Fleiri fréttir

Öruggasta öldurhús í heimi

Öryggisgæslan í kjölfar 11. september hefur fallið misvel í kramið hjá almenningi. Kráareigandi í Berlín nýtur hins vegar góðs af eftirlitinu.

Stórsöngvari á heimavelli

Kristján Jóhannsson söngvari var staddur í sínum gamla heimabæ síðast liðinn föstudag og áritaði nýja diskinn sinn, Portami Via, í verslun Hagkaups og á Glerártorgi.

Hótel miðborg Reykjavík

Fyrir nokkrum árum var eitt hótel í hjarta miðborgar Reykjavíkur auk tveggja í næsta nágrenni. Hugmyndir voru uppi um að loka því og breyta í skrifstofur. Síðan hafa fimm bæst í hópinn, tvö eru í byggingu og eitt á teikniborðinu. 343 hótelherbergi eru í miðborginni, 160 bætast við á næsta ári og hugsanlega 200 til viðbótar innan fárra ára.

Sátt við hækkun gjalda

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að hækka áfengisgjald á sterkt vín og tóbaksgjald um sjö prósent. Edda Sigurjónsdóttir ljósmyndari segist ekki sjá neitt sérstakt að því að þessi gjöld séu hækkuð. "Mér finnst þetta bara allt í lagi því bæði áfengi og tóbak eru heilsuspillandi."

Lauklaga kúplar í Leynimýri

"Það er allt mjög gott að frétta," segir Ksenia Ólafsson, talsmaður Trúfélags rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar á Íslandi, en félagið hefur fengið vilyrði fyrir lóð undir kirkju sína í svonefndri Leynimýri í Öskjuhlíð. "Þetta er mjög spennandi, mér finnst þetta einn besti staðurinn í Reykjavík og hentar okkur mjög vel."

Ungfrú Perú er fegurst

Fegursta kona heims kemur í ár frá Perú. Ungfrú Perú bar sigur úr bítum þegar hin árlega ungfrú heimur, eða miss World, fór fram í Kína í gær. Íslenskar fegurðardrottningar áttu lengi vel góðu gengi að fagna í þessari keppni, en á síðar árum hefur farið lítið fyrir íslenskri fegurð á verðlaunapallinum.

Andarunginn í Lækjargötu

Nýr veislusalur á Litla ljóta andarunganum bætir ásýnd miðbæjarins og gæðir borgina meira lífi.

Óvenjulegar klukkur og fleira fínt

Verslun með listmuni í Listasafni Íslands er sneisafull af spennandi munum. bæði innlendum og frá frægum söfnum í New York.

Di Caprio á lélegustu setninguna

Með því að segjast vera „konungur heimsins" á skipsstafni í kvikmyndinni Titanic tókst leikaranum Leonardo Di Caprio einnig að verða konungur lélegheitanna að mati kvikmyndaáhugamanna. Setningin þykir sú lélegasta í sögu kvikmyndanna að mati þeirra sem tóku þátt í skoðanakönun í Bretlandi.

Götusalar reknir frá Coloseum

Götusalar í Róm eru í miklu uppnámi vegna þess að ákveðið hefur verið að reka þá frá Hingleikahúsinu mikla, sem hefur verið miðstöð þeirra í áratugi. Götusalanir hafa haft af því viðurværi sitt að selja gestum og gangandi minjagripi og þessháttar.

Stúlkur skara fram úr

Ísland er talsvert fyrir ofan meðaltal í könnun OECD á stærðfræðikunnáttu, eða í 10.-14. sæti, við meðaltal í lestrarkunnáttu og rétt fyrir neðan meðaltal í kunnáttu í náttúruvísindum. Langmest áhersla var á að kanna stærðfræðikunnáttu að þessu sinni í PISA-rannsókninni 2003 sem náði til OECD-landanna og annarra ríkja.

Jón Ásgeir fjórði á lista yfir áhrifamenn í breskum tískuiðnaði

Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs Group er í fjórða sæti á lista yfir hundrað áhrifamestu menn í tískuiðnaði í Bretlandi, samkvæmt áliti vikuritsins Drapers Record sem birt er í nýjasta hefti þess. Jón Ásgeir er ennfremur einn af hástökkvurnum á lista Drapers Record, stekkur up um heil 47 sæti frá síðustu könnun.

