Fleiri fréttir

Hópfjármagna Breakbeat-bók

„Ein mynd segir meira en þúsund orð," segir Karl Tryggvason sem ásamt samstarfsfélaga sínum á Breakbeat.is, Gunnari Þór Sigurðssyni, og hönnuðinum Ragnari Frey Pálssyni, stefnir nú á útgáfu bókarinnar Taktabrot.

Nasistamynd vekur athygli

Finnska vísindaskáldsögugrínmyndin Iron Sky hefur vakið mikla athygli á kvikmyndahátíðinni í Berlín. Hún fjallar um hóp nasista sem flýr til tunglsins í lok síðari heimsstyrjaldarinnar og leggur þar á ráðin um að frekari illvirki á jörðinni.

Mel B skottast í form

Mel B, 36 ára, æfir líkt og enginn sé morgundagurinn en hún skokkar daglega. Mel eignaðist stúlkuna Madison Brown í september í fyrra. Madison er fyrsta barn hjónanna. Fyrir á Mel dæturnar Phoenix, 12 ára, og Angel, 4 ára, og Stephen á eina stúlku fyrir, Giselle, 6 ára. Eins og sjá má á myndunum hleypur hún í samfloti við fleiri skokkara. Þá má sjá hana með eiginmanni sínum Stephen Belafonte.

Svaka sætar svo ekki sé meira sagt

Leikkonurnar Nicole Kidman, 44 ára, Cate Blanchett, 42 ára, voru klæddar í svart og hvítt þegar þær settust í dómarasætið á Tropfest stuttmyndahátíðinni sem fram fór í Sydney í Ástralíu í gær, sunnudag. Nicole var klædd í Gucci kjól og Manolo Blahnik skó en Cate var í Hussein Chalayan fötum.

Hver ber ábyrgð á neysluvenjum okkar?

Ég velti mikið fyrir mér hvernig matvöruverslanirnar stjórna kauphegðun okkar með tilboðum og afsláttum. Margir halda að þau séu að gera góð kaup en hugsa minna út í hvaða áhrif matvaran er að hafa á líkama þeirra og heilsu....

Alls ekki lesa þessa frétt á fastandi maga

Meðfylgjandi myndir voru teknar á Sjávarbarnum um helgina þegar meistarakokkarnir Magnús Ingi Magnússon, Úlfar Finnbjörnsson og Samúel Gíslason göldruðu fram víllibráðarétti...

Björn Hlynur stað Rúnars

Leikarinn og leikstjórinn Björn Hlynur Haraldsson leysir Rúnar Frey Gíslason af hólmi í leikritinu Fanný og Alexander. Rúnar Freyr hverfur á braut um hríð vegna persónulegra ástæðna og hoppar Björn Hlynur því í hlutverk stranga prestsins í sænsku fjölskyldusögunni eftir Ingmar Bergman.

Grátur og gnístran tanna

Ekki alslæm mynd, en rembist ítrekað við að græta áhorfendur. Leikararnir halda þessu uppi. Hinn ungi Thomas Horn stendur sig frábærlega í sínu hlutverki og Tom Hanks er traustur sem hressi pabbinn.

Dyraverðirnir klippa á bindin

"Dyraverðirnir verða með skæri á sér og þeir klippa á bindin,“ segir Arnar Gíslason, einn af eigendum nýs skemmtistaðar sem kemur í stað Olivers á Laugaveginum.

Eftirpartý á Næsta Bar

Edduverðlaunin fóru fram á laugardagskvöldið og mikil gleði í herbúðum kvikmynda- og sjónvarpsfólks. Eftir að verðlaunaafhendingunni lauk í Gamla Bíó skokkuðu flestir yfir götuna á Næsta Bar þar sem gleðin tók völd. Meðal þeirra sem skáluðu á barnum voru félagarnir Auðunn Blöndal og Sverrir Þór Sverrisson, en mikill skeggvöxtur þess síðarnefnda vakti athygli viðstaddra. Einnig mátti sjá leikstjórann Ragnar Bragason, stjórnmálamanninn Guðmund Steingrímsson, Þórunni Antóníu og leikstjórann Friðrik Þór Friðriksson. -áp

Fleiri myndir frá Edduverðlaununum

Edduverðlaunin, uppskeruhátíð sjónvarps-og kvikmyndabransans hér á landi, fór fram með pompi og pragt í Gamla Bíó á laugardagskvöldið. Kvikmynd Rúnars Rúnarssonar Eldfjall var sigurvegari kvöldsins með alls fimm verðlaun. Eldfjall var valin kvikmynd ársins, Rúnar Rúnarsson var leikstjóri ársins og skrifaði handrit ársins, Theodór Júlíusson var leikari ársins í aðalhlutverki og Margrét Helga Jóhannsdóttir leikkona ársins í aðalhlutverki en þau leika hjón í myndinni Eldfjall.

