Lífið

Siggi skiptir um bíl á níu mánaða fresti

Siggi er með bíladellu á háu stigi.
Siggi er með bíladellu á háu stigi.

Sigurður Stormur Ragnarsson veðurfréttamaður og formaður jeppaklúbbsins NFS fékk splunkunýjan Land Rover Discovery 3 á dögunum.

Illar tungur stungu upp á því að Siggi hefði skipt um bíl eftir slakt gengi í nýlegri ferð jeppaklúbbs fréttastofunnar, NFS, en hann þvertekur fyrir það. „Það er alfarið rangt, enda hefði ég þá ekki fengið mér eins bíl aftur." segir Siggi, sem festi „gamla" Land Roverinn í hverri sprænu í ferðinni og hlaut fyrir viðurnefnið Siggi Sífestir.

Það eru að sögn Sigga einfaldari ástæður fyrir skiptunum. „Hann var fyrir það fyrsta orðinn níu mánaða gamall og keyrður hvorki meira né minna en 11.800 kílómetra," segir Siggi og bætir við að hann hafi það fyrir reglu að skipta um bíl á níu mánaða fresti. Síðastliðin tvö ár hefur Siggi því átt tvo Nissan Patrol jeppa og er nú á sínum öðrum Land Rover.

Jeppinn er Sigga nauðsynlegur, en hann vill að vel fari um sig í tíðum ferðum milli landshluta. „Ég er mikið náttúrubarn og fer reglulega út í náttúruna að hlaða diskinn."segir Stormurinn.

Siggi átti afmæli í gær, og gengu þær sögur að hann hefði fengið sér bílinn í afmælisgjöf. Siggi neitar því þó, og segir að það hafi verið eiginkonan sem var svona rausnarleg í tilefni afmælisins.

Hólmfríður Þórisdóttir, eiginkona Sigga var ekki alveg jafn viss um það þegar Vísir hafði samband við hana. „Jú ég gaf honum þetta í afmælisgjöf, maður er svona rausnarlegur" sagði hún kímin. „Eftir venjulegan meðgöngutíma þá verður hann að skipta. Ég hef ekki tölu á þeim bílum sem við höfum átt í gegnum tíðina.“

Hún segir Sigga mikinn bíladellukarl, en hún hafi ekki smitast af dellunni enn. „Ég er alveg ánægð með minn Citroen Picasso" segir Hólmfríður hlæjandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.