Rödd Evu Maríu bætist í þulaflóru Rásar 1 15. febrúar 2008 16:13
Sjónvarpskonan ástsæla Eva María Jónsdóttir bætir á næstunni við sig vinnu og byrjar sem þulur á Rás 1. Eva María segist vera með fiðring í maganum fyrir fyrsta starfsdeginum, enda beri hún óttablandna virðingu fyrir starfinu. „Ég er svona Rúvari, og þykir mjög vænt um fyrirtækið," segir Eva og bætir við að Rás 1 sé óumdeilanlegt hjarta RÚV, og þar sé límið sem heldur öllu saman þulurinn. Ómþýð röddin ein dugði Evu ekki til að næla sér í starfið. „Ég þurfti að fara í próf til að athuga hvort ég væri hæf í starfið. Það var mjög stressandi," segir Eva, en prófið fólst meðal annars í því að lesa texta með erfiðustu erlendu heitum sem prófdómurum datt í hug. Þularstarfinu mun Eva sinna samhliða meistaranámi í Íslensku við HÍ, sem hún hefur næsta haust. Hún hættir um leið að vinna hjá sjónvarpinu, en þættir sem hún tekur upp í sumar verða þó í sýningu fram eftir vetri. „Ég hætti alltaf í skólanum til að fara að vinna, en nú hætti ég í vinnunni til að fara í skóla," segir Eva María, sem útskrifaðist úr bókmenntafræði síðastliðið haust. Eva segist þó örugglega snúa aftur í sjónvarpið, það sé það sem hún kunni að gera. Öllum sé þó hollt að breyta til, og sjónvarpsstarfið geti verið ansi ávanabindandi. „Það er þessvegna sem ég hætti svona oft, maður verður að slíta sig lausan áður en þetta heltekur mann," segir Eva, en frí hennar frá sjónvarpinu hafa hingað til stafað af öðru en námi. „Ég hef alltaf getað hætt reglulega og farið í fæðingarorlof, en það er ekki á döfinni að fara í fleiri fæðingarorlof í bili," segir Eva, en hún á þrjú börn með manni sínum, Óskari Jónassyni kvikmyndagerðarmanni.
Mest lesið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist Forrest Gump rokksins allur Tónlist Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Lífið Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Lífið Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Lífið Fleiri fréttir Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Sjá meira