Fleiri fréttir

Sigríður segir Pálma enn beita blekkingum

Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Skjá miðla ehf., sem reka SkjáEinn er ósátt við túlkun Pálma Guðmundssonar, sjónvarpsstjóra Stöðvar 2 á áhorfstölum sem Capacent birti um daginn. Í viðtali við Vísi fyrr í dag sagði Pálmi að bilið á milli stöðvanna væri að breikka, en það segir Sigríður rangt.

Lýsa Vestmannaeyjar yfir sjálfstæði?

Von hefur kviknað í brjóstum þegna margra smáríkja í kjölfar þess að Kosovo lýsti einhliða yfir sjálfstæði í gær. Ríkisstjórnir Rúmeníu, Spánar, Indlands, Rússlands og Kína eru meðal þeirra sem skjálfa nú á beinunum yfir því að íbúar Transnistríu, Baskalands, Nagalands og hinna og þessa -stana taki sig til og feti í fótspor Kosovo.

Eiginmaður Amy tók of stóran skammt í fangelsinu

Blake Fielder Civil, eiginmaður söngdívunnar Amy Winehouse, var nær dauða en lífi um helgina eftir að hann tók of stóran skammt af heróíni. Civil, sem situr í fangelsi grunaður um að hindra framgang réttvísinnar, fannst liggjandi á gólfi klefans síns og var umsvifalaust fluttur á sjúkrahús.

Pálmi segir Stöð 2 ekki beita blekkingum

„Það er rétt sem Sigríður sjónvarpsstjóri á SkjáEinum segir að allar sjónvarpsstöðvar bæta við sig áhorfi í rafrænum mælingum líkt og kemur fram í umræddri grein," segir Pálmi Guðmundsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2. Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Skjá miðla ehf. gerði í dag athugasemd við viðtal við Pálma í Fréttablaðinu í morgun þar sem sagði að SkjárEinn væri að skilja sig frá hinum stöðvunum tveimur með mun lægra áhorf en áður.

Ekkert dregur úr umferð einkaþotna

Bölsýnistal um fjármálaheiminn virðist lítil áhrif hafa eina helstu birtingarmynd nýliðins góðæris - umferð einkaþotna um Reykjavíkurflugvöll. „Okkur virtist þetta vera frekar rólegt frá áramótum, en þegar við skoðuðum janúar fyrir ári síðan voru tölurnar svipaðar," segir Hrafnhildur Stefánsdóttir upplýsingafulltrúi Flugstoða.

Ný mynd Parisar Hilton er sú versta í sögunni

Þrátt fyrir gríðarlega velgengni Parisar Hilton sem partýdýrs virðist hún illa ná að fóta sig í öðrum störfum. Platan sem hún gaf út í fyrra hlaut dræmar undirtektir, en nú er botninum náð.

Verðlaunamynd Berlínarhátíðarinnar á leið til landsins

Brasilíska myndin Tropa De Elite vann Gullbjörninn, aðalverðlaunin á kvikmyndahátíðinni á Berlín, óvænt um helgina. Hún skaut þar með fjölda sterkra mynda ref fyrir rass, þar á meðal There Will Be Blood, sem er tilnefnd til átta Óskarsverðlauna.

Britney fór út að borða með pabba sínum

Britney Spears klæddi sig upp í sitt fínasta púss í gærkvöld og skellti sér út að borða með Jamie, pabba sínum, á nýjum veitingastað Social Hollywood. Britney hefur ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu, eins og kunnugt er. Hún hefur misst forræðið yfir börnunum sínum tveimur, verið lögð inn á geðdeild og sætir ofsóknum af hálfu papparazzi ljósmyndara hvar sem hún kemur. Kvöldverðurinn með pabba hefur því vonandi verið til þess að bæta líðan hennar.

Tyra Banks er ekki hin nýja Oprah

Tyra Banks segist ekki vera hin nýja Oprah Winfrey þrátt fyrir að vera með eigin spjallþátt og koma fram í einum vinsælasta sjónvarpsþætti Bandaríkjanna, America´s Next Top Model.

Lohan ekki við eina fjölina felld

Þrátt fyrir ítrekaðar áfengismeðferðir hefur Hollywood - stjarnan Lindsay Lohan ekki enn sigrað í baráttunni við Bakkus. Síðasta þriðjudagskvöld gerði hún hosur sínar grænar fyrir Adrian Grenier á skemmtistað í Hollywood.

Jackson boðið 1,7 milljarður fyrir nokkra tónleika

Michael Jackson hefur verið boðið að koma fram á 10 tónleikum á Millenium Dome- leikvanginum í London og fá fyrir það 1,7 milljarð. Þessu heldur Roger Friedman hjá Fox News fram í pistli á vefsíðu Fox News í dag.

