.2011 14:00
Owen Wilson drekkur burt sorgir sínar Vinir leikarans Owen Wilson óttast um heilsu hans eftir sambandsslit hans við barnsmóður sína. Wilson ku vera mjög niðurdreginn og hefur leitað sér huggunar í faðmi Bakkusar. 4.7.2011 15:15
John Grant tilnefndur Tónlistarmaðurinn John Grant, sem spilar á Airwaves-hátíðinni í haust, hefur verið tilnefndur til þrennra verðlauna hjá breska tímaritinu Mojo, þar á meðal fyrir bestu plötuna. Annar tónlistarmaður, Rumer, fékk einnig þrjár tilnefningar. Rokksveitin Arctic Monkeys frá Sheffield fékk tvær, rétt eins og hljómsveitin Arcade Fire sem gaf út plötuna Suburbs. The Vaccines, með Árna Hjörvar á bassanum, fékk eina tilnefningu, eða fyrir besta nýja flytjandann. Verðlaunahátíðin verður haldin í London 21. júlí. 4.7.2011 15:00
Beckham spilar Bítlalög fyrir ófædda dóttur sína Fótboltahetjan David Beckham hefur hlaðið niður vögguvísuútgáfum af Bítlalögunum fyrir ófædda dóttur sína sem kemur í heiminn í næsta mánuði. "David hefur verið að hlaða niður vögguvísum fyrir barnið okkar. Ég elska plötuna The Beatles,“ skrifaði Victoria Beckham á Twitter. Þessi tíðindi hafa ýtt undir orðróm um að dóttirin verði skírð Jude, eftir Bítlalaginu Hey Jude. Það var tólf ára sonur þeirra, Brooklyn, sem stakk upp á nafninu. Hinn átta ára Romeo stakk upp á nafninu Justine Bieber en telja má ólíklegt að það verði fyrir valinu. "Það koma þrjú nöfn til greina og þau eru algjört leyndarmál,“ sagði heimildarmaður. 4.7.2011 14:00
Jógvan krækti í vænan lax í Langá „Þetta tók vel á, ég var orðinn ansi þreyttur í upphandleggsvöðvunum,“ segir Jógvan Hansen söngvari, sem veiddi fimmtán punda lax í Langá á dögunum. 4.7.2011 13:00
Skokkar berfættur um bæinn "Ég hélt alltaf að hlaup væru það leiðinlegasta sem hægt væri að gera — af öllu,“ segir Eyvindur Karlsson, grínisti og nýútskrifaður leikstjóri úr East 15-skólanum í Lundúnum. 4.7.2011 12:00
Gleðja fólk með dansi Dansdúettinn Brak mun gleðja gesti og gangandi í miðbæ Reykjavíkur með dansi í sumar. Dúettinn skipa þær Snæfríður Ingvarsdóttir og Hildur Margrét Jóhannsdóttir. 4.7.2011 11:00
Einar Snorri til liðs við Firsteight „Ég ætla að einbeita mér svolítið að þessu núna,“ segir ljósmyndarinn og auglýsingaleikstjórinn Einar Snorri. 4.7.2011 09:30
Áhyggjufull Demi Moore Demi Moore óttast að eiginmaður hennar, Ashton Kutcher, muni missa áhugann á hjónabandinu nú þegar hann er farinn að vinna við sjónvarpsþáttinn Two and a Half Men. 4.7.2011 09:00
Fær sér húðflúr í fyrsta sinn Leikkonan Jennifer Aniston sást á dögunum spássera um götur New York með húðflúr á hægri fæti. Það var nafnið Norman sem var skrifað með skrautskrift á ökklann en það er nafnið á hundi Aniston sem lést í vor. 3.7.2011 11:00
Viskíauglýsing tekin upp á Íslandi Tökum fyrir erlenda aðila hefur fjölgað hér á landi undanfarið þrátt fyrir tvö eldgos á rúmu ári. Þetta segir Andrea Brabin, eigandi Eskimo umboðsskrifstofunnar, sem leitar nú að þrjú hundruð manns til að leika í erlendri auglýsingu. 2.7.2011 17:00
Tónleikahaldarar snúa bökum saman og stofna BÍT Bandalag íslenskra tónleikahaldara, BÍT, hefur verið stofnað hér á landi. Markmiðið með samtökunum er að styrkja bakland tónleikahaldara og verja hagsmuni þeirra. 2.7.2011 14:15
Frumleg og skringileg Björk Guðmundsdóttir fær mjög góða dóma í The Guardian, einu virtasta dagblaði Englands, fyrir fyrstu Biohpilia-tónleika sína á menningarhátíðinni í Manchester. 2.7.2011 12:00
