Fleiri fréttir Katy Perry gæsuð - myndir Söngkonan Katy Perry, 25 ára, sem er nú stödd á Indlandi ásamt verðandi eiginmanni sínum, Russell Brand, markaðssetur nú eigið ilmvatn líkt og stórstjörnur á borð við Kylie Minogue, Söruh Jessicu Parker og Jennifer Aniston. Katy segir að nýja ilmvatnið hennar láti konur mjálma af vellíðan þegar þær nota það. Ilmvatnið sem kallast Purr verður sett á heimsmarkað í nóvember. Ég er í skýjunum yfir ilmvatninu. Loksins get ég kynnt mig í flöskum," sagði Katy. Meðfylgjandi má sjá myndir sem teknar voru á skemmtistað í Las Vegas af söngkonunni Rihönnu og Katy þegar sú síðarnefnda var gæsuð. 20.10.2010 10:30 Ástþór áfram í erlendri lagakeppni „Þetta kom mér rosalega á óvart,“ segir rapparinn Ástþór Óðinn. 20.10.2010 09:30 Geir Haarde klipptur út Heimildarmyndin Inside Job eftir Charles Ferguson verður frumsýnd hér á landi byrjun nóvember. Myndin fjallar um efnahagshrunið sem reið yfir heimsbyggðina. Í samtali við Fréttablaðið segist Ferguson vonast til að myndin varpi ljósi á hvað í raun og veru gerðist í aðdraganda fjármálahamfaranna. 20.10.2010 09:00 Jackass beint á toppinn Grallararnir í Jackass með Johnny Knoxville í fararbroddi áttu aðsóknarmestu myndina vestanhafs um síðustu helgi. Jackass 3D halaði inn fimmtíu milljónum dollara í aðsóknartekjur og skákaði þar The Social Network sem hafði setið á toppnum í nokkurn tíma. 20.10.2010 08:30 Stórskotalið reynir við Þór „Þetta er heill her af karlmönnum og hver öðrum betri,“ segir Óskar Jónasson leikstjóri, en raddprufur fyrir íslensku útgáfuna af teiknimyndinni Þór standa nú yfir í upptökuverinu Upptekið. Meðal hlutverka sem verið er að prófa í eru Þór og Mjölnir, hamarinn víðfrægi. 20.10.2010 08:00 Vaktargengið hefur vinnu að nýjum þáttum án Jóns Gnarr „Við Jörundur og Ævar erum byrjaðir á sjónvarpsseríu sem á að taka upp í vor. Hún heitir Heimsendir, hvorki meira né minna," segir Ragnar Bragason leikstjóri. 20.10.2010 07:00 Vill tíu milljónir fyrir Ágætis byrjun „Tíu milljónir er tala sem myndi skipta mig máli. Tvær milljónir breyta ekki lífi mínu," segir Gotti Bernhöft, sem teiknaði frægar myndir í umslagið fyrir Ágætis byrjun, aðra plötu Sigur Rósar. 20.10.2010 06:00 Ekki spyrja um væntanlegt brúðkaup - myndir Á meðfylgjandi myndum má sjá söngkonuna Rihönnu taka upp auglýsingu fyrir So Kodak auglýsingaherferðina en söngkonan hefur tilkynnt að hún er alls ekki tilbúin að giftast Matt Kemp unnusta sínum. Ég er ekki tilbúin að giftast strax. Það er alls ekkert í pípunum. Ég er bara tuttugu og tveggja ára gömul!" sagði Rihanna sem er búin að fá sig fullsadda á spurningum um væntanlegt brúðkaup eða hvort hún ætli ekki að giftast Matt. Undanfarið hef ég heyrt orðið brúðkaup sirka fjögurhundruð sinnum og nei ég er ekki tilbúin að ganga í heilagt hjónaband." 19.10.2010 17:00 Eiginkonan fyrirgaf framhjáhaldið Take That söngvarinn Mark Owen, 38 ára, hefur ákveðið að horfa fram á veginn með konunni sinni Emmu Ferguson en hann viðukenndi fyrr á þessu ári í fjölmiðlum að hafa haldið framhjá henni þó nokkuð mörgum sinnum. Emma fyrirgaf honum og þau ætla að rækta sambandið framvegis og vera saman það sem eftir er. Mark, sem á börnin Elwood, 4 ára og 23 mánaða gamlan Willow með Emmu lét hafa eftir sér: Ég þrái fátt annað en að við eldumst saman. Ég dýrka hana (Emmu). Tilfinningarnar eru til staðar." 19.10.2010 16:00 Árlegt Bleikt boð framundan - myndir Krabbameinsfélagið stendur fyrir Bleika boðinu sem er skemmtikvöld föstudaginn 22. október í Háskólanum í Reykjavík, Nauthólsvík, þar sem 1000 konur koma saman. Tilgangurinn er að eiga góða og skemmtilega kvöldstund saman ásamt því að hvetja til árvekni gegn krabbameinum hjá konum. Dagskráin er að mótast þessa dagana en húsið verður opnað kl. 20:00 og lokað kl. 23:30. Ýmsir skemmtilegir dagskrárliðir verða í Bleika boðinu svo sem tónlistaratriði, dans og tískusýning. Svo verður fjáröflun til styrktar Krabbameinsfélaginu í formi happdrættis. Boðið er ókeypis og verður auglýst m.a. á Facebook. Konum verður boðið að sækja um miða á www.bleikabodid.is og getur hver og ein kona pantað sér 2 miða. Meðfylgjandi eru myndir úr Bleika boðinu í fyrra, sem haldið var í Hafnarhúsinu – þær eru allar teknar af Kristínu Þorgeirsdóttur, ljósmyndara. 