Tólf vinsælustu þættirnir á RÚV 14. febrúar 2008 17:33 Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri RÚV, er himinlifandi með nýja áhorfskönnun. "
Það væri bölvuð frekja að fara fram á meira," segir Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri RÚV, við Vísi um nýja könnun Capacent um áhorf á sjónvarpsstöðvar sem birt var í dag. Framkvæmd könnunarinnar er með breyttu sniði frá því sem áður var. Í stað dagbókarkönnunnar þar sem fólk fyllti út bækur er stuðst við svokallaðan PPM-mæli sem fólk ber á sér þegar það horfir á sjónvarpið. RÚV kemur afar vel út úr könnunninni sem var framkvæmd vikuna 4. til 10. febrúar. Sjónvarpið á tólf vinsælustu dagskrárliðina þessa vikuna og segist Þórhallur vera hæstánægður með niðurstöðuna. "Við erum með þrjá þætti sem hafa yfir 50% áhorf og það sýnir að okkur er vel tekið," segir Þórhallur. Pálmi Guðmundsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, sagði í samtali við Vísi að stöðin mætti mjög vel við una með niðurstöðuna en vinsælasti dagskrárliður Stöðvar 2 þessa vikuna var American Idol með uppsafnað áhorf upp á 27,2%. Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Skjás Eins, sagðist í samtali við Vísi vera virkilega ánægð með útkomuna. "Við erum frábrugðin hinum stöðvunum að því leyti að okkar markmið eru skýr. Við keppum ekki í heildaráhorfi heldur skiptir mestu máli fyrir okkur að markhópur okkar, sem er 12 - 49 ára, horfi á Skjá Einn á kjörtíma milli 20 og 23. Það markmið er að nást í þessum könnunum," segir Sigríður Margrét og bendir á að 11 þættir stöðvarinnar séu með yfir 20% áhorf í markhópnum.
Mest lesið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Lífið Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Lífið Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Lífið „Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ Menning Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Fagnaði sigri með bumbukossi Lífið Fleiri fréttir Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Sjá meira