Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Yfir sig ástfangin Mikið hefur gengið á í lífi söngkonunnar Janet Jackson undanfarið. Hún hefur grennst um 27 kíló, er byrjuð að lesa kvikmyndahandrit og ný plata er væntanleg frá söngkonunni innan skamms. Platan ber nafnið 20 years old og mun vera ástarjátningar Janet til kærasta síns, útgefandans Jermaine Dupri. Hann er ástæðan fyrir því að ég er enn á lífi, segir Janet Jackson 2.8.2006 09:00
Næsta smáskífa í spilun í lok ágúst Söngsveitin Nylon er á leiðinni á enn aðra tónleikaferðina um Bretlandseyjar. Nú hafa þær ákveðið að slást í för með bresku sveitinni McFly en bandið er eitt það allra vinsælasta í Bretlandi og til að mynda var nýjasta lagið þeirra í efsta sæti breska listans í síðustu viku. Nylon er að leggja lokahönd á fyrstu breiðskífu sína á ensku en stelpurnar hafa verið að vinna með erlendum upptökustjórum í Sýrlandi í Reykjavík undanfarna daga. Platan kemur að öllum líkindum út í byrjun október. 2.8.2006 01:25
Hrókurinn kominn til Grænlands Alls lögðu 23 liðsmenn upp frá Reykjavíkurflugvelli í gær, mánudag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra og starfandi forsætisráðherra, kvaddi leiðangursmenn og lofaði starf Hróksins meðal Grænlendinga. 1.8.2006 17:30
"Rauðhetta, Dýrkonur og aðrar verur í undurfögrum óbyggðum" Laugardaginn 5. ágúst 2006, klukkan 14 opnar Karin Leening sýninguna "Rauðhetta, Dýrkonur og aðrar verur í undurfögrum óbyggðum" á Café Karólínu í Listagilinu á Akureyri. Í list Karinar Leening “er allt mögulegt” segir hún. Karin málar, teiknar, býr til teiknimyndir og kennir börnum myndlist af ástríðu. 1.8.2006 16:00
Vann afnot af bifreið í ár Í tilefni 20 ára afmælis Lýsingar í ár var opnaður nýr vefur 1. júní, www.lysing.is. Þá efndi Lýsing til vefleiks þar sem notendur vefjarins gátu giskað á hversu mörgum árum fyrirtækið fagnar. Tæplega fimm þúsund manns tóku þátt í leiknum sem telst afar gott og voru mjög margir með rétt svar. 1.8.2006 13:40
Uppseldur hjá útgefanda Nýr geisladiskur frá KK, Blús, náði Íslandsströndum um miðja síðustu viku eftir hinar undarlegustu hrakningar sem töfðu útgáfuna og framkölluðu útgáfublús. En gleðin var ekki langt undan því eftirvænting og áhugi fyrir disknum hefur ekki leynt sér og er fyrsta upplag nú uppselt hjá útgefanda. 31.7.2006 17:45
Skákhátíð á Grænlandi hefst á þriðjudag Skákfélagið Hrókurinn heldur fylktu liði til Grænlands nú í vikunni, þar sem efnt verður til skákhátíðar fjórða árið í röð. Hátíðin stendur í heila viku og nær til þorpa og bæja á austurströnd Grænlands. 31.7.2006 17:30
Féll í yfirlið Leikkonan unga Lindsey Lohan féll í yfirlið við tökur á nýjustu mynd sinni „Georgia Rule“ á dögunum. Orsökin mun vera 40 stiga hiti og langur vinnudagur því Lohan var víst búin að vera við vinnu í 12 klukkutíma þennan tiltekna dag. Farið var með hana upp á spítala og henni gefið vatn og næringu í æð. Allt fór á hinn besta veg og mætti Lohan í vinnu strax daginn eftir. Þetta ýtir hins vegar undir þær sögusagnir að hún þjáist af átröskun en þeim ásökunum hefur hún alltaf neitað. 29.7.2006 18:00