Ástfangin af Jackass sprelligosanum

Fyrrverandi kærasta leikarans George Clooney, Elisabetta Canalis, 33 ára, var mynduð ásamt Íslandsvininum Steve-O í Róm á Ítalíu í gærdag. Elisabetta, sem er ítölsk sjónvarpsstjarna, gaf sér tíma til að spjalla við fólk á förnum vegi á milli þess sem hún knúsaði kærastann sinn, Steve-O sem er þekktur sprelligosi úr Jackass.

Vogue til Reykjavíkur

Senn líður að tískuhátíðinni Reykjavík Fashion Festival og að vanda sýnir erlenda pressan íslenskri tísku athygli. Nú hefur verið staðfest að ítalska Vogue sendir blaðamann til að skjalfesta hátíðina fyrir sína hönd og eiga eflaust fleiri áhrifamiklir tískumiðlar eftir að fylgja í kjölfarið.

Lopez ástfangin í Rio

Jennifer Lopez, 42 ára, og unnusti hennar, Casper Smart, létu fara vel um sig á hótelherbergissvölum í Rio de Janeiro í Brasilíu í gær. Þau vinkuðu aðdáaendum söngkonunnar og hún sýndi hvað hún var þreytt eftir langt flug. Jennifer setti eftirfarandi skilaboð á Twitter síðuna sína: „Var að lenda í Rio!!! Halló allir!! Þetta er fyrsta skiptið sem ég kem á karnivalið!!!! Ég elska Brasilíu.“ Þá má einnig sjá myndir af Jennifer á flugvellinum stuttu eftir að hún lenti í Brasílíu.

Kim kaupir rúmdýnu

Sjónvarpsstjarnan Kim Kardashian verslaði eitt stykki rúmdýnu í Beverly Hills í gær. Eins og sjá má prófaði Kim dýnur ásamt vinkonu...

Myndir frá minningarathöfn Whitney Houston

Meðfylgjandi myndir voru teknar í minningarathöfn Whitney Houston í gær. Maðurinn sem hún var gift í 15 ár, Bobby Brown, strunsaði út stuttu eftir að athöfnin hófst því fylgdarliði hans bauðst ekki að sitja fremst í kirkjunni. Síðar sendi Bobby frá sér fréttatilkynningu um hvað hann var gríðarlega ósáttur hvernig komið var fram við fjölskyldu hans en kona hans brást í grát fyrir utan kirkjuna eins og sjá má á myndunum. Kærasti Whitney, Ray J, teygði sig hágrátandi eftir líkkistunni þegar hún var borin út kirkjugólfið og snerti hana. Þá hélt Kevin Costner aftur tárunum í minningarræðu sinni um samband hans og Whitney en þau urðu góðir vinir eftir að þau léku saman í kvikmyndinni Bodygard. Aretha Franklin meldaði sig veika en til stóð að hún myndi syngja við athöfnina. Alicia Keys grét á meðan hún söng. Þá söng Stevie Wonder og minntist söngkonunnar með fallegum orðum.

Edduverðlaunin í myndum

Það fór sennilegast ekki framhjá neinum að Edduverðlaunahátíðin fór fram í Gamla bíó í gær. Rúnar Rúnarsson, leikstjóri og handritshöfundur, kom sá og sigraði ásamt félögum sínum með myndina Eldfjall. Hún fékk alls fimm verðlaun. Fjöldi prúðbúinna gesta var viðstaddur hátíðina. Má þar nefna Ólaf Ragnar Grímsson forseta Íslands, Katrínu Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, Loga Bergmann Eiðsson, sem var kynnir hátíðarinnar, og marga fleiri. Daníel Rúnarsson ljósmyndari var á ferðinni og tók myndir af því sem fyrir augu bar.

M að missa sjónina

Leikkonan Judi Dench, sem leikur M í myndunum um James Bond, gæti misst sjónina áður en langt um líður. Hún sagði breska blaðinu Daily Mirror frá því að hún hefði greinst með augnsjúkdóm og hún væri nú þegar misst það mikla sjón að hún gæti ekki lengur lesið handrit, né heldur greint í sundur fólk sem hún snæddi hádegisverðinn í félagsskap við.

Tónleikar til heiðurs Cash

Minningartónleikar um tónlistarmanninn Johnny Cash verða haldnir í Lindakirkju 26. febrúar, sama dag og hann hefði orðið áttræður.