„Heimsmet í áhorfi á áskriftarsjónvarp“

„Við erum himinlifandi með þessa nýju áhorfskönnun,“ segir Pálmi Guðmundsson sjónvarpsstjóri Stöðvar 2. „Stóra fréttin fyrir okkur er að áskriftarsjónvarpið Stöð 2 er með 28,7% hlutdeild í áhorfi á viku á móti 41,9 hlutdeild Rúv. SkjárEinn er einungis með 14,6%.“ segir Pálmi, og bætir við að hann leyfi sér að fullyrða að þetta sé einsdæmi á heimsvísu í áhorfi á áskriftarsjónvarp.

Guðni Ágústsson með nýjan sjónvarpsþátt

Í kvöld klukkan níu hefur göngu sína þátturinn Guðni af lífi og sál á ÍNN sjónvarpsstöðinni, þar sem Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins stígur sín fyrstu skref sem þáttastjórnandi.

Jennifer og Angelina hittast

Eftir að hafa náð að forðast hvor aðra í þrjú ár munu Jennifer Aniston og Angelina Jolie hittast, í fyrsta sinn frá því Brad Pitt og Jennifer skildu.

Sökuð um svindl í Eurovision

"Við þurfum svo sem enga bakraddasöngvara. Ég er til dæmis svo kröftugur að ég gæti tekið þetta einn. Þótt þetta séu toppmenn í húsbandinu var þetta óþarfi og hugsað sem alger uppfylling,“ segir Egill Einarsson,

Ólafur vann aðalverðlaun í Berlín

Leikstjórinn Ólafur Jóhannesson vann aðalverðlaun á Teddy Awards sem er Panorama-hluti Berlínarhátíðarinnar í kvöld fyrir mynd sína Queen Raquela.

Tólf vinsælustu þættirnir á RÚV

"Það væri bölvuð frekja að fara fram á meira," segir Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri RÚV, við Vísi um nýja könnun Capacent um áhorf á sjónvarpsstöðvar sem birt var í dag.

Talið að O.J. Simpson hafi lamið unnustu sína

Christie Prody, unnusta ruðningshetjunnar og Hollywood stjörnunnar O.J Simpson, var lögð inn a spítala með höfuðáverka í vikunni. Samkvæmt heimildum blaðsins National Enquirer eru áverkarnir af völdum líkamsárásar og látið er að því liggja að Simpson sé ábyrgur fyrir þeim. Hann neitar hins vegar öllum ásökunum um að hafa ráðist á unnustu sína og segir að Prody hafi verið ofurölvi og dottið. Lögreglan hefur tekið málið til rannsóknar og tekur skýringum Simpson ekki sem gefnum.

„Dóri DNA er útþynnt gen af Nóbelskáldi“

„Dóri DNA er útþynnt gen af Nóbelskáldi. Hvað hefur hann eiginlega unnið sér til frægðar?,“ segir Bubbi Morthens í samtali við Vísi. Bubbi er síður en svo sáttur með Dóra sem gagnrýndi þáttinn hans, Bandið hans Bubba, í DV fyrir skömmu.

Leyfilegt að vinna peningaverðlaun í bridge en ekki póker

„Þetta er ekkert öðruvísi en pókerinn og er bara gjörsamlega fáránlegt,“ segir Sindri Lúðvíksson pókeráhugamaður um Bridgehátíð 2008. Sérstakt þáttökugjald er í mótinu og fær sigurvegarinn peningaverðlaun.

Dr. Gunni óhress með lélegt myndband við Gamla góða Villa

Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr Gunni er ekki hrifinn af myndbandi sem hefur verið gert við eitt laga hans „Gamli góði Villi". Myndbandið, sem er komið á YouTube, samanstendur að mestu úr myndbroti af Vilhjálmi Þ. Vilhjálmsyni fyrrverandi og mögulega verðandi borgarstjóra á frægum blaðamannafundi í Valhöll á dögunum.

Hvaða lið er þetta Huddersfield?

Það er um fátt annað rætt en knattspyrnuliðið Huddersfield á Englandi þessa stundina. Ástæðan? Jú, Davíð Oddsson seðlabankastjóri nefndi klúbbinn í svari á blaðamannafundi Seðlabankans í morgun.

Siggi skiptir um bíl á níu mánaða fresti

Sigurður Stormur Ragnarsson veðurfréttamaður og formaður jeppaklúbbsins NFS fékk splunkunýjan Land Rover Discovery 3 á dögunum. Illar tungur stungu upp á því að hann hefði skipt um bíl eftir slakt gengi í nýlegri ferð jeppaklúbbs fréttastofunnar, NFS. „Það er alfarið rangt, enda hefði ég þá ekki fengið mér eins bíl aftur." segir Siggi, sem festi „gamla" Land Roverinn í hverri sprænu í ferðinni og hlaut fyrir viðurnefnið Siggi Sífestir.

Amy Winehouse með nýjan Blake

Amy Winehouse virðist vera á góðri leið með að gjörbreyta lífi sínu. Ef marka má sögusgagnir er hún meira að segja búin að skipta um Blake.