Hittu Hebba á Klaustri Ferðalag hjólagarpanna þriggja, þeirra Gísla Hvanndals Ólafssonar, Guðjóns Heiðars Valgarðssonar og Dagbjarts Ingvarssonar, sem hjóla nú hringinn í kringum landið til að kynna starfsemi Spes samtakanna, gengur vel. Strákarnir eru nú staddir á Austurlandi en eru á norðurleið. Gísli hefur átt í vandræðum með hjólið sitt, margoft hefur sprungið á því og hefur hann þurft að bíða eftir varahlutum. 29.7.2006 16:00
Allt er gull sem glóir Gulllitaður klæðnaður byrjaði að ryðja sér til rúms innan tískunnar í kringum diskótímabilið. Þá var glamúr allsráðandi og allt sem glitraði var í tísku. Hipphopparar hafa síðan tekið yfir gullið og færðu það yfir á okkar tíma með risastórum gullhálsmenum sem þeir kalla svo skemmtilega "bling bling". 29.7.2006 15:30
Hljóðheimur fortíðar Fiðluleikarinn Kati Debretzeni leiðir Bachsveitina á Sumartónleikum í Skálholti í dag þar sem flutt verða verk eftir Locatelli, Quantz og Mozart. Þetta er í annað sinn sem Debretzeni kemur hingað til að leika í Skálholti en í vikunni gerði hún stormandi lukku ásamt Bachsveitinni þegar þau fluttu Árstíðir Vivaldis. 29.7.2006 15:00
Ástarþríhyrningur Umu Uma Thurman og hótelmógúllinn Andre Balazs hafa verið sundur og saman lengi en Uma sást á dögunum með leikstjóranum Quentin Tarantino. Orðrómur um ástarþríhyrning fékk byr undir báða bængi þegar Uma og Quentin eyddu góðum tíma saman í New York í eftirpartíi eftir nýjustu mynd Umu, My super ex-girlfriend. "Uma sat í fangi Quentin í dágóðan tíma," sagði heimildamaður OK!-tímaritsins. Þegar þrumuveður skall á þaki klúbbsins þar sem partíið var haldið hlupu allir í skjól og Quentin tók sig til og greip í Umu og hélt á henni inn. 29.7.2006 14:30
Leyfir landsbyggðinni að njóta Kontrabassaleikarinn Dean Ferrell í ferðast nú um landið og fremur tónlistargjörning ásamt frönsku listakonunni Anne Corte sem les ljóð á móðurmáli sínu. 29.7.2006 14:00
Undirbýr tónleika á Miklatúni Hrannar Hafsteinsson og félagar hjá hljóðkerfisleigunni Exton hafa unnið baki brotnu síðustu daga við að koma upp heljarinnar sviði á Klambratúni. Sviðið verður notað undir tónleika hljómsveitarinnar Sigur Rósar og strengjasveitarinnar Amiinu sem fram fara annað kvöld. Hrannar er enginn nýgræðingur í bransanum en hann hefur verið aðaltæknistjóri Hróarskelduhátíðarinnar síðustu ár. 29.7.2006 13:45
Framúrstefnulegt Hin serbneska Roksanda Ilincic er búin að ná athygli í tískuheiminum fyrir framúrstefnulega hönnun og vægast sagt glæsilega kjóla. Hún byrjaði að læra arkitektúr í Belgrad en flutti svo til London og útskrifaðist úr hinum margrómaða Central Saint Martins listaháskóla árið 2000. 29.7.2006 13:30
Máfurinn í Elliðaárdalnum Leikfélagið Sýnir lætur ekki bugast af íslenskum umhleypingum og óstöðugu veðurfari heldur tjaldar því sem til er uppi í Elliðaárdal og frumsýnir Máfinn eftir Anton Tsjekhov í dag. 29.7.2006 13:00
Gular og glaðar í heimsendingum Undanfarnar vikur hafa gulir bílar vakið talsverða athygli á götum Reykjavíkurborgar. Hér er um að ræða bíla frá Foodtaxi.is sem sendast með mat til fólks eftir pöntunum. Sendlar fyrirtækisins hafa ekki síður vakið athygli fyrir gula búningana og glaðlegt viðmót. 29.7.2006 12:30