Tók 11 daga að ná frönskunum góðum

„Við erum að taka þennan mat og gera hann með hjartanu,“ segir Sigurður Karl Guðgeirsson, einn af eigendum veitingastaðarins Roadhouse, sem opnar við Snorrabraut í dag.

Sprauta blóði í hrukkurnar

Nýjasta æðið í lýtalækningum er að sprauta blóði úr handleggjum í andlitshrukkur. Aðgerðin kallast því kaldhæðna nafni, vampírumeðferðin og hefur verið vinsæl meðal fræga fólksins í Hollywood um hríð. Svo mikið að Fox News fjallaði um málið og blaðamaður frá norska blaðinu VG fann sig knúinn til að prufa meðferðina. Blóðið á að slétta úr hrukkum en meðferðin er ennþá það ný af nálinni að ekki er búið að sannreyna að hún virki. Aðdáendur meðferðarinnar telja hana hins vegar lífrænni og umhverfisvænni en hina algengu Botox hrukkumeðferð.

Synirnir eru bestu vinir mínir

Umfjöllunarefni vinsælasta lags sumarsins 2010, Mama Angola, er Ana Maria Unnsteinsson, móðir Unnsteins og Loga í hljómsveitinni Retro Stefson. Hún sagði Kjartani Guðmundssyni frá borgarastyrjöldinni í heimalandinu og árunum sautján á Íslandi.

Hlustendur afhentu sjálfir tónlistarverðlaun X-ins

Söngvarinn Mugison og hljómsveitin Of Monsters and Men fóru heim með meira en helming verðlauna kvöldsins þegar Tónlistarverðlaun X-ins 977 voru veitt á fimmtudagskvöldið var. Mugison hlaut þrenn verðlaun og Of Monsters and Men tvenn. Gunnar Sigurðsson, eða Gunni samloka, var kynnir hátíðarinnar sem fór fram á skemmtistaðnum Nasa.

LINdælis Öskubuskuævintýri

Um fátt er meira rætt í íþróttaheiminum þessa dagana en ótrúlegan uppgang Jeremy Lin, leikmanns New York Knicks í NBA, sem var öllum ókunnur fyrir tveimur vikum. Kjartan Guðmundsson leit yfir sögu bakvarðarins sem heillað hefur heimsbyggðina.

Brjáluð út í pabba

Adele ætlar að hrækja í andlitið á föður sínum hitti hún hann einhvern tímann aftur.

Alvöru karnival stemning á Faktorý

„Okkur langar til að kynna fólk fyrir þessari fallegu menningu og gefa smá sól í líkamann í öllu þessu myrkri hérna,“ segir Kristín Bergsdóttir, sem stendur fyrir karnival hátíð á skemmtistaðnum Faktorý á laugardagskvöld, ásamt eiginmanni sínum Samúel Jóni Sæmundssyni.

Bieber barnagæla

Kærustuparið Justin Bieber, 17 ára, og Selena Gomez, 19 ára, eyddi gærdeginum á ströndinni í Malibu í Kaliforníu ásamt...

Rihanna tekur lagið með kvalara sínum

Talið er að söngvarinn Chris Brown, fyrrverandi kærasti Rihönnu, komi fram í myndbandi hennar á næstunni. Það væri eðlilegt ef Brown hefði ekki gengið illa í skrokk á henni fyrir þremur árum.

Vala Grand ræðir um uppvaxtarár sín

Vala Grand sat fyrir svörum úr sjónvarpsþættinum Týnda kynslóðin í kvöld. Hún ræddi um lífið í Reykjanesbæ og uppvaxtarár sín þar.

Vodafone drengir hitta heimsfrægar íþróttastjörnur

Meðfylgjandi má sjá stjörnur á borð við Lennox Lewis, Marcel Desailly og Patrick Vieira... Þetta er í þriðja skipti sem Ísland sendir lið í Vodafone Cup. Fyrst var fyrirtækjakeppni, í fyrra var haldið mót fyrir almenning í Fífunni en í ár voru það starfsmenn Vodafone sem fóru. Strákarnir unnu fyrsta leikinn sinn - á móti Spáni, þá gerðu þeir jafntefli við Breta en töpuðu fyrir Grikkjum, Tyrkjum og Möltu.

