Fleiri fréttir

Russell í Tarantino-mynd

Margir hrollvekjuaðdáendur bíða eflaust spenntir eftir kvikmyndatvíeykinu Grind House sem er skrifað og leikstýrt af félögunum Robert Rodriguez og Quentin Tarantino en þetta eru tvær 75 mínútna hryllingsmyndir sem settar eru saman í eitt.

Ljóðabók með bulltextum

Grínistinn Þorsteinn Guðmundsson er að leggja lokahönd á ljóðabók sem hann vonast til að geta gefið út fyrir verslunarmannahelgina. Bókina vinnur Þorsteinn með Eiríki Erni Norðdahl sem skrifar einnig formála að bókinni. Titillinn er nokkuð sérstakur, Barkakýli úr tré.

Barroktónlist í fyrirrúmi á tónleikum í Hallgrímskirkju

Bine Bryndorf, prófessor í orgelleik við Konunglega Tónlistarháskólann (Konservatoríið) í Kaupmannahöfn er gestur Alþjóðlegs orgelsumars 29. og 30. júlí næstkomandi. Hún hefur sérstaklega lagt sig eftir túlkun barroktónlistar og þá sérstaklega tónlistar Dietrich Buxtehude sem var organisti í fæðingarbæ Bine, Helsingjaeyri, áður en hann færði sig til Lübeck sem flestir tengja hann við.

Þar sem myrkraverkin gerast

Hryllingsmyndasumarið heldur áfram á Íslandi en í gær var kvikmyndin Silent Hill frumsýnd. Hún er byggð á vinsælum tölvuleik frá Konami-fyrirtækinu en myndir byggðar á tölvuleikjum hafa yfirleitt ekki náð þeim hæðum sem vonast hefur verið til.

Magni áfram

Magni Ásgeirsson komst áfram í kvöld í Rock Star: Supernova sem sýndur er á SkjáEinum. Magni var aldrei í hættu á að detta út á meðan atkvæðagreiðslu stóð síðastliðna nótt.

Krás á köldu svelli

Geisladiskurinn Krás á köldu svelli er kominn út. Rætur geislaskífunnar Krás á köldu svelli teygja sig langt í tíma og rúmi. Hér eru á ferð þjóðlög og vísur, frumsamin lög við þjóðvísur og frumorta texta. Útsetningar eru sérstæðar þar sem indverskur ásláttur er í fyrirrúmi.

Handstúkugerð í Laufási

Minjasafnið stendur fyrir Örnámskeiði í handstúkugerð í Gamla presthúsinu í Laufási fimmtudaginn 27. júlí frá kl 20 – 22. Leiðbeinandi er Guðrún Hallfríður Bjarnadóttir (Hadda). Prjónað verður eftir handstúkum sem eru í eigu Minjasafnsins á Akureyri.

Íslenskunám í sumarvinnu

Föstudaginn 21. júlí efnir Sumarskólinn til lokahófs milli 11:00 – 13:00 í Austurbæjarskóla. Þar verður sýning á verkefninu Málrækt í sumarvinnu og þátttakendur á íslenskunámskeiði munu skemmta gestum.

Aukin aðsókn í hundabað

Stöðin er búin að vera starfrækt í eitt og hálft ár og aðsóknin er alltaf að aukast, segir Vilhelm Guðjónsson, vaktstjóri hjá Löðri ehf., sem starfrækir hundaþvottastöð samhliða bílaþvottastöð sinni í Stekkjabakka. Þetta er ætlað hundaeigendum sem hafa ekki aðstöðu til að þrífa hundana heima hjá sér enda getur það uppskorið mikið vatnssull.

Botox stríð

Í nýjasta hefti tímaritsins Vogue er viðtal við ofurfyrirsæturnar Lindu Evangelistu og Christy Turlington. Þar tala þær um hrukkabanan Botox, efni sem sléttir út húðina og er mjög vinsælt í Hollywood. Botox er umdeilt efni og hafa fjölmargir læknar lýst því yfir að það sé eitrað fyrir húðina.

Artfart hjá Ó. Johnson & Kaaber

Ungir listamenn hafa hreiðrað um sig í fyrrum flaggskipi kaffiveldisins Ó. Johnson & Kaaber við Sætún í Reykjavík.