Nýtt gallerí í Hafnarfirði Níu listakonur hafa tekið sig saman og opna í dag nýtt gallerí til húsa á Linnetstíg í Hafnarfirði. Galleríið heitir eftir Thorsplaninu sem það stendur við og ber þann virðingarverða titil Gallerí Thors. 29.7.2006 12:00
Sveitt stemning á Nasa Fullt var út úr dyrum á tónleikum skosku hljómsveitarinnar Belle & Sebastian á Nasa á fimmtudagskvöldið. Emilíana Torrini hitaði upp og var henni vel tekið af áhorfendum. Sérstaka athygli vöktu tvö ný lög söngkonunnar sem voru kraftmeiri en flest sem hún hefur áður gert. Belle & Sebastian steig svo á svið við mikinn fögnuð viðstaddra. Sveitin lék í tæpa tvo klukkutíma og tók mörg af sínum þekktustu lögum en lög af nýju plötunni, The Life Pursuit, voru áberandi. Tónleikarnir voru nokkuð vel heppnaðir í heildina og þeir sem eiga miða á tónleikana á Borgarfirði eystri í kvöld geta átt von á góðu. 29.7.2006 11:00
Systur og sandpappír Franski myndlistarmaðurinn Serge Comte opnaði sýningu í gærdag í 101 gallerí. Þar kenndi ýmissa grasa en meginverk sýningarinnar eru flutningabretti sem skreytt hafa verið með glimmeri í ýmsum litum. 29.7.2006 10:00
Öll dýrin í skóginum RJ er tækifærissinnaður og eigingjarn þvottabjörn sem kemst í hann krappann eftir að hann klúðrar ráni á matarbirgðum geðstirðs bjarndýrs. Góssið skemmist þegar bangsi grípur meistaraþjófinn glóðvolgan og RJ er gefin vika til þess að hamstra saman nýjum lager eða gjalda annars með lífi sínu. 29.7.2006 09:00
Handverksrúnturinn Glöggir ferðamenn hafa án efa tekið eftir óvenjulegu ökutæki sem nú þeysir um þjóðveginn. Handverksbíllinn er rækilega merktur og vekur víða furðu en þar er á ferðinni þjónustubifreið fyrir staðbundið handverksfólk. Bíllinn minnir um margt á gömlu kaupfélagsbílana sem keyrðu um sveitir landsins hér á árum áður og má því segja að Handverkshúsið færi okkur aftur gömlu steminguna í bæinn. 28.7.2006 15:00
Sumartónleikar nr. 100 í Akureyrarkirkju Fimmtu og síðustu Sumartónleikar í Akureyrarkirkju þetta sumarið verða haldnir sunnudaginn 30. júlí kl. 17. Þessir tónleikar eru auk þess að vera á tuttugasta starfsári, eitt hundruðustu í tónleikaröðinni í Akureyrarkirkju frá upphafi tónleikahaldsins árið 1987. 28.7.2006 15:00
Fékk Elle Macpherson í heimsókn um helgina "Elle Macpherson var hér á landi um helgina í fríi og hafði samband við mig til að spjalla. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem hún kemur hingað," segir Georg Guðni Hauksson myndlistarmaður. Hann vill þó lítið tjá sig um samskipti sín við fyrirsætuna. Georg Guðni og Elle þekkjast síðan hann hélt myndlistarsýningu í Los Angeles í janúar og hreifst hún af málverkum hans og festi kaup á einu þeirra. 28.7.2006 14:00
Nýtt íslenskt leikrit Afgangar er nýtt leikrit um ást og tælingu eftir leikskáldið og leikstjórann Agnar Jón Egilsson. Persónur verksins eru par um þrítugt sem hittist á hótelherbergi en það á sér leyndarmál sem brátt koma upp á yfirborðið. 28.7.2006 14:00