Enginn giftingarhringur

Breski söngvarinn Seal, 48 ára, sem skildi í lok janúar á þessu ári við þýsku ofurfyrirsætuna Heidi Klum, 38 ára, eftir sex ára hjónaband, er loksins búinn að taka niður hringinn. Ekki er vitað hvort Heidi gangi enn með giftingarhringinn sinn. Ef myndirnar eru skoðaðar má sjá að Seal er með skærgult naglalakk á nöglunum. Saman eiga Seal og Heidi þrjú börn; Henry, 6 ára, Johan, 5 ára og Lou, 2 ára.

Grr.. sumir eru öskureiðir

Leikkkona Jessica Alba var langt frá því að vera hress með ljósmyndarann sem elti hana og vin hennar á röndum í Soho hverfinu í New York. Þennan dag rigndi líka og það hefur greinilega ekki kætt Jessicu...

Leit hafin að nýjum Lottóþul

Elva Dögg Melsteð, sem hefur verið ein af lottó­­þulum Íslenskrar getspár undanfarin ár, hefur nú látið af því starfi. Elva starfar sem verkefna­stjóri tónlistar­viðburða Hörpu tónlistar­húss og má ætla að hún hafi í nógu að snúast í því starfi...

Fyrirsætur verða að vera heilbrigðar

Fyrirsæturnar sem ganga tískupallana á tískuvikunni í New York þurfa að lúta ákveðnum heilbrigðiskröfum frá CDFA, samtökum bandarískra fatahönnuða.

Útgeislun svo ekki sé meira sagt

Leikkonan Jennifer Aniston, 43 ára, stillti sér upp á rauða dreglinum þegar kvikmyndin Wanderlust var frumsýnd klædd í Tom Ford dragt...

Ýkt feimið undirfatamódel

Fyrirsæturnar Candice Swanepoel og Behati Prinsloo sátu fyrir hjá leikstjóranum Michael Bay fyrir Victoria's Secret undirfataauglýsingu í Miami. Ég veit ekki hvort fólk tekur eftir því en ég er rosalega feimin, lét fyrirsætan Candice Swanepoel hafa eftir sér. Meðfylgjandi má skoða myndir af umræddri myndatöku.

Eva Mendes dekrar við sig

Leikarinn Ryan Gosling og kærasta hans leikkonan Eva Mendes eru stödd í Bangkok í Taílandi.Thailand. Þar er Ryan við tökur á kvikmyndinni Only God Forgives sem er leikstýrð af Nicolas Winding Refn en hann leikstýrði einnig kvikmyndinni Drive. Eins og sjá má í myndasafni fór Eva í hárgreiðslu á meðan unnustinn var upptekinn í vinnunni.

Hefur ekki hugmynd hver pabbi sinn er

Khloe Kardashian viðurkennir að hún hefur ekki hugmynd hver blóðfaðir hennar er. Hún ætlar að leyfa áhorfendum að fylgjast með sér finna út hver pabbi hennar er í sjónvarpsþætti fjölskyldunnar Keeping Up With The Kardashians. Já mamma mín er raunverulega mamma mín en ég veit ekki hver pabbi minn er, lét Khloe hafa eftir sér. Hún segist ekki taka nærri sér þegar slúðurmiðlar giska á hver faðir hennar er eins og O.J. Simpson eða hárgreiðslumaðurinn Kris Jenner en hún tekur inn á sig þegar því er slegið fram að hún sé ekki hluti af Kardashian fjölskyldunni.

Ólétt og ástfangin Kardashian systir

Hin 32 ára gamla raunveruleikastjarna Kourtney Kardashian gekk stolt um strendur Mexíkó á dögunum en hún tilkynnti í nóvember síðastliðnum að von væri á fjölgun í fjölskyldunni.

Klikkaður kjóll Angelinu

Angelina Jolie, 36 ára og Brad Pitt, 48 ára, mættu uppábúin á frumsýningu myndarinnar In the Land of Blood and Honey í Paris í Prakklandi í gærkvöldi. Ralph & Russo kjóllinn sem Angelina klæddist vakti athygli fyrir glæsilegheit. Þá var hún með Lorraine Schwartz eyrnalokka og í Jimmy Choo skóm. Brad var alls ekki síðri, klæddur í Gucci jakkaföt.

Eykur jafnvægið

Með því að iðka tai chi tvisvar í viku getur fólk með Parkinsonsjúkdóminn átt auðveldara með að halda jafnvægi. Iðkun þessarar kínversku bardagalistar virðist auka stöðugleika í ökklunum á fólki með sjúkdóminn. Það á líka auðveldara með að hafa stjórn á líkamsstöðu sinni og á auðveldara með gang. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem var unnin við Oregon-stofnunina í borginni Eugene og birtist í New England Journal of Medicine.

Sjá næstu 50 fréttir