Lífið

Synirnir eru bestu vinir mínir

Ana Maria hefur gengist undir tvær nýrnaígræðslur og hafa veikindin hamlað henni á ýmsan hátt, til dæmis í vinnu. Hún reynir að halda sér í formi með göngutúrum, leikfimi og dansi. "Dansinn er besta æfingin og mannskepnan þarf á dansi að halda,“ segir hún.
Ana Maria hefur gengist undir tvær nýrnaígræðslur og hafa veikindin hamlað henni á ýmsan hátt, til dæmis í vinnu. Hún reynir að halda sér í formi með göngutúrum, leikfimi og dansi. "Dansinn er besta æfingin og mannskepnan þarf á dansi að halda,“ segir hún. fréttablaðið/anton
Umfjöllunarefni vinsælasta lags sumarsins 2010, Mama Angola, er Ana Maria Unnsteinsson, móðir Unnsteins og Loga í hljómsveitinni Retro Stefson. Hún sagði Kjartani Guðmundssyni frá borgarastyrjöldinni í heimalandinu og árunum sautján á Íslandi.

Mér líður mjög vel hérna. Íbúðin er rúmgóð og frábært að geta farið út í garð og út á pallinn á sumrin. Ég er frá Afríku og ég þarf mitt pláss!" segir Ana Maria Unnsteinsson þegar blaðamaður kemur í heimsókn á notalegt heimili hennar í Laugardalnum. Líklega hafa flestir heyrt Önu Mariu getið sem Mömmu Angóla, en hún er umfjöllunarefni samnefnds poppsmells hljómsveitarinnar Retro Stefson sem var eitt hið vinsælasta sinnar tegundar hér á landi sumarið 2010.

Synir Önu Mariu, Unnsteinn Manuel og Logi Pedro, eru meðlimir sveitarinnar sem hefur gert góða hluti á undanförnum árum, sent frá sér tvær breiðskífur sem báðar nutu hylli og vinnur nú hörðum höndum að þeirri þriðju. Þá hefur Retro Stefson tryggt sér útgáfusamning við stórfyrirtækið Universal og leikið á fjölda hljómleika víða um heim.

Sjálf hefur Ana Maria búið á Íslandi í sautján ár og unnið hin margvíslegustu störf, en einnig glímt við nýrnaveiki sem tvisvar hefur ógnað lífi hennar.

„Mér finnst mjög gaman að labba um Laugardalinn og sérstaklega að líta við í Húsdýragarðinum við og við. Það eina sem mér þykir leiðinlegt er hversu þrengt er að svínunum og lömbunum í garðinum. Þau geta varla hreyft sig í þessu litla plássi. Mega þessi dýr ekki frekar vera í garðinum hjá mér? Þar er miklu meira pláss," bætir hún við og skellir upp úr. „Við bjuggum lengi í Þingholtunum og strákunum mínum finnst Laugardalurinn nánast vera uppi í sveit. En ég er ánægð."

Hélt að allir væru látnirAna Maria fæddist í Angóla í Afríku, eins og titill téðs dægurlags Retro Stefson bendir til, og er ein átta systkina. Faðir hennar lést þegar Ana Maria var einungis sex ára gömul og til að létta undir með móður hennar var hún tekin í fóstur af portúgölskum hjónum sem störfuðu í Angóla, en landið var þá portúgölsk nýlenda.

Ellefu ára, árið 1971, fluttist Ana Maria svo með fósturforeldrum sínum til Portúgal en fjórum árum síðar hlaut Angóla sjálfstæði og hófst þá fyrir alvöru blóðug borgarastyrjöld í landinu sem stóð yfir með hléum í 27 ár. Ástandið í heimalandinu gerði það að verkum að Ana Maria hefur ekki heimsótt það á ný, en segist dreyma um að komast þangað einhvern daginn og helst með syni sína meðferðis.

„Ég myndi ekki vilja flytja til Angóla til að búa þar, því ég vil bara vera á Íslandi. En mig langar til að kanna innviði landsins, ekki borgirnar heldur upplifa frumskóginn og kynna Unnstein og Loga fyrir fjölskyldunni okkar, sem er af Kimbundu-ættflokknum og risastór. Ein af systrum mínum á tíu syni!" segir hún og bætir við að hún hafi verið svo heppin að enginn af nánustu ættingjum hennar lést í hinni langvinnu borgarastyrjöld í landinu.

„Á fimm ára tímabili missti ég allt samband við fólkið mitt, því ástandið var þannig að ekkert virkaði, hvorki póstþjónusta, símasamband né annað. Í mörg ár sendi ég mömmu minni peninga til Angóla frá Portúgal, en var á endanum ráðlagt að hætta því þar sem vitað var að bréfin myndu aldrei ná á áfangastað. Ég vissi því ekki hvernig ættingjum mínum leið og óttaðist að þeir væru allir látnir, hélt að ég væri ein í heiminum, þar til að einn góðan veðurdag fékk ég bréf frá bróður mínum sem sagði mér að allir væru lifandi. Þetta var risastórt bréf og ég grét af gleði," rifjar Ana Maria upp. „Nú horfir allt til betri vegar og ég er viss um að innan tíu ára verður Angóla komið fremst í röð Afríkulanda."

Tvisvar lífshættulega veikAð lokinni hefðbundinni skólagöngu í Portúgal starfaði Ana Maria meðal annars á prjónastofum, sem sölukona, hárgreiðslukona og húshjálp, þar sem hún öðlaðist mikla reynslu í matreiðslu sem nýttist henni síðar á lífsleiðinni. Tilvonandi eiginmanni sínum og barnsföður, Stefáni Unnsteinssyni, kynntist hún í strætóskýli nærri höfuðborginni Lissabon en hann vann þá að saltfisksútflutningi til landsins.

