Vorum sneggri 5. júlí 2011 05:00 Fréttablaðið/Vilhelm
Leikurinn fór 45-26 fyrir okkur. Úrslitin komu okkur nokkuð á óvart enda höfðum við engar væntingar," segir Kristinn Þór Sigurjónsson, varaformaður Rugby-félags Reykjavíkur, sem tók á sunnudaginn á móti Thunderbird Old Boys rugby-liðinu frá Bandaríkjunum. Leikurinn fór fram á Vodafonevellinum og var fyrsti opinberi rugby-leikurinn hér á landi. „Við unnum á því að vera yngri og sneggri. Þeir voru hins vegar tæknilega betri og áttu betri högg og tæklingar enda mun reynslumeiri," segir Kristinn. Rugby-íþróttin er ekki gömul í hettunni hér á landi. „Við byrjuðum í febrúar í fyrra að hittast einu sinni í viku svona í gamni. Síðan hljóp kraftur í starfið þegar við skráðum okkur á Scandinavian Open-mótið sem fram fór í Kaupmannahöfn," segir Kristinn en rugby-íþróttin var viðurkennd af Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, ÍSÍ, í febrúar 2011. Mikill hugur er í Kristni og félögum. „Það bendir allt til þess að keppt verði í rugby á smáþjóðaleikunum í Lúxemborg árið 2013 og við ætlum þangað. Svo stefnum við á sigur á smáþjóðaleikunum á Íslandi 2015," segir hann kokhraustur. Í Rugby-félagi Reykjavíkur eru nú skráðir 40 meðlimir í tveimur liðum. „Við æfum hins vegar saman en framtíðarstefnan er að skipta okkur upp og koma upp fleiri liðum," segir Kristinn og bætir við að annar draumur sé að koma upp kvennaliði en nú æfa fimm konur með Rugby-félaginu. En hvað er svona heillandi við þessa íþrótt? „Það er samstaðan, krafturinn og félagsskapurinn," svarar Kristinn og segir marga finna sig í rugby-íþróttinni sem ekki hafi líkað nógu vel í öðrum íþróttagreinum. Hann segir marga í félaginu koma úr öðrum íþróttagreinum á borð við handbolta, fótbolta og jafnvel júdó. „Við Íslendingar ættum vel að geta náð árangri í þessari íþrótt enda lifnar nokkurs konar víkingaandi í leikmönnum þegar þeir spila," segir Kristinn glaðlega. Áhugasamir geta leitað frekari upplýsinga á www.rugby.is. solveig@frettabladid.is
Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Fleiri fréttir Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta Sjá meira