Meðalgóður millikafli Pirates of the Caribbean: The Curse of the Black Pearl varð öllum að óvörum smellur árið 2003. Rétt eins og alltaf í Hollywood, þegar kvikmynd nær hæstu hæðum í miðasölunni, verður að búa til framhaldsmynd og nú eru þær ekki bara ein heldur tvær. 28.7.2006 13:30
The Go! Team á Airwaves Ærslabelgirnir í hljómsveitinni The Go! Team hafa bæst við fríðan flokk þátttakenda á Iceland Airwaves í ár. Er koma þeirra mikill fengur fyrir hátíðina enda þykir bandið með eindæmum skemmtilegt á sviði og hefur tónlist þess fengið glimrandi viðtökur hlustenda beggja vegna Atlantsálanna. 28.7.2006 13:00
Nylon sigurvegari hjá The Sun Nylon-stelpurnar þykja líklegastar til að verða "heitasta" stúlknasveitin í Bretlandi ef marka má niðurstöðuna úr vefkönnun götublaðsins The Sun. Keppnin stóð á milli þeirra og hljómsveitarinnar Stonefoxx en íslensku stelpurnar sigruðu með rússneskri kosningu, rúmlega 91 prósent atkvæða féll þeim í skaut. 28.7.2006 12:30
Tónlistarsumarið mikla Sumarið er tími tónlistarhátíða í Evrópu eins og Steinþór Helgi Arnsteinsson hefur komist að síðasta einn og hálfan mánuð. Hann hefur heimsótt sex hátíðir og sagt frá upplifun sinni hér í Fréttablaðinu. Nú er komið að ferðalokum og Steinþór gerir upp sumarið. 28.7.2006 12:00
Aparnir í Eden Út er komin önnur hljómskífa hinnar margrómuðu Köntrísveitar Baggalúts, á vegum útgáfufélagsins Geimsteins. Hljómskífan ber titilinn „Aparnir í Eden" og geymir 21 köntríslagara - einkum frumsamið sjávarútvegs- og strandköntrí (e. Hawaiian) en þó ber þar nokkuð á bæði innsveita- (e. bluegrass) og hálendisköntríi (e. western), eins og á fyrri skífu Baggalúts, „Pabbi þarf að vinna". 28.7.2006 11:02
Tökur á Astrópíu ganga vel Tökur á kvikmyndinni Astrópíu eru í fullum gangi í Hafnarfirði um þessar mundir. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur verið rífandi gangur og er myndin vel á áætlun. 28.7.2006 11:00
Verulegt fjör án vímuefna Útihátíð SÁÁ verður haldin með pompi og prakt í Hvalfirðinum um helgina. Hátíðin er skipulögð fyrir félagsmenn í SÁÁ og þá sem lokið hafa meðferð, auk aðstandenda þeirra, en allir sem vilja skemmta sér án áfengis og vímuefna eru velkomnir. 28.7.2006 10:00
Sópranrödd og orgel Sópransöngkonan Margret H. Ponzi heldur þrenna tónleika ásamt orgel- og píanóleikaranum Marco Belluzzi á næstunni. Þeir fyrstu fara fram í Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld kl. 20.30. Á efnisskrá tónleikanna eru sönglög og Maríukvæði, meðal annars eftir Schubert, Verdi, Bizet og Liszt auk laga eftir Sigvalda Kaldalóns og Eyþór Stefánsson. 28.7.2006 09:00
Sýning sem er betri en kynlíf Föstudagskvöldið 18. ágúst mun verða ógleymanlegt fyrir hátt í 1000 íslenskar konur. Þær munu þá troðfylla Broadway til að berja augum fullkomustu karlmenn heims, sem eru á leiðinni til Íslands í þeim eina tilgangi að skemmta konum hérlendis sem aldrei fyrr, tilbiðja þær og dýrka, í einu og öllu. 27.7.2006 19:45
