Lífið

Hlustendur afhentu sjálfir tónlistarverðlaun X-ins

Söngvarinn Mugison og hljómsveitin Of Monsters and Men fóru heim með meira en helming verðlauna kvöldsins þegar Tónlistarverðlaun X-ins 977 voru veitt á fimmtudagskvöldið var. Mugison hlaut þrenn verðlaun og Of Monsters and Men tvenn. Gunnar Sigurðsson, eða Gunni samloka, var kynnir hátíðarinnar sem fór fram á skemmtistaðnum Nasa.

Veitt voru verðlaun í átta flokkum, og voru sigurvegarar valdir af hlustendum X-ins. Auk þess veitti Iceland Express sérstök útflutningsverðlaun í formi flugfara, til að auðvelda flytjendum að kynna tónlist sína erlendis. Athygli vakti að hlustendur X-ins veittu verðlaunin í stað frægðarfólks. - trs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.