Unnsteinn Manuel og Logi Pedro fæddust með tveggja ára millibili í upphafi tíunda áratugarins og árið 1995 fluttu þau til Íslands. Þá var Ana Maria þegar farin að finna fyrir nýrnasjúkdómi sem hefur haft mikil áhrif á líf hennar æ síðan.

„Ég var stöðugt með mikinn hita og leið illa, en læknarnir í Portúgal fundu ekkert að mér nema óvenju háan blóðþrýsting. Ég var því sett á lyf sem unnu á blóðþrýstingnum en höfðu slæm áhrif á nýrun," segir Ana Maria. „Í upphafi ætluðum við einungis að dvelja á Íslandi í nokkra mánuði, en læknarnir hér voru fljótir að greina mig nýrnaveika og settu mig í viðeigandi meðferð. Hefði ég ekki komið til Íslands væri ég ekki til frásagnar í dag, því ég var orðin mjög veik. En hérna höfum við búið síðan."

Tvær nýrnaígræðslur fylgdu í kjölfarið, árin 1997 og 2003. Sú fyrri heppnaðist ekki nægilega vel þar sem nýrað virkaði ekki og þufti því að fjarlægja það á ný með tilheyrandi vanheilsu. „Eftir þá aðgerð var ég hrikalega veik, í raun nærri því að deyja, og hugsaði með mér að ég vildi aldrei fara í nýrnaígræðslu aftur. En síðari aðgerðin gekk betur. Þó hef ég verið fremur heilsutæp síðan, verð til að mynda auðveldlega þreytt, og það hefur hamlað mér frá því að vinna fulla vinnu. Ég reyni þó að halda mér í góðu formi með göngutúrum, leikfimi og dansi. Dansinn er besta æfingin og mannskepnan þarf á dansi að halda," segir Ana Maria.

Hún segir syni sína tvo hafa hjálpað sér mikið í veikindunum og viðurkennir að án þeirra hefði hún átt mun erfiðara með að harka af sér í gegnum þá reynslu. „Ég gleymi því til dæmis aldrei þegar fyrri nýrnaígræðslan var gerð á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn. Logi var bara fimm ára og dálítið hræddur við lyftuna á spítalanum, en einn daginn kom hann aleinn upp til mín með lyftunni og sagði: „Mamma, aldrei gefast upp." Þetta augnablik hugsa ég alltaf um þegar eitthvað bjátar á. Svo bætti Logi við: „Ég er strax byrjaður að tala dönsku!". Ég bað hann um að leyfa mér að heyra dönskuna og þá stóð ekki á svarinu: „Jeg snakker ikke dansk!"," segir Ana Maria og hlær.

Reyni að mæta á alla tónleikaÁ Íslandi hefur Ana Maria meðal annars starfað á frístundaheimili og sem matreiðslukona í leikskóla, auk þess sem hún hefur lagt veisluþjónustum lið og prjónað og lappað upp á hina ýmsu skrautmuni, sem hún kaupir og selur svo aftur á mörkuðum víðsvegar um borgina.

Í tvö ár nam hún við matreiðslubraut Menntaskólans í Kópavogi og nú um stundir leggur hún stund á nám við sjúkraliðabraut Fjölbrautaskólans við Ármúla, en hún og Stefán skildu fyrir átta árum. Í frístundum hefur hún einna mesta ánægju af að syngja í kórum, en hún var lengi í kór Háteigskirkju og syngur nú með kór Landakotskirkju.

Unnsteinn Manuel og Logi Pedro sýndu einnig snemma mikinn áhuga á tónlistariðkun og segir Ana Maria syni sína hafa fengið gott uppeldi fyrir framtíðarstarfið í Austurbæjarskóla og Tónmenntaskóla Reykjavíkur við Lindargötu.

„Þegar þeir fóru ungir í heimsóknir til Portúgal voru þeir stundum spurðir hvort þeir kysu frekar að búa í Portúgal eða á Íslandi. Þá sögðust þeir gjarnan vilja búa í Portúgal, en bara ef þeir fengju að taka skólann sinn með sér," segir Ana Maria. „Þeir hefðu ekki getað fengið betri skóla en Austurbæjarskóla, þar sem mörg börn eru af erlendum uppruna og tónlistarkennslan fyrsta flokks undir stjórn tónmenntakennarans Péturs Hafþórs Jónssonar. Þeim leið svo vel í skólanum. Ég þurfti aldrei að draga þá fram úr rúminu til að fara í skólann því þeir voru svo spenntir að mæta snemma til að geta spilað á hljóðfæri í smá stund áður en kennslustundirnar hófust. Sumarkaupinu sínu eyddu þeir öllu, hverri einustu krónu, í hljóðfæri," segir hún og ekki leynir sér að hún er stolt af sonum sínum.

„Við erum bestu vinir og okkur líður mjög vel saman. Þeir taka tónlistina mjög alvarlega og ég er mjög ánægð með það hvernig þeir haga sínu lífi. Ég reyni að mæta á hverja einustu tónleika sem Retro Stefson heldur og stundum kynna þeir mig fyrir áhorfendum sem mömmu sína, drottninguna frá Afríku. Ég stend samt aldrei upp. Ég er allt of feimin til þess," segir Ana Maria.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.