Skólakrakkar misstu af Ham 16. október 2010 18:15 Elvar Geir og nemendur hans úr Reykjanesbæ misstu af rokksveitinni Ham. „
Þetta var bara hræðilegt," segir Elvar Geir Sævarsson úr hljómsveitinni Hellvar. Fimm krakkar úr efstu bekkjum grunnskóla Reykjanesbæjar ætluðu að fylgjast með rokksveitinni Ham stilla saman strengi sína fyrir tónleika sína á Nasa á fimmtudagskvöld. Krakkarnir, sem eru í rokkáfanga hjá Elvari Geir, höfðu fengið leyfi hjá skipuleggjendum Airwaves til að fylgjast með einni af uppáhaldshljómsveitum sínum. En þegar Ham-liðar þurftu að fresta undirbúningnum um fjóra klukkutíma vegna borgarráðsfundar söngvarans Óttars Proppé urðu krakkarnir, sem höfðu gert sér sérstaka ferð til Reykjavíkur, fyrir miklum vonbrigðum. „Ég veit að þetta var ákveðið kvöldið áður en ég veit ekki í hverra verkahring var að láta vita af þessu," segir Elvar. Hann er sjálfur mikill Ham-aðdáandi og var mættur á tónleika sveitarinnar um kvöldið þrátt fyrir vonbrigðin fyrr um daginn. „Ég var með smá beiskt eftirbragð. Mér fannst þeir skömmustulegir uppi á sviði. Það var eins og þeir hefðu slæma samvisku," segir hann í léttum dúr og vill taka skýrt fram að hann og krakkarnir beri engan kala til piltanna í Ham. Söngvara Ham, Óttari Proppé, þykir þetta mál mjög leiðinlegt og kennir samskiptaleysi hjá skipulagsaðilum hátíðarinnar um. „Ég hef ekki hugmynd um hvar í ferlinu þetta fór úrskeiðis en við viljum endilega bjóða þeim á næsta „sándtékk", hvenær sem það verður."- fb
Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Sjá meira