Örlagadagur Ragnars Skjálfta Næstkomandi sunnudag, 30. júlí, ræðir Sirrý við Ragnar Stefánsson um stóra örlagadaginn í lífi hans. Fyrir nokkrum árum lenti þessi þjóðþekkti vísindamaður í alvarlegu bílsslysi þar sem ungur samstarfsmaður hans lést. 27.7.2006 17:15
Botnleðja og Kátir piltar gera plötu saman Þetta verkefni er nú ekki farið almennilega af stað. En jú, ég get staðfest að við í Botnleðju erum að fara að gera plötu með Kátum piltum, segir Heiðar Örn Kristjánsson tónlistarmaður. Heiðar og Haraldur Freyr Gíslason, félagi hans úr Botnleðju, eru með hörðustu stuðningsmönnum knattspyrnuliðs FH. 27.7.2006 17:00
MAN -MEN í Ketilshúsinu Hrefna Harðardóttir myndlistarkona opnaði sýninguna : MAN - MEN, í Ketilhúsinu í Listagilinu Akureyri, laugardaginn 22. júlí. Sýningin verður opin til 13. ágúst og er opin frá 13-17 alla daga nema mánudaga 27.7.2006 16:45
Fær konunglegar móttökur Heimsbyggðin bíður spennt eftir nýjustu Bond - myndinni, Casino Royal. Daniel Craig reynir þar við við leyniþjónustumanninn í smókinginum eftir að Pierce Brosnan sagði upp en framleiðanda myndarinnar, Barböru Broccoli, leist svo vel á frammistöðuna að hún bauð honum hlutverkið aftur. 27.7.2006 16:00
Hætt að drekka Rokkarabarnið Kelly Osbourne, dóttir þungarokkarans Ozzy Osbourne, segist vera hætt að drekka, fyrir fullt og allt. Hún og bróðir hennar, Jack Osbourne, hafa bæði átt í vandræðum með ofneyslu á áfengi en hann hætti að drekka fyrir tæpu ári síðan. 27.7.2006 15:30
Sessý og Sjonni á Hressó Dúettinn “Sessý og Sjonni” skipaður þeim Sesselju Magnúsdóttur söngkonu og Sigurjóni Alexanderssyni gítarleikara leikur á Hressó í kvöld. Búast má við tónlist úr ýmsum áttum en aðallega að gleði verði mál málanna. 27.7.2006 15:15
Íslendingar á Edinborgarhátíðinni Íslendingar verða áberandi á kvikmyndahátíðinni í Edinborg sem hefst eftir nítján daga. Kvikmyndin Dead Mans Card verður í flokknum British Gala en þetta er kvikmynd í fullri sem framleidd er af Sigvaldi J. Kárasyni og félögum hans í Stray Dogs Films. 27.7.2006 15:00
Bónusfjöltefli í Kringlunni Róbert Harðarson skákmeistari teflir fjöltefli við gesti og gangandi fyrir framan verslun Bónuss í Kringlunni, föstudaginn 28. júlí, milli klukkan 16 og 18. Jafnframt munu Hróksmenn kynna landnám skáklistarinnar á Grænlandi, en þar hefst í næstu viku mikil skákhátíð, fjórða árið í röð. 27.7.2006 15:00
Árstíðir Vivaldis í Skálholti Bachsveitin flytur Árstíðirnar fjórar eftir Antonio Vivaldi á tónleikum í Skálholti í kvöld kl. 20 en verkið heyrist nú í annað sinn á Sumartónleikum í Skálholti. Árstíðirnar eru meðal vinsælustu verka tónbókmenntanna og voru síðast fluttar á Sumartónleikunum árið 1990. 27.7.2006 14:45
Kvöldganga í Kvos Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur fer fyrir kvöldgöngu um Kvosina í miðbæ Reykjavíkur þar sem hann mun fjalla um útilistaverk sem setja svip á borgina og fjalla um tilgang listar í almenningsrými. 27.7.2006 14:00
„Heita sætið“ hefur aldrei verið heitara Djassgeggjunin á Q-bar heldur áfram í kvöld og nú er röðin komin að Agli Ólafssyni að verma heita sætið. Egill er landsþekktur tónlistarmaður, leikari og skemmtikraftur sem vart þarf að kynna. 27.7.2006 13:41