19.10.2010 15:00 Lady Gaga búin að finna draumprinsinn Ástarsamband Lady Gaga og Luc Carl var staðfest og blessað á formlegan máta í síðustu viku. Um var að ræða rómantíska athöfn sem haldin var á eyjunni Grete síðla kvölds undir fullu tungli. Parið játaðist hvort öðru í návist vina. Haft er eftir heimildarmanni sem var viðstaddur athöfnina: Þetta var fyrsta skref þeirra í átt að heilögu hjónabandi. Þau voru bæði uppáklædd og lásu upp falleg hátíðleg loforð til hvors annars í viðurvist bestu vina þeirra." Parið skiptist á hringum og borðaði síðan saman á pínkulitlum veitingastað á eyjunni. Lady Gaga var klædd í hvítan síðkjól og Luc í hvítan jakka og silfraðar sebramunstraðar buxur. Lady Gaga er sögð hafa uppgötvað hvað hún þarfnaðist Luc mikið þegar afi hennar, Joseph Germanotta, féll frá. Það var góð áminning til hennar hvað lífið er stutt þegar afi hennar dó. Hún vill aldrei missa Luc og staðfesti þess vegna ást sína á honum," sagð umræddur heimildarmaður. 19.10.2010 14:00 Vill láta koma sér á óvart Leikkonan Rachel McAdams, 33 ára, og mótleikari hennar í myndinni Midnight in Paris, Michael Sheen eiga í ástarsambandi en hún segist stundum vera of vinaleg við mótleikara sína. Rachel átti í löngu ástarsambandi við leikarann Ryan Gosling eftir að þau léku saman í myndinni The Notebook. Vanaleg tengist ég mótleikara mínum tilfinningalega á settinu. Ég er ekki feimin og ég er með sjálfstraust sem ég nota hiklaust í vinnunni en ég er yfirleitt allt of vinaleg og það kemur mér oftar en ekki í vandræði," sagði Rachel. Það er engin ein týpa af karlmönnum sem ég laðast sérstaklega að en ég vil láta koma mér á óvart," sagði hún. 19.10.2010 13:15 Annað barn á leiðinni Súpermódelið Eva Herzigova, 37 ára, er gengin fjóra mánuði með sitt annað barn með ítalska unnusta hennar Gregorio Marsiaj. Eva og Gregoria hafa verið saman síðan árið 2001 og saman eiga þau þriggja ára son, George. Ég er í yndislegu sambandi. Ég verð að viðurkenna að þegar ég var ólétt af George hugsaði ég: Vá hann fær ekki nóg af mér!" sagði Eva. Greg hefur stutt mig dyggilega á meðgöngunni með fallegum orðum og innilegheitum," sagði Eva. 19.10.2010 12:15 Hot Spring er komið í loftið Icelandair í samstarfi við Tonlist.is hefur gefið út geisladiskinn Hot Spring, vol. I, sem inniheldur tónlist íslenskra tónlistarmanna. Icelandair hefur í áratugi stutt við íslenskt tónlistarlíf, til dæmis Músíktilraunir, Iceland Airwaves og Reykjavík Loftbrú. Ekki síður er Icelandair stolt af því að leika íslenska tónlist í samstarfi við Tónlist.is í vélum sínum en ástæðan fyrir útgáfu Hot Spring er að farþegar Icelandair spyrja mikið um hvernig sé hægt að nálgast tónlistina sem leikin er í vélunum þegar fólk kemur um borð. Diskinn verður hægt að fá um borð í vélum Icelandair og í helstu hljómplötuverslunum á Íslandi, auk þess sem hægt er að hlaða honum niður á Tónlist.is og icelandicmusic.com. Þeir sem kaupa diskinn fá einnig 30 daga aðgang að Tónlist.is/ icelandicmusic.com 19.10.2010 10:00 Gerir draumasamning við stórfyrirtækið Universal „Það er komið endanlegt grænt ljós á myndina, ég flyt út á sunnudag og verð í New Orleans og Panama næsta hálfa árið. Vonandi geta konan og börnin komið og verið eitthvað með mér úti. Ég fæ smá jólafrí og klára þá síðustu tökurnar af Djúpinu," segir Baltasar Kormákur kvikmyndaleikstjóri. 19.10.2010 09:00 Litli vinurinn skaddaður Kvikmyndin Jackass 3D var frumsýnd um helgina. Að því tilefni hefur Johnny Knoxville, forsprakki hópsins, upplýst að litli vinurinn hans í suðri hafi komið illa út úr hamaganginum við framleiðslu Jackass-myndanna. 19.10.2010 08:00 Norræn tónleikaröð á Íslandi Norska poppsveitin Datarock kemur fram á tónleikaröðinni Direkt, sem fer fram í Reykjavík dagana 4.-6. nóvember. Tónleikaröðin er hluti af norrænu listahátíðinni Ting, sem er haldin í tilefni af afhendingu Norrænu menningarverðlaunanna í tónlist í Reykjavík. 19.10.2010 07:00 Allir í gallana! Brim er vel heppnað verk. Köld og blaut en gerð af ást og hlýju. 19.10.2010 07:00 Nýtt fríblað um heilsu Nýtt fríblað, Heilsan, er komið á markað. Tímaritið tekur fyrir alls kyns hreyfingu sem í boði er á líkamsræktarstöðvum og hvernig við getum rifið okkur upp úr sófanum og byrjað að hlaupa og hvaða líkamsræktaræfingar er gott að gera heima við. „Við hjá Heilsunni ákváðum að gera létt og fjölbreytt tímarit um heilsu og ýmis málefni tengd henni. Við eigum það nefnilega held ég flest til að gleyma okkur í amstri dagsins og fela okkur á bakvið þá afsökun að við höfum ekki tíma fyrir okkur sjálf“ segir Halldóra Anna Hagalín, ritstjóri. Tímaritið Heilsan mun koma út annan hvern mánuð og vera frítt blað sem dreift verður í allar helstu verslanir á landinu og líkamsræktarstöðvar. 