Viskíauglýsing tekin upp á Íslandi 2. júlí 2011 17:00 Andrea Brabin leitar að þrjú hundruð aukaleikurum í auglýsingu fyrir Johnnie Walker viskíið.
Tökum fyrir erlenda aðila hefur fjölgað hér á landi undanfarið þrátt fyrir tvö eldgos á rúmu ári. Þetta segir Andrea Brabin, eigandi Eskimo umboðsskrifstofunnar, sem leitar nú að þrjú hundruð manns til að leika í erlendri auglýsingu. „Það er gaman að sjá hversu mikið erlendum tökum hérlendis hefur fjölgað. Ég held að gosið í Eyjafjallajökli hafi í rauninni verið hin besta auglýsing fyrir landið. Ég viðurkenni þó að maður fékk í magann þegar gosið í Vatnajökli byrjaði en sem betur fer stóð það stutt.“ Verið er að leita að þrjú hundruð manns til að fara með hlutverk í auglýsingu fyrir Johnnie Walker. Viskíið er eitt það vinsælasta í heimi og árlega seljast yfir hundrað og þrjátíu milljón flöskur af drykknum. Auglýsingin sem tekin verður upp hér er ætluð til heimssýningar og telst því ágæt kynning á landinu. Þegar hefur verið ráðið í aðalhlutverkið og sex önnur stærri hlutverk en nú er verið að leita að fólki til að taka þátt í nokkrum fjöldasenum. Umsækjendur þurfa þó að hafa náð tuttugu og fimm ára aldri, þar sem um áfengisauglýsingu er að ræða. Leikstjórarnir eru engir nýgræðingar í auglýsingagerð og hafa meðal annars leikstýrt auglýsingu fyrir bílaframleiðandann Audi. „Við erum að leita að fólki á öllum aldri, stærðum og gerðum til að taka þátt í stórri útisenu. Í leiðinni nýtum við tækifærið til að finna nýtt fólk á skrá hjá okkur,“ segir Andrea Brabin. Aðspurð segist hún ekki vita hver heildarkostnaðurinn við gerð auglýsingarinnar verði en telur hana munu kosta töluvert vegna mannfjöldans sem að henni kemur. Áhugasamir geta komið í prufu á skrifstofu Eskimo á mánudaginn á milli 11 og 18. - sm
Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Fleiri fréttir Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta Sjá meira