Sigrún dagskrárstjóri sofnaði yfir Bíódögum "Ég gerði smá tilraun á sjálfri mér á fimmtudagskvöldið þegar við sýndum Bíódaga. Og ég var farin að sofa um miðja mynd,“ segir Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri RÚV. 2.7.2011 10:30
Fluttur á sjúkrahús Írinn Jonathan Rhys-Meyers, sem lék Henry VIII í sjónvarpsþáttunum The Tudors, var fluttur á sjúkrahús fyrir skömmu eftir að hafa tekið of stóran skammt af pillum. Talið er að um sjálfsvígstilraun hafi verið að ræða. Atvikið átti sér stað á heimili hans og fannst hann liggjandi á gólfinu í lyfjamóki. Að sögn götublaðsins The Sun var lögreglan kölluð á staðinn eftir að hann neitaði að fá aðhlynningu sjúkraliða. Meyers, sem lék á móti Anitu Briem í The Tudors, hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsinu. Stutt er síðan hann fór í sína fimmtu meðferð en hún virðist ekki hafa skilað sínu. 2.7.2011 08:45
Gallagher þolir ekki rödd söngvara Muse Spjátrungurinn Liam Gallagher segir að hann sé hræddur við hljómsveitina Muse og að tónlist hennar sé "fjandi hrollvekjandi skítur“. 1.7.2011 22:00
Frábær frammistaða Hollywood-leikarinn Kevin Spacey hefur fengið frábæra dóma fyrir túlkuna sína á Ríkharði III í Old Vic-leikhúsinu í London. Óskarsverðlaunahafinn leikur þennan frægasta þorpara Shakespeares með fótinn í stálspelku, haltrandi með staf. 1.7.2011 20:00
Einstæð og ættleiðir Leikkonan Denise Richards ættleiddi á dögunum nýfædda stúlku sem hefur fengið nafnið Joni. Richards á fyrir tvær dætur með leikaranum og vandræðagemlingnum Charlie Sheen en þau skildu árið 2006. Miklar forræðisdeilur hafa staðið á milli þeirra en deilurnar leystust í fyrra og deila þau nú forræði. 1.7.2011 15:00
Með augum útgefandans Jóhann Páll Valdimarsson útgefandi hefur fært sig upp á skaftið sem ljósmyndari. Á dögunum hélt hann sýningu á Íslendingaslóðum í Kanada og á laugardag opnar hann sýningu með landslagsmyndum úr Skorradal. 1.7.2011 14:00
Lávarðurinn Eyfi tekur Valdimar undir sinn væng „Þetta leggst mjög vel í mig. Það verður gaman að prófa eitthvað nýtt,“ segir popparinn Eyjólfur Kristjánsson. Hann verður heiðursgestur tónlistarhátíðarinnar Innipúkans um verslunarmannahelgina og stígur þar á svið með hljómsveitinni Valdimar. 1.7.2011 12:00
Opnar veitingastað gengin 29 vikur "Ég er komin 29 vikur og er með strák. Ég leit í spegil í gær þegar ég var að gera mig tilbúna fyrir partýið og sá þá eiginlega í fyrsta skipti ólétta konu," svarar Hrefna Sætran sem opnaði nýjan veitingastað, Grillmarkaðinn, í Lækjargötu í gær. 1.7.2011 11:15
Fredrik elskar íslenska hönnun Fredrik Kristján Jónsson klæðist íslenskri hönnun í bresku raunveruleikaþáttunum Made in Chelsea. Hann er væntanlegur til Íslands síðar í mánuðinum. 1.7.2011 11:00
Potts aftur með Bó Paul Potts, hinn heimsþekkti tenór úr Britain"s Got Talent, verður aftur gestur á jólatónleikum Björgvins Halldórssonar í ár. Þetta staðfestir Björgvin í samtali við Fréttablaðið. 1.7.2011 10:00
Stjörnurnar mæta í konunglega brúðkaupið í Mónakó Áhugamenn um kóngafólk og stjörnur úr Hollywood eiga annasama helgi framundan þegar Albert fursti af Mónakó gengur að eiga Charlene Wittstock. Á gestalista brúðkaups Alberts fursta af Mónakó og Charlene Wittstock er að finna aragrúa af frægum nöfnum. Albert er þekktur fyrir að vera vel tengdur inn í Hollywood-heiminn og bíða því margir í eftirvæntingu eftir að sjá hvaða fræga fólk á eftir að heiðra brúðhjónin með nærveru sinni. 1.7.2011 10:00
Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Bíó og sjónvarp