18.10.2010 18:45 Boðið í vinsælan sjónvarpsþátt Eftir fréttir hérlendis í síðustu viku um nýja íslenska ilminn EFJ Eyjafjallajökull by Gyðja hafa fréttir af ilmvatninu farið sem eldur í sinu í fjölmiðlum víða um heim og virðist áhugin erlendis vera mikill fyrir þessu konsepti Gyðju að blanda vatni úr í Eyjafjallajökli við hágæða ilmvatn og vefja hraunmola úr gosinu utan um ilmvatnsglasið. „Við hjá Gyðju erum vægast sagt hissa á allri þessari athygli núna strax í byrjun því við erum ekkert farin að markaðsetja ilminn á erlendri grundu," svaraði Sigrún spurð út í athyglina sem ætlar engan endi að taka. Hinir ýmsu erlendu fréttamiðlar sem dæmi AFP höfðu samband við forsvarsmenn Gyðju til að óska eftir viðtali og ítarlegri upplýsingum um ilminn og tengls hans við eldgosið. Í kjölfarið fór svo greinar um ilminn að birtast í erlendum miðlum. Einnig hafa viðtöl við Sigrúnu Lilju birst í prentmiðlum erlendis um ilmvatnið þar sem farið er nánar út í hvað Gyðja stendur fyrir, framtíðaráform, fylgihluti Gyðju úr íslenska roðinu, ilminn og konseptið við Eyjafjallajökul, eldgosið og áhrif þess í dag á íslendinga og jafnvel hvernig við íslendingar höfum það núna í kreppunni og hvert stefnan er með Gyðju. Sigrúnu Lilju var boðið í vinsælan árlegan sjónvarpsþátt í desember næstkomandi hjá stæstu sjónvarpsstöð Þýskalands, Sat 1, þar sem farið verður yfir hápunkta ársins 2010 í heimsfréttum. Eyjafjallajökull er sjálfsögðu þar á meðal og vilja forsvarsmenn þáttarins bjóða Sigrúnu að koma í þáttinn og fjalla um um ilmvatnið. „Verkefnið hefur farið vel af stað á erlendri grundu þrátt fyrir að ekki hafi ennþá verið hafist handa á markaðsetningunni. Ilmvatnið er nú strax að fá meiri athygli heldur en hægt var að þora að vona sem lofar góðu fyrir framhaldið," sagði Sigrún Lilja. 18.10.2010 16:45 Mel Gibson í The Hangover 2 Leikarinn Mel Gibson hefur landað hlutverki í væntanlegri kvikmynd The Hangover 2. Sagan segir að Mel vonar að almenningsálitið lagist í kjölfarið líkt og hjá Mike Tyson eftir að hann birtist í The Hangover sem hann sjálfur. Hollywood stjarnan hefur átt erfitt undanfarið þegar kemur að ástamálum hans en hann skildi nýverið við rússnesku söngkonuna Oksönu Grigorieva sem fæddi honum dótturina, Luciu, fyrir ellefu mánuðum. Söngkonan heldur því fram að Mel hafi beitt hana líkamlegu og andlegu ofbeldi. Hún hefur kært Mel fyrir að kýla sig í andlitið með þeim afleiðingum að tönn losnaði en hann neitar því staðfastlega. Í kjölfarið á skilnaðinum sem allur heimurinn fylgdist með hætti umboðsmaður Mel til margra ára að starfa fyrir hann og nú er Mel staðráðinn í að láta hlutina ganga upp þegar kemur að leiklistinni. 18.10.2010 14:45 Harry Potter stjarna vinnualki - myndir Breska leikkonan Emma Watson, 20 ára, sem skoða má í meðfylgjandi myndasafni vill skemmta sér í meira mæli og njóta lífsins en hún vinnur eins og skepna þó ung sé að árum. Harry Potter stjarnan sem stundar nám í enskum bókmenntum viðurkenni að hún vill fjör eins og fólk á hennar aldri. „Ég vil skemmta mér meira eins og aðrir krakkar á mínum aldrei. Ég er alltaf að vinna. Ég er vinnualki. Höfuðið á mér þarf á hvíld að halda," sagði hún. „Einn daginn er ég í tökum og hinn er ég í skólanum. Svo er ég heima og daginn eftir er ég kannski að hanna föt. Það er enginn dagur venjulegur sem ég upplifi. Ég vil lifa eðlilegu lífi og ég vil hafa það gaman." 18.10.2010 13:30 Nældi sér í afslappaðan náunga - myndir Leikkonan Mischa Barton, 24 ára, er loksins búin að finna manninn sem kætir hjarta hennar. Sá heppni er breski plötusnúðurinn Ali Love. Mischa elskar að vera í návist nýja kærastans því hann kemur fram við hana af virðingu og hugar vel að henni þrátt fyrir frægðina. Ali er afslappaður náungi að sögn Mischu og hún kann að meta það í fari hans. Hann er ótrúlegur. Svo almennilegur og hlýr en ég vorkenni honum þegar ljósmyndararnir elta okkur. Hann er svo kúl náungi," sagði Mischa í viðtali við breska OK! tímaritið. Meðfylgjandi myndir voru teknar af parinu á tískuvikunni í Mílanó. 18.10.2010 12:15 Tobba komin á heilsuhælið í Hveragerði „Ég er í rauninni að fylgja ákveðinni hefð sem hefur skapast í kringum mín skrif en þegar ég vann hinar tvær bækurnar mínar dvaldi ég á tímabili á heilsuhælinu í Hveragerði,“ segir Þorbjörg Marinósdóttir, kynningarfulltrúi og rithöfundur, en hún er þessa dagana í eins konar fríi og vinnuferð í Hveragerði. 18.10.2010 07:30 Stærsta breiðtjald landsins Sambíóin stefna á að opna nýtt kvikmyndahús í Egilshöll hinn 4. nóvember. Um hundrað iðnaðarmenn eru nú að störfum við að gera allt klárt en kvikmyndahúsið mun skarta einu stærsta breiðtjaldi Evrópu. 18.10.2010 10:00 Tek því sem hrósi þegar mér er líkt við Justin Bieber „Ég bjóst ekki beint við því að lagið mundi slá í gegn en var að vonast eftir því að það fengi spilun. Svo var bara flaggað heima þegar það heyrðist fyrst í útvarpinu,“ segir Bjarki Lár, fimmtán ára strákur frá Hafnarfirði sem hefur slegið í gegn með lagið Bara þú. Lagið er samið af tónlistarmanninum Friðriki Dór en um tuttugu þúsund manns hafa horft á myndbandið á Youtube. Einnig er það byrjað að heyrast á útvarpsstöðvunum FM957 og Kananum. 18.10.2010 08:00 Stíllinn taminn Ólöf Arnalds heldur áfram að fullkomna stílinn sinn á fínni plötu. 