Pottþétt 41 að koma út

Nýjasta safnplatan í Pottþétt röðinni vinsælu kemur út þriðjudaginn 1. ágúst. Á plötunum er að finna flest af vinsælustu lögum dagsins í dag ásamt vinsælustu íslensku lögunum þessa dagana.

Bradford slær til baka

Stóra Colin Farrell málið, sem fjölmiðlar vestur í Bandaríkjunum kalla svo, heldur áfram því fyrirsætan Dessareae Bradford, sem veittist að leikaranum í kvöldþætti Jay Leno í síðustu viku, hefur höfðað mál á hendur honum og krefst 730 milljón króna í skaðabætur.

Andlitin í fjöllunum

Með dyggri aðstoð og innblæstri af óvenjulegum tilverustigum aftan úr grárri forneskju hefur Halldóra Malín Pétursdóttir leikkona samið verk um vætti og álfa sem hún frumsýnir í kvöld. Leikhúsið er gamalt pósthús í númeri 720.

Fórnar pinnunum

Hin nýgifta söngkona Christina Aguilera hefur nú látið alla pinna og hringi fjúka sem hún hefur skreytt líkama sinn með undanfarið. Aguilera var meðal annars með pinna í geirvörtunni og einn á viðkvæmari stað en nú hefur hún tekið það burt í virðingaskyni við hjónaband sitt og dansarans Jordan Bratman.

Þórhallur í loftið á Voice

VOICE 987 kynnir nýjasta meðlim VOICE hópsins Þórhall Guðmundsson og þátt hans Lífsaugað en þann 8. ágúst n.k. mun hinn landsþekkti útvarpsmaður og miðill, hefja störf á VOICE 987.

Frábær byrjun á ferðalagi Sigur Rósar

Liðsmenn hljómsveitarinnar Sigur Rósar hófu yfirreið sína um landið með tónleikum í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík á mánudagskvöld. Félagsheimilið var troðfullt af gestum, bæði heimamönnum og nærsveitamönnum og erlendum aðdáendum sveitarinnar sem fjölmennt hafa hingað til lands af þessu tilefni.

Gróf atriði

Hin unga leikkona Dakota Fanning var að ljúka við tökur á kvikmyndinni Houndog í síðustu viku. Minnstu munaði að tökurnar mundu ekki klárast því í myndinni eru gróf atriði sem innihalda barnanauðgun og dýramisnotkun.

Hasselhoff opnar sig

Söngleikur um líf Baywatch hetjunnar David Hasselhoff er nú í bígerð en hvatamaður söngleiksins er enginn annar en hann sjálfur. Söngleikurinn mun segja frá lífi og starfi leikarans sem nú er 54 ára en hann hefur glímt við alkóhólisma lengi.

Rokkfjölskyldan á kafi í heyskap fyrir austan

Lífið gengur sinn vanagang á Brekkubæ á Borgarfirði Eystra sem er æskuheimili Rokkstjörnunnar Magna Ásgeirssonar. Þegar blaðamaður og ljósmyndari Fréttablaðsins litu þar við um helgina var Ásgeir Arngrímsson, faðir Magna, á kafi í heyskap ásamt syninum Arngrími Viðari og barnabarninu Ásgeiri Boga Arngrímssyni.

Hurley giftir sig

Enn bætast við stjörnubrúðkaup en fyrirsætan Elizabeth Hurley ætlar að giftast kærasta sínum Arun Nayer í september. Þau ætla að halda stórt brúðkaup í ensku sveitinni og halda svo til Indlands sem er heimaland Nayers til frekari hátíðarhalda. Boðslistinn í brúðkaupið er talinn vera fullur af þekktum nöfnum í skemmtanalífinu.

Magni stóð sig vel

Magni Ágeirsson hélt áfram að standa sig vel í þætti Rock Star Supernova í nótt og hélt uppi heiðri Íslands með glæsilegum hætti. Magni sem söng lagið Heroes eftir David Bowie, fékk misgóða dóma frá dómnefndinni í þetta skiptið.

IBM hjá 4AD og 12 Tónum í haust

Dansverkið IBM 1401, a users manual eftir Ernu Ómarsdóttur dansara og Jóhann Jóhannsson tónskáld verður sýnt í sextugasta sinn í dag sem hluti af danshátíð sem fram fer í ítölsku borginni Drodesera.