Sendiherrann söng jólavísu

Jólaljósin voru tendruð á Óslóarjólatrénu á Austurvelli í Reykjavík klukkan 16.000 í gær. Fjölmargir borgarbúar voru viðstaddir atburðinn eins og undanfarin ár og skemmtu sér vel þrátt fyrir rigningarsúld og snjóleysi.

Samið um söfnunarbauka

Viðskiptavinum Avis á Íslandi gefst brátt tækifæri til að losa sig við smápeninga sem þeir eiga afgangs og styðja um leið mannúðar- og hjálparstarf Rauða krossins.

Dagur sjálfboðaliðans

Mikið var um dýrðir á degi sjálfboðaliðans í gær þegar Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands var með opið hús í nýju húsnæði deildarinnar að Laugavegi 20.

Tíu bækur tilnefndar

Tíu bækur voru tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna eftir ákvörðun dómnefndar í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi.

Endurfundir hafa bjargað hjónaböndum og mannslífum

Lagið Endurfundir með Upplyftingu varð geysilega vinsælt þegar það kom út árið 1981 og stefnir í að verða ámóta vinsælt á ný, nú í flutningi Í svörtum fötum. Höfundurinn, Sigfús E. Arnþórsson, samdi lagið í kjallaraherbergi í Kópavogi þegar hann átti í eldheitu en stormasömu ástarsambandi við áhugaleikkonu undan Eyjafjöllum.

Leitað á heimili Michaels Jacksons

Lögreglan í Kaliforníu gerði húsleit á heimili söngvarans Michaels Jacksons, Neverland-búgarðinum, í gær. Tilgangurinn var að leita sönnunargagna í tengslum við ásakanir á hendur söngavaranum um kynferðislega misnotkun á börnum.

Sammi básúna kynþokkafyllstur

Sammi í Jagúar er kynþokkafyllsti tónlistarmaður landins í dag. Þetta er niðurstaða könnunar DV sem fjallað er um í helgarblaði. Kynslóðaskipti eru orðin og menn eins og Egill Ólafs og Bó Halldórs komast ekki á blað.

KONAN-gegn heimilisofbeldi

Í dag klukkan 16 munu nokkrir fulltrúar frá Bríeti, félagi ungra feminista kynna jólagjöfina í ár, dúkku sem hefur hlotið nafnið KONAN, í Iðu, Lækjargötu

Húsleit hjá poppgoði

Rannsóknarlögreglumenn Sýslumannsembættis Santa Barbara í Kaliforníu í Bandaríkjunum gerðu húsleit á búgarði poppgoðsins Michaels Jackson á föstudag, en hann á að mæta fyrir rétt eftir nokkrar vikur sakaður um barnamisnotkun.

Slegist um bók ráðherradóttur

Cecelia Ahern, 23 ára gamall rithöfundur og dóttir forsætisráðherra Írlands, segist engan áhuga hafa á því að feta í fótspor föður síns. Fyrsta skáldsaga hennar, Ps. Ég elska þig, sem út er kominn í íslenskri þýðingu, hefur enda fengið glymrandi viðtökur. Útgefendur og kvikmyndafyrirtæki, bæði austan hafs og vestan, hafa slegist um útgáfuréttinn.

Reykti um borð þrátt fyrir bann

Flugstjórar reyktu óáreittir um borð í flugvélum Flugleiða þó að reykingar hefðu verið bannaðar. Björn Thoroddsen flugstjóri er í hópi þeirra síðustu sem reyktu um borð.

Fókus býður í bíó

Það er kominn föstudagur og Fókus fylgir með DV í dag. Að venju er blaðið fremst í flokki fréttaflutnings úr tónlistar-, skemmtana- og bíóheimum. Fókus býður lesendum sínum í bíó, að þessu sinni á hryllingsmyndina Seed of Chucky, sem flestir ættu að hafa húmor fyrir.

Úr þrælakistu í dj-djobb á Hlemmi

Fókus fylgir DV í dag með fréttir úr skemmtana-, bíó- og tónlistarheimum. Meðal þess sem um er fjallað er nýr staður, sem býður ótakmarkað magn af bjór fyrir 2000 eða 1000 kall og hljómsveitina Aminu sem er gift Sigur Rós og loksins að gefa út plötu. Þá er einnig tekið viðtal við plötusnúðinn Mana Raknarong, sem er karókístjóri Kaffisetursins.

Klink vill Guðsmorð

Rokksveitin Klink, sem í eru m.a. Frosti Runólfsson, trommari, kvikmyndagerðarmaður og forsíðugaur Fókus, og Þröstur Johnny bassafantur í Mínus, hefur verið boðið að hita upp fyrir dauðarokksveitina alræmdu Deicide á Evróputúr. Þeir halda styrktartónleika fyrir ferðina í kvöld á Dillon.