18.10.2010 07:00 Þóra Einars stjarna sýningarinnar Þóra Einarsdóttur var í hlutverki dóttur Rigolettos. Hjá henni fór allt saman, trúverðugur leikur og margbrotinn, forkunnarfagur söngur. Frammistaða hennar var einstök. 18.10.2010 07:00 Vináttan brostin Vinskapurinn milli söngkonunnar Jessicu Simpson og hárgreiðslumannsins Kens Paves hefur runnið sitt skeið ef marka má sögusagnir vestan hafs. 17.10.2010 17:45 Hötuð fyrir megrun Rokkaradóttirin Kelly Osbourne segist finna fyrir meiri andúð í sinn garð frá kynsystrum eftir að hún grenntist um 22 kíló. Osbourne vill meina að stelpur hafi hætt að finnast hún skemmtileg og líti nú á hana sem keppinaut. „Þær stelpur sem vanalega heilsuðu mér eru hættar því núna,“ segir Osbourne í viðtali við netmiðla vestanhafs. 17.10.2010 14:15 50 ára afmæli Sollu Eiríks Meðfylgjandi myndir voru teknar á veitingahúsinu Gló í gærkvöldi þar sem borðin svignuð undan gómsætum hráfæðiskræsingum þar sem eigandi staðarins, Solla Eiríks, hélt upp á fimmtíu ára afmælið sitt. Við mynduðum nokkra afmælisgesti sem fögnuðu með Sollu sem var klædd í svartan kjól. 17.10.2010 08:15 Fágað og fallegt Fatamerkið Kalda hefur sent frá sér nýja fatalínu sem ber nafnið Hvörf. Katrín Alda Rafnsdóttir hönnuðurinn lýsir línunni sem fágaðri og kvenlegri. 17.10.2010 19:28 Smíðaði eigið borðstofuborð Heimili Kristjáns Brynjars Bjarnasonar og Erlu Bjargar Valgeirsdóttur prýða heimasmíðuð húsgögn í bland við gamalt og nýtt. 17.10.2010 19:15 Á heimsmælikvarða Íslensk-danska arkitektastofan KRADS er á meðal upprennandi arkitektastofa sem fjallað er um í nýrri bók sem hefur verið gefin út í tengslum við Tvíæringinn í Feneyjum. 17.10.2010 19:09 Túlkaði fyrir fyrirsætur í Sjanghæ Fyrirsætan Anna Jia keppti fyrir hönd Íslands í Elite-fyrirsætukeppninni sem fram fór í Sjanghæ síðastliðinn sunnudag. Hún vakti mikla athygli fjölmiðla og var meðal annars fylgt eftir af franskri sjónvarpsstöð. 17.10.2010 09:15 Skólakrakkar misstu af Ham „Þetta var bara hræðilegt,“ segir Elvar Geir Sævarsson úr hljómsveitinni Hellvar. 16.10.2010 18:15 Sir Ian McKellen á sviði með Vesturportshópnum Sir Ian McKellen lék stutt atriði úr Faust með leikurum Vesturports og Borgarleikhússins á fjörutíu ára afmælissýningu leikhússins Young Vic í London á fimmtudagskvöld. Viðstaddir voru fimm hundruð velunnarar 16.10.2010 15:15 Partíljón á lausu Leikarinn Colin Farrell er hættur með kærustu sinni og barnsmóður, Alicja Bachleda-Curus. Farrell kynntist Bachleda-Curus fyrir tveimur árum og eiga þau saman eins árs gamlan son. Á hún að hafa fengið nóg þegar henni varð ljóst að leikarinn mundi aldrei festa ráð sitt. 16.10.2010 12:15 Hressileg unglingaskemmtun Kvikmyndin Órói var frumsýnd á fimmtudagskvöld í Sambíóunum við Álfabakka. Aðstandendur myndarinnar mættu að sjálfsögðu á svæðið og voru í sannkölluðu hátíðarskapi. 16.10.2010 11:00 Flottir gestir á frumsýningu Ný stuttmynd eftir hönnuðinn Ásgrím Má Friðriksson var frumsýnd við mikinn fögnuð í versluninni Kiosk á fimmtudaginn var. Ásgrímur er líklega þekktastur sem fatahönnuður en hann stundar nú nám við Kvikmyndaskóla Íslands. Hann er einnig einn af eigendum verslunarinnar Kiosk sem selur einstaka íslenska hönnun eftir unga og efnilega hönnuði. 16.10.2010 10:00 Ég er þakklátur fyrir að vera þar sem ég er í dag Enski tenórinn Paul Potts syngur á jólatónleikum Björgvins Halldórssonar í desember. Potts ræddi við Fréttablaðið um feril sinn, nýja plötu og förina til Íslands. 16.10.2010 08:00 Bjórinn felldi Finna, ekki Andra Finnski fréttamaðurinn Kimmo Wilska var á dögunum rekinn úr starfi sínu sem fréttaþulur eftir að hann sást taka sér sopa af bjór eftir að hafa lesið frétt sem fjallaði um áfengislöggjöfina í Finnlandi. 16.10.2010 07:00 Bjó sig undir hið versta Breska söngkonan Cheryl Cole gerði erfðaskrá þegar hún glímdi við alvarleg veikindi í sumar. Cole greindist með malaríu eftir að það leið yfir hana í myndatöku og segist hún sjálf hafa haldið að hún mundi deyja. 16.10.2010 06:00 Kani í völundarhúsi The American er falleg og djörf mynd sem tekur tíma að melta. Þeir sem vilja hasar verða vonsviknir. 16.10.2010 06:00 Borðar afganga og léttist Leikkonan Brooke Shields, 45 ára, heldur sér í formi með því að borða afgangana hjá börnunum sínum. Brooke, sem á tvær dætur með eiginmanni sínum, rithöfundinum Chris Henchy, Rowan Frances, 7 ára, og Grier Hammond, 4 ára. Spurð út í líkamlegt form hennar svaraði Brooke að hún skammtaði sér aldrei á disk heldur borðar hún alltaf afganga stúlknanna. Tvö börn hjálpa þér að halda þér í góðu formi. Þú borðar minna. Í minu tilfelli klára ég alltaf matinn þeirra sem þýðir að ég borða aldrei heilan skammt," sagði Brooke. Svo reyni ég að ganga hvert sem ég fer. Ég tek örsjaldan leibubíl. Það er mikilvægt að hreyfa sig eitthvað á hverjum degi." 15.10.2010 15:00 Sjá næstu 50 fréttir