Kutcher með eftirsjá

Leikarinn ungi Ashton Kutcher nagar sig í handarbökin þessa dagana þar sem hann neitaði hlutverki Supermans í nýju myndinni sem frumsýnd var fyrr í mánuðinum. Myndin heftur trónað á toppi vinsældalista vestanhafs síðan hún var frumsýnd og ætti því að hala inn dágóðum summum.

Menn og hugmyndir

Listakonan Steinunn Þórarinsdóttir tekur þátt í samsýningu á vegum gallerísins Osborne Samuel í London en hún ber yfirskriftina "Heads, Figures and Ideas". Yfirskriftin vísar til samnefndar bókar sem listamaðurinn Henry Moore gaf út árið 1958.

Nylon fellur um 23 sæti í Bretlandi

Loosing a Friend, fyrsta smáskífa Nylon flokksins á Bretlandi, er kominn niður í 52.sætið á breska smáskífulistanum eftir að hafa farið beint í 29.sætið í sinni fyrstu viku. Einar Bárðarson, umboðsmaðurinn stúlknanna, segir þetta þó vera ásættanlegan árangur. Við gerðum okkur aldrei vonir um neitt meira en í flestum tilvikum ná hljómsveitirnar sínum besta árangri í fyrstu vikunni, útskýrir Einar en segir jafnframt að þau hafi gert sér vonir um meiri útvarpsspilun á laginu Loosing a Friend. Úr því eigi að bæta með næstu smáskífu.

Sparrow er mættur aftur

Talið var að Pirates of the Carabbean: Dead Mans Chest myndi njóta mikillar velgengni á þessu sumri en tímaritið Newsweek gekk jafnvel svo langt að spá henni sigri í kapphlaupi kvikmyndaveranna um smell sumarsins. Sú spá virðist vera ganga eftir en myndin er frumsýnd í dag.

Björk í hljóðveri

Tónlistarkonan Björk Guðmundsdóttir kemur víða við þessa dagana, ef marka má fréttir erlendra tónlistarmiðla. Pitchforkmedia.com greinir frá því að fyrir skemmstu hafi Björk unnið lítillega með Antony úr hljómsveitinni Antony & the Johnsons.

Borgardjass

Sumarið er tími djassins og það færist í aukana að boðið sé upp á hverskyns djasshátíðir og uppákomur út á landsbyggðinni. Á höfuðborgarsvæðinu er líka talsvert um að fólk taki sig saman og haldi reglubundna djasstónleika, einkum á skemmti- og veitingastöðum sem vilja lífga upp á stemninguna með lifandi tónlist.

Miðaldamarkaður á Gásum vel sóttur

Minjasafnið á Akureyri ásamt Gásahandverkshópnum stóð fyrir miðaldamarkaði á Gásum helgina 22. og 23. júlí. Þetta er í fjórða skiptið sem líf og fjör er í búðatóftum miðaldakaupstaðarins á Gásum en í fyrsta skiptið sem uppákoman varir heila helgi.

Hreindýrahamborgarar slá í gegn

Hreindýraborgarar er nýjasta nýtt í veitingahúsabransanum en þeir eru eingöngu seldir í Búllunni á Egilsstöðum. "Hreindýraborgararnir eru alveg að slá í gegn. Við erum komin með stóran kúnnahóp sem elskar að fá sér hreindýraborgara," segir Jóhanna Ingimarsdóttir, sem rekur Búlluna á Egilsstöðum ásamt manni sínum Marínó Flóvent.

Íslenskt lambakjöt og skyr í Hvíta húsið

Íslensk matvæli hafa verið að slá í gegn í Bandaríkjunum og hafa vinsældir þeirra ratað inná borð hjá forsetanum, George W. Bush. Forsagan er sú að þegar forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, fór vestur um haf og snæddi kvöldverð með þeim George og eiginkonu hans, Lauru, vegna Special Olympics, gaf Ólafur þeim íslenskan lax, lamb, skyr, osta, smjör og að sjálfsögðu Nóa Siríus súkkulaðí.

Magni syngur Heroes

Á miðnætti í kvöld heldur öskubuskuævintýri Magna Ásgeirssonar áfram þegar Rock Star: Supernova verður sýndur í beinni útsendingu Skjás eins. Tólf keppendur eru eftir en þrír eru farnir heim. Aðfaranótt fimmtudags kemur síðan í ljós hver af hinum tólf þarf að taka hatt sinn og staf.