Lögmaður Laxness stal frá honum

Danskur lögmaður Halldórs Laxness stal af honum andvirði íbúðar í byrjun sjötta áratugarins. Hann sat í fangelsi í þrjú ár fyrir fjársvik. Þetta kemur fram í nýrri ævisögu um Nóbelsskáldið.

Síbleikt jólatré

Litskrúðug jólatré hafa haldið innreið sína á heimili landsmanna

Vinningshafi í vandræðum

Maður sem fyrir tveim árum vann stærsta lottóvinning sögunnar í Bandaríkjunum upp á vel á þriðja milljarð íslenskra króna, var á þriðjudaginn handtekinn fyrir að keyra fullur og bera ólögleg skotvopn.

Þörf umræða - Grein Súsönnu í dag

Viðbrögð við grein Súsönnu Svavarsdóttur hér á Vísi, þar sem launakröfur listamanna eru í brennidepli, hefur vakið mikil viðbrögð. Sitt sýnist hverjum um þóknun til þeirra listamanna sem komu fram á tónleikum til styrktar krabbameinssjúkum börnum en mörgum þykir hár annar kostnaður sem af tónleikahaldinu hlaust. Bergþór Pálsson spyr hvort það sé ekki eðlileg krafa að opinbert uppgjör sé alltaf lagt fram þegar um peningasafnanir er að ræða?

Ætla í mál út af mynd um Alexander

Alexander mikli er ein af hetjum grískrar sögu, enda má segja að hann hafi mótað heimsveldið sem reis austur af Grikklandi. Hann lést þrjátíu og tveggja ára. Það er því óhætt að segja að Grikkjum hafi brugðið í brún þegar fréttist af nýrri kvikmynd um ævi Alexanders.

650 þúsund króna Martini

New York er heimili ofgnóttarinnar, og á Algoquin-hótelinu er hægt að panta sér drykk sem sannar þetta. Á barnum þar færst martíníhanastél sem er líkast til það dýrasta í sögunni, kostar tíu þúsund dollara eða sem nemur um sex hundruð og fimmtíu þúsund krónum. Drykkurinn er reyndar ósköp venjulegur, en í stað ísmola er demantur í glasinu, sem á að gera gæfumuninn.

Sædýrasafn innan tveggja ára

Til stendur að opna stórt og veglegt sjávardýrasafn í Reykjavík innan tveggja ára. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn fær þess vegna nýja lóð og verður stækkaður um fjórðung.

Tími tónlistarmanna líka peningar

Hljómlistarmenn hafa rætt að setja verði upp verðmat á framlag þeirra á styrktarskemmtunum, segir Björn Th. Árnason formaður Félags íslenskra hljómlistarmanna.

Gefur víst út fyrir jólin

"Það sem gerði útslagið var fjöldi áskorana frá fólki sem las fyrsta bindið og sagði að ég mætti ekki svíkja það um annað bindi," segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson, en hann ætlar að gefa út annað bindi ævisögu Halldórs Laxness fyrir þessi jól, þrátt fyrir að Almenna bókafélagið ætli ekki að gefa það út.

Dregið í VefTívíleik Vísis

Síðastliðinn mánudag var dregið í VefTívíleik Vísis. Hátt á sjötta þúsund manns tóku þátt í leiknum og var einn heppinn þátttakandi dreginn út úr þeim hópi. Vinningshafinn er Ingunn Erla Sævarsdóttir og hlaut hún í verðlaun nýjan og fullkominn NOKIA 6670 farsíma frá Hátækni.

Dregið í ferðaleik Vísis

Rúmlega 17.000 manns tóku þátt í ferðaleik Vísis og gerðu Vísi að upphafssíðu sinni. Fimm heppnir þátttakendur voru dregnir út úr þessum stóra hópi í vikunni og hlaut hver að launum gjafabréf frá Iceland Express upp á flugmiða fyrir tvo til London eða Kaupmannahafnar.

Einar og Sjón tilnefndir

Einar Kárason og Sjón eru tilnefndir fyrir hönd Íslendinga til Norrænu bókmenntaverðlaunanna 2005. Einar er tilnefndur fyrir bók sína Stormur, en Sjón fyrir Skugga-Baldur. Báðar komu bækurnar út á síðasta ári.

Sjá næstu 50 fréttir