Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Affleck: Sambandið við Lopez hafði skaðleg áhrif á feril minn Hollywoodleikarinn Ben Afflec segir í samtali við tímaritið Details að samband hans við Jennifer Lopez hafi haft skaðleg áhrif á kvikmyndaferil hans. Þau Afflec og Lopez voru saman frá árinu 2002 til 2004 og nutu gríðarlegrar fjölmiðlaathygli á meðan. Þau voru trúlofuð og hafa bæði kennt fjölmiðlum um sambandsslitin. 2.10.2007 15:03
Moore hrukkótt þrátt fyrir lýtaaðgerðir Nýjustu myndir af Demi Moore gefa til kynna að hún hafi ekki heimsótt lýtalækninn sinn nýlega. Hin 44 ára leikkona viðurkenndi á dögunum opinberlega að hún hafi eytt um 30 milljónum íslenskra króna í lýtaaðgerðir en eins og meðfylgjandi myndir bera með sér þá spretta hrukkur og augnpokar fram sem aldrei fyrr. 2.10.2007 14:07
Doherty fær annað tækifæri Héraðsdómarinn, Davinder Lachhar, ákvað í dag að fresta aðalmeðferð í máli Pete Doherty, söngvara hljómsveitarinnar Babyshambles, og gefa honum með því tækifæri til að vinna bug á eiturlyfjafíkn sinni. En Doherty á mögulega yfir höfði sér fangelsisvist fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot. 2.10.2007 13:06
Keith Urban í mótorhjólaslysi á leið á AA-fund Kántrýsöngvarinn Keith Urban sem er giftur Hollywoodleikkonunni Nicole Kidman lenti í mótorhjólaslysi í gær þegar hann reyndi að stinga af ljósmyndara á leið sinni á AA-fund. 2.10.2007 12:03
Björn seldi Benz-jeppann samstundis Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, er búinn að selja Benz ML 350 jeppann sinn sem var ein af þremur Benz bifreiðum sem hann átti í safninu. Björn er mjög hrifinn af Benz bílum og veitti Vísir því eftirtekt í lok sumars að hann var með þrjá slíka í heimreiðinni hjá sér. Þetta voru jeppi, fólksbíll og auk þess sjálf ráðherrabifreiðin. 2.10.2007 10:44
Aðsókn á RIFF með besta móti Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík er nú hálfnuð og hefur aðsókn á verið með besta móti. Sætanýting er yfir 80% og ef áfram heldur sem horfir fer hún líklega yfir 20.000 manns sem gerir hátíðina að einum best sótta listviðburði ársins. 2.10.2007 10:26
Fór í brúnkusprey eftir að hafa misst börnin Eftir að Britney Spears missti forræðið yfir sonum sínum í gær höfðu fjölskylda hennar og vinir miklar áhyggjur af henni og voru jafnvel hrædd um að hún myndi fara sér að voða. Móðir hennar Lynne reyndi í ofboði að ná í hana til að sjá til þess að hún myndi ekki gera neitt vanhugsað. En Britney kom kannski engum á óvart með viðbrögðum sínum. 2.10.2007 10:22
Kalli í Pelsinum kaupir eyju Athafnamaðurinn Karl Steingrímsson, betur þekktur sem Kalli í Pelsinum, hefur fjárfest í eyju á Breiðafirði. Í samtali við Vísi vildi Karl ekki gefa upp nafnið á eyjunni en sagðist lengi hafa haft augastað á Breiðafirðinum. 2.10.2007 09:09
Britney er í bobba Dómstóll í Los Angeles úrskurðaði í gær að Kevin Federline, fyrrverandi unnusti Britney Spears, skyldi fá fullt forræði yfir tveimur ungum börnum þeirra. Lífið leikur ekki við Britney þessa dagana því hún var nýlega ákærð fyrir að keyra án ökuréttinda sem gæti kostað hana sex mánaða fangelsi. Þá missti hún fyrir skömmu samning við umboðsskrifstofuna sína. 2.10.2007 07:00