Neitað um hlutverk

Hjónakornin og leikararnir Michael Douglas og Catherine Zeta Jones var neitað um hlutverk í gamanþáttum þar sem þau áttu að leika hjón. Framleiðendur bára það fyrir sig að aldursmunurinn væri of mikill og þau þættu því ekki trúverðug sem hjón á sjónvarpskjánum.

Öll rúm full og tjaldað í görðum

„Það búa 150 manns hér á svæðinu og við búumst við að það verði á annað þúsund manns um næstu helgi þegar allt er talið. Okkur líst bara vel á að fá alla þessa gesti, þetta verður mjög skemmtilegt,“ segir Áskell Heiðar Ásgeirsson, sem sér um skipulagningu tónleika skosku hljómsveitarinnar Belle & Sebastian á Borgarfirði eystri um næstu helgi.

Farrell fer fram á nálgunarbann

Colin Farrell hefur farið fram á lögbann á hendur fyrrum ástmey sinni, sem veittist að honum í myndveri kvöldþáttar Jay Lenos í síðustu viku. Fyrirsætan Dessarae Bradford stökk upp á svið i miðju viðtali Lenos við leikarann og hreytti í hann ókvæðisorðum.

Reynir skrifar bók um Rögnu

Reynir Traustason hætti sem ritstjóri Mannlífs vegna ágreinings við yfirstjórn Tímaritaútgáfunnar Fróða um stefnu blaðsins. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær sagði Reynir upp starfi sínu sem ritstjóri Mannlífs en hann hefur stýrt blaðinu í hálft annað ár.

Konur í Iðu

Á laugardaginn hélt Edda útgáfa boð til heiðurs rithöfundinum Liz Tuccillo sem kom hingað til landsins um helgina til að rannsaka hegðun einhleypra kvenna hér á landi fyrir næstu bók sína, How to be single.

Tónafljóð í Listasafni Sigurjóns

Tónlistarhópurinn Tónafljóð leikur í sumartónleikaröð Listasafns Sigurjóns Ólafssonar í Laugarnesi í kvöld og frumflytur meðal annars nýtt verk eftir Þóru Marteinsdóttur.

Spilar fótbolta með fastakúnnunum

Á hverjum sunnudegi klukkan 14.00 má sjá nokkra hraustlega karlmenn í tuðrusparki við Austurbæjarskóla. Það væri ekki í frásögur færandi nema að fremst í flokki hjá þessum fræknu köppum er Þorvaldur Kristinn Gunnarsson, betur þekktur sem Valdi, eigandi Geisladiskabúðar Valda á Vitastíg. Annað liðið er sett saman af Valda og fastakúnnum Geisladiskabúðarinnar. Hitt liðið er skipað rokkurum sem halda úti þungarokkssíðunni Taflan.org.

Siggi Stormur í Galtalæk

Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi Stormur veðurfréttamaður á NFS verður heiðursgestur fjölskylduhátíðarinnar í Galtalæk sem fram fer um Verslunarmannahelgina. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi heiður fellur í skaut veðurfréttamanni.

Telepathetics með breiðskífu

Frumburður íslensku hljómsveitarinnar The Telepathetics verður fáanlegur í öllum helstu verslunum landsins mánudaginn 24.júlí. Telepathetics vöktu óvænta athygli síðasta sumar þegar einn þekktasti umboðsmaður Bretlands, Alan McGee, sá þá spila á Íslandi

Hreinsunarátak við Ráðhús og í kringum Tjörnina

Í dag kl. 14.30 munu borgarstjóri, embættismenn og starfsfólk Ráðhússins, Fríkirkjuvegs 1 og 11 taka til hendinni og hreinsa í kringum Tjörnina, Ráðhúsið og byggingar menntasviðs og íþrótta- og tómstundasviðs.

Ómar lands og þjóðar

“Sumarfrí” er annar hljómdiskurinn í röðinni “Ómar lands og þjóðar “. Hér er finna lög og ljóð eftir Ómar Ragnarsson, bæði ný og gömul, sem öll fjalla um um land og þjóð.

Sjá næstu 50 fréttir