Hugmyndir uppi um glæsilegan veitingastað í Norræna húsinu 10. mars 2008 17:27
Hugmyndir eru uppi um að breyta kafffistofunni í Norræna húsinu í glæsilegan veitingastað eða bístró þar sem boðið verði upp á það besta úr norrænu eldhúsi. Forstjóri hússins segir þetta lið í endurskipulagningu á húsinu en enn séu nokkrar hindranir í veginum. „Við teljum að þetta geti verið góður staður fyrir hið nýja norræna eldhús sem nýtur sífellt meiri vinsælda," segir Max Dager, forstjóri Norræna hússins. Hann segir að menn hafi farið að leita nýrra leiða til að efla matsölustað hússins og ein af ástæðum fyrir því sé aukin samkeppni frá veitingasölunni á Háskólatorgi. Þá hafi fjármunir til veitingarekstursins frá Norrænu ráðherranefndinn minnkað á meðan launakostnaður hafi aukist og því hafi þurft að laga starfsemina að því. „Við vorum með matarhátíð um daginn og það var upphafið að þessu. Við höfum orðið vör við áhuga frá aðilum bæði innan lands og utan að reka eldhúsið með norræna matarhefð í huga," segir Dager og segir hugmyndir uppi um að hafa veitingastaðinn opinn á kvöldin. „Við erum að reyna að selja húsið sem alþjóðlegan ráðstefnustað og við viljum í tengslum við það bjóða upp á það besta í norrænni matargerð," segir Dager og bendir á það að útsýnið úr matsal Norræna hússins skemmi ekki fyrir. Norræna húsið, sem fagnar 40 ára afmæli í ár, er hannað af hinum heimsþekkta finnska arkitekt Alvar Aalto og stóðu Íslendingar að byggingu þess ásamt Dönum, Finnum, Norðmönnum og Svíum. Húsinu má ekki breyta og það er eitt af helstu vandamálunum sem glímt er við núna því núverandi eldhús er fremur lítið. Spurningin er hvort hægt sé að búa til eldhús í kjallaranum en það á eftir að skoða að sögn Dagers. Dager á von á að það komi í ljós í sumar hvort af þessu verður. Starfsmönnum í eldhúsi Norræna hússins hefur verið sagt upp vegna þessara breytinga og taka uppsagnirnar gildi í haust. „Það er alltaf erfitt að segja upp fólki en það varð að gera í tengslum við þessar breytingar," segir Dager. Hann útilokar þó ekki að hægt verði að finna lausn fyrir starfsfólkið.
Mest lesið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Lífið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Lífið Vaktin: Seinna undankvöld Eurovision Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið VÆB bræður á forsíðu BBC Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Joe Don Baker látinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Vaktin: Seinna undankvöld Eurovision VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Sjá meira