Lífið

Vinningshafi í vandræðum

Maður sem fyrir tveim árum vann stærsta lottóvinning sögunnar í Bandaríkjunum upp á vel á þriðja milljarð íslenskra króna, var á þriðjudaginn handtekinn fyrir að keyra fullur og bera ólögleg skotvopn. Þetta er enn eitt áfallið sem maðurinn verður fyrir eftir vinninginn stóra, en margoft hefur verið brotist inn á heimili hans í kjölfarið, auk þess sem þar fannst í fyrra lík ungrar stúlku. Þá var maðurinn ákærður fyrir líkamsárás á knæpu í janúar á þessu ári.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.