Katy Perry gæsuð - myndir Söngkonan Katy Perry, 25 ára, sem er nú stödd á Indlandi ásamt verðandi eiginmanni sínum, Russell Brand, markaðssetur nú eigið ilmvatn líkt og stórstjörnur á borð við Kylie Minogue, Söruh Jessicu Parker og Jennifer Aniston. Katy segir að nýja ilmvatnið hennar láti konur mjálma af vellíðan þegar þær nota það. Ilmvatnið sem kallast Purr verður sett á heimsmarkað í nóvember. Ég er í skýjunum yfir ilmvatninu. Loksins get ég kynnt mig í flöskum," sagði Katy. Meðfylgjandi má sjá myndir sem teknar voru á skemmtistað í Las Vegas af söngkonunni Rihönnu og Katy þegar sú síðarnefnda var gæsuð. 20.10.2010 10:30
Ástþór áfram í erlendri lagakeppni „Þetta kom mér rosalega á óvart,“ segir rapparinn Ástþór Óðinn. 20.10.2010 09:30
Geir Haarde klipptur út Heimildarmyndin Inside Job eftir Charles Ferguson verður frumsýnd hér á landi byrjun nóvember. Myndin fjallar um efnahagshrunið sem reið yfir heimsbyggðina. Í samtali við Fréttablaðið segist Ferguson vonast til að myndin varpi ljósi á hvað í raun og veru gerðist í aðdraganda fjármálahamfaranna. 20.10.2010 09:00
Jackass beint á toppinn Grallararnir í Jackass með Johnny Knoxville í fararbroddi áttu aðsóknarmestu myndina vestanhafs um síðustu helgi. Jackass 3D halaði inn fimmtíu milljónum dollara í aðsóknartekjur og skákaði þar The Social Network sem hafði setið á toppnum í nokkurn tíma. 20.10.2010 08:30
Stórskotalið reynir við Þór „Þetta er heill her af karlmönnum og hver öðrum betri,“ segir Óskar Jónasson leikstjóri, en raddprufur fyrir íslensku útgáfuna af teiknimyndinni Þór standa nú yfir í upptökuverinu Upptekið. Meðal hlutverka sem verið er að prófa í eru Þór og Mjölnir, hamarinn víðfrægi. 20.10.2010 08:00
Vaktargengið hefur vinnu að nýjum þáttum án Jóns Gnarr „Við Jörundur og Ævar erum byrjaðir á sjónvarpsseríu sem á að taka upp í vor. Hún heitir Heimsendir, hvorki meira né minna," segir Ragnar Bragason leikstjóri. 20.10.2010 07:00
Vill tíu milljónir fyrir Ágætis byrjun „Tíu milljónir er tala sem myndi skipta mig máli. Tvær milljónir breyta ekki lífi mínu," segir Gotti Bernhöft, sem teiknaði frægar myndir í umslagið fyrir Ágætis byrjun, aðra plötu Sigur Rósar. 20.10.2010 06:00
Ekki spyrja um væntanlegt brúðkaup - myndir Á meðfylgjandi myndum má sjá söngkonuna Rihönnu taka upp auglýsingu fyrir So Kodak auglýsingaherferðina en söngkonan hefur tilkynnt að hún er alls ekki tilbúin að giftast Matt Kemp unnusta sínum. Ég er ekki tilbúin að giftast strax. Það er alls ekkert í pípunum. Ég er bara tuttugu og tveggja ára gömul!" sagði Rihanna sem er búin að fá sig fullsadda á spurningum um væntanlegt brúðkaup eða hvort hún ætli ekki að giftast Matt. Undanfarið hef ég heyrt orðið brúðkaup sirka fjögurhundruð sinnum og nei ég er ekki tilbúin að ganga í heilagt hjónaband." 19.10.2010 17:00
Eiginkonan fyrirgaf framhjáhaldið Take That söngvarinn Mark Owen, 38 ára, hefur ákveðið að horfa fram á veginn með konunni sinni Emmu Ferguson en hann viðukenndi fyrr á þessu ári í fjölmiðlum að hafa haldið framhjá henni þó nokkuð mörgum sinnum. Emma fyrirgaf honum og þau ætla að rækta sambandið framvegis og vera saman það sem eftir er. Mark, sem á börnin Elwood, 4 ára og 23 mánaða gamlan Willow með Emmu lét hafa eftir sér: Ég þrái fátt annað en að við eldumst saman. Ég dýrka hana (Emmu). Tilfinningarnar eru til staðar." 19.10.2010 16:00
Árlegt Bleikt boð framundan - myndir Krabbameinsfélagið stendur fyrir Bleika boðinu sem er skemmtikvöld föstudaginn 22. október í Háskólanum í Reykjavík, Nauthólsvík, þar sem 1000 konur koma saman. Tilgangurinn er að eiga góða og skemmtilega kvöldstund saman ásamt því að hvetja til árvekni gegn krabbameinum hjá konum. Dagskráin er að mótast þessa dagana en húsið verður opnað kl. 20:00 og lokað kl. 23:30. Ýmsir skemmtilegir dagskrárliðir verða í Bleika boðinu svo sem tónlistaratriði, dans og tískusýning. Svo verður fjáröflun til styrktar Krabbameinsfélaginu í formi happdrættis. Boðið er ókeypis og verður auglýst m.a. á Facebook. Konum verður boðið að sækja um miða á www.bleikabodid.is og getur hver og ein kona pantað sér 2 miða. Meðfylgjandi eru myndir úr Bleika boðinu í fyrra, sem haldið var í Hafnarhúsinu – þær eru allar teknar af Kristínu Þorgeirsdóttur, ljósmyndara. 19.10.2010 15:00
