Fleiri fréttir

Lottómilljónamæringar þökkuðu fyrir sig

Heppni Lottóspilarinn sem vann sjöfalda pottinn í lottóinu á laugardaginn keypti miðann sinn í Leifasjoppu í Iðufelli. „Það er mjög ánægjulegt að hafa selt vinningsmiðann sjálfan en það var mikil sala hérna á laugardaginn á lottómiðum," segir Þorleifur Eggertsson eða Leifi, eigandi sjoppunnar.

Skrapp út til Sviss og hlaut verðlaun

Íslenska kvikmyndinni Skrapp út fékk verðlaun á 61. Locarno hátíðinni í Sviss í gær. Þetta er ein elsta og virtasta kvikmyndahátíð Evrópu og er sett á sama stall og Cannes, Berlínar- og Feneyjahátíðin.

Suri Cruise þolir ekki myndatökur - myndir

Sem fyrr elta ljósmyndarar fjölskyldu Tom Cruise hvert fótspor en það sem vekur athygli er að Suri Cruise, aðeins tveggja ára, heldur fyrir andlit sitt þegar ljósmyndararnir byrja að taka myndir af þeim eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Eiginkona Pierce Brosnan í baráttu við aukakílóin

Fjölmiðlar fylgjast grannt með ferðum Keely Shaye Smith, 44 ára, og leikaranum Pierce Brosnan, 55 ára, sem eru stödd á Hawaii. Þeir halda því fram að Keely eigi í stöðugri baráttu við aukakílóin.

Mike Myers í mynd Tarantinos

Mike Myers mun fara með hlutverk í nýrri mynd Quentins Tarantino, sem ber titilinn Inglorious Bastards og fjallar um seinni heimsstyrjöldina. Myers mun leika breska ofurstann Ed Fenech, sem tekur þátt í áætlun um að útrýma leiðtogum Nasista. Brad Pitt mun einnig leika í myndinni og er þetta í fyrsta skipti sem þessir tveir leikarar leiða saman hesta sína.

Helgi Seljan skrifar bók um samskipti sín við Þórhall

„Mér finnst Þórhallur vera full yfirlýsingaglaður,“ segir Helgi Seljan sjónvarpsstjarna úr Kastljósinu. Haft er eftir Þórhalli Gunnarssyni, ritstjóra Kastljóss, að sú bók sem hann hlakki einna mest til að lesa sé ævisaga Helga.

Íslensk börn safna milljónum fyrir UNICEF

Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, segir stuðning íslenskra barna við jafnaldra sína sem búa við sára neyð úti í heimi afar kærkominn. Á síðasta ári söfnuðust á fjórðu milljón króna í Latabæjarhlaupinu, sem er haldið í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Glitnis.

Amy Winehouse missir stjórn á skapinu - myndir

Söngkonan Amy Winehouse, sem er 24 ára, missti stjórn á skapi sínu í gærkvöldi þegar aðdáandi gerði tilraun til að mynda hana með síma. Hún lamdi frá sér og skipaði lífvörðunum að skýla sér þegar ókunnugt fólk reyndi að nálgast hana.

Appelsínuhúð Jerry Hall vekur athygli

Jerry Hall, 52 ára fyrrverandi ofurfyrirsæta og eiginkona Mick Jagger, vakti athygli alheimspressunnar þegar hún sólaði sig á ströndinni á frönsku Ríveríunni af þeim sökum að hún er með appelsínuhúð.

Óvissunni um Sölvu eytt

Ein mesta óvissan sem nagað hefur borgarbúa í ölduróti liðinna daga er hvaða áhrif hvarf Ólafs F. Magnússonar úr stóli borgarstjóra kemur til með að hafa. Verður ráðist í Bitruvirkjun? Ætlar Óskar að lappa upp á Laugaveg 4-6? Og síðast en ekki síst, fá borgarbúar að sjá Sölvu Ford á menningarnótt?

Villi fær Skodann hennar Hönnu

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson núverandi formaður borgarráðs mun láta af því embætti næst komandi fimmtudag. Þá verður boðað til aukafundar í borgarstjórn og formleg meirihlutaskipti fara fram. Hanna Birna Kristjánsdóttir verður borgarstjóri, Óskar Bergsson verður formaður borgarráðs og Vilhjálmur tekur við af Hönnu Birnu sem forseti borgarstjórnar.

Fyrsti kossinn

Samstarf Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og Óskars Bergssonar var innsiglað með kossi í Ráðhúsinu í kvöld.

Magni á móti borgarstjórn

Guðmundur M. Ásgeirsson, betur þekktur sem Magni í Á móti sól, er greinilega umhugað um borgarmálin eins og öðrum, jafnvel þó hann stæri sig oft og títt af því að vera Austfirðingur.

Jónsi gleymdi textanum á miðjum tónleikum - Myndband

Á tónleikum sem hljómsveitin Sigurrós hélt nýlega í Frakklandi lenti söngvarinn Jónsi í kröppum dansi. Í miðju laginu "Inni í mér syngur vitleysingur" gleymdi Jónsi nefnilega textanum. Hann dó hins vegar ekki ráðalaus og brá því á það ráð að syngja hástöfum á Íslensku teexta sem hann samdi greinilega jafn óðum.

Eiginkona Bono og Helena Christensen bestu vinkonur

Danska 39 ára ofurfyrirsætan, Helena Christensen, er ekki feimin við að fækka fötum enda hefur hún setið fyrir á síðum glanstímarita og að ekki sé minnst á franska Playboy tímaritsins.

John Mayer og Jennifer Aniston hætt saman

Leikkonan Jennifer Aniston og popparinn John Mayer eru hætt saman, samkvæmt heimildum People tímaritsins. Haft er eftir vinum Aniston að þau hafi notið sambandsins, sem hófst í apríl, en þau séu hinsvegar á ólíkum stöðum í lífinu núna. Vinir Mayers segja hinsvegar að ekki sé útilokað að þau taki saman aftur. Söngvarinn endi sambönd sjaldnast almennilega, og sé lengi að jafna sig eftir þau.

Isaac Hayes lést úr heilablóðfalli

Banamein sálarkóngsins Isaac Hayes, sem lést á sunnudag, var heilablóðfall, að sögn lögreglu í Memphis. Hayes var ekki krufinn, en læknir hans skráði þetta á dánarvottorð hans. Læknirinn hafði áður meðhöndlað Hayes, sem fékk hjartaáfall fyrir tveimur árum, vegna of hás blóðþrýstings.

Strákarnir okkar spila alltaf vel í kreppu

Sigur íslenska handboltalandsliðsins á heimsmeisturum Þjóðverja á Ólympíuleikunum í Peking í gær, hefur ekki farið framhjá neinum. Liðið virðist í fínu jafnvægi og er til alls líklegt. Óneitanlega fara menn að velta fyrri sér hver ástæðan fyrir þessu góða gengi sé. Er markvarslan að skipta sköpum? Eru hinar þjóðirnar að spila verr en áður? Eða er Guðmundur að spila rétta taktík?

Sjá næstu 50 fréttir