Fóstbræður koma saman á ný

Fóstbræður komu aftur saman klukkan 11 í morgun,í fyrsta sinn í nær áratug. Aðdáendum hópsins er óhætt að byrja að anda aftur, grínararnir voru ekki að gera nýjan þátt. Tilgangurinn var þó göfugur. Þeir afhentu Umhyggju veglega gjöf, ágóðann af sölu allra fimm Fóstbræða-þáttaraðanna á DVD - rúmar þrjár milljónir króna.

"Ég vona að ég fái hana til baka"

Þrátt fyrir staðhæfingar þess eðlis að Jóhanna Vilhjálmsdóttir sé hætt í Kastljósi hefur Þórhallur Gunnarsson, ritstjóri þáttarins, ekki gefið upp alla von um að fá hana til baka.

Vonast til að ráðherra syngi "I Walk the line"

Forsætisráðherra, Geir Haarde, hyggst taka þátt í tónleikum sem Bubbi Morthens ætlar að halda í Austurbæ eftir viku undir yfirskriftinni „Bræður og systur gegn fordómum." Bubbi skoraði á Geir að taka þátt í viðtali í gær.

Á hann von á barni?

Chelsey Handler sem stjórnar þætti á hinni mjög svo skemmtilegu E! stöð kom með mikla yfirlýsingu í þætti sínum á þriðjudaginn.

Aðsókn að leikhúsi meiri en á fótbolta

„Áhugi á leikhúsi er mjög mikill hér á landi, og fleiri sem sækja leikhús en fótboltaviðburði," segir Gunnar Andri Þórisson kynningar- og markaðsstjóri leikhus.is. Meira en 1.400 sögur hafa borist frá almenningi sem vill fá frítt í leikhús en í þessari viku ætlar vefurinn að bjóða 40 manns á tvær leiksýningar í Iðnó.

Ætlar að eyða meiri tíma með nýfæddum syni

„Það er ekki búið að ganga frá neinu og ég er ennþá starfsmaður Kastljóssins,“ segir Jóhanna Vilhjálmsdóttir en fréttir bárust af því í gær að hún væri hætt sem einn af umsjónarmönnum þáttarins.

Popparar sameinast í baráttu Bubba

Nú er komið í ljós hverjir munu koma fram á baráttutónleikunum í Austurbæ 20 febrúar. Á annað hundrað hljómsveita og listamanna hafa hringt inn á umboðsskrifstofu Bubba, prime, og lýst yfir áhuga á að styðja við þetta mjög svo þarfa verkefni sem Bubbi ýtti úr vör á sunnudaginn var.

Brangelina undirbýr brúðkaup

Angelina Jolie og Brad Pitt hafa ekki tjáð sig mikið um meinta óléttu Angelinu, en að sögn National Enquirer eiga þau sér fleiri leyndarmál. Angelina mun hafa játast Brad eftir ítrekuð bónorð hans.

Iceland Express færði AD/HD samtökunum rausnarlegan styrk

Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express, afhenti í dag Ingibjörgu Karlsdóttur, formanni ADHD samtakanna, andvirði 2.350.000 króna sem söfnuðust meðal farþega í vélum félagsins frá ágúst 2006 fram til ársloka 2007.

Ingibjörg Sólrún á Bridgehátíð

Vísir sagði frá því í að gær að vinirnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Davíð Oddsson muni taka þátt í Bridgemóti tengdu Bridgehátið 2008. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir mun setja Bridgehátíðina en Gunnar I Birgisson bæjarstjóri og Birkir Jón Jónsson þingmaður munu einnig taka þátt.

Nicholas Cage kannast ekki við að hafa stolið hundi

Nicholas Cage hefur kært Kathleen Turner í Bretlandi fyrir meiðyrði. Turner, sem lék með Cage í Peggy Sue Got Married, skrifar í nýrri ævisögu sinni að leikarinn hafi keyrt fullur og stolið chihuahua hundi.

Enn einn Hiltoninn tekinn fyrir ölvunarakstur

Vandræðagangurinn virðist ættgengur hjá Hilton klaninu. Barron Hilton, 18 ára litli bróðir Parisar, var handtekinn í nótt fyrir ölvunarakstur. Rétt eins og stóra systir nokkrum sinnum áður.

Endir bundinn á verkfall í Hollywood

Handritshöfundar í Hollywood ákváðu í gær að binda enda á verkfall sitt sem staðið hefur í hundrað daga. Þetta þýðir að aðdáendur vinsælla sjónvarpsþátta geta tekið gleði sína á ný.

Bruni í sínu fyrsta viðtali eftir brúðkaupið

Forsetafrú Frakklands, Carla Bruni, neitaði því að hafa gifst Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta í of miklum flýti og varði eiginmann sinn, sem hefur fallið í vinsældum, í sínu fyrsta viðtali eftir hið umtalaða brúðkaup.

Sjá næstu 50 fréttir