Britney missir forræðið Dómari í Los Angeles veitti í kvöld Kevin Federline fullt forræði yfir börnunum tveimur sem hann á með söngkonunni Britney Spears. Britney og Federline hafa allt síðan að þau skildu deilt forræði en stanslaus vandræðagangur á Spears undanfarin misseri leiddi til þess að Federline höfðaði mál til þess að fá fullt forræði yfir börnum sínum. 1.10.2007 21:13
Stuðmenn vonast til að Ringo Starr renni á hljóðið Stuðmenn ætla að kalla saman Bítlagæslumennina og slá upp Bítlavöku á Nasa á laugardagskvöld. Þeir vonast til að Ringo Starr renni á hljóðið. Ringo verður gestur Yoko Ono á Íslandi um helgina. 1.10.2007 19:08
Britney vill vera elt á röndum Í dagblaðinu Chigago Sun Times í dag er fullyrt að söngkonan Britney Spears sé í stöðugu sambandi við paparazzi ljósmyndara til þess að tryggja að hún sé á forsíðum slúðurblaða í hverri viku. 1.10.2007 18:39
Bondstjarna fellur frá Kanadíska leikkonan Lois Maxwell er látin, 80 ára að aldri. Maxwell lék Miss Moneypenny í James Bond myndunum um árabil. Hún lék á móti Sean Connery í fyrstu myndinni, Dr. No, árið 1962 og fór með hlutverk Miss Moneypenny allt til ársins 1985 þegar hún lék í A Wiew To A Kill á móti Roger Moore. 1.10.2007 17:03
Lohan í frí með föður sínum Hollywoodstjarnan Linsey Lohan hefur fengið leyfi frá Cirque Lodge meðferðarstofnuninni í Utah til að fara með föður sínum í fimm daga frí. Lohan og faðir hennar Michael Lohan höfðu ekki talað saman í tvö ár þegar hann kom og heimsótti hana í til Utah í lok júlí síðastliðinn. 1.10.2007 16:12
Sveppatripp Baggalúts Hljómsveitin Baggalútur mun halda til Skotlands til að taka þátt í árlegri fimm daga sveppahátíð í bænum Aberfoyle þann 18. október næstkomandi. Þessa sömu daga fer Iceland Airwaves hátíðin fram í Reykjavík þar sem allar helstu hljómsveitir Íslands koma fram. 1.10.2007 14:53
Beyonce hættir við tónleika í Malasíu Söngkonan Beyonce hefur hætt við fyrirhugaða tónleika í Malasíu einungis nokkrum vikum eftir að kollegi hennar Gwen Stefani féllst á að hylja líkama sinn nánast frá toppi til táar þegar hún hélt tónleika í landinu. Beyonce hefur í staðin ákveðið að halda tónleika í Jakarta í Indónesíu og munu þeir fara fram þann fyrsta nóvember næstkomandi. 1.10.2007 13:49
Miðar á Spice Girls seldust upp á 38 sekúndum Miðar á Spice Girls tónleika sem haldnir verða á O2 leikvanginum í London þann 15. desember næstkomandi seldust upp á 38 sekúndum. Tónleikaferð Kryddpíanna hefst í Kanada annan deseber næstkomandi og eru tónleikarnir í London hluti af henni. Vegna gífurlegrar eftirspurnar í Bretlandi hefur verið ákveðið að bæta tveimur tónleikum við þann 16. og 18. desember. 1.10.2007 12:45
Björgvin Halldórsson með fimm stjörnu tónleika í Köben Björgvin Halldórsson hefur verið fenginn til að halda tónleika í Cirkus í Kaupmannahöfn á vegum Hótelbókana í Kaupmannahöfn en það fyrirtæki stóð fyrir margrómuðum tónleikum með Stuðmönnum og Sálinni á sama stað í fyrra. Tónleikarnir verða haldnir þann 24. apríl næstkomandi eða á sumardaginn fyrsta. 1.10.2007 11:32