Lady Gaga búin að finna draumprinsinn Ástarsamband Lady Gaga og Luc Carl var staðfest og blessað á formlegan máta í síðustu viku. Um var að ræða rómantíska athöfn sem haldin var á eyjunni Grete síðla kvölds undir fullu tungli. Parið játaðist hvort öðru í návist vina. Haft er eftir heimildarmanni sem var viðstaddur athöfnina: Þetta var fyrsta skref þeirra í átt að heilögu hjónabandi. Þau voru bæði uppáklædd og lásu upp falleg hátíðleg loforð til hvors annars í viðurvist bestu vina þeirra." Parið skiptist á hringum og borðaði síðan saman á pínkulitlum veitingastað á eyjunni. Lady Gaga var klædd í hvítan síðkjól og Luc í hvítan jakka og silfraðar sebramunstraðar buxur. Lady Gaga er sögð hafa uppgötvað hvað hún þarfnaðist Luc mikið þegar afi hennar, Joseph Germanotta, féll frá. Það var góð áminning til hennar hvað lífið er stutt þegar afi hennar dó. Hún vill aldrei missa Luc og staðfesti þess vegna ást sína á honum," sagð umræddur heimildarmaður. 19.10.2010 14:00
Vill láta koma sér á óvart Leikkonan Rachel McAdams, 33 ára, og mótleikari hennar í myndinni Midnight in Paris, Michael Sheen eiga í ástarsambandi en hún segist stundum vera of vinaleg við mótleikara sína. Rachel átti í löngu ástarsambandi við leikarann Ryan Gosling eftir að þau léku saman í myndinni The Notebook. Vanaleg tengist ég mótleikara mínum tilfinningalega á settinu. Ég er ekki feimin og ég er með sjálfstraust sem ég nota hiklaust í vinnunni en ég er yfirleitt allt of vinaleg og það kemur mér oftar en ekki í vandræði," sagði Rachel. Það er engin ein týpa af karlmönnum sem ég laðast sérstaklega að en ég vil láta koma mér á óvart," sagði hún. 19.10.2010 13:15
Annað barn á leiðinni Súpermódelið Eva Herzigova, 37 ára, er gengin fjóra mánuði með sitt annað barn með ítalska unnusta hennar Gregorio Marsiaj. Eva og Gregoria hafa verið saman síðan árið 2001 og saman eiga þau þriggja ára son, George. Ég er í yndislegu sambandi. Ég verð að viðurkenna að þegar ég var ólétt af George hugsaði ég: Vá hann fær ekki nóg af mér!" sagði Eva. Greg hefur stutt mig dyggilega á meðgöngunni með fallegum orðum og innilegheitum," sagði Eva. 19.10.2010 12:15
Hot Spring er komið í loftið Icelandair í samstarfi við Tonlist.is hefur gefið út geisladiskinn Hot Spring, vol. I, sem inniheldur tónlist íslenskra tónlistarmanna. Icelandair hefur í áratugi stutt við íslenskt tónlistarlíf, til dæmis Músíktilraunir, Iceland Airwaves og Reykjavík Loftbrú. Ekki síður er Icelandair stolt af því að leika íslenska tónlist í samstarfi við Tónlist.is í vélum sínum en ástæðan fyrir útgáfu Hot Spring er að farþegar Icelandair spyrja mikið um hvernig sé hægt að nálgast tónlistina sem leikin er í vélunum þegar fólk kemur um borð. Diskinn verður hægt að fá um borð í vélum Icelandair og í helstu hljómplötuverslunum á Íslandi, auk þess sem hægt er að hlaða honum niður á Tónlist.is og icelandicmusic.com. Þeir sem kaupa diskinn fá einnig 30 daga aðgang að Tónlist.is/ icelandicmusic.com 19.10.2010 10:00
Gerir draumasamning við stórfyrirtækið Universal „Það er komið endanlegt grænt ljós á myndina, ég flyt út á sunnudag og verð í New Orleans og Panama næsta hálfa árið. Vonandi geta konan og börnin komið og verið eitthvað með mér úti. Ég fæ smá jólafrí og klára þá síðustu tökurnar af Djúpinu," segir Baltasar Kormákur kvikmyndaleikstjóri. 19.10.2010 09:00
Litli vinurinn skaddaður Kvikmyndin Jackass 3D var frumsýnd um helgina. Að því tilefni hefur Johnny Knoxville, forsprakki hópsins, upplýst að litli vinurinn hans í suðri hafi komið illa út úr hamaganginum við framleiðslu Jackass-myndanna. 19.10.2010 08:00
Norræn tónleikaröð á Íslandi Norska poppsveitin Datarock kemur fram á tónleikaröðinni Direkt, sem fer fram í Reykjavík dagana 4.-6. nóvember. Tónleikaröðin er hluti af norrænu listahátíðinni Ting, sem er haldin í tilefni af afhendingu Norrænu menningarverðlaunanna í tónlist í Reykjavík. 19.10.2010 07:00
Nýtt fríblað um heilsu Nýtt fríblað, Heilsan, er komið á markað. Tímaritið tekur fyrir alls kyns hreyfingu sem í boði er á líkamsræktarstöðvum og hvernig við getum rifið okkur upp úr sófanum og byrjað að hlaupa og hvaða líkamsræktaræfingar er gott að gera heima við. „Við hjá Heilsunni ákváðum að gera létt og fjölbreytt tímarit um heilsu og ýmis málefni tengd henni. Við eigum það nefnilega held ég flest til að gleyma okkur í amstri dagsins og fela okkur á bakvið þá afsökun að við höfum ekki tíma fyrir okkur sjálf“ segir Halldóra Anna Hagalín, ritstjóri. Tímaritið Heilsan mun koma út annan hvern mánuð og vera frítt blað sem dreift verður í allar helstu verslanir á landinu og líkamsræktarstöðvar. 18.10.2010 18:45
