Fleiri fréttir

Villi sendur heim

Bubbi sendi Vilhjálm Örn Hallgrímsson heim í kvöld. Þar með er ljóst að hann mun ekki taka þátt í Bandinu hans Bubba, sem keppnin snýst að sjálfsögðu um.

Lohan eyddi fimm milljónum í brúnkumeðferðir

Eftir nokkrar misvinsælar bíómyndir í röð og dýra vist á meðferðarstofnunum fara sjóðir Lindsay Lohan óðum minnkandi. Slúðurpressan vestanhafs hefur eftir vinum hennar Lohan þurfi sárlega á eins og einni vinsælli bíómynd eða svo að halda til að ná endum saman.

Strompreykir enn þrátt fyrir krabbameinið

Patrick Swayze reykir enn, þó hann sé nýgreindur með krabbamein í brisi. Reykingar þykja almennt ekki heilsubætandi, hvað þá sé maður að berjast við krabbamein. Sé eitthvað hæft í sögusögnum um að hann eigi aðeins nokkrar vikur ólifaðar, er ekki víst að honum þyki það skipta miklu.

D. Ramirez á þriggja ára afmæli Flex Music

Þriggja ára afmæli Flex Music verður haldið hátíðlegt á Nasa við Austurvöll miðvikudaginn 19. mars, en það er dagurinn fyrir Skírdag. Plötusnúðurinn og tónlistarmaðurinn D. Ramirez mun sjá um að fá fólk til þess að dansa.

Dettur Vilhjálmur út í kvöld?

Ellý Ármanns spáir því að Vilhjálmur detti úr í Bandinu hans Bubba í kvöld, en hann slapp naumlega frá vist í „grafhýsi frægðarinnar“ í síðustu viku, þegar Birgir fékk reisupassann. Ellý opnaði í dag vefsíðu sína Spámaður.is á ný eftir langt hlé, og dró af því tilefni spil fyrir keppendurna.

Minnie Driver er ekki feit - heldur ólétt

„Ertu að segja að ég sé feit? Hefurðu ekki tekið eftir maganum á mér?" með þessum orðum viðurkenndi Minnie Driver að hún ætti von á sínu fyrsta barni.

Skandallinn borgar sig

Frægðarsól Elliots Spitzer hnígur hratt til viðar eftir að upp komst um óheppilega náin tengls hans við 22ja ára vændiskonu. Gleðikonan sjálf, Ashley Alexandra Dupre stefnir hinsvegar hraðbyri í átt að frama og frægð.

Vonum að tækniguðirnir verði í húsinu

„Það er nú mesta furða hvað ég er lítið stressaður enda er ég búinn að koma flestu frá mér. Nú get ég aftur orðið gítarleikari og hætt að vera framkvæmdarstjóri eins og ég hef verið undanfarnar vikur,“ segir Guðmundur Jónsson í Sálinni Hans Jóns Míns.

Breti fer á stefnumót með Scarlett

Leikkonan fagra Scarlett Johansson bauð draumastefnumót með sér til styrktar Osfam. Hægt var að bjóða í stefnumótið og var breskur karlmaður sá heppni.

Þýskt eurodance á Broadway

Cascada kemur fram á Broadway í boði Flass 104,5 og mun ekkert vera til sparað til að gera kvöldið eins glæsilegt og mögulegt er. Auka hljóðkerfi og auka ljósakerfi verður á svæðinu. Upphitun verður í höndum Dj Sindra Bé Emm og Mercedez Club, sem munu koma fram á sínu fyrsta alvöru balli þetta kvöld. Síðan mun einn heitasti Dj landsins Frigore úr Plugg´d stíga á stokk þegar Cascada hefur lokið sér af.

Sjónvarpsstöðin Sýn kvödd

Frá og með deginum í dag munu allar sjónvarpsstöðvar 365 miðla verða kenndar við Stöð 2 - að viðbættu frekara auðkenni. Sýn hefur fengið nafnið Stöð 2 Sport.

Gömul áramótaskaup aftur á skjáinn

„Við erum ekkert að rjúka í þetta, það er heilmikið safn sem við þurfum að fara í gegnum," segir Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri Ríkisútvarpsins, um það hvenær landsmenn geta barið augum það gamla efni sem nú má sýna á ný. Stofnunin gerði á dögunum samning við Félag íslenskra leikara og Félag íslenskra hljómlistamanna um að endurflytja megi verk sem RÚV hefur framleitt og mun framleiða án þess að listamennirnir fá greitt sérstaklega fyrir það.

Gettu betur vinsælasta sjónvarpsefni landsins

Í vikulegri könnun Capacent fyrir vikuna 3-9. mars er spurningakeppnin Gettu betur með 55,4% áhorf í áhorfendahópnum 12-80 ára. Það er einnig Gettu betur sem er í öðru sætinu með 52,6%. Rúv á 15 af 20 vinsælustu dagskrárliðunum.