Faðir Beckhams á batavegi Faðir David Beckhams er nú á batavegi eftir að hafa fengið hjartaáfall í síðustu viku. Hann er orðinn það hress að hann sagði syni sínum, David, og eiginkonu hans, Victoriu, að fara aftur heim til barna sinna í Los Angeles. Hann tók sig meira að segja til og veifaði þeim bless á bílaplani spítalans. 1.10.2007 11:08
Glæsibrúðkaup í vændum hjá Richie Nicole Richie og Joel Madden munu ganga að eiga hvort annað um miðjan mánuðinn. Parið mun ætla að slá upp rausnarlegu brúðkaupi á Laguna Beach í Californiu og fregnir herma að dagsetningin 13. október hafi verið valin. 1.10.2007 10:43
Letterman reif Paris í sig Spjallþáttastjórnandinn David Letterman fór allt annað en mjúkum höndum um hótelerfingjann Paris Hilton þegar hún mætti til hans í viðtal í góðri trú á föstudag. Paris var þangað komin til að kynna nýjustu kvikmynd sína, fatalínu og ilmvatn en Letterman bauð hana velkomna með því að spyrja hvernig henni hefði fundist í fangelsinu. 1.10.2007 10:05
Pamela Anderson á leið í hnapphelduna Strandvörðurinn fyrrverandi, Pamela Anderson, og Rick Salomon, fyrrverandi kærasti Parisar Hilton, verða brátt gefin saman í hjónaband ef marka má heimildir Reuters fréttastofunnar. Þetta yrði þriðja hjónaband Anderson. Hjónaband hennar og Tommy Lee trommuleikara hljómsveitarinnar Motley Crue endaði með ósköpum árið 1998 eftir þriggja ára hjónaband. Anderson skyldi síðan við seinni eiginmann sinn, Kid Rock á síðasta ári eftir fjögurra mánaða hjónaband. 1.10.2007 08:13
Marijúana er vandamál fyrir George Poppsöngvarinn George Michael hefur viðurkennt að notkun hans á marijúana geti verið vandamál og að hann sé stöðugt að reyna að reykja minna af efninu. "Algerlega, ég myndi vilja nota það minna, engin spurning," sagði hann í útvarpsviðtali við BBC. "Að því leiti er þetta vandamál." 30.9.2007 21:00
Þroskandi að koma út úr skápnum Grey´s Anatomy leikarinn T.R. Knight segist hafa þroskast heilmikið sem manneskja eftir að hann kom út úr skápnum fyrir tæpu ári síðan. Knight sem leikur George O´Malley lækni sagði í viðtali við Ellen DeGeneres að honum fyndist hann hafa lært mjög mikið. 30.9.2007 18:37
Eriksson heldur enn framhjá Sven Göran Eriksson er enn við sama heygarðshornið eftir því sem breska blaðið News of the World greinir frá. Hann er enn í sambandi við Nacy D'Olio en heldur áfram að halda framhjá henni. Nú hefur hann sést með Saima Ansari, 38 ára gamalli einstæðri móður, sem hefur dvalið löngum stundum á hótelherbergi Svíans. 30.9.2007 13:00
Louis Maxwell - Miss Moneypenny deyr Louis Maxwell sem lék Miss Moneypenny í 14 James Bond myndum er látin. Maxwell var kanadísk, en bjó í Ástralíu og var áttræð þegar hún lést. Hún lék aðalhlutverkið í Doktor No á móti Sean Connery árið 1962. Hún hélt áfram í hlutverki einkaritara M þar til árið 1985 þegar hún lék það í síðasta sinn í myndinni A View To A Kill með Roger Moore. 30.9.2007 12:02
Jagger svaf hjá nýráðinni barnapíu Það tók sjónvarpsbarnapíuna Claire Verity ekki nema nokkra tíma að sofa hjá rokkaranum Mick Jagger eftir að hún hafði verið ráðin til að gæta sonar hans. Þetta upplýsir hún í viðtali við breska blaðið News of the World í dag. 30.9.2007 12:00