Boðið í vinsælan sjónvarpsþátt Eftir fréttir hérlendis í síðustu viku um nýja íslenska ilminn EFJ Eyjafjallajökull by Gyðja hafa fréttir af ilmvatninu farið sem eldur í sinu í fjölmiðlum víða um heim og virðist áhugin erlendis vera mikill fyrir þessu konsepti Gyðju að blanda vatni úr í Eyjafjallajökli við hágæða ilmvatn og vefja hraunmola úr gosinu utan um ilmvatnsglasið. „Við hjá Gyðju erum vægast sagt hissa á allri þessari athygli núna strax í byrjun því við erum ekkert farin að markaðsetja ilminn á erlendri grundu," svaraði Sigrún spurð út í athyglina sem ætlar engan endi að taka. Hinir ýmsu erlendu fréttamiðlar sem dæmi AFP höfðu samband við forsvarsmenn Gyðju til að óska eftir viðtali og ítarlegri upplýsingum um ilminn og tengls hans við eldgosið. Í kjölfarið fór svo greinar um ilminn að birtast í erlendum miðlum. Einnig hafa viðtöl við Sigrúnu Lilju birst í prentmiðlum erlendis um ilmvatnið þar sem farið er nánar út í hvað Gyðja stendur fyrir, framtíðaráform, fylgihluti Gyðju úr íslenska roðinu, ilminn og konseptið við Eyjafjallajökul, eldgosið og áhrif þess í dag á íslendinga og jafnvel hvernig við íslendingar höfum það núna í kreppunni og hvert stefnan er með Gyðju. Sigrúnu Lilju var boðið í vinsælan árlegan sjónvarpsþátt í desember næstkomandi hjá stæstu sjónvarpsstöð Þýskalands, Sat 1, þar sem farið verður yfir hápunkta ársins 2010 í heimsfréttum. Eyjafjallajökull er sjálfsögðu þar á meðal og vilja forsvarsmenn þáttarins bjóða Sigrúnu að koma í þáttinn og fjalla um um ilmvatnið. „Verkefnið hefur farið vel af stað á erlendri grundu þrátt fyrir að ekki hafi ennþá verið hafist handa á markaðsetningunni. Ilmvatnið er nú strax að fá meiri athygli heldur en hægt var að þora að vona sem lofar góðu fyrir framhaldið," sagði Sigrún Lilja. 18.10.2010 16:45
Mel Gibson í The Hangover 2 Leikarinn Mel Gibson hefur landað hlutverki í væntanlegri kvikmynd The Hangover 2. Sagan segir að Mel vonar að almenningsálitið lagist í kjölfarið líkt og hjá Mike Tyson eftir að hann birtist í The Hangover sem hann sjálfur. Hollywood stjarnan hefur átt erfitt undanfarið þegar kemur að ástamálum hans en hann skildi nýverið við rússnesku söngkonuna Oksönu Grigorieva sem fæddi honum dótturina, Luciu, fyrir ellefu mánuðum. Söngkonan heldur því fram að Mel hafi beitt hana líkamlegu og andlegu ofbeldi. Hún hefur kært Mel fyrir að kýla sig í andlitið með þeim afleiðingum að tönn losnaði en hann neitar því staðfastlega. Í kjölfarið á skilnaðinum sem allur heimurinn fylgdist með hætti umboðsmaður Mel til margra ára að starfa fyrir hann og nú er Mel staðráðinn í að láta hlutina ganga upp þegar kemur að leiklistinni. 18.10.2010 14:45
Harry Potter stjarna vinnualki - myndir Breska leikkonan Emma Watson, 20 ára, sem skoða má í meðfylgjandi myndasafni vill skemmta sér í meira mæli og njóta lífsins en hún vinnur eins og skepna þó ung sé að árum. Harry Potter stjarnan sem stundar nám í enskum bókmenntum viðurkenni að hún vill fjör eins og fólk á hennar aldri. „Ég vil skemmta mér meira eins og aðrir krakkar á mínum aldrei. Ég er alltaf að vinna. Ég er vinnualki. Höfuðið á mér þarf á hvíld að halda," sagði hún. „Einn daginn er ég í tökum og hinn er ég í skólanum. Svo er ég heima og daginn eftir er ég kannski að hanna föt. Það er enginn dagur venjulegur sem ég upplifi. Ég vil lifa eðlilegu lífi og ég vil hafa það gaman." 18.10.2010 13:30
Nældi sér í afslappaðan náunga - myndir Leikkonan Mischa Barton, 24 ára, er loksins búin að finna manninn sem kætir hjarta hennar. Sá heppni er breski plötusnúðurinn Ali Love. Mischa elskar að vera í návist nýja kærastans því hann kemur fram við hana af virðingu og hugar vel að henni þrátt fyrir frægðina. Ali er afslappaður náungi að sögn Mischu og hún kann að meta það í fari hans. Hann er ótrúlegur. Svo almennilegur og hlýr en ég vorkenni honum þegar ljósmyndararnir elta okkur. Hann er svo kúl náungi," sagði Mischa í viðtali við breska OK! tímaritið. Meðfylgjandi myndir voru teknar af parinu á tískuvikunni í Mílanó. 18.10.2010 12:15
Tobba komin á heilsuhælið í Hveragerði „Ég er í rauninni að fylgja ákveðinni hefð sem hefur skapast í kringum mín skrif en þegar ég vann hinar tvær bækurnar mínar dvaldi ég á tímabili á heilsuhælinu í Hveragerði,“ segir Þorbjörg Marinósdóttir, kynningarfulltrúi og rithöfundur, en hún er þessa dagana í eins konar fríi og vinnuferð í Hveragerði. 18.10.2010 07:30
Stærsta breiðtjald landsins Sambíóin stefna á að opna nýtt kvikmyndahús í Egilshöll hinn 4. nóvember. Um hundrað iðnaðarmenn eru nú að störfum við að gera allt klárt en kvikmyndahúsið mun skarta einu stærsta breiðtjaldi Evrópu. 18.10.2010 10:00
Tek því sem hrósi þegar mér er líkt við Justin Bieber „Ég bjóst ekki beint við því að lagið mundi slá í gegn en var að vonast eftir því að það fengi spilun. Svo var bara flaggað heima þegar það heyrðist fyrst í útvarpinu,“ segir Bjarki Lár, fimmtán ára strákur frá Hafnarfirði sem hefur slegið í gegn með lagið Bara þú. Lagið er samið af tónlistarmanninum Friðriki Dór en um tuttugu þúsund manns hafa horft á myndbandið á Youtube. Einnig er það byrjað að heyrast á útvarpsstöðvunum FM957 og Kananum. 18.10.2010 08:00