Fyrsta Karen Millen verslunin opnar í New York

Mikið var um dýrðir í opnunarpartýi fyrstu Karen Millen verslunar í New York á þriðjudaginn. Rjómi elítu borgarinnar mætti í veisluna og fylgdist með sýningu á tískusýningu á vor og sumarlínunni frá hönnuðinum vinsæla.

Dj Premier á Gauknum um helgina

Einn virtasti og áhrifamesti hip-hop plötusnúður heims, Dj Premier, ætlar að skemmta landanum á Gauki á stöng næsta laugardag í tilefni af sjö ára afmæli Kronik Enterntainment.

Gleraugun skyggðu á Íraksinnrás

„Ég bara fékk í augað,“ segir Logi Bergmann Eiðsson, sem vakti athygli áhorfenda Stöðvar 2 í hádeginu þegar hann las fréttirnar með forláta gleraugu. Logi hefur verið með linsur síðan hann var sautján ára gamall, og er ekki hrifinn af því að ganga með gleraugu.

Íslenskir nemar fá ókeypis smokka

Hrafnhildur Ósk Sigurðardóttir er þessa dagana að gefa öllum nemendum í 9. og 10. bekk grunnskóla og í framhaldsskólum smokka. Hver og einn nemandi 14 ára eða eldri fær því einn ókeypis smokk.

Lítill engill á leið til Mörtu Lovísu Noregsprinsessu

Marta Lovísa Noregsprinsessa á von á sínu þriðja barni í október. Prinsessan, sem er 36 ára, á fyrir börnin Maud Angelicu og Leuh Isadoru með eiginmanninum Ari Behn. Í tilkynningu frá konungshöllinni segir að móðirin sé í fínu formi og búist sé við áfallalausri meðgöngu.

Frumsýningu frestað vegna vinsælda hrollvekju

Fyrirhugaðri frumsýningu Græna ljóssins á heimildarmyndinni King of Kong, sem átti að fara fram í Regnboganum á morgun, verður frestað. Í sjálfu sér ekki af illu. Hryllingsmyndin traugastrekkjandi El Orfanato hefur gengið betur en bjartsýnustu menn þorðu að vona. Hana átti að færa í minni sal um helgina til að rýma fyrir King of Kong, en það er ekki hægt vegna mikillar aðsóknar. Því er ekki pláss fyrir King of Kong.

Jónsi skemmti 600 konum

Konukvöld Létt Bylgjunnar fór fram í Smáralindinni í kvöld – glæisilegt og flott. Páll Óskar, Bjarni Haukur, MYST og fleiri skemmtu en Jónsi var kynnir og skemmti 600 konum.

Handtekinn fyrir að vera heltekinn af Jodie Foster

Fjörutíu og tveggja ára gamall karlmaður sem hefur verið með leikkonuna Jodie Foster á heilanum undanfarin ár hefur verið handtekinn. Maðurinn sendi handskrifað bréf með sprengjuhótun á Van Nuys flugvöllinn í Kalíforníu og aðra flugvelli á svæðinu.

Owen og Jennifer nýtt par?

Það hitnar í kolunum á milli Jennifer Aniston og Owen Wilson á tökustað nýrrar myndar þeirra, Marley and Me, þar sem þau leika einmitt hjón. Haft eftir samstarfsmönnum þeirra að neistarnir hafi farið að fljúga um leið og þau hittust, og þau láti sér ekki nægja að faðmast og kyssast fyrir framan myndavélarnar.

Páll Óskar bókaði yfir sig

„Ég bókaði yfir mig," segir Páll Óskar Hjálmtýsson, sem getur ekki kvartað undan verkefnaskorti þessa dagana. „Ég rankaði bara við mér þar sem ég var búinn að bóka sex gigg á viku út veturinn."

Einbýlishúsalóð á Arnarnesi til sölu á hálfan milljarð

"Þetta er ekkert grín. Það er þegar einn erlendur aðili sem hefur lýst áhuga á að kaupa lóðina," segir Arnbjörn Arason fasteignasali hjá Remax en hann hefur umsjón með sölu á 3630 fm eignarlóð í dýrasta einbýlishúsahverfi á Íslandi, Arnarnesinu. Ásett verð er ekkert smáræði, hálfur milljarður.

Konukvöldið í kvöld

Konukvöld Létt Bylgjunnar verður haldið í Smáralind í kvöld, miðvikudagskvöldið 12. mars 2008. Á kvöldinu verða verslanir opnar til kl. 23 og „Römblu" stemmning ríkir á göngum hússins. Í fyrra komu 3500 konur á þetta kvöld og von er á enn fleiri konum í kvöld.

Friðrik krónprins týnir giftingarhringnum

Stærsti ótti hvers eiginmanns er orðinn að raunveruleika fyrir Friðrik Danaprins. Hann er búinn að týna giftingarhringnum. Málið er fyrirferðarmikið í dönskum fjölmiðlum, og mætti skilja sem svo að þjóðfélagið sé á öðrum endanum vegna málsins.

Magni í útrás vinnur Bon Jovi

Magni Ásgeirsson er í Kanada ásamt hljómsveit sinni og spilar í Toronto í kvöld á Bier Markt klúbbnum. Þar spilaði hann líka á mánudagskvöldið.