Kvikmyndin Börn fékk Gyllta Svaninn Íslenska kvikmyndin Börn eftir Ragnar Bragason fékk í kvöld Gyllta Svaninn á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Kaupmannahöfn. „Ég var nú bara klökkur,“ sagði Ragnar þegar Vísir náði tali af honum við lok verðlaunaafhendingunnar í Scala kvikmyndahúsinu í gærkvöldi. 29.9.2007 20:17
Ljósmyndaþjófur Cruise deyr Maður sem viðurkenndi að eiga þátt í tilraun til að kúga um hundrað milljónir íslenskra króna út úr Tom Cruise, fannst látinn í gær. Maðurinn hafði stolið myndum úr brúðkaupi leikarans. Rannsókn lögreglunnar leiddi í ljós að svo virtist sem David Hans Schmidt hefði framið sjálfsmorð. 29.9.2007 19:31
Sutherland gæti lent í fangelsi Íslandsvinurinn Kiefer Sutherland gæti endað í fangelsi ef hann verður fundinn sekur um að hafa ekið undir áhrifum áfengis . Sutherland var formlega ákærður í gær fyrir að hafa í tvígang verið tekinn drukkinn undir stýri. Hann gæti átt von á að minnsta kosti fjögurra daga gæsluvarðhaldi 29.9.2007 17:15
Þjófar stela nýjasta handriti Coppola Þjófar í Argentínu stálu tölvu bandaríska kvikmyndaleikstjórans Francis Ford Coppola, en í henni var handrit af nýjustu kvikmyndinni sem Óskarsverðlaunahafinn vinnur að. Fimm vopnaðir menn réðust inn í hús leikstjórans í Palermo hverfinu í Buenos Aires, en þar býr efnameira fólk borgarinnar. Þeir létu greipar sópa og tóku meðal annars tölvur og myndavélar. 29.9.2007 13:55
Viggo tók soninn með í Kristjaníu Danski leikarinn Viggo Mortensen tók 19 ára gamlan son sinn með sér er hann heimsótti fríríkið Kristjaníu fyrr í sumar. Þetta kemur fram í viðtali blaðsins Nyhedsavisen í dag. Sjálfur var Viggo, að sögn, heimilisgestur í Kristjaníu á áttunda áratugnum. 28.9.2007 20:13
Britney snýr vörn í sókn Vandræðagemsinn Britney Spears hefur nú snúið vörn í sókn gegn paparazzi-ljósmyndurum sem elta hana á röndum. Síðastliðinn miðvikudag þegar þeir stóðu í hnapp límdir upp við rúðuna á mexíkóskum veitingastað í Los Angeles, þar sem Britney snæddi kvöldverð, kom hún þeim á óvart með því að taka upp eigin myndbandsupptökuvél og beina henni að þeim. 28.9.2007 16:00
Kattarslagur í Sex and the City Um þessar mundir er verið að taka upp Sex and the City: The Movie sem er byggð á samnefndum sjónvarpsþáttum um líf fjögurra vinkvenna á Manhattan í New York. Þættirnir hafa notið gríðarlegra vinsælda undanfarin ár en þrátt fyrir að allt viðrist með felldu á tökustað þá kraumar víst pirringur og óánægja undir niðri. 28.9.2007 13:54
Jackson EKKI genginn út Talsmaður Michael Jacksons hefur borið til baka sögusagnir um að söngvarinn sé genginn út. „Þrátt fyrir þrálátan orðróm um að Jackson hafi gengið að eiga barnfóstru barna sinna, Grace Rwaramba, get ég staðfest að hann er ekki á rökum reistur,“ segir Rayone Bain, talsmaður söngvarans, í samtali við Access Hollywood. 28.9.2007 12:33
Beckham biður fyrir föður sínum David Beckham er nú staddur í London til að vera við hlið föður síns sem liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir að hafa fengið alvarlegt hjartaáfall á miðvikudag. Fjölskylduvinur segir David og systur hans miður sín og að þau hafi miklar áhygggjur af föður sínum, Ted Beckham. Þau vona og biðja til guðs að hann nái sér og David mun ætla að dvelja í London eins lengi og þörf er á. 28.9.2007 11:22