Þóra Einars stjarna sýningarinnar Þóra Einarsdóttur var í hlutverki dóttur Rigolettos. Hjá henni fór allt saman, trúverðugur leikur og margbrotinn, forkunnarfagur söngur. Frammistaða hennar var einstök. 18.10.2010 07:00
Vináttan brostin Vinskapurinn milli söngkonunnar Jessicu Simpson og hárgreiðslumannsins Kens Paves hefur runnið sitt skeið ef marka má sögusagnir vestan hafs. 17.10.2010 17:45
Hötuð fyrir megrun Rokkaradóttirin Kelly Osbourne segist finna fyrir meiri andúð í sinn garð frá kynsystrum eftir að hún grenntist um 22 kíló. Osbourne vill meina að stelpur hafi hætt að finnast hún skemmtileg og líti nú á hana sem keppinaut. „Þær stelpur sem vanalega heilsuðu mér eru hættar því núna,“ segir Osbourne í viðtali við netmiðla vestanhafs. 17.10.2010 14:15
50 ára afmæli Sollu Eiríks Meðfylgjandi myndir voru teknar á veitingahúsinu Gló í gærkvöldi þar sem borðin svignuð undan gómsætum hráfæðiskræsingum þar sem eigandi staðarins, Solla Eiríks, hélt upp á fimmtíu ára afmælið sitt. Við mynduðum nokkra afmælisgesti sem fögnuðu með Sollu sem var klædd í svartan kjól. 17.10.2010 08:15
Fágað og fallegt Fatamerkið Kalda hefur sent frá sér nýja fatalínu sem ber nafnið Hvörf. Katrín Alda Rafnsdóttir hönnuðurinn lýsir línunni sem fágaðri og kvenlegri. 17.10.2010 19:28
Smíðaði eigið borðstofuborð Heimili Kristjáns Brynjars Bjarnasonar og Erlu Bjargar Valgeirsdóttur prýða heimasmíðuð húsgögn í bland við gamalt og nýtt. 17.10.2010 19:15
Á heimsmælikvarða Íslensk-danska arkitektastofan KRADS er á meðal upprennandi arkitektastofa sem fjallað er um í nýrri bók sem hefur verið gefin út í tengslum við Tvíæringinn í Feneyjum. 17.10.2010 19:09
Túlkaði fyrir fyrirsætur í Sjanghæ Fyrirsætan Anna Jia keppti fyrir hönd Íslands í Elite-fyrirsætukeppninni sem fram fór í Sjanghæ síðastliðinn sunnudag. Hún vakti mikla athygli fjölmiðla og var meðal annars fylgt eftir af franskri sjónvarpsstöð. 17.10.2010 09:15
Skólakrakkar misstu af Ham „Þetta var bara hræðilegt,“ segir Elvar Geir Sævarsson úr hljómsveitinni Hellvar. 16.10.2010 18:15
Sir Ian McKellen á sviði með Vesturportshópnum Sir Ian McKellen lék stutt atriði úr Faust með leikurum Vesturports og Borgarleikhússins á fjörutíu ára afmælissýningu leikhússins Young Vic í London á fimmtudagskvöld. Viðstaddir voru fimm hundruð velunnarar 16.10.2010 15:15
Partíljón á lausu Leikarinn Colin Farrell er hættur með kærustu sinni og barnsmóður, Alicja Bachleda-Curus. Farrell kynntist Bachleda-Curus fyrir tveimur árum og eiga þau saman eins árs gamlan son. Á hún að hafa fengið nóg þegar henni varð ljóst að leikarinn mundi aldrei festa ráð sitt. 16.10.2010 12:15
Hressileg unglingaskemmtun Kvikmyndin Órói var frumsýnd á fimmtudagskvöld í Sambíóunum við Álfabakka. Aðstandendur myndarinnar mættu að sjálfsögðu á svæðið og voru í sannkölluðu hátíðarskapi. 16.10.2010 11:00
Flottir gestir á frumsýningu Ný stuttmynd eftir hönnuðinn Ásgrím Má Friðriksson var frumsýnd við mikinn fögnuð í versluninni Kiosk á fimmtudaginn var. Ásgrímur er líklega þekktastur sem fatahönnuður en hann stundar nú nám við Kvikmyndaskóla Íslands. Hann er einnig einn af eigendum verslunarinnar Kiosk sem selur einstaka íslenska hönnun eftir unga og efnilega hönnuði. 16.10.2010 10:00
Ég er þakklátur fyrir að vera þar sem ég er í dag Enski tenórinn Paul Potts syngur á jólatónleikum Björgvins Halldórssonar í desember. Potts ræddi við Fréttablaðið um feril sinn, nýja plötu og förina til Íslands. 16.10.2010 08:00
Bjórinn felldi Finna, ekki Andra Finnski fréttamaðurinn Kimmo Wilska var á dögunum rekinn úr starfi sínu sem fréttaþulur eftir að hann sást taka sér sopa af bjór eftir að hafa lesið frétt sem fjallaði um áfengislöggjöfina í Finnlandi. 16.10.2010 07:00
Bjó sig undir hið versta Breska söngkonan Cheryl Cole gerði erfðaskrá þegar hún glímdi við alvarleg veikindi í sumar. Cole greindist með malaríu eftir að það leið yfir hana í myndatöku og segist hún sjálf hafa haldið að hún mundi deyja. 16.10.2010 06:00
Kani í völundarhúsi The American er falleg og djörf mynd sem tekur tíma að melta. Þeir sem vilja hasar verða vonsviknir. 16.10.2010 06:00
Borðar afganga og léttist Leikkonan Brooke Shields, 45 ára, heldur sér í formi með því að borða afgangana hjá börnunum sínum. Brooke, sem á tvær dætur með eiginmanni sínum, rithöfundinum Chris Henchy, Rowan Frances, 7 ára, og Grier Hammond, 4 ára. Spurð út í líkamlegt form hennar svaraði Brooke að hún skammtaði sér aldrei á disk heldur borðar hún alltaf afganga stúlknanna. Tvö börn hjálpa þér að halda þér í góðu formi. Þú borðar minna. Í minu tilfelli klára ég alltaf matinn þeirra sem þýðir að ég borða aldrei heilan skammt," sagði Brooke. Svo reyni ég að ganga hvert sem ég fer. Ég tek örsjaldan leibubíl. Það er mikilvægt að hreyfa sig eitthvað á hverjum degi." 15.10.2010 15:00