Klæddu Unni Birnu

Nú er kominn nýr leikur á Leikjaland.is. Um er að ræða annan leikinn sem stjórnendur vefsíðunnar búa til. Leikurinn ber nafnið “Klæddu Unni Birnu”. Hann flokkast sem dúkkulísuleikur og gengur út á að klæða Unni Birnu í föt.

Ryan Seacrest að slá sér upp

Idolkynnirinn síkáti Ryan Seacrest mun vera að hitta stúlku þessa dagana. Sú heitir Holly Huddleston og er ein af stjörnum E! sjónvarssöðvarinnar í raunveruleikaþættinum, Sunset Tan.

Sjónvarpsstjarna í kosningasjónvarpi Verzlinga

Í þessarri viku fara fram kosningar í Verzlunarskóla Íslands. Vikan hefur alltaf verið glæsileg í gegnum árin þar sem frambjóðendur gefa veitingar og eru með ýmsar uppákomur.

Hvanndalsbræður fimm ára

Hvanndalsbræður fagna 5 ára afmæli sínu um þessar mundir og munu af því tilefni slá upp þrennum tónleikum á Græna Hattinum um páskana.

Fjölgun hjá Damon og frú

Leikarinn Matt Damon sem fer með aðalhlutverk í Bourne-myndunum á von á sínu öðru barni með konu sinni Luciönu.

Júróvisjónaðdáendur fúlir yfir grínatriðum

Mikil reiði ríkir nú á meðal gallharðra Júróvisjón-aðdáenda vegna fjölda „grínatriða" í keppninni þetta árið. Írland sendir sem frægt er orðið kalkúninn Dustin, Eistland valdi þrjá þéttvaxna miðaldra karlmenn og bikiniklæddar klappstýrur, nágrannar þeirra Lettar senda hóp sjóræningja, og eins og til að reka naglann í kistu hinnar hnignandi keppni ákváðu Belgar í gær að bjóða upp á lag á bulltungumáli.

Bíómynd um Bob Marley í bígerð

Framleiðslu fyrirtækið The Weinstein company hefur tilkynnti að þeir hafi fengið leyfi til að þróa, framleiða og dreifa bíómynd sem fjallar um tónlistarmanninn Bob Marley.

Cheryl Cole bannar kynlíf næsta hálfa árið

Cheryl Cole hefur sett eiginmanninn, hinn fláráða Ashley Cole, í kynlífsstraff til sex mánaða. Þessu segist Sun dagblaðið, sem greindi á dögunu fyrst frá framhjáhaldi Ashley, hafa áreiðanlegar heimildir fyrir.

Tekjulítill K-Fed gefur 2000 dollara þjórfé

Kevin Federline rakar ekki inn tekjum þessa dagana, en hann virðist þó eiga fyrir salti í grautinn. Í nýlegri veitingahúsaferð skildi hann eftir tvö þúsund dollara í þjórfé, rúmar 130 þúsund krónur, eftir að hafa keypt máltíð fyrir 365 dollara.

Dr. Gunni bruggar rótarbjór

„Já já, þetta er uppáhalds drykkurinn minn,“ segir Gunnar Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni, en fjórir lítrar af rótarbjór þroskast nú í sérmerktum plastflöskum á heimili hans. Gunna var fært rótarbjórs-þykkni að gjöf, en hann hefur hingað til sérpantað flöskur af drykknum frá Bandaríkjunum. Það er aftur dýrt spaug. Drykkurinn , sem er óáfengur, kostar þá á milli 400 og 500 krónur á flöskuna kominn til landsins.

Kosið um afrekskonu Létt Bylgjunnar

Kosning stendur nú yfir á afrekskonu léttbylgjunnar, en hún verður krýnd annað kvöld á konukvöldi Léttbylgjunnar í Smáralindinni. Undanfarna daga hafa fjölmargar tilnefningar borist, en þær sem stóðu upp úr voru eftirfarandi:

Brúðkaup Brangelinu slegið af?

Svo virðist ætla að fara að ekkert verði af fyrirætluðu brúðkaupi Brads Pitt og Angelinu Jolie sem slúðurpressan vestanhafs hefur velt vöngum yfir undanfarið.

Hefur syrgt Loftleiði í 35 ár

Loftleiðir, flugfélagið sem sameinaðist Flugfélagi Íslands undir merkjum Flugleiða á sínum tíma, var stofnað þann 10 mars og er því 64 ára í dag. Dagfinnur Stefánsson flugstjóri er einn af stofnendum Loftleiða og hefur flaggað á hverju ári frá stofnun þess.

Hugmyndir uppi um glæsilegan veitingastað í Norræna húsinu

Hugmyndir eru uppi um að breyta kafffistofunni í Norræna húsinu í glæsilegan veitingastað eða bístró þar sem boðið verði upp á það besta úr norrænu eldhúsi. Forstjóri hússins segir þetta lið í endurskipulagningu á húsinu en enn séu nokkrar hindranir í veginum.

Sjá næstu 50 fréttir