Oprah launahæsta sjónvarpsstjarnan Bandaríski spjallþáttastjórnandinn Oprah Winfrey er samkvæmt nýútkomnum lista Forbes tímaritsins launahæsta sjónvarpsstjarnan og þénar fjórfalt meira en sú næsta í röðinni. Á tímabilinu júní 2006 til júlí 2007 voru laun hennar samtals 260 milljónir Bandaríkjadala. 28.9.2007 10:41
Madonna meðal tilnefndra í Hall of fame Madonna, the Beastie Boys og Donna Summer eru meðal þeirra sem tilnefnd hafa verið í heiðurshöll tónlistarmanna (US Rock and Roll Hall of Fame), samkvæmt Billboard tímaritinu. Þá hafa Leonard Cohen, John Mellencamp, Chic, the Dave Clark Five og Afrika Bambaataa einnig verið tilnefnd. 28.9.2007 10:10
Nýjasta handriti Coppola stolið Fimm vopnaðir þjófar réðust inn á heimili bandardíska kvikmyndaleikstjórans Francis Ford Coppola í gær og rændu meðal annars fartölvu sem í var handrit að væntanlegri kvikmynd leikstjórans sem mun heita Tetro. 28.9.2007 09:05
Eyþór tekur glæsieign í Þingholtsstræti í gegn „Við sáum þarna einfaldlega kærkomið tækifæri og vildum taka þátt í því endurreisnarstarfi sem hefur verið í gangi í Þingholtunum,“ segir bæjarfulltrúinn Eyþór Arnalds en hann og eiginkonan Dagmar Una Ólafsdóttir keyptu í sumar hundrað ára gamalt timburhús við Þingholtsstræti 21. 28.9.2007 00:01
Pönkið aftur í sviðsljósið "Ég bara treysti því að menn fari vel með þetta," segir tónlistarmaðurinn Einar Örn Benediktsson en annað kvöld, föstudag, verða tónleikar á Grand Rokk, Smiðjustíg 6, þar sem fram kemur hljómsveitin P.P. Um er að ræða svokallað "tribute"-band eða hljómsveit sem gagngert hefur verið sett saman til heiðurs hljómsveitinni Purrki Pillnikk en sú hljómsveit hélt lokatónleika sína fyrir réttum aldarfjórðungi. 27.9.2007 18:55
Stjörnurnar og sléttujárnið Hjá stjörnum sem daglega eru í sviðsljósinu getur skipt sköpum að hafa hárið í lagi. Sumar leyfa því að liðast frjálslega um andlitið á meðan aðrar virðast halda lykillinn að fullkomnu útliti felist í að ríghalda um sléttujárnið og stilla hitastigið í botn. 27.9.2007 16:43
Michael Jackson genginn út? Samkvæmt heimildum ameríska slúðurblaðsins National Enquirer mun konungur poppsins, Michael Jackson, vera genginn út, enn eina ferðina enn. Þrátt fyrir að menn úr herbúðum söngvarans neiti þeim sögusögnum þá hefur blaðið birt afrit af gögnum þar sem Jackson staðfestir að hann sé kvæntur. 27.9.2007 16:00
Pamela og Denise Richards saman á forsíðu Playboy? Vinkonunum Pamelu Anderson og Denise Richards hefur verið boðið að sitja fyrir naktar í Playboy fyrir eina milljón Bandaríkjadala eða um 62 milljónir íslenskra króna. Fréttir herma að þær stöllur, sem báðar hafa setið fyrir í blaðinu áður, íhugi alvarlega að taka tilboðinu. 27.9.2007 15:00
Frægðarsól Moss dvínar Síðastliðið haust var Kate Moss á hátindi frægðarinnar þrátt fyrir bakslag árið 2005 þegar myndir af henni við eiturlyfjaneyslu láku út. Í kjölfarið rifti fjöldi vöruframleiðenda samningum við hana en að ári liðnu var hún orðin eftirsóttari en nokkru sinni fyrr